Tíminn - 24.01.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 24. janúar 1987
Tíminn 5
Sjómannslaun hjá 60 útgerðarfélögum yfir milljón 1985:
Hæstu tekjur sjómanna
þreföld flugmannslaun
Ætla má að sumir þeirra sjó-
manna, sem háð hafa harða verk-
fallsbaráttu fyrir bættum kjörum að
undanförnu komi til með að hafa
eitthvað á 4. milljón króna í tekjur
á þessu ári og fjölmargir 1,5 til 2ja
milljóna króna tekjur, sé miðað þau
laun sem útgerðarfyrirtæki hafa
greitt sjómönnum sínum árið 1985,
samkvæmt upplýsingum í Frjálsri
verslun.
í lista yfir þau 100 fyrirtæki sem
liæst meðallaun grciddu á ársverk
1985 eru þau 60 fyrirtæki sem
greiddu einstökum starfshópum yfir
1 millj. króna að meðaltali nær
eingöngu útgerðarfyrirtæki.
Efst á listanum er Rækjustöðin á
Isafirði, sem greiddi 2.468 þús. krón-
ur að meðaltali á 13 ársverk sjó-
manna. Þess má geta að þarna er um
nær þrisvar sinnum hærri upphæð að
ræða en Flugleiðir hf. greiddi að
meðaltali fyrir 380 ársverk flug-
manna, sem var 854 þús. krónur -
um fjórfalt hærri upphæð en algeng-
ast var að útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækin greiddu að meðaltali á
ársverk fyrir vinnu í landinu og um
sex sinnum hærri upphæð en kaup-
félögin greiddu sínu starfsfólki að
meðaltali.
Alls sex fyrirtæki voru með yfir
2ja milljóna króna tekjur fyrir unnið
ársverk og um 14 til viðbótar mcð
1,5 til 2 milljónir. Yfirgnæfandi
meirihluti útgerðarfyrirtækja greiddi
yfir eina milljón króna á unnið
ársverk sjómanna þetta ár. Tekið
skal fram, að í framangreindum
tölum er allsstaðar miðað við heils
árs störf samkvæmt slysatryggðum
vinnuvikum, þannig að meðalfjölda
starfsmanna er deilt í heildarlauna-
greiðslur. Tveir sjómenn sem aðeins
ynnu hálft árið hvor skiluðu því t.d.
aðeins einu ársvcrki, en það á líka
við um þær tölur sem nefndar voru
til viðmiðunar.
Þau fyrirtæki sem skipa efstu sæti
listans eru: Rækjustöðin, Hrönn hf.
ísafirði, Ingimundur Ingimundar-
son, Samherji hf. Akurcyri. Gunn-
vör hf. ísafirði, Magnús Gamalíels-
son hf., Hilmir sf. Fáskrúðsfirði,
Torfnes hf. ísafirði, Hóhpadrangur
hf., Fáfnir hf. Þingeyri, Skagstrend-
ingur hf., Álftfirðingur hf. (Bessi)
Súðavík, Norðurtangi hf. ísafirði,
Baldur hf. (Dagrún) Bolungarvík,
Eldborghf. Hafnarfirði, Hólmaborg
hf., Siglfirðingur hf., Þróttur hf.
Grindavík, Súlur hf. Akureyri og
Faxi hf. Keflavík. Öll þessi fyrirtæki
greiddu yfir 1,5 milljónir króna á
unnið ársverk 1985, og í lang flestum
tilfelíum tekið fram að um sjómenn
sé að ræða. -HEl
Laxdalshús
opnar á ný
Nýverið undirritaði bæjarstjóri
Akureyrar fyrir hönd bæjarsjóðs
samning við Örn Inga Gíslason
-um 4caup á innréttingum og tækj-
um í Laxdalshúsi. Örn lngi mun
eins og undanfarin ár verða með
veitingarekstur í Laxdalshúsi, en
nú sem leigutaki hjá bænum. I
samtali við Örn Inga kont fram
að Laxdalshús er eitt af elstu
húsum á Akureyri, byggt árið
1795 og friðað samkvæmt B-
tlokki húsfriðunarlaga. Húsið
mun í vetur aðallcga verða opið
um helgar en þó geta einstakling-
ar og hóþar fcngið húsið til um-
ráða undir fundi eða veislur.
Einnig mun Laxdalshúsið vcrða
opið alntenningi til skoðunarx>g í
tengslum við það boðið upp á
einhvers konar menningu. „í því
santbandi mætti hugsa sér rnynd-
listasýningar, tónlistarflutning,
Ijóða- og húslestra, því ég mun
einbeita mér að því að hafa á
boðstólum efni scm hæfir eðli
hússins, en ekki eingöngu greiða-
sölu,“ sagði Örn Ingi Gislason.
-HÍA
Tímanum er ekki kunnugt um hvort þessar ungu konur eru einstæðar mæður eða ekki, en hlutfail einstæðra foreldra
fer sifellt hækkandi á íslandi.
Vinstrisósíalistar:
Framboð vinstra
megin við
Alþýðubandalagið
Laxdalshús á Akureyri
Skýrslur Tryggingastofnunar:
Einstæðum foreldrum
fjölgaði um 14%
væntanlega boöiö fram í Reykjavík og
Reykjanesi, segir Ragnar Stefánsson
- á aðeins tveimur
Stöðugt stærra hlutfall íslenskra
barna býr með einstæðu foreldri
sínu. samkvæmt skýrslum Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Á aðeins
tveim árum, 1983-85, fjölgaði ein-
stæðum foreldrum í kringum 730 og
börnum þeirra um tæplega 1 þúsund,
á sama tfma og fjöldi annarra barna-
fjölskyldna stóð í stað og börnum í
þeim fjölskyldum fækkaði í kringum
1 þúsund. Einstæðum foreldrum sem
fengu mæðra/feðralaun og börnum
þeirra fjölgaði í kringum 14% þessi
tvö ár þótt heildarfjöldi barna í
landinu stæði í stað.
í skýrslum T. R. kemur fram að
meðlag eða barnalífeyrir var
greiddur með um 13.770 börnum í
árslok 1985, eða um 18,4% af þeim
rúmlega 75 þús. börnum og ungling-
um í landinu sem þá voru 17 ára eða
yngri. Þar af voru börn foreldra sem
einnig fengu greidd mæðra/feðra-
laun um 8.150, sem var 960 fleiri en
tveim árum áður. Börnum foreldra
sem fengu greitt meðlag en ckki
mæðra/feðralaun hafi á hinn bóginn
fækkað nokkuð, sem gæti bent til
þess að þeim einstæðu foreldrum
árum, 1983-1985
sem tækju upp sambúð með öðrum
en hinu foreldrinu færi hlutfallslega
fækkandi.
Einstæðir foreldrar sem fengu
mæðra/feðralaun voru orðnir um
5.900 í árslok 1985. Þess má geta að
Þjóðskráin taldi þá rúmlega 800
fleiri á sama tíma og sömuleiðis börn
þeirra. Samkvæmt Þjóðskránni voru
aðrar barnafjölskyldur í landinu þá
um 30.550 og hafði fækkað um 200
á tveim næstliðnum árum. Hjónum
með börn hafði þó fækkað þrefalt
meira en sambúðarfólki hins vegar
fjölgað. „Ógift hjón“ eða einstæðir
foreldrar eru fyrirvinnur nær þriðj-
ungs allra barnafjölskyldna í land-
inu. Það hlutfall er þó mun hærra í
Reykjavík þarsem einstæðir foreldr-
ar eru forsvarsmcnn nærri því fjórðu
hverrar barnafjölskyldu en gift fólk
aðeins 65% barnafjölskyldna.
Scm dæmi um þróunina má nefna
að fjölskyldur með börn voru um
1.730 fleiri 1985 heldur en 6 árum
áður. Þar af hafði fjölskyldum hjóna
eða sambúöarfólks fjölgað um 400
en fjölskyldum einstæðra foreldra
um 1.330. -HEI
Vinstrisósíalistar boða til opins
l'undar nk. laugardag kl. 13.00 á
Hótel Borg, undir yfirskriftinni: Er
þörf á framboði vinstra megin við
Alþýðubandalagið ? Veröur þar rætt
um málcfnalegan og starfslegan
grundvöll fyrir framboði til Alþingis
og teknar ákvarðanir um hvert fram-
haldið verður.
NYJUNG I
B0RGARFIRÐI
- sjálfsviðgerðarþjónusta
Frá Magnúsi Magnússyni, fréttaritara Tímans,
Borgarfirði
Um sl. áramót jók Hjólbarða-
þjónusta Kristjáns starfsemi sína.
Fyrirtæki þetta hefur nú starfað í
tæp 2 ár. Nú hefur Hjólbarðaþjón-
ustan tekið á leigu 280 m2 iðnaðar-
húsnæði í iðngörðum Reykholts-
dalshrepps, við Reykholt.
Fyrirtækið sérhæfir sig í réttingum
og sprautun á bifreiðum, en athygl-
isverðasta nýjungin, á borgfirska
vísu, er svokölluð sjálfsviðgerða-
þjónusta, þar sem eigendur geta
komið inn með bifreiðar sínar og
gert við sjálfir. Á þetta við um styttri
inniveru svo sem bón, þvott, olíu-
skipti, svo og stærri viðgerðir, t.d. ef
menn hyggjast láta sprauta bíla
sína, en undirvinna þá sjálfir. Upp-
setning nýs sprautuklefa er nú lokið
hjá fyrirtækinu. Viðskiptavinimir
geta einnig fengið leigð verkfæri,
svo og keypt vinnu, ef þeir óska.
Umboð fyrir Suzuki mótor- og fjór-
hjól er einnig hjá hjólbarðaþjónustu
Kristjáns, en notkun fjórhjóla fer
nú ört vaxandi meðal bænda og
einstaklinga, hér í héraði.
„Þingmaður samtakanna á að
styðja baráttu verkalýðsstéttarinnar
fyrir stórhækkun launa og fyrir bar-
áttu hennar fyrir lífvænlegum laun-
um fyrir dagvinnu," sagði Ragnar
Stefánsson, jarðskálftafræðingur
scm er félagi í Vinstrisósíalistum í
samtali við Tt'mann.
Aðspurður hvort þeir tækju þá
ekki undir aðvaranir annarra verka-
lýðsleiðtoga um að há laun verka-
lýðsins leiöi til aukinnar verðbólgu
,sagði Ragnar að samtökin lcgðu
meira upp úr afkomu alþýðuheimil-
anna en tölum um verðbólgu.
„í öðru lagi er endurnýjun á
Alþingi og baráttan gegn bandaríska
hernum og í þriðja lagi mætti nefna
áherslu á aukið vægi félagslegra
þátta. Þá á ég við örorkubætur,
heilsugæslu o.s.frv. Þetta eru þau
megin verkefni sem þingmaður sam-
takanna mundi hafa. Og auðvitað
samstarf við þá hópa og samtök úti
í þjóðfélaginu, seni berjast fyrir
sömu markmiðum.
Enn cr ekki farið að ræða um
væntanlega fulltrúa samtakanna í
þingkosningum, en þar er af nógu að
taka. Persónulega teldi ég Birnu
Þórðardóttur t.d. mjög frambærileg-
an þingmann hér í Reykjavík, en
auk Reykjavíkur verður sennilega
boðið fram á Reykjanesi. En á-
kvörðun um hvort og livar verður
boðið fram, veröur sem sagt tekin á
fundinum á laugardaginn," sagði
Ragnar Stefánsson.
-phh