Tíminn - 03.03.1987, Page 1
ISTUTTU MALI
■ aa
TIU ARA gamall drengur liggur
nú lífshættuleaa slasaður á Borgar-
spítala eftir að hann varð fyrir bíl á
móts við Kaplakrika á Hafnarfjarðar-
vegi. Slysið átti sér stað síðastliðinn
þriðjudag um miðjan dag. Drengurinn
kom hjólandi á gangbraut og í veg fyrir
bíl sem ók suður Hafnarfjarðarveg.
Drengurinn slasaðist alvarlega og er
enn í lífshættu. Drengurinn hefurverið
meðvitundarlaus frá því að slysið varð.
UMSÓKN UM NÝJA út-
varpsstöð er nú á borðinu hjá útvarps-
réttarnefnd. Hluthafar í stöðinni eru
m.a. Ólafur Laufdal, veitingamaður,
Gunnlauaur Helgason, auglýsinga-
stofan Ljosir punktar, ÞorgeirÁstvalds-
son og fleiri. Útvarpsstöðin verður til
húsa að Sigtúni 3. Ekki er fulimótað
hver dagskrá útvarpsstöðvarinnar
verður en Ijóst er að fyrirhugað er að
hún sendi út allan sólarhringinn.
ÚTRÁS útvarpsstöð framhalds-
skólanna hefur nú tekið í notkun nýtt
hljóðver og hefur þá yfir tveimur hljóð-
verum að ráða. Hið nýja hljóðver var
formlega tekið í notkun í gær en það
er staðsett í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Hitt hljóðver útvarpsstöðv-
arinnar er staðsett í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti.
Á HÁTÍÐARSAMKOMU
sem haldin var í Háskólabíói síðastlið-
iinn laugardag voru brautskráðir 70
kandídatar frá Háskóla islands. 3 í
guðfræði, 3 í hjúkrunarfræði, 2 með
embættispróf í lögfræði, 2 með kandí-
datspróf í íslenskri málfræði, 1 með
kandídatspróf í íslenskum bókmennt-
um, 3 með kandídatspróf í sagnfræði,
17 með B.A próf í heimspekideild, 9
með kandídatspróf í viðskiptafræðum,
1 með lokapróf í byggingarverkfræði,
23 með B.S. próf úr raunvísindadeild,
1 með kandídatspróf í tannlækningum
og 14 með B.A. próf úr félagsvísinda-
deild.
Háskólakórinn söng á samkomunni
og einnig söng Gunnar Guðbjörnsson
einsöng við undirleik Guðbjargar Sig-
urjónsdóttur.
Auk brautskráningar kandídata fór
fram veiting heiðursdoktorsnafnbóta í
heimspekideild. Dr. Páll Skúlason for-
seti heimspekideildar lýsti kjörinu og
afhenti doktorsbréfin. Heiðursdoktors-
nafnbótina hlutu fjórir fræðimenn á
sviðum íslenskra fræða. Þessir fræði-
menn eru Hermann Pálsson, prófess-
or við háskólann í Edinborg, Oskar
Bandle, prófessor við háskólann i
Zurich, Peter Foote, prófessor emerit-
us frá University College í London, og
Theodore Anderson, prófessor við
Stanford-háskóla I Kaliforníu.
HINN 23. febrúar 1987 afhenti
Páll Ásgeir Tryggvason, sendiherra,
hr. Pierre Aubert, forseta Sambands-
ráðs Sviss, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Islands í Sviss.
KRUMMI
„Þetta er víst það
sem þeir kalla fram-
sókn í afvopnunar-
málum!“
hh
Steingrímur Hermannsson ræðir við Gorbatsjov í Moskvu:
Gorbatsjov kynnir
nýjar hugmyndir
- um meðal- og skammdrægar flaugar fyrir íslenska forsætisráð-
herranum, fyrstum vestrænna leiðtoga
Mikhail Gorbatsjov sagði í gær í
viðræðum sínum við Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra að
hann vildi fjarlæga jafnt meðald-
rægar sem skammdrægar kjarn-
orkuflaugar frá Evrópu.
Sovétleiðtoginn, sem varð
reyndar 56 ára gamall í gær, lýsti
yfir þessum áhuga sínum á tveggja
tíma fundi sem hann átti með
Steingrími í Moskvu.
Steingrímur var fyrsti leiðtogi
NATO-ríkis til að ræða við Gor-
batsjov síðan hann tilkynnti á laug-
ardag að hugsanlegt samkomulag
um að fjarlægja meðaldrægar
kjarnorkuflaugar frá Evrópu væri
ekki lengur bundið skilyrði um
takmörkun á geimvarnaráætlun
Bandaríkjastjórnar.
Hugmyndin um að stórveldin
fækkuðu meðaldrægum kjarn-
orkuflaugum í Evrópu var rædd á
Reykjavíkurfundinum í október
sl. en þá tengdist hún „stjörnu-
stríði" Bandaríkjastjórnar eins og
allar aðrar tillögur sem ræddar
voru þá. Fréttaskýrendur í Moskvu
hafa leitt að því getum að Gorbat-
sjov hafi kosið að tilkynna um
þessa tilslökun sína rétt áður en
Steingrímur kom í heimsókn til
þess að skapa táknræn tengsl við
Reykjavíkurfundinn. Þær viðræð-
ur sem Gorbatsjov og Steingrímur
áttu síðan í gær renna frekari
stoðum undirþessargetgátur. Eftir
fund þeirra í gær sagði Steingrímur
að Gorbatsjov hafi lýst þeirri ósk
sinni við sig að þegar skamm- og
meðaldrægar eldflaugar væru
ræddar á Vesturlöndum kæmi hann
sjónarmiðum Gorbatsjovs á fram-
færi. Steingrímur lýsti fundi sínum
með Gorbatsjov sem „fjörugum“
og „einlægum", en eftir fundinn
gerði hann sendiherrum Norður-
landa stuttlega grein fyrir honum.
Steingrímur ræddi í gærmorgun
við sovéska forsætisráðherrann
Nikolai Ryzhkov. Á fundi forsæt-
isráðherranna var ekki rætt um
vt'gbúnaðarkapphlaupið eins og á
fundinum með Gorbatsjov, heldur
viðskiptatengsl íslands og Sovét-
ríkjanna. Forsætisráðherrarnir
ræddu saman í rúmar 3 klst. sem
var mun lengur en ráðgert hafði
verið. Meðal þess sem þar kom
fram var að áhugi er á auknum
viðskiptum milli þjóðanna á ýnts-
unt sviðum. Til dæmis kom fram að
á þessum fundi var ákveðið að
hefja saltsíldarviðræður mun fyrr
en verið hefur, eða strax í vor.
Einnig sýndi sovéski forsætisráð-
herrann auknum ullarviðskiptum
áhuga ef íslendingar gætu aukið
kaup sín á olíu frá Sovétríkjunum.
Loks ræddu forsætisráðherrarnir
aukin viðskipti með málningu og
ærkjöt.
Opinberri heimsókn Stcingríms
Hermannssonar og föruneytis lýk-
ur í dag, þriðjudag, og fer ráðherr-
ann þá til Dannterkur í aðra opin-
bera hcimsókn.
Raisa Gorbatsjova bauð í gær
Eddu Guðmundsdóttur forsæt-
isráðherrafrú og Kristínu Klassen
eiginkonu Guðmundar Benedikts-
sonar ráðuneytisstjóra, til hádeg-
isverðar og var hún að endurgjalda
kvöldverðarboð forsætisráð-
herrahjónanna frá því á Reykja-
víkurfundinum í oktober sl.
BG / HB / Reuter
Atvinnufyrirtæki í 20.
hverri íbúð í Kópavogi:
Rörsteypa í
kjallaranum?
Atvinnufyrirtæki er skráð í um
20. hverri íbúð í Kópavogi. Sæl-
gætisgerð, leikfangasmíði, smá-
sala, heildverslun, nudd, fatagerð,
prjónastofur, rörsteypa og pökkun
eru dæmi um þá atvinnustarfsemi
sem Kópavogsbúar reka í íbúðar-
húsum sínum.
Um 250 fyrirtæki voru skráð í
íbúðarhúsum í Kópavogi í janúar
s.l. samkvæmt skrá sem tekin hefur
verið saman á vegum bæjarins og
frá er sagt í Frjálsri verslun. f
Kópavogi eru rösklega 5 þús. íbúð-
ir, en íbúðarhús að sjálfsögðu
miklu færri.
Ekki er að vísu um atvinnustarf-
semi á staðnum að ræða í öllum
tilfellum, þarsem t.d. ökukennarar
og iðnaðarmenn eru meðal þeirra
sem skrá starfsemi sína heima hjá
sér. En það þýðirþó væntanlega að
a.m.k. símaþjónusta vegna fyrir-
tækisins er á heimilinu.
Af framansögðu má ráða að
„aukabúgreinar" reknar á heimil-
um fólks eru ekki einskorðaðar við
sveitir landsins, heldur virðist mik-
ið um slíkan „búskap“ í þéttbýli
einnig - og ekki víst að hann sé
allur formlega skrásettur. - HEI
Víkingar íslandsmeistarar?
Á sunnudagskvöld áttust við Stjarnan og Víkingur í 1. deildinni í handknattleik. Víkingar burstuðu
Stjörnumenn 30-23 og eru þar með komnir með aðra hönd á bikarinn þar sem þeir eru 6 stigum á undan
næsta liði sem er FH. Á þessari mynd sjást eigast við einu sinni sem oftar þeir Guðmundur Guðmundsson
og Hafsteinn Bragason.
Guðmundur lék Hafstein oft grátt í leiknum og skoraði hann sjö mörk og var markahæstur Víkinga.
Sjá íþróttir á bls. 10 og 11. Tímamynd Pjetur