Tíminn - 24.03.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.03.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 24. mars 1987. Strætisvagnar Reykjavíkur í borgarstjórn: sjAlfstædismenn viua DRAGAÚR ÞJÓNUSTUNNI Sjálfstæðismenn vilja draga úr þjónustu Strætisvagna Reykjavík- ur við almenning. Á borgarstjórn- arfundi á fimmtudag var staðfest samþykkt stjórnar SVR um að draga úr tíðni strætisvagnaferða frá 1. júní til 1. september og tillaga minnihlutans um að falla frá fyrirhuguðum breytingum var felld. Því munu strætisvagnar ganga á 20 mínútna tíðni í sumar í stað 15 mínutna tíðni eins og verið hefur. Borgarfulltrúar minnihlutans Vegna eldsvoðans á Völlum í Mýrdal reið Rauði krossinn á vaðið með söfnun til styrktar fjölskyld- unni sem missti þar aleiguna. Rauði krossinn lét fyrstur af hendi rakna 100 þúsund krónur og mælt- ist til, að almenningur tæki þátt í aðstoðinni við heimilisfólk að Völlum. Nú hefur hin upphaflega upphæð fimmfaldast. Jón Ásgeirsson, framkvæmda- Meðalverð 86 vörutegunda í 7 matvöruverslunum í Vestmannaeyj- um reyndist um 7,6% hærra en meðalverð sömu vörutegunda í verslunum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt verðkönnun sem Verð- lagsstofnun gerði síðari hluta febrú- armánaðar. Meðalverðið í Eyjum var þó aðeins um 2% hærra en meðalverð sömu vara í litlum hverf- averslunum á höfuðborgarsvæðinu, tæplega 6% hærra en í stórum hverfaverslunum og tæplega 11% hærra en í stórmörkuðum á höfuð- borgarsvæðinu. Aðein lýsi, Ka- aberkaffi, Síriussúkkulaði og Dixan- þvottaduft fékkst á lægra meðalverði í Eyjum, en hinar 82 vörurnar voru dýrari þar. Verðlagsstofnun bendir á að þessi viðamikla könnun staðfesti það sem áður hefur komið fram,að fremur lítill verðmunur er milli verslana í Vestmannaeyjum. Ekki verði séð að nein verslananna 7 skeri sig úr að þessu leyti, sem bendi til þess að verðsamkeppni sé ekki ráðandi þátt- ur í verðlagningu í verslunum í Eyjum. Ef allar vörurnar hefðu verið keyptar á lægsta fáanlega verði hefðu þær kostað um 5.944 kr. en um 6.620 kr., eða um 11,4% hærra, ef allt hefði verið keypt á hæsta verði. Á algengustu matvörum var munur hæsta og lægsta verðs að meðaltali mun minni en þetta en nokkru meiri á hreinlætisvörum. Meðalverð allra vörutegundanna samtals var um 6.280 kr. í verslunun- um 7 í Vestmannaeyjum. í litlum hverfaverslunum á höfuðborgar- svæðinu var það um 6.160 kr., í stórum hverfaverslunum um 5.930 kr. og í stórmörkuðum um 5.660 krónur, eða um 620 kr. lægra en í Eyjum. Munurinn væri um 50 kr. gagnrýndu sjálfstæðismenn harð- lega fyrir að draga úr þessari þjón- ustu. Sigrún Magnúsdóttir sagði það greinilega mjög ákveðna tilhneig- ingu hjá sjálfstæðismönnum að draga úr allri þjónustu til þcirra er minna mega sín og hafa lítil efni, en hlaða þess í stað undir þá sem í góðum efnum eru. Samþykkt meirihlutans um að draga úr tíðni strætisvagnanna væri einn liður í þessari þróun. t>á væri eins og stjóri Rauða kross íslands, sagði að strax eftir fyrsta framlagið hafi deildir í Vík og á Kirkjubæjar- klaustri tekið til við söfnun og orðið vel ágengt. „Eitthvað af peningum kom nú líka hingað til okkur í beinum framlögum,“ bætti hann við. „Þegar ég taldi þetta saman var þetta orðið næstum hálf milljón sem safnast hafði. Maður vonar auðvitað að þetta komi í góðar þarfir.“ þj minni ef öl og gosdrykkir væru ekki teknir með, en verð á þeim mun hafa lækkað nokkuð í Eyjum síðan könnunin var gerð vegna lækkaðs flutningskostnaðar með Herjólfi. sjálfstæðismenn gleymdu öllum þeim fjölda ferðamanna sem þyrftu að treysta á þjónustu strætisvagn- anna í sumar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði samþykktina tryggja að hóp- ur fólks hætti að nota strætó. Tuttugu mínútna tíðni væri drop- inn sem fyllti mælinn. Hún sagði fjölgun bíla vera að miklu leyti afleiðingu lélegra almenningssam- gangna og benti á reynslu Arósar- búa þar sem fjöldi farþega 14 Á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni var fram- kvæmdastjórn félagsins hvött til að Verðlagsstofnun væntir þess að könnun sú sem hér um ræðir örvi verðskyn neytenda í Vestmannaeyj- um og efli samkeppni milli verslana þar. -HEI faldaðist eftir að almeningsvagna- þjónusta var stórbætt. Ef Reykja- vík væri borin saman við Árósa ættu farþegar að vera 18 milljónir, en eru nú 9 milljónir. Páll Gíslason sagðist nota þjón- ustu strætisvagnanna mikið og taldi hana mjög góða. Hann tók þó ekki afstöðu til ágætis fyrirhugaðra breytinga á tíðni strætisvagna- ferða, en greiddi atkvæði gegn tillögu minnihlutans um að fallið yrði frá fækkun. -HM hafa forgöngu um stofnun Lands- sambands aldraðra, sem sameini hliðstæð félög sem vinna að hags- muna- og velferðarmálum aldraðra því slíkt sameiginlegt afl sé vænlegt til að ná árangri. Fundurinn samþykkti einnig sam- hljóða að unnið yrði að því að örorkulaun í landinu verði aldrei lægri en lágmarkslaun skv. kjara- samningi Verkamannasambands ís- lands og að tekjutrygging skerðist ekki ef heildartekjur eftirlaunaþega og öryrkja fer ekki yfir skattleysis- mörk. Ennfremur að eftirlaunaþeg- ar og öryrkjar greiði ekki fasteigna- gjöld af íbúðum sem þeir búa sjálfir í. Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni á starfsemi félagsins í Sigtúni sem kallað hefur verið „Opið hús“ og var stjórn félagsins falið að finna framtíðarlausn á húsnæðismálum „Opins húss“. ABS Elsti verslunarbær á íslandi: Ólafsvík orð- in 300 ára verslunarbær Þjónusta við ferðamenn hef- ur verið efld stórlega Ólafsvík á 300 ára verslunar- afmæli þann 26. mars nk. en Ólafs- vík er fyrsti löggilti verslunarbær á íslandi. Afmælisnefnd Ólafsvíkur hefur ákveðið að halda upp á afmæli bæjarins þann 26. mars með sér- stakri hátíðadagskrá, en auk þess verður sérstök afmælisvika dagana 15. til 23. ágúst í sumar. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands mun koma í heimsókn fyrsta dag afmælis- vikunnar. Nýja félagsheimilið í Ólafsvík verður formlega opnað að kvöldi fyrsta dags afmælisvikunnar þar sem ýmislegt verður til skemmt- unar, svo sem leiksýningar, vikivakadansar, sýnd heimildar- mynd um Ólafsvík og fleira. Þess má geta sem dæmi um áhuga Ólafsvík- urbúa á afmæli staðarins, að kvenfél- agið er nú að sauma íslenska búning- inn á konur á staðnum til að vera í á afmælisvikunni. Mjög hefur nú verið bætt úr aðstöðu þeirri sem boðin er ferða- mönnum á Ólafsvík. Nýtt tjaldsvæði er komið innan við bæinn þar sem hreinlætisaðstaða er eins og best gerist, eldunaraðstaða og aðstaða til að þvo þvott í þvottavél. Gistiað- staða er einnig í Hótel Nesi. Komið hefur verið upp upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Ólafsvík þar sem fólki er leiðbeint um hvað hægt sé að skoða eða gera sér til afþreyingar og skemmtunar. Af því má nefna ferðir upp á Snæfellsjökul, sjóstangaveiði, bátsferðir, hestaferðir, golf og fleira. Nú er einnig boðið upp á svokallaða IT farmiða til Ólafsvíkur, sem inni- felur flug, hótel og framhaldsmiða milli staða á Snæfellsnesi með flugi eða áætlunarbílum. ABS Nær hálf milljón - hefur safnast hjá Rauöa krossinum Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni: VILL AD STOFNAD VERÐILANDSSAM- BAND ALDRADRA - sem sameini hagsmuna- og velferðarmál hlið- stæðra félaga í landinu Verðkönnun Verðlagsstofnunar í Vestmannaeyjum: UM 7-8% HÆRRA VERD í EYJUM EN REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.