Tíminn - 24.03.1987, Qupperneq 20
Óvíst með skreiðarskuldir
Enn ríkir óvissa um heimtur á útistandandi skreiðarskuldum Islendinga
í Nígeríu. Sendinefnd á vegum banka og viðskiptaráuneytis sem fór til
Nígeríu mun á næstu dögum gera Matthíasi Bjarnasyni viðskiptaráð-
herra grein fyrír stððu mála. Sendinefndin kom heim í gær eftir funahöld
með fulltrúum frá Seðlabanka Nígeríu, viðskipta- og utanríkisráðuneyti
landsins. Þeir sem í sendinefndinni voru verjast allra frétta af málinu
þar til fundur hefur veríð með ráðherra og honum hefur verið gerð grein
fyrír málinu.
Heimildir Tímans segja skuldirnar vera í kringum 740 milljónir króna
og er um að ræða mörg óskyld mál sem nefndin aflaði sér upplýsinga
um í ferð sinni. Óhætt er að fullyrða að bjartsýni er ekki ríkjandi meðal
þeirra sem fóru til Nígeríu og sagði einn þeirra vandamálin gífurleg. -ES
^ ^ i ' • ivi/vrso
Tímirin
m
Kosningamálaskrá framsóknar samþykkt á aðalfundi miðstjórnar:
Til sigurs undir merkjum
frjálslyndis og framfara
Öfgalaust ísland, megininntak málaskrárinar
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins var haldinn á Sel-
fossi um helgina. Kosningamálaskrá
fyrir næsta kjörtímabil var samin og
kemur fram í henni einhugur mið-
stjórnarmanna Framsóknarflokks-
ins til þess að sækja fram til sigurs í
næstu kosningum undir merki frjáls-
lyndis og framfara, sem einkenndi
fundahöldin.
„Öfgalaust ísland“ er inntak kosn-
ingamálaskrárinnar. í fyrstu grein
segir m.a.: „Framsóknarflokkurinn
vill að jöfnuður og jafnrétti ríki,
hvar sem menn búa á landinu. Hann
vill standa vörð um velferð þjóðar-
innar og frelsi einstaklinga til at-
hafna. Flokkurinn vill þjóðfélag án
öfga til hægri eða vinstri.“
Sauðárkrókur:
Smyglvarn-
ingurfannst
í Skafta
Fréttaritari Tímans í Fljótum, Örn Fóraríns-
son:
Við tollskoðun í togaranum
Skafta, sem kom til heimahafnar
á Sauðárkróki í gærmorgun,
fundu tollverðir talsvert magn af
áfengi og bjór, einnig nokkuð af
hljómflutningstækjum. Nokkrir
úr áhöfn skipsins hafa viðurkennt
að eiga smyglvarninginn.
Skafti var að koma úr söluferð
frá Þýskalandi. Þrír lögreglu-
menn og tollvörðurinn á staðnum
fóru um borð til tollskoðunar að
sögn Björns Mikkaelssonar yfir-
lögregluþjóns á Sauðárkróki. Við
leit fundust nokkrir tugir kassa af
bjór og töluvert af áfengi. Lög-
regluvörður var um skipið í allan
gærdag en búist var við að hætta
þeirri stöðu í gærkvöldi þar sem
leit var að ljúka. Að öðru leyti
vildi Björn Mikkaelsson ekki tjá
sig um málið á þessu stigi, en
unnið er að nánari rannsókn þess
af fullum krafti hjá lögreglunni á
Sauðárkróki
Fjölmörg mál eru nefnd í
kosningamálaskránni, -að barist sé
gegn frumskógalögmáli frjálshyggj-
unnar, -að þjóðin standi vörð um
þann árangur sem náðst hefur í
efnahags- og kjaramálum, kjör
hinna lægst launuðu verði bætt og
komið á launajafnrétti kynajanna,
Frá og með deginum í dag geta
bílaeigendur á Suðurlandi og á Ves-
turlandi sem hafa fengið grænan
miða hjá bifreiðaeftirlitsmanni farið
á ákveðin verkstæði, látið gera við
það sem athugasemd hefur verið
gerð við og fengið um leið fullnaðar-
skoðun.
Þetta er byrjun á breyttri tilhögun
á árlegri bifreiðaskoðun og munu nú
um 40 verkstæði á landinu hafa
fengið löggildingu til að endurskoða
bíla sem fengið hafa grænan miða.
-að rfkissjóður verði rekinn halla-
laust, -að lífeyriskerfið verði sam-
ræmt og fjármunir þess ávaxtaðir á
heimaslóð, -að gert verði átak til að
bæta hafnir og flugvelli á grundvelli
langtímaáætlunar, að unnið verði
áfram að vegamálum á grundvelli
langtímaáætlunar, -að bætt verði
Þessi verkstæði munu verða tilbúin
á næstu dögum og vikum að taka á
móti bifreiðum til endurskoðunar.
Þá bíla sem fengið hafa rauðan miða
verður að koma með til endur-
skoðunar til bifreiðaeftirlitsmanns
að viðgerð lokinni. Þá skal þess
einnig getið að þessi breytta tilhögun
gildir ekki um atvinnubifreiðar.
Þau verkstæði sem fengið hafa
löggildingu eru úti um allt land,
nema á Vestfjörðum, Suðumesjum,
Vestmannaeyjum og A-Skaptafells-
aðstaða til íþróttaiðkana og tollar af
íþróttabúnaði felldir niður, -að fs-
lendingar hafi frumkvæði varðandi
útrymingu kjarnorkuvopna á Norð-
ur-Atlantshafi og taki þátt í barátt-
unni fyrir kjarnorkuvopnalausum
Norðurlöndum.
sýslu. Verkstæði á þessum svæðum
munu að öllum líkindum fá löggild-
ingu á næsta ári. Löggilding verk-
stæða fer fram að lokinni athugun
Bifreiðaeftirlits ríkisins í samvinnu
við Bílgreinasamband íslands.
f nýjum lögum um bifreiðarskoð-
un sem taka gildi 1. mars 1988 er
veitt heimild til þess að færa skoðun
bifreiða enn meira til verkstæða en
nú er gert með þessari breyttu tilhög-
un.
ABS
Sigurvegaramir.
Hægt og hljótt
fer til Belgíu
Lag Valgeirs Guðjónssonar
„stuðmanns“ var valið af fulltrú-
um allra kjördæma landsins í
beinni útsendingu sjónvarps til
keppni í Brússel 9. maí. Lagið
„Hægt og hljótt" verður framlag
íslands í söngvakeppni sjón-
varpsstöðva sem fram fer í Belg-
íu. Áður óþekkt söngkona, Halla
Margrét Árnadóttir, syngur
lagið.
Þjóðin var sammála um ágæti
lagsins ef marka má niðurstöður
dómnefnda. Alls fékk lagið 88*
stig af 96 mögulegum, og enga
einkunn undir tíu stigum.
Lag „Mezzofortestrákanna" -
Lífið er lag - varð í öðru sæti með
74 stig og stóð baráttan lengst af
inilli þessara laga. Nánari um-
fjöllun um kcppnina er á bls. 14
og textar við öll lögin eru birtir
þar. -ES
dagar
í reyklausa
daginn.
-ES
Frá aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins á Selfossi um helgina. Tímamynd Pjctur.
Breytt tilhögun á bifreiðaskoðun:
Endurskoðun bíla
á bílaverkstæðum
- fái bílar grænan miða, en aftur til bifreiðaeftirlits fái þeir rauðan
VILTU LAGA LÍNURNAR?