Tíminn - 24.03.1987, Side 3
Félag íslenskra fræöa:
Samið um
miðnætti
- þegar boðað verkfall
átti að hefjast
Samningar tókust með Félagi
íslenskra fræða og ríkisins um
miðnætti aðfararnótt mánudags,
eða um það leyti sem boðað
verkfall átti að skella á.
Samningurinn er til tveggja ára
og áfangahækkanir út samnigs-
tímann eru á bilinu 17 til 18%.
Samningurinn nær til 32 manna
sem vinna einkum á Þjóðskjaia-
safni, Landsbókasafni og Þjóð-
minjasafni.
Samningurinn felur í sér
38.835,- króna lágmarkslaun en í
þeim flokki er raunverulega ekki
neinn vegna starfsaldurs þeirra
sent eru í þessum störfum.
Grunnröðun þess sem lægstur er
samkvæmt samningum þessunt
er um 45.000,- krónur. Samning-
urinn felur í sér endurskoðun á
starl'sheitum og endurröðun
þannig að fclagar fá mjög mis-
munandi hækkun samkvæmt
sanmingi þessum.
Félagsfundur var haldinn hjá
Félagi ísl. fræða eftir hádegi í gær
þar sem samningurinn var sant-
þykktur mcð 16 atkvæðum gegn
9 en tveir seðlar voru auðir.
Gísli Ragnarsson í samninga-
nefnd félagsins sagði aö hann
væri ekki ánægður með þennan
samning, en samningancfndin
hefði ákveðið að skrifa undir og
leggja tilboð ríkisins scm kom á
sunnudagskvöldið fyrir félags-
fund. Þar hefði niðurstaðan orðið
sú að þorri félagsmanna sætti sig
við tilboðið. ABS
Þriðjudagur 24. mars 1987.
Tíminn 3
Deila HÍK og ríkisins:
Kennarar og ríki
slíta viðræðum
- „tilboð ríkisins sama naglasúpan aftur og aftur“, segja kennarar
Samninganefndir ríkisins og
kennara slitu viðræðum klukkan
rúmlega tvö í gær, en þá sauð upp úr
viðræðum þeirra. Enginn fundur
hefur verið boðaður enda telja kenn-
arar að tilgangslaust sé, að halda
áfram viðræðum nema til komi
stefnubreyting hjá samninganefnd
ríkisins þess efnis að „ganga til
samninga", en kennarar telja sig
eina hafa reynt að nálgast samkomu-
lag.
Kristján Thorlacius formaður
FIÍK sagði að tilboð ríkisins væri
naglasúpa sem ekki tæki neinum
breytingum þótt hún væri borin fram
hvað eftir annað. Það sem strandaði
á væri launaliðurinn, því ríkið byði
kennurunt að hækka lægstu launin
með því að lækka þá kennara í
launum sem hefðu lengstan starfs-
aldur.
„Við sáum ljós um síðustu helgi
sem reyndist vera mýrarljós", sagði
Fleimir Pálsson varaformaður FllK
um þann umræðugrundvöll sem
skapaðist um síðustu helgi. Ríkið
vildi þá tala við kennara um nýtt
samningakerfi en kennarar telja að
ekki sé viturlegt að búa til slíkt kerfi
nú þegar verkfall er skollið á vegna
þess tíma sem slíkt gæti tekið. Ríkið
hefur boðið kennurum grunnlaun að
upphæð kr. 38.835,- en kennarar
segja að þeir hafi dregist aftur úr í
laununt lengi og þeir vilji því ekki fá
neinar áfangahækkanir sem dragi á
verðbólguna, heldur séu þeir að fara
fram á leiðréttingu launa sinna. Pcir
segjast jafnframt ekki ætla sér að
kvika í neinu frá kröfum sínum um
þær leiðréttingar því slíkt geti haft
alvarlegar afleiðingar þegar til fram-
tíðar er litið. Nú sé t.d. svo komið
að fella verði niður skylduáfanga í
tölvufræðum í heilum menntaskóla
vegna þess að enginn fæst til að
kenna þau fræði á þeim launum sem
í boði eru.
Fulltrúaráð HÍK segist vera reiðu-
búið hvernær sem er að taka upp
þráðinn á þeim grundvelli sem það
hefur lagt fram, en lýsa jafnframt
allri ábyrgð verkfallsins á hendur
fjármálaráðherra. ABS
Kjaradeila sjúkraþjálfa og ríkisins:
Enginn fundur
verið boðaður
Enginn fundur hefur verið boðað-
ur enn sem komið er í deilu sjúkra-
þjálfa og ríkisins frá því að verkfall
þeirra hófst á miðnætti aðfararnótt
19. mars. „Það er allt í biðstöðu,
ríkið virðist ætla að vinna með stóru
félögunum fyrst", sagði Guðrún Sig-
urjónsdóttir, en hún á sæti f sanin-
inganefnd fyrir hönd sjúkraþjálfa.
Guðrún sagði að sjúkraþjálfar hefðu
gert kröfu til 50 þúsund króna lág-
ntarkslauna en síðan hefðu þeir
slegið af. Einnig væri lögð mikil
áhersla á að yfirmannastöður yrðu
betur borgaðar, t.d. staða yfirsjúkra-
þjálfa á Landsspítalanum. Hingað
til hcfói gengið mjög illa að manna
þá stöðu vegna lágra launa. Grunn-
Iaun sjúkraþjálfa hjá ríkinu eru nú
tæplega 35 þúsund krónur en sjúkra-
þálfar hjá Landakoti og öðrum stöð-
um eru með um 20 til 40% hærri
laun. Sjúkraþjálfar sent vinna sjálf-
stætt eru með þaðan af hærri laun að
sögn Guðrúnar.
Sjúkraþjálfar sem starfa hjárfkinu
eru 22 og vinna á Landspítalanum,
og endurhæfingardeidum í Hátúni
og á Vífilsstöðum. Frá því að verk-
fall hófst hefur einn sjúkraþjálfi
verið á bakvakt fyrir nýburadeild og
barnadeild á Landspítalanum, annar
fyrir aðrar deildir á Landsspítalan-
um. Síðan er einn á bakvakt fyrir
Vífilsstaðaspítala og er neyðartilfell-
um eingöngu sinnt. ABS
Akureyri:
Árekstrar
✓
af and-
varaleysi
Flug til Akureyrar raskaðist
verulega unt helgina vegna
veðurs. Færð spilltist, skyggni
var slæmt og hált varð á vegum
vegna norðanáhlaupsins.
Að minnsta kosti 18 árekstrar
urðu á Akureyri um hclgina.
Flestir voru minniháttar samstuð,
en ökumenn virðast hafa verið
farnir að venjast sumarfærðinni í
bænum.
Um helgina greip lögreglan
þrjá ökumenn grunaða um ölvun
við akstur. Á Akureyri voru tveir
ökumenn teknirogeinn á Dalvík.
Á föstudagskvöld var fátt manna
á ferli í bænum vegna veöursins,
en lögreglan hafði hinsvegar oft
afskipti afólátum í heimahúsum.
þj
Aðalfundur MORFÍS var haldinn á Akureyri um helgina og var fjölmennur. Talsverðar lagabreytingar áttu sér'
s(ag ( líinainynd: Þór)
Aðalfundur MORFÍS:
2:1 reglan
felld niður
Fjölmennur aðalfundur
Mælsku- og rökræðukeppni fram-
haldsskóla á íslandi var haldinn í
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri um helgina. Bar þar helst til
tíðinda að hin umdeilda 2:1 regla
var felld niður að gefnu tilefni.
Heildarstigatala dómara mun
framvegis ráða úrslitum, en ekki
atkvæði þeirra.
Eins var stofnaður einskonar
Hæstiréttur keppninnar. Til hans
verður öllum túlkunaratriðum og
kærumálum skotið, enda dóms-
vald tekið úr höndunt fram-
kvæmdastjórnar, svo hún geti
einbeitt sér að framkvæmdar-
atriðum í framtíðinni.
Kosin var ný framkvæntda-
stjórn MORFÍS og tóku ný lög
þcgar gildi. þj
Guðmundur Björnsson
85 ára
Guðmundur Björnsson á Akra-
nesi er 85 ára í dag. Að loknu
kennaraprófi flutti Guðmundur til
Akraness og stundaði þar kennslu
um langa ævi. Guðmundur hefur
alla tíð verið starfsamur og félags-
lyndur. Ungur að árum skipaði hann
sér í raðir Framsóknarmanna og
hefur unnið flokknum giftudrjúgt
starf.
Guðmundur Björnsson var um
langt skeið umboðsmaður Tímans á
Akranesi og jafnframt fréttaritari
blaðsins og hefur ávallt borið hag
blaðsins fyrir brjósi.
Um leið og Tíminn sendir Guð-
mundi hamingjuóskir með afmælið
er honum þakkað langt og óeigin-
gjarnt starf í þágu blaðsins.
Guömundur Björnsson.
I STUTTll MALI
STEINGRÍMUR Hermanns-
son forsætisráðherra kom í
morgunkaffi í gærmorgun til ný-
ráðinna ritstjóra Tímans. Óskaði
hann þeim Indriða G. Þorsteins-
syni og Ingvari Gíslasyni alls
hins besta í nýju starfi. Myndin
sýnir hina nýju ritstjóra tvo ásamt
forsætisráðherra. Lengst til
hægri er Níels Árni Lund ritstjóri
sem gegna mun starfi sínu áfram
með þeim Indriða og Ingvari.
Á LOÐNUVERTÍÐ er nu buið
að veiða 1 milljón og 33 þúsund
tonn af loðnu og enn er til kvóti,
því að sum skip hafa farið eða
eiga eftir að fara í tvo túra. 2
bátar tilkynntu afla á laugardag-
inn með samtals um 1.170 tonn
og á sunnudeginum tilkynntu 7
bátar um afla, samtals um 4.140
tonn. í gærmorgun höfðu svo 3
skip með tæp 2.500 tonn tilkynnt
um afla.
Enn er ekkert hægt að segja um
hve mörg skip eru raunverulega
eftir við veiðar, þar sem sala á
kvóta og skipti hafa verið mikil.
Þó er vitað að 3 skip seldu sinn
kvóta algerlega og fóru aldrei á
veiðar.
VINNUSLYS varð um borð í
Mánafossi á föstudag meðan
skipið lá við bryggju á Akureyri.
Gámur slengdist til og lenti á
manni. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahús en ekki talið að hann
hafi slasast alvarlega.
FÉLAG framhaldsskóla mælist
til þess að allir framhaldsskóla-
nemendur þeyti bílhorn sín
klukkan 15.00 í dag, hvar sem
þeir eru staddir, í samfellt 2
mínútur, til að minna stjórnvöld á
hversu brýnt það er að deilan
leysist sem fyrst, því að ófremd-
arástand er nú í öllum framhalds-
skólum nema VÍ vegna kennara-
verkfallsins og lítil bjartsýni á
lausn á næstunni.
SLÖKKVILIÐ Hafnarfjarðar
var kvatt að Sævangi 35 á sunn-
udag þar sem eldur læstist í
bárujárnsklætt timburhús. Allt til-
tækt lið var sent á vettvang, enda
mikill eldsvoði.
Réykkafarar fóru inn í húsið og
gengu úr skugga um, að það
væri mannlaust. Slökkvistarfið
gekk greiðlega og tók klukku-
stund að ráða niðurlögum
eldsins. Eldsupptök eru enn
óljós, en rannsóknarlögreglan
hefur málið til athugunar. Miklar
skemmdir urðu á húsinu.
FYRIR FUND utanrlkisráð-
herra Norðurlanda sem haldinn
verður hér í Reykjavík dagana
25. til 26. þ.m. munu Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra og
Uffe-Ellemann Jensen utanrikis-
ráðherra Danmerkur eiga með
sér fund í utanríkisráðuneytinu
þar sem einkum verður rætt um
samskipti Islands og Evrópu-
bandalagsins, en danski utanrik-
isráðherrann tekur við for-
mennsku í ráðherraráði banda-
lagsins hinn 1. júlí n.k.
Af hálfu MatthíasarÁ. Mathiesen
utanríkisráðherra mun verða
lögð sérstök áhersla á að kynna
sjónarmið íslendinga varðandi
hugsanlegan skatt Evrópu-
bandalagsins á lýsi og jurtaolíu
en tillaga þar að lútandi er til
meðferðar hjá bandalaginu.