Tíminn - 24.03.1987, Side 7
Tíminn 7
Þriöjudagur 24. mars 1987.
llllllllliillllllllllllllll ÚTLÖND llllllllllllllllllll|[[lllljlljlllilijllllllM
Makaó verður
sameinað Kína
Pcking-Rcuter
Stjórnvöld Kína og Portúgals
komust að samkomulagi í gær um að
Portúgalar láti af hendi yfirráð sín
yfir hinni örlitlu nýlendu Makaó í
suðurhluta Kína. Henni hafa Port-
úgalar ráðið í meira en 400 ár.
Sameiningin færir stjórnina í Pek-
ing enn nær því marki að sameina
ÚTLÖND
allt Kína, samkomulag hefur þegar
tekist við bresku stjórnina um að
láta af yfirráðum yfir Hong Kong og
nú er það aðeins Formósa sem er
þymir í augum kínverska ráða-
manna.
Portúgalskir embættismenn sögðu
í gær að Makaó, sem er örlítið
landsvæði rétt hjá Hong Kong, færi
undir stjórn Kínverja þann 20. des-
ember árið 1999 og þar með væri
gengið að kröfum þeirra um að
landsvæðið yrði kínverskt fyrir alda-
mótin.
Sameining Makaós við Kína kem-
ur þarlendum stjórnvöldum ekki
eins mikið að fjárhagslegum notum
og tilvonandi yfirráð yfir Hong Kong
en málið mun allt vera mjög tákn-
rænt fyrir Kínverja sem líta á að með
því að taka yfir þessi landsvæði sé
Pakistan:
verið að gera upp við fortíðina.
Líklegt er talið að hið kapítalíska
efnahagskerfi sem verið hefur við
Iýði í Makaó fái að halda sér í
samræmi við orðtak Dengs Xiaop-
ings leiðtoga Kína um „eitt ríki, tvö
kerfi“. Hinn 83 ára gamli Deng
hefur sagt að hann vonist til að Kína
verði sameinað áður en að dauða
hans kemur. Nú er aðeins Formósa
eftir að þeim landsvæðum sem Kín-
verjar hafa gert tilkall til.
Viðbrögð sumra af hinum 400
þúsund íbúum Makaós voru yfirleitt
frekar jákvæð í gær. Reyndar hafa
viðræður um sameininguna staðið
yfir síðan í júní á síðasta ári og
tilkynningin kom því ekki á óvart.
Að auki gera flestir ekki ráð fyrir svo
miklum breytingum á högum sínum
í kjölfar yfirtöku Kínverja.
Kjarnorkuhugleið-
ingar forseta
vekja athygli
New York-Rcutcr
Pakistanar gætu búið til kjam-
orkusprengju „hvenær sem þeir
óska“. Þetta var haft eftir Moham-
med Zia Ul-Haq forseta Pakistans í
gær.
Það var tímaritið Time sem átti
viðtal við Zia og þar sagði hann
Pakistana hafa tækniþekkingu til að
smíða kjarnorkuvopn. 1
Forsetinn sagði hinsvegar að
stjórn sín hefði ekki í hyggju að gera
slíkt og gaf loforð um að Pakistanar
væru ekki viðriðnir kjarnorkuvopna-
tilraunir.
Þær þjóðir sem viðurkennt hafa
að eiga kjarnorkuvopn eru Banda-
ríkin, Sovétríkin, Bretland, Frakk-
land og Kína.
Um sambandið milli Pakistans og
nágrannaríkisins Indlands sagði Zia
að báðir aðilar vildu að það væri
betra því það væri í hvorugra þágu
að fara í stríð. „En það er ekki hægt
að útiloka árekstra, hvort sem til
þeirra er stofnað af ásettu ráði eður
ei,“ sagði Zia.
Mohammed Zia Ul-Haq forseti Pak-
istans: í kjarnorkuhugleiðingum
Verðlaun Bresku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar:
HERBERGIMEÐ ÚTSÝNI
VALIN BESTA MYNDIN
Lundúnir-Rcutcr
Breska kvikmyndin Herbergi
með útsýni, eða „A Room with a
View“ eins og hún heitir á frum-
málinu, bætti enn einni skrautfjöð-
ur í hatt sinn um helgina þegar
Breska kvikmynda- og sjónvarps-
akademían útnefndi hana sem
bestu mynd síðasta árs.
Herbergi með útsýni er byggð á
samnefndri sögu E.M. Fosters er
fjallar um ástir ungmenna sem
ekki fá að blómstra vegna siða-
reglna sem tengdust tíma Játvarðar
7. Bretakonungs.
Leikkonurnar Maggie Smith og
Judi Dench hlutu báðar verðlaun
fyrir leik sinn í þessari kvikmynd.
Bob Hoskins var aftur á móti
valinn besti karlleikarinn fyrir hlut-
verk smáglæpamanns sem lendir í
að verða aðstoðarmaður ungrar
vændiskonu í Lundúnarborg í
þeirri ágætu mynd „Mónu Lísu“.
Bandarfski kvikmyndagerðar-
maðurinn og grínfuglinn Woody
Allen fékk tvenn verðlaun í hófinu
sem Breska kvikmynda- og sjón-
varpsakademían hélt. Hann var
valinn besti leikstjórinn auk þess
sem hann átti besta handritið fyrir
myndina um Hönnu og systur
hennar.
Þá var Ray Mcanally valinn besti
karlleikarinn í aukahlutverki fyrir
túlkun sína á kardinálanum í „The
Mission" sem nú er sýnd í einu
kvikmyndahúsa Reykjavíkurborg-
ar.
Yfirkjörstjórnin í
Suðurlandskjördæmi
tilkynnir:
Framboðsfrestur vegna Alþingiskosninga 25.
apríl n.k. rennur út 27. mars n.k.
Listum til framboðs í Suðurlandskjördæmi ásamt
samþykki frambjóðenda og listum með tilskildum
fjölda meðmælenda ber að skila til yfirkjörstjórnar,
sem tekur á móti framboðum á skrifstofu sýslu-
mannsins í Árnessýslu að Hörðuvöllum 1, Selfossi
föstudaginn 27. mars n.k. frá kl. 20.30 til kl. 24:00.
Einnig þarf að leggja fram ósk um listabókstafi.
Framboðslistar verða síðan úrskurðaðir á fundi
yfirkjörstjórnar sem haldinn verður á sama stað
laugardaginn 28. mars n.k. kl. 14.00.
Yfirkjörstjóri í Suðurlandskjördæmi
Kristján Torfason
Jakob J. Havsteen, Pálmi Eyjólfsson
Magnús Guðbjarnarson, Stefán A. Þórðarson.
Víðistaðasvæði
kynningarfundur
I samræmi við skipulagslöggjöf er nú til sýnis á
bæjarskrifstofum Hafnarfjarðar tillaga að breyttu
skipulagi Víðistaðasvæðis. Athugasemdum við
skipulagið skal skila fyrir 7. maí 1987. Kynningar-
fundur verður haldinn í Víðistaðaskóla fimmtudag-
inn 26. mars kl. 20.30.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
«v
TÓNLIST4RSKÓLI
KÓPtNOGS
Alfhúlsveg 11 Pústhúlf 149 Slmi 410 66
Aðrir vortónleikar skólans verða haldnir í salnum
Hamraborg 11,3. hæð miðvikudaginn 25. mars kl.
20.30.
Skólastjóri
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
loftskeytamann / símritara / ritsímaritara
til starfa í Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá stöðvarstjóra
Pósts og síma í Vestmannaeyjum.
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Okeypis þjónusta