Tíminn - 24.10.1986, Blaðsíða 19
Föstudagur 24. október 1986
Tíminn 19
lllllllllllllllllllllll HELGIN FRAMUNDAN ...................................................................................... ..... liillliliSi" ..........I.......... .............. .................................. ........................................ .......................... ...............................................I.....
Operan Tosca
Óperan Tosca eftir Puccini verð-
ur á stóra sviði Þjóðleikhússins á
láugardags- og sunnudagskvöld.
Laugardagssýningin var sett inn
vegna mikillar aðsóknar, en upp-
selt er á aðrar sýningar út mánuð-
inn. Kristján Jóhannsson fer í
þrjár vikur til Bandaríkjanna um
mánaðamótin vegna annarra
verkefna, en síðan hefjast sýn-
ingar á Toscu að nýju eftir miðjan
nóvember.
í aðalhlutverkum í Toscu eru:
Elísábet f. Einksdóttir (Tosca),
Kristján Jóhannsson (Cavar-
adossi) og Malcolm Arnold (Scarp-
ia). í öðrum helstu hlutverkum
eru: Viðar Gunnarsson (Ange-
lotti), Sigurður Björnsson (Spo-
letta), Sigurður Bragason (Sciar-
rone) Guðjón Óskarsson
(Djákninn) og Stefán Arngrímsson
(fangavörður). Auk þeirra taka
stór hljómsveit, Þjóðleikhúskór-
inn, drengjakór og aukaleikarar
þátt í sýningunni. Samtals er um
150 manns á sviði og í gryfju.
Við opnun sýningarinnar afhenti Magnús Kjartansson SÁÁ keramik-
verk að gjöf. Á myndinni veitir nýr formaður SÁÁ, Pjetur Þ. Maack,
verkinu móttöku. Verkið heitir „Áhyggjur".
GALLERÍ BORG
Nú stendur yfir „upphengi"
þeirra Magnúsar Kjartanssonar
og Jóns Axels Björnssonar á
málverkum í Gallerí Borg viöAustur-
völl, en þessari sýningu lýkur n.k.
þriðjudag.
Magnús sýnir fimm málverk, fjög-
ur þeirra undir gleri, og unnin með
blandaðri tækni, Auk þess sýnir
hann allmörg mónóþrykk.
Jón Axel sýnir fimm olíumálverk,
sem öll eru unnin á þessu ári. Allar
myndir þeirra tvímenninganna eru
til sölu.
Gallerí Borg er opið daglega kl.
10-00-18.00 og kl. 14-00-18.00 um
helgar.
íslenska óperan:
II Trovatore
Síðasta sýning á óperunni II
Trovatore verður í kvöld, föstud.
24. október kl. 20.00. 1 aðalhlut-
verkum eru: Kristinn Sigmunds-
son, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Hrönn Hafliðadóttir, Garðar
Cortes, Viðar Gunnarsson og
Elísabet Waage. Hljómsveitar-i
sjtóri er David Parry, en hann
stjórnaði einnig fjórum sýningum
í maí sl.
Á föstudagskvöld verður 12.
sýning á Uppreisn á ísafirði eftir
Ragnar Arnalds í Þjóðleikhúsinu,
— en hún hefur verið sýnd við
mjög góða aðsókn síðan 26. sept-
ember.
Uppreisn á ísafirði fjallar bæði á
gamansaman og áhrifamikinn
hátt um hin sögufrægu Skúlamál
og atburði sem þeir tengdust.
í helstu hlutverkum eru: Róbert
Amfinnsson, Randver Þorláksson,
Kjartan Bjargmundsson, Lilja Þór-
isdóttir, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir og Helgi Skúlason. Leik-
stjóri var Brynja Benediktsdóttir og
leiktjaldahönnuður Sigurjón Jó-
hannsson. Næsta sýning verður á
föstud. kl. 20.00.
Leiksýning í Hlaðvarpanum:
Veruleiki
Sýningar verða laugardginn 25.
okt. og sunnud. 26. okt. kl. 16.00
báða dagana á leikritinu „Veru-
leiki" eftir Súsönnu Svavarsdóttur
í Hlaðvarpanum Vesturgötu 3.
Leikstjóri er Helga Bachmann,
en leikendur: Ragnheiður
Tryggvadóttir og Guðný Helga-
dóttir.
Aukasyning í Iðnó á laugard. kl. 15.00:
„Gönguferð um skóginn"
Vegna fjölda áskorana hefur
Leikfélag Reykjavíkur ákveðið að
endurtaka leikritið „Gönguferð
um skóginn" sem flutt var tvíveg-
is í tengslum við fund þeirra
Gorbatsjovs og Reagans. Hér er
um að ræða nýtt, bandarískt
leikrit eftir Lee Blessing um friðar-
viðræður stórveldanna, þar sem
aðalpersónur eru leiðtogar
Bandaríkjanna og Sovétmanna í
afvopnunarviðræðum í Genf.
Það eu þeir Gísli Halldórsson
og Þorsteinn Gunnarsson sem
leika Sovétmanninn Botvinnik og
Bandaríkjamanninn Honeyman.
Verkið er flutt í sviðsettum leik-
lestri í þýðingu Sverris Hólmars-
sonar. Leikstjóri er Stefán Bald-
ursson. Sýningin verður kl. 15.00
á laugard. í Iðnó.
Myndin er tekin þegar Þjóðleikhúsið upplýsir hver sé höfundur
Ieikritsins „Uppreisnin á ísafirði", - og höfundurinn, Ragnar
Arnalds, sést þarna með leikurumí lok leiksins. ( |
Sýningar Þjóðleikhússins helgina 24.-26. okt.:
Uppreisn á ísafirði
Pétur Halldórsson
í Listasafni ASÍ
Síðasta sýningarhelgi
Nú stendur yfir málverkasýning
Péturs Halldórssonar í Listasafni
ASÍ, Gresásvegi 16, efstu hæð.
Þetta er fyrsta einkasýning Péturs
og eru á henni 25 myndir, aðallega
olíu- og akrýlmálverk.
Sýningin er opin virka daga kl.
16-20, en laugardag og sunnudag
kl. 14-22. Sýningunni lýkur 26.
október. Kaffiveitingar um helg-
Karólína
Lárusdóttir
- sýnir á Kjarvalsstöðum
Á morgun laugard. 25. október
kl. 14.00 opnar Karólína Lárus-
dóttir sýningu í Vestursal Kjar-
valsstaða. Sýnd verða olíumál-
verk, vatnslitamyndir og grafík-
myndir. Öll verkin eru unnin á
síðasta ári.
Karólína er fædd í Reykjavík
1944. Eftir stúdentspróf frá MR
hélt hún til myndlistarnáms í
Bretlandi. Hún útskrifaðist frá
Ruskin listaskólanum í Oxford
árið 1967, og nam síðan við Bark-
ing College of Art í London með
ætingu sem aðalgrein til 1977.
Hún er búsett í Englandi síðan á
námsárunum og vinnur þar að list
sinni. Hefur einnig stundað
kennslu og haldið fyrirlestra um
myndlist víðs vegar.
Þessi sýning er sjötta einkasýn-
ing Karólínu, en einnig hefur hún
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Hún er meðlimur í „The Royal
Society of Painter-Etchers and
Engravers".,
Sýningin er opin daglega
kl.14.00-22.00 og lýkur 9. nóv.
Eitt af verkum Karólínu Lárus-
dóttur „Vegurinn", sem ermálað
með olíu á striga 1986.
Frá leikstarfsemi Leikfélags Sólheima
Leiklist í Sólheimum í Grímsnesi
Vígt nýja íþrótta-
og leikhúsið
Fyrsta vetrardag, eða laugard.
25. október, fer fram á Sólheimum
í Grímsnesi formleg vígsla hins
nýbyggða íþróttaleikhúss með
frumsýningu Leikfélags Sólheima
á bellettinum Rómeó og Júlía við
tónlist Sergei Prókofíevs.
Á s.l. ári hefur veglegt hús risið
á Sólheimum í Grímsnesi, svokall-
að íþróttaleikhús. Er það byggt
fyrir söfnunarfé Sólheimagöng-
unnar á s.l. ári. Húsið er 375 m að
grunnfleti á tveimur hæðum. Á
jarðhæð eru þrjár vinnustofur fyrir
vistmenn auk kaffistofu. Á efri
hæð, sem gengið er inní af jafn-
sléttu frá Sólheimahúsinu, er and-
dyri, búningsklefar og 250 m’
salur. Þar verður aðstaða til
íþróttaiðkana, leiklistarstarfsemi
og samkomuhalds.
Leiklist hefur löngum verið snar
þáttur í starfsemi Sólheima, en
allt frá fyrstu starfsárum heimilis-
ins hefur leiklist verið notuð í
meðferðarstarfinu. Aðstaða hefur
hins vegar verið erfið hingað til
vegna húsnæðisleysis.
Leiksýningin Rómeó og Júlía er
annar liður vígsluhátíðarinnar,
sem hófst með veglegu íþrótta-
móti, Sólheimaleikunum 1986, í
lok ágúst s.l. Vígsluhátíðinni lýkur
með aðventuhátíð fyrsta sunnu-
dag í aðventu 30. nóvember.
Hátíðin laugardaginn 25. októ-
ber hefst með móttöku á jarðhæð
íþróttaleikhússins kl. 15.00. Leik-
sýningin hefst síðan kl. 16.00.
Fjögur leikrit
um helgina í Iðnó
Aukasýning verður kl. 15.00 á
laugardag á leikritinu „Göngu-
ferð um skóginn" eftir Lee
Blessing, þar sem þeir Gísli Hall-
dórsson og Þorsteinn Gunnarsson
bregða sér í gervi leiðtoga stór-
veldanna.
Land míns föður eftir Kjartan
Ragnarsson með tónlist Atla
Heimis Sveinssonar er sýnt á
föstudag kl. 20.30.
Svartfugl — síðasta sýning —
verður á Svartfugli á laugardags-
kvöldkl.20.30ogUppmeðteppið,
Sólmundur eftir Guðrúnu As-
mundsdóttur er sýnt á sunnu-
dagskvöld kl. 20.30.
Margrét Helga og Sigurður í hlutverkum Steinunnar og Bjarna í
Svartfugli.
Viðar Gunnarsson í hlutverki | Fernandos, umkringdur kórfé-
lögum.
Guðný Helgadóttir og Ragnheið-I
ur Tryggvadóttir.
Gísli Halldórsson og Þorsteinn
skóginn".
Gunnarsson í „Gönguferð um