Tíminn - 24.03.1987, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 24. mars 1987.
Tíminn 9
VETTVANGUR 111
Valdimar Guömannsson, Bakkakoti, A-Hún.
Þeir gleyma okkur aftur
Þá cr Þjóðarflokkurinn orðinn
að veruleika, stofnaður uf áhuga-
mönnum í samtökum unt jafnrétti
á milli landshluta ásamt fáeinum
óánægðum einstaklingum úr gömlu
flokkunum, sem þótti ekki gert
nógu vel við sig á framboðslistum
flokka sinna. Reynt er eftir fremsta
megni að telja fólki trú um að allt
sé þetta gert af sérstakri umhyggju
fyrir landsbyggðinni.
Einn liður í þessari örvænt-
ingarfullu tilraun er afsögn for-
manns samtakanna eftir að hafa
misnotað aðstöðu sína við undir-
búning að stofnun nýs stjórnmála-
flokks. Ekki kæmi það undirrituð-
um á óvart þó það tæki þessa ágætu
menn enn styttri tíma að gleyma
tilganginum með stofnun Þjóðar-
flokksins heldur en það tók þá að
gleyma tilganginum og markmið-
inu með stofnun samtaka um jafn-
rétti milli landshluta.
Það er því mín niðurstaða, eftir
að hafa velt þessum málum vel
fyrir mér, að stofnun Þjóðarflokks-
ins sé stærsta árás sem gerð hefur
verið á landsbyggðina, í það
minnsta síðan viðreisnarstjórnin
fræga fór frá völdum, því þarna er
að sjálfsögðu verið að drepa niður
áður stofnuð landsbyggðarsamtök,
sent hefðu getað unnið gott verk
fyrir áframhaldandi byggðastefnu
og veitt öllunt flokkum nauðsyn-
legt aðhald.
Það virðist því vera full ástæða
fyrir landsbyggðarfólk að þjappa
sér enn betur saman um Framsókn-
arflokkinn í komandi kosningum.
því eins og öllum ætti að vera
Valdimar Guðmannsson.
kunnugt hefur enginn stjórnmálaf-
lokkur reynst okkur betur í lands-
byggðarpólitíkinni, enda sannaðist
það rækilega á flokksþingi síðast
liðið haust að það eru landsbyggð-
armenn sem ráða yfir flokknum,
svo glæsilegur var kosningasigur
okkar, þegar kosið var í miðstjórn
flokksins.aðsumum þótti nógum.
Við kjósendur á Norðurlandi
vestra vil ég segja:
Við skulurn ekki misnota at-
kvæði okkar 25. apríl með því að
kjósa flokka sem fyrirfram er vitað
að koma ekki nianni að í kjördæmi
okkar, heldur eru eingöngu að
hugsa urn að bæta stöðu sína á
landsvísu og fjölga þingmönnum
sínum í einhverju (iðru kjördæmi.
cf þeir þá yfirleitt koma einhvers
staðar að manni.
Því skuluni við fylkja liði um
Framsóknarflokkinn og gera kosn-
ingu hans sent glæsilegasta í þessu
kjördæmi, og veita honum þar
með umboð til að halda við því
uppbyggingarstarfi sem hófst með
ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar
sem tók við völdum eftir tólf ára
niðurrifsstarf viðreisnar.
Kjósum fólk sem hefur þorað að
eiga hér heima þó á móti hafi
blásið.
Endursendum flóttamennina að
sunnan, sent dubbaðir hafa verið
upp á framboðslista hjá hinum
flokkunum, suður aftur.
Kjósum B-listann 25. apríl næst
komandi og leggjum okkar af
mörkum til að konta í veg fyrir
nýja viðrcisnarstjórn.
Opið bréf til þín
- ýmsar mistúlkanir og rangfærslur
Nú stendur yfir verkfall Hins
íslenska kennarafélags. Ýmislegt
er því sagt og skrifað um laun og
störf kennara. Sem beturfervirðist
að flestir séu sammála um að bæta
þurfi kjör kennara og þá ekki
þeirra vegna heldur til þess að hæft
fólk haldist í stéttinni. Því miður
eru kennarar þó allt of oft niður-
lægðir með spurningunni um hvort
þeir vinni fyrir launum sínum og
það jafnvel dregið í efa.
Undanfarið hafa birst í dagblöð-
um ýmsar greinar um kaup og kjör
kennara, og þar hafa oft komið
fram ýmsar rangfærslur og ýmis
leikur að tölum sem okkur finnst
nauðsynlegt að leiðrétta.
Fimmtudaginn 12. mars birtist
grein í Morgunblaðinu undir fyrir-
sögninni „Byrjunarlaun kennara
verði 61.319 kr. á mánuði“. í
greininni stóð .....Byrjunarlaun
kennara utan persónuuppbótar og
annarra álaga eru nú 33-34 þúsund
krónur á mánuði“. (leturbreyting-
ar eru höfunda).
Það rétta er hins vegar að:
Byrjunarlaun grunnskóla-
kennara eru 32.851 kr. samkvæmt
launatöflu ríkisstarfsmanna
BHMR og BK, 1. desember 1986,
flokkur 136 miðað við 148 stig,
miðað við þriggja ára háskóla-
menntun.
Persónuuppbót fá allir ríkis-
starfsmenn greidda í desember.
Sama upphæð er fyrir hvern og
einn, óháð þeim launaflokki sem
viðkomandi er í. Tekið skal fram
að til að fá persónuuppbót þurfa
menn að hafa unnið í að minnsta
kosti eitt ár hjá ríkinu, þannig að
hún leggst ekki á byrjunarlaun
kennara. Persónuuppbótin var í
desember ’86 kr. 7641.
Annað álag. Það álag sem greitt
er kennurum er heimavinnu yfir-
vinna (oft nefndir stílapeningar)
sem greitt er eingöngu þeim kenn-
urum sem kenna svokallaðar bók-
legar greinar til dæmis íslensku,.
stærðfræði og samfélagsfræði.
Kennarar sex ára barna fá aðeins
75% álags þess er þeir fengju við
að kenna öðrum árgöngum. Aðrir
kennarar sem kenna fög svo sem
íþróttir, myndmennt og hand-
mennt fá ekki þetta álag greitt.
Stílapeningar eru reiknaðar út
frá nemendafjölda, stunda-
fjölda og ákveðnum stuðli, 0,0025
Geta má þess aö eftir
15 ára starf er grunn-
skólakennari kominn á
hæstataxta, laun hans
eru þá kr. 45.320 á
mánuði. Má þá sjá að
það stenst ekki að
meðaldagvinnulaun
kennara séu 48-49
þúsund eins og kom
fram í grein í Morgun-
blaðinu föstudaginn
13. mars undir fyrir-
sögninni „Óbreytt
kennsluskylda en laun-
in hækki minna“.
klukkustundir. Dæmi: kennari í
fullu starfi kennir tveimur bekkjum
með 20 nemendum í hvorum,
samtals30vikustundirfærki. 1.971
á mánuði. (Sérkjarasamningur fyr-
ir grunnskóla grein 4.2.3.).
Kennurum er skylt að sinna
gæslu í frímínútum sem eru eins og
allir vita kaffihlé kennara. Laun
fyrir gæsluna er kr. 434 á mánuði.
Tekið skal fram að kennarar geta
ekki skorast undan þessari gæslu.
Þá er allt álag kennara upp talið.
Hæsti taxti
grunnskólakennara
Geta má þess að eftir 15 ára starf
er grunnskólakennari kominn á
hæsta taxta, laun hans eru þá kr.
45.320 á mánuði. Má þá sjá að það
stenst ekki að meðaldagvinnulaun
kennara séu 48-49 þúsund eins og
kom fram í grein í Morgunblaðinu
föstudaginn 13. mars undir fyrir-
sögninni „Óbreytt kennsluskylda
en launin hækki minna".
Ef til vill gerir fólk sér ekki grein
fyrir þeirri vinnuaðstöðu sem
kennarar búa við. f fæstum skólum
er sköpuð vinnuaðstaða, það er að
segja húsrúm, næði, verkfæri og
önnur gögn til að vinna þá vinnu
utan beinnar kennslu sem eru 13,25
tímar á viku samkvæmt kjarasamn-
ingi. Kennarar þurfa því að hafa
aðstöðu heima fyrir þar sem þeir
sinna undirbúningsvinnunni. Hing-
að til hafa kennarar ekki fengið
greitt fyrir lánað húsnæði né heldur
ritföng og þær fræðibækur sem þeir
óhjákvæmilega þurfa að hafa til að
geta undirbúið sig og fylgst rneð
nýjungum.
Vinnutími grunnskólakennara
miðað við fulla kennslu er 45,75
klukkustundir á viku. Venjuleg
dagvinna er 40 klukkustundir á
viku. Þá sést að kennarar vinna
5,75 stundir framyfir dagvinnu en
samkvæmt kjarasamningum greið-
ist sú vinna mörgum mánuðum
seinna sem sumarlaun.
Við samningu þessarar greinar
höfðum við úr mörgum villandi
blaðagreinum að velja, umræddar
greinar eru því ekkert einsdæmi.
Með von um að hafa leiðrétt
einhverjar rangfærslur og ranghug-
myndir um laun kennara.
Anna Björg Svcinsdóttir
Guðbjörg Emilsdóttir
VÖTN OG VEIÐI
Kortagerð um skilyrði
til fiskeldis í landinu
Á vegum Orkustofnunar er verið
að vinna að viðamiklu verkefni þar
sem er heilstætt yfirlit yfirnáttúruleg
skilyrði til fiskeldis á ýmsum stöðum
á landinu. í fyrstu umferð verða
tekin fyrir takmörkuð landssvæði,
en síðar er ætlunin að fara víðar um
landið þegar fjármagn fæst til þess.
Þetta kom fram í erindi. sem Ólafur
G. Flóvenz flutti á ársfundi Orku-
stofnunar 18. mars sl.
Athyglisvert er að mennn binda í
þessu sambandi vonir við að takast
megi að finna heitt vatn á svæðum
þar sem það hefur ekki verið talið
vera fyrir hendi. I því sambandi má
t.d. nefna V-Skaftafellssýslu. Þetta
er gert með könnun á eðlisviðnámi
jarðar á rannsóknarsvæðunum, en
lágt viðnám er vísbending um aö
jarðhiti sé fólginn í jörðu þótt lítið
sem ekkert kunni að sjást á yfir-
borði.
Orkustofnun fékk til þessara hluta
10 millj. kr. á fjárlögum 1987, en alls
mun framlagið til verkefnisins nema
um 16 millj. kr., þar sem sveitarfélög
og aðrir hagsmunaaðilar munu
leggja fram fé í framkvæmdina.
Upphafleg tillaga Orkustofnunar var
mun víðtækari, en unnt verður að
ráðast í, vegna minni fjárveitingar til
verkefnisins en vonast var eftir. Þau
svæði sem urðu fyrir valinu eru: Á
Suðurlandi, Árnes, Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslur, tvö svæði á
Vestfjörðum; Tálknafjörður og Inn-
Djúp og í Skagafirði.
Markmið verkefnisins er að vinna
og taka saman á einn stað öll helstu
gögn um jarðhita og ferskvatn á
ofangreindum landssvæðum þannig
að þeim sem áhuga hafa á að Ieggja
út í fiskeldi verði auðvelt að átta sig
á hvar náttúruleg skilyrði til slíkrar
atvinnustarfsemi eru best. Þetta verk
mun jafnframt auðvelda framhalds-
rannsóknir vegna ferskvatns- og
heitavatnsöflunar á einstökum jörð-
um á viðkomandi landssvæðum.
Rannsóknir í Flóanum miða að því
að kanna möguleika á að ná sjó úr
borholum á ströndinni til að þar
niegi stunda matfiskaeldi.
Vitað er að sumstaðar er skortur
á köldu vatni þar sem mikið magn af
heitu vatni er fyrir hendi. í þeim
tilvikum er mikilvægt að það takist
að finna kalt, heppilegt vatn, því
það er allt of kostnaðarsamt að
leggja um langan veg leiðslur fyrir
kalt vatn að varmasvæðunum.
Niðurstöður í þessu nauðsynlega
verkefni verða aðallega birtar í fornti
kort og taflna. Gert verður kort yfir
allar þekktar kaldar lindir sem
eitthvað kveður að og rennsli þcirra
og hitastig kannað. Á sama hátt
verður gert með jarðhitann. Áætlað
er að niðurstöður verksins liggi fyrir
um áramótin 1987/88.
Menn segja sjálfsagt að þegar sé
búið að reisa fjölda fiskeldisstöðva á
svæði þar sem bestu skilyrðin séu og
þess vegna nokkuð seint í rassinn
gripið að hefja slíkar rannsóknir,
sem hér er verið að greina frá. Þetta
kann að hluta til að vera rétt. En hitt
er ljóst, að nauðsynlegt er fyrir
okkur að fá heillegt yfirlit um þessi
efni á landinu. Það er ekki einungis
metnaðarmál, það er skylda okkar
að slík grunnþekking sé fyrir hendi.
Þá er vissulega gagnlegt að fá vitn-
eskju um hversu forðinn cr mikill á
þeim svæðum sem margar stöðvar
liafa risið, eins og t.d. í Ölfusi og á
Reykjanesi, til þess að koma í veg
fyrir að mikill vandi steðji að síðar,
þegar og ef menn fara að dæla liver
undan öðrum. Að síðustu en ekki
hvað síst er til þess að líta, að rnenn
telja að vænleg framtíð sé í fiskeldi
og fiskrækt hér á landi. Má því ætla
að áframhaldandi uppbygging verði
í fiskeldi, þó að einhver uppstytta sé
í hinni gríðaröru þróun á þessu sviði
um sinn.
eh