Tíminn - 03.03.1987, Síða 2

Tíminn - 03.03.1987, Síða 2
2 Tíminn Þriöjudagur 3. mars 1987 Magnús G. Friðgeirsson framkvæmdastjóri búvörudeildar Sambandsins: „Okkur vantar innflytjanda" „Kelly er með ansi myndarlegt umboðsfyrirtæki en hann vill á engu stigi mála kaupa kjöt af okkur sjálfur. Hann hins vegar býðst til að selja kjöt í umboðssölu fyrir okkur ef við finnum innflytjanda. Það er það sem okkur hefur ekki enn tekist‘% sagði Magnús G. Friðgeirs- son framkvæmdastjóri búvörudeild- ar Sambandsins er hann var spurður hvort eitthvað nýtt væri að gerast í kjötsölumálum Islendinga á Banda- ríkjamarkaði, en Magnús fór til Bandaríkjanna fyrir fáeinum dögum og hitti m.a. J.J. Kelly sem sýnt hefur áhuga á íslensku kjöti og telur að hægt sé að selja það í Bandaríkj- unum. Er búvörudeildin þá að leita að innflytjanda? „Já ég er núna með samband við þrjá aðila. Hjá þeim er ég að þreifa fyrir mér hvort þeir séu tilbúnir til að sinna þessu en það er ekki komið á neitt svarstig hjá þeim enn. Ég geri mér vonir um að fá einhver svör frá þeim í næstu viku“. Ertu bjartsýnn á að innflytjandi finnist? „Ég get ekkert sagt um það. Ég er búinn að verða fyrir svo mörgum vonbrigðum. Maður fór í þetta til að byrja með fullur af djörfung og hug. Ég er núna búinn að fara fjórum sinnum vestur og hafa samband við marga kaupendur, en eftir því sem maður fær fleiri neitanir, þá verður maður heldur varkárari". Nú hafið þið hjá búvörudeild fengið gagnrýni fyrir að hafa ckki staðið ykkur sem skyldi með að koma kjötsýnum til skila til réttra aðila og er þar meðal annars átt við kjötsýni sem Kelly hafi pantað. Hvernig stendur á þessu? „Ég er búinn að spyrja Kelly á hvern ég eigi að stíla þetta, og hann hefur ekki komið með svar við því ennþá. Það eru til aðilar sem halda því fram að við í búvörudeild værum bara á móti því að varan kæmist á markað. Ég hef aldrei skilið þá hugsun almennilega. Auðvitað erum við tilbúnir að selja Kelly og meira að segja á því verði sem honum dcttur í hug að kjötið seljist á, cn hann og hans fyrirtæki sér einungis um að viðskipti komist á milli inn- flytjanda og þess sem kaupir af innflytjandanum. Kelly gæti verið sá aðili sem tæki við vörunni eftir að hún er komin til Bandaríkjanna og sæi til þess að hún fengi sölu og dreifingu í landinu. Það vantar sem sagt einhvern til að sjá um innflutn- inginn". En því standa ekki íslendingar að því sjálfir? „Það þarf að vera amerískt fyrir- tæki sem flytur inn“. En geta íslendingar ekki samt sem áður staðið að því? „Jú það er hugsanlegt að gera það en þá þarf að vera einhver flötur fyrir slíku fyrirtæki. Að stofna fyrir- tæki í kringum svona sýni, er nú meira en að segja það. Menn kannast kannski við söguna um Pride of Iceland. Ég stuðlaði að stofnun Pride of Iceland. Þá talaði ég svona eins og allir aðrir gera í upphafi og ég talaði svo mikið fyrir íslenska kjötinu að McGoorty ákvað að stofna Pride of Iceland með það eina að augnamiði að kaupa íslenskt kjöt og koma því á markað í Banda- ríkjunum. Síðan var allt sett í fullan gang að undirbúa vöruna og senda hana út, en þegar á átti að herða þá uppgötvaði McGoorty það að hann er sennilega búinn að hlusta of mikið á mig og hann sér ekki forsendur fyrir starfseminni. Hann skorti margar viðskiptalegar forsendur til að geta byrjað og átti m.a. í erfið- leikum með innflutningsmálin. Það er venja í milliríkjaviðskiptum að kaupandi leggur fram fulla banka- tryggingu fyrir andvirði vörunnar. Þess vegna brast á milli okkar.“ Er ekki hægt að gera undantekn- ingar frá því þegar verið er að reyna að koma viðskiptum á? „Yfirleitt er krafist meiri trygginga í byrjun heldur en þegar fullt sam- starf er komið á. Þá er frekar hægt að gefa eitthvað eftir. Það er hins vegar til önnur leið í þessu og Kelly er nú að gá að því í millitíðinni, hvort hann geti fundið kaupanda að kjötinu sem er tilbúinn að sjá um innflutninginn á því líka“. ABS , Hér má sjá sigurverann í flokki nema í hárgreiðslu, Birnu Her- mannsdóttur ásamt módeli sínu Guðrúnu. Það getur tekið drjúga stund að grciða fólki þannig að vel sé og hér má sjá módelin í hárþurrkunum fyrir hárgreiðslukeppni meistara Og sveina. Tímamynd Pjetur Viku hársins lokið: íslandsmeist- arakeppnin í hárgreiðslu og hárskurði - Sólveig Leifsdóttir varð íslandsmeistari í hárgreiðslu Á sunnudag var í Broadway haldin íslandsmeistarakeppnin í hárgreiðslu og hárskurði. Sigur- vegarar í hárgreiðslukeppni meist- ara og sveina var Sólveig Leifsdótt- ir en hún greiddi módelinu Maríu Auði Steingrímsdóttur. í öðru sæti varð Dóróthea Magnúsdóttir sem greiddi Járnheiði Steindórsdóttur. Keppnin milli þessara tveggja meistara var mjög tvísýn og úrslit fengust ekki fyrr en á síðustu stundu. I hárskurði meistara og sveina varð Gísli Viðar Þórisson hlut- skarpastur en næstur kom Eiríkur Þorsteinsson. í nemakeppninni í hárgreiðslu varð Birna Hermannsdóttir sem greiddi módelinu Guðrúnu hlut- skörpust. í öðru sæti varð Hafdís Ægisdóttir sem greiddi Þóru Guðn- ýju Ægisdóttur. í hárskurði nema varð Guðlaugur Aðalsteinsson hlutskarpastur en í öðru sæti varð Ásta Þóra Valdimarsdóttir. 3.000 sérhæfðir fiskvinnslumenn Nálægt þrjú þúsund manns frá um 70 fiskvinnslustöðvum hafa nú sótt starfsfræðslunámskeið þau sem Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar stendur fyrir. Að námskeiðum og starfsþjálfun loknum hlýtur starfs- maður starfsheitið: Sérhæfður fisk- vinnslumaður og hækkar í launum um tvo launaflokka. Námskeiðin hófust í september sl. Samkvæmt fréttabréfi Ríkismats sjávarafurða er námskeiðahaldinu víða að Ijúka og er þegar lokið á þrem stöðum þ.e. Fáskrúðsfirði, Höfn í Hornafirði og hjá Granda h.f. í Reykjavík oghefur fiskvinnslu- fólk þar verið útskrifað. Námskeiðahaldið samanstendur af tíu fjögurra klukkustunda nám- skeiðum og auk þess tveggja vikna starfsþjálfun. Á námskeiðunum er kennt um meðferð og gæði hráefnis- ins, hreinlæti og gerlagróður, vinnu- vistfræði, öryggi á vinnustöðum, skipulagða verkþjálfun, kjara- samninga og lög, launakerfi, vinnslurásir, aturðir og markaði og samstarf og samvinnu á vinnustöð- um. Starfsþjálfunarvikurnar skipt- ast í sérhæfingu og önnur störf. I sérhæfingarvikunni er farið ná- kvæmlega í gegn um sérsvið viðkom- andi. í hinni vikunni er markmiðið að gera fólki kleyft að vinna öll helstu framleiðslustörf í fyrirtækinu ekki skemur en hálfan dag í hverju starfi. Markmiðið er að þannig fái starfsmaðurinn yfirsýn yfir alla vinnslu fyrirtækisins frá móttöku hráefnis til afgreiðslu fullunninnar vöru. Starfsfræðslunefndin telur að með því að veita reyndu fiskvinnslufólki þá menntun sem í námskeiðunum felast og verkþjálfun nýliða muni hin neikvæða ímynd sem fiskvinnslu- störfin hafa á sér breytast. Jafnframt telur hún nauðsynlegt að taka svona námskeið upp hjá öllum sem við veiðar og vinnslu starfa svo það markmið náist sem að er stefnt. Að þeim málum er nú unnið. Rikismat sjávarafuroa: Slæm meðferð á fiski bæði á sjó og í landi - Landað óslægðum, óísuðum, allt að 9 gráða heitum og látinn bíða aðgerðar óísaður í vinnslustöðvunum Þrátt fyrir dræma veiði er ekkert gert til að fara betur með aflann. Allir landa óslægðu og enginn ísar, hiti í fiskholdi frá 5 og allt upp í 9 gráður. Á nokkrum bátum er fiskur flokkaður í lifandi- og dauðblóðg- að en dæmi um að öllu sé sfðan blandað saman á bílpallana í löndun. Fiskinum er sturtað af bílpalli í löndun, um 90-120 senti- metra fallhæð. í tveim móttökum var ísað, en öðrum ekki, og beið jafnvel tveggja nátta fiskur aðgerð- ar til næsta dags. Allir bátar eru þvegnir úr hafnarsjó. Þetta eru tilvitnanir í fréttir Ríkismats sjávarafurða af meðferð vertíðaraflans á Suðurlandi og á Suðurnesjum. Ríkismatinu þykir ganga hægt að fá menn þar til að fara betur með þann afla sem þeir draga úr sjó. Á þessu svæði fann Ríkismatið aðeins 4 bára þar sem fiskurinn var ísaður um borð: Höfrung III og Hafnarvík frá Þor- lákshöfn og Hrungni og Skarf í Grindavík. f þeim bátum var hitinn í fiskinum við löndun 1-4 gráður. í Vestmannaeyjum, þarsem sér- stök veðurblíða hefur verið að undanförnu, allgóður afli og gott hráefni, hafa flestir tekið upp betri vinnubrögð en félagarnir uppi á fastalandinu. Á flestum Eyjabát- um er fiskurinn ísaður en misjafn- lega vel - greinilega betri meðferð á þeim fiski sem fer í gáma. Margir landa orðið í körum eða kössum, allir bátar þvegnir úr fersku vatni. f stöðvunum er yfir- leitt gert að samdægurs, ísað yfir og dauðblóðguðu ekki blandað saman við lifandi blóðgað. Strák- arnir á Katrínu VE fá sérstakt hrós. Á Höfn virðist meðferðin á fiski um borð yfirleitt slakari en í Eyjum, en betri heldur en í Þor- lákshöfn og Suðurnesjum. í landi er meðferðin miklu betri. Fyrirmyndarmeðferð á Vestf jörðum Fréttir af fyrirmyndarmeðferð á fiski segir Ríkismatið m.a. frá Vestfjörðum svo sem Patreksfirði og Tálknafirði. Á þessum stöðum er fiskurinn slægður um borð, þveginn og ísaður í kör sem flutt eru á lyftara í hús. Hitinn í fiskin- um er aðeins 0-1 gráða og bátarnir þvegnir úr fersku vatni. Tólf Siglufjarðarbátar eru sagðir hafa fiskað vel, umgengni um neta- fisk sé góð og hráefni gott. Bátar' frá Hólmavík og Drangsnesi eru á línu og ísa bara það sem fer í gáma, en aðgerð og ísun er góð í landi. Öllum fiski landað í körum Á sumum bátum frá Norður- landi eystra, Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn, Vopnafirði og Bakka- firði, er ísað en öðrum ekki. Sá er munur þar og syðra að lofthitinn er undir frostmarki og sjávarhiti aðeins 2 gráður yfir, þannig að hiti í fiski er ekki nema 0-2 gráður þó ekki sé ísað. Öllum fiski er landað í körum, hann flokkaður í lifandi- og dauðblóðgað, gert að og hann ísaður strax eftir löndun. í Neskaupstað landa um 30 trillur. Síldarvinnslan greiðir upp- bót á fiskinn til þeirra sem ganga frá honum í kör eða kassa, sem Ríkismatið segir að ýtt hafi undir að slík ílát séu notuð í smærri bátum. Sem dæmi um aflabrögð er nefnt að bátarnir lönduðu 140 tonnum seinni helming janúarmán- aðar, eða álíka og skuttogari á sama tíma. Yfirleitt er ekki ísað um borð í Austfjarðabátum þannig að hiti í fiski fylgir sjávarhita sem verið hefur 2-4 gráður að undan- förnu. Hitinn í fiskinum hefur mest áhrif á hve hann er lengi að fara í gegnum dauðastirðnunina. Þannig segir Ríkismatið að þorskur geymdur við 0-1,5 stig sé helmingi lengur að stirðna og slakna aftur en fiskur sem geymdur er við 6-8 gráða hita. Sérstaklega skipti hver klukkustund sem fiskur er óísaður miklu máli þegar um óslægðan fisk sé að ræða. Við hraða stirðnum - of mikinn hita í fiskinum - getur fiskholdið rifnað, sem kemur út sem los í flökunum í vinnslu. - HEI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.