Tíminn - 24.03.1987, Page 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 24. mars 1987.
Hllllllllllllllllli ÁRNAÐ HEILLA '■: !:
85 ára
GUDMUNDUR
BJÓRNSSON
Akranesi
i.
Heiðursmaðurinn Guðmundur
Björnsson er 85 ára í dag. Vinir hans
og félagar samfagna honum á þess-
um degi. Þeim mun ríkari ástæða er
til þess, þar sem hann hefur með
óbilandi þreki, atgervi og trú á gildi
góðs mannlífs staðið af sér á síðustu
árum alvarleg áföll sem heilsa hans
hefur orðið fyrir. Og hann situr nú
keikur í öndvegi fjölskyldu og
frænda sem heilsa honum í tilefni
dagsins.
Ég veit ég mæli fyrir munn flestra
að það er bæði gaman og gott að
hafa átt Guðmund að samferða-
manni. Það er ekki síður ánægjulegt
fyrir okkur sem Guðmundur telur
eflaust í hópi yngri manna. Hann er
óvenju glaðlyndur maður, sívinn-
andi og vakinn yfir velferð lands og
lýðs. Guðmundur er mannvinur
góður, félagslyndur með ágætum og
hrókur alls fagnaðar á mannfundum.
Hann er líka einn þeirra íslendinga
sem vegna glæsileika og höfðings-
lundar vekja aðdáun hvar sem þá
ber að garði.
II.
Aldamótamennirnir létu ekki að
sér hæða. Bjartsýni, trúmennska,
áræði, festa og fjör hefur einkennt
lífsstarf þessa fólks. Guðmundur var
strax frá uppvaxtarárum í liðssveit
og síðar í fylkingarbrjósti þessara
baráttumanna sem helguðu krafta
sína og líf þeirri hugsjón að bæta
lífskjör fólksins í landinu og fegra
þjóðlífið. Að fylgja samvinnustefn-
unni var því sjálfsagður hlutur og
hann skipaði sér í raðir framsókn-
armanna sem völdu hann til mikil-
vægra trúnaðarstarfa. Og enn stend-
ur hann dyggan vörð um flokkinn og
Tímann.
En Guðmundur er líka einn þeirra
vökulu mann sem hugsa um velferð
og örlög fólks um víða veröld. Ógnir
tveggja heimsstyrjalda fengu mikið
á hann og við höfum oft rætt um vá
hins vitfirrta vígbúnaðarkapphlaups
samtímans. Það er heldur ekki í
anda hans að horfa uppá erlent
heimsveldi hreiðra æ betur um sig
hér á landi og sjá menn gera
hermang að hugsjón.
Þótt við Guðmundur stöndum nú
í sitt hvorum stjórnmálaflokki fara
pólitísk viðhorf okkar saman að
flestu leyti og okkur rennur til rifja
sú ógæfa félagshyggjufólksins að
geta ekki staðið þétt saman í fylk-
ingu gegn íhaldsöflunum.
III.
Guðmundur Björnsson er Hún-
vetningur, fæddur í Núpsdalstungu í
Miðfirði þann 24. mars 1902
Foreldrar hans voru Björn Jónsson
bóndi þar og Ásgerður Bjarnadóttir.
Guðmundur ólst upp í Núpsdals-
tungu í stórum systkinahópi. Þar var
mikið menningarheimili og búið
rausnarbúi á þeirra tíma mælikvarða,
Guðmundi er heimabyggðin ákaf-
lega hugstæð. Honum var það til að
mynda mikið kappsmál að Núpsdals-
tunga héldist í byggð þegar ljóst var
að ættmennin myndu ekki lengur
hafa þar búfestu. Það lætur áreiðan-
lega engan ósnortinn að koma þang-
að heim eða ganga upp öll Austur-
árgljúfrin inn að Kampsfossi eins og
ég gerði eitt sinn í fylgd með syni
Guðmundar. Guðmundur var þá að
heilsa upp á kunningja og vini vítt
og breitt um Miðfjörðinn, þar sem
hann er aufúsugestur á hverjum bæ.
Hugur Guðmundar hneigðist
fljótt til mennta. Hann stundaði
nám í alþýðuskólanum á Hvamms-
tanga 1918-1919 og gagnfræðapróf
tók hann frá Flensborgarskóla árið
1921. Að því búnu varð hann um
skeið farkennari í heimabyggð sinni,
sinnti um leið búinu að hluta og varð
frumkvöðull að menningar- og fram-
faramálum sveitarinnar. En þótt
Guðmundur væri elskur að átt-
högunum hvarf hann á braut til
frekara náms og nú í Kennaraskól-
ann og lauk kennaraprófi árið 1934.
Úr því lá leið hans á nýjar slóðir.
IV.
Strax sama ár og Guðmundur
lauk kennaraprófi fluttist hann til
Akraness og gerðist þar kennari.
Akranes varð heimili hans og
starfsvettvangur æ síðan. En einmitt
um þetta leyti, eða árið 1934 varð
Guðmundur þeirrar gæfu aðnjótandi
að ganga að eiga óvenjulega mann-
kostakonu, Pálínu Þorsteinsdóttur
frá Stöðvarfirði. Hefur sambúð
þeirra fært þeim báðum mikla ham-
ingju, enda átt því láni að fagna að
eignast fimm óvenjulega vel gerð
börn: Gerði Birnu, Ormar Þór,
Björn Þ., Ásgeir og Atla Frey. Þau
hjónin bjuggu sér fagurt heimili,
þótt efnin væru ekki mikil í fyrstu og
reistu að ég hygg á árunum í kring
um 1950 af miklum myndarskap
húsið að Jaðarsbraut 9. Það hygg ég
hafa verið fyrir daga Sementsverk-
smiðjunnar eitt fegursta byggingar-
svæði í bæ á Islandi. Ber húsið að
Jaðarsbraut vott um mikla snyrti-
mennsku og smekkvísi.
Guðmundi þótti án efa mjög vænt
um kennslustarfið og stundaði það
af kostgæfni allt til ársins 1972.
Hann lét ekki við það sitja að sinna
fullri kennslu í barnaskólanum,
heldur sá hann um árabil um
íslenskukennslu í Iðnskólanum sem
fram fór á kvöldin. Ómældar frí-
stundir sínar helgaði hann svo félags-
málastarfi, bæði virkri þátttöku í
bæjarmálastarfi og málefnum kaup-
félagsins. Hann var um árabil um-
boðsmaður Tímans og um langt
skeið umboðsmaður Almennra
trygginga á Akranesi sem var anna-
samt starf.
V.
Það eru ófáir æskumenn sem hafa
fengið að njóta hinna miklu kennslu-
hæfileika Guðmundar. Fjölmargir
nemendur hans hafa lýst gildi og
gagnsemi þeirrar uppfræðslu sem
þeir nutu hjá Guðmundi. Þeir báru
mikla virðingu fyrir honum og tóku
hann sér til fyrirmyndar. Mættu
menn gjarna gefa því meiri gaum nú
á síðustu tímum hvers virði mikilhæf
kennarastétt er fyrir framtíð þess-
arar þjóðar og meta stéttina að
verðleikum.
Til vitnis um þá virðingu sem
Guðmundur naut meðal starfs-
bræðra sinna er að hann var kjörinn
heiðursfélagi Kennarafélags Vestur-
lands þegar hann lét af störfum.
Guðmundi hefur hlotnast margvís-
legur annar heiður og ber þar hæst
að forseti íslands, Vigdfs Finnboga-
dóttir, sæmdi Guðmund riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyr-
ir störf að fræðslu- og félagsmálum.
VI.
Við Hrafnhildur færum Guð-
mundi sérstakar hamingjuóskir á
afmælisdaginn. Um leið flytjum við
honum, frú Pálínu og fjölskyldunni
allri bestu þakkir fyrir tryggð og
vináttu í tvo áratugi. Við höfum
verið hálfgerðir heimagangar á Jað-
arsbrautinni þennan tíma og ætíð
verið tekið af sömu rausn og hlýju,
nú síðast í vetur þegar við áttum
þess kost að vera ásamt fjölskyld-
unni viðstödd þegar afhjúpuð voru
listaverk af þeim hjónum máluð af
Benedikt Gunnarssyni. Það sem ég
tók sérstaklega eftir þá sem endra-
nær var hve barngóður Guðmundur
er. Blíða hans og umhyggja fyrir
barnabörnum og barnabarnabörn-
um er einstök og til eftirbreytni eins
og svo margt annað í fari Guðmund-
ar. Mín börn hafa notið þess engu
síður en um afkomendur hans væri
að ræða. Það sýnir betur en flest
annað mannkosti þess öðlings og
stórhuga sem við hyllum í dag.
Baldur Óskarsson
ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun J
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN
é^clcL
Cl HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45Q.Q0
Effco
n gerir ekki við
biláða bíla
En hún hjálpar þér óneitanlega að halda bílnum
þínum hreinum og fínum, bæði að innan og utan
einhver sullar eða hellir niður. En
það gerir ekkert til þegar Effco
þurrkan er við hendina.
Já, það er fátt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
^effco-pumon
það er meira að segja svoiítið
gaman að þrífa með Effco þurrk-
unni. því árangurinn lætur ekki á
sér standa. Rykið og óhreinindin
leggja bókstaflega á flótta. þú getur
tekið hana með í ferðalagið eða
sumárbústaðinn. það er aldrei að
vita hverju maóur getur átt von á.
Oft er svigrúm lítið í tjaldi eða
sumarbústað, má því ekki mikið út
af bera til þess að allt fari á flot, ef
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og ,varahlutaverslunum.
1«
| Fleilds^la Höggdeyfír — EFFCO
fmi 73233'
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Jakobs Gíslasonar
fv. orkumálastjóra
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Borgarspítalans fyrir alúðlega
umönnun í veikindum hans
Sigríður Ásmundsdóttir
Gísli Jakobsson Johanne Jakobsson
Jakob Jakobsson Moria Jakobsson
Ásmundur Jakobsson
Aðalbjörg Jakobsdóttir Hallgrímur B. Geirsson
Steinunn Jakobsdóttir
+
Maðurinn minn og faðir okkar
Magnús Ágústsson
fyrrverandi héraðslæknir
er Iátinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Magnea Jóhannesdóttir og börn.
+
Eiginmaður minn
Hjalti Pálsson
Gyðufelli 4 Reykjavik
áður bóndi Stóru-Brekku Fljótum
varð bráðkvaddur föstudaginn 20. mars s.l.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þorbjörg Pálsdóttir