Tíminn - 03.03.1987, Síða 6
FRÉTTAYFIRLÍT
WASHINGTON - Rónald
Reagan Bandaríkjaforseti og
hinn nýji starfsmannastjóri
hans Howard Baker reyndu aö
koma málum í lag í Hvíta
húsinu eftir útkomu Tower-
skýrslunnar þar sem Reagan
og ráðgjafar hans voru gagn-
rýndir mjög vegna hneykslis-
málsins í sambandi við vopna-
söluna til írans.
WASHINGTON - Banda-
ríska stórblaðið The Washing-
ton Post sagði aö Robert Gat-
es myndi ekki taka formlega
við starfi yfirmanns leyniþjón-
ustunnar CIA. Ástæðan var
sögð vera sú að hann tengdist
æ meira hneykslismálinu í
sambandi við vopnasöluna til
írans.
BE|RÚT - Amin Gemayel,
hinn kristni forseti Líbanons,
hefur fallist á þrjú lykilatriði í
drögum að friðarsamkomulagi
sem Sýrlandsstjórn hefur lagt
fram. Tillögur Sýrlendinga
miða að því áð binda enda á
tólf ára borgarastríð í Líbanon
með því áð veita múslimum
aukin völd í stjórnun landsins.
ISLAMABAD - Stjórnir
Indlands og Pakistan sögðust
hafa komist aö samkomulagi
um aö kalla um 250 þúsund
hermenn frá stöðvum sínum
' við landamærin. Ný deila
braust hinsvegar út í gær
vegna viðtals sem indverskt
blað átti við þekktan kjarn-
orkuvísindamann frá Pakistan.
í viðtalinu var haft eftir vísinda-
manninum að Pakistanar
myndu nota kjarnorkusprengju
ef ekkert annað úrræði væri
eftir í hugsanlegu stríði ríkj-
anna. Stjórnvöld í Pakistan
hafa neitað að þetta sé stefna
þeirra.
TOKYO - Stjórnmála-
skýrendur telja líklegt að mikil
og víðtæk mótstaða gegn
skattaáformum japönsku
stjórnarinnar muni leiða til þess
ao Yasuhiro Nakasone for-
sætisráðherra neyðist til að
láta af starfi sínu næsta sumar.
PEKÍNG - George Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna átti viðræður við háttsetta
kínverska embættismenn en
hann var staddur í opinberri
heimsókn í fjölmennasta ríki
heims.
6 Tíminn
Þriðjudagur 3. mars 1987
Shevardnadze og Shultz, Gorbatsjov og Reagan: Taka þeir til við að semja um fækkun meðaldrægra kjarnorkuflauga
í Evrópu?
Afvopnunarmál:
VÍÐAST VEL TEKIÐ í
NÝTT TILBOÐ
SOVÉTSTJÓRNARINNAR
Reuter*
Bandarísk stjórnvöld tóku í gær
vel í nýjar tillögur Sovétmanna um
að fjarlægja allar meðaldrægar
kjarnorkuflaugar frá Evrópu en
sögðu að þau biðu enn eftir nánari
útlistunum á tilboðinu frá Sovét-
mönnum.
„Við teljum þetta vera jákvæða
þróun,“ sagði Marlin Fitzwater tals-
maður Bandaríkjastjórnar og bætti
við að stjórn sín hefði alltaf haldið
því fram að framfarir á einu sviði
afvopnunarmála ættu ekki endilega
að vera bundnar öðrum þáttum.
Viðbrögð við tilboði Sovétstjórn-
arinnar voru góð víðast hvar. Bresk
stjórnvöld lýstu t.d. yfir ánægju
sinni með það og sögðu að Margrét
Thatcher forsætisráðherra myndi
leika hlutvcrk í væntalegum samn-
ingaviðræðum um þetta tilboð er
hún heimsækir Sovétríkin í lok þessa
mánaðar.
„Ég fagna tilboöi Sovétmanna,"
sagði Sir Geoffrey Howe utanríkis-
ráðherra Bretlands í tilkynningu þar
sem einnig var tekið fram að tilboðið
gæti komið verulcgum skrið á af-
vopnunarviðræður og bætt samskipti
austurs og vesturs.
Gorbatsjov Sovétleiðtogi sagði á
laugardaginn að stjórn sín setti ekki
lengur sem skilyrði að fækkun með-
aldrægra kjarnorkuflauga í Evrópu
yrði að tengjast geimvarnaráætlun
Bandaríkjastjórnar. í gær setti svo
Yuly Vorontsov, aðalsamningamað-
ur Sovétstjórnarinnar í afvopnunar-
viðræðunum í Genf, fram tillögur
um framkvæmd þessa tilboðs.
Tilboð Sovétmanna byggir raunar
á tillögum sem Bandaríkjastjórn
lagði fram á Reykjavíkurfundinum
fræga í október á síðasta ári. Þar var
gert ráð fyrir að stórveldin fækkuðu
kjarnorkuflaugum sínum sem miðað
er á Evrópu niður í hundrað á hvorn
aðila á fimm árum.
Thatcher, sem líklega heimsækir
Sovétríkin þann 29. mars til 2. apríl,
leit á tilboð Gorbatsjovs með „hóf-
legri bjartsýni", að því er heimildir
hermdu.
Flest Vestur-Evrópuríki tóku
reyndar vel í tillögur Sovétmanna
um fækkun meðaldrægra kjarnorku-
flauga í Evrópu. Þó lýstu frönsk
stjórnvöld yfir áhyggjum vegna
þessa tilboðs sem oft er kennt við
,núll-kostinn“. Frakkar eru ekki
hlynntir hugmyndinni um að banda-
rísk stjórnvöld láti flytja stýriflaugar
sínar og Pershing flaugar frá Evrópu
því þeir telja að með því muni
Bandaríkjamenn smám saman hætta
við að taka þátt í vörnum evrópskra
bandalagsríkja sinna.
Howe utanríkisráðherra Breta
sagði að stórveldin tvö yrðu að
komast að samkomulagi um hvernig
staðið yrði að því að fjarlægja með-
aldrægar kjarnorkuflaugar frá Evr-
ópu en víst væri að ríki Vestur-Evr-
ópu yrðu að athuga vel öll smáatriði
hins hugsanlega samkomulags.
Viktor Karpov, einn af helstu
afvopnunarsérífæðingum Sovétríkj-
anna, sagði á blaðamannafundi í gær
að stórveldin tvö gætu hugsanlega
komist að samkomulagi um þetta
mál innan sex mánaða þ.e. ef vilji
væri fyrir hendi hjá báðum aðilum.
í gær bárust einnig fréttir um að
hugsanlegt væri að George Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
færi til Sovétríkjanna í kjölfar þessa
tilboðs Kremlverja sem flestir
stjórnmálaskýrendur voru sammála
um að gæti komið afvopnunarvið-
ræðum stórveldanna aftur af stað í
jákvæða átt.
Þá ber þess að geta að Gorbatsjov
lýsti yfir vilja sínum til að fjarlægja
skammdrægar jafnt sem meðaldræg-
ar kjarnorkuflaugar frá Evrópu í
viðræðum sínum við Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra (sjá for-
síðu).
Sovétríkin:
Pravda í
afmælisskapi
Moskva-Keuter
Pravda, dagblað sovéska
kommúnistaflokksins sem er
þekkt um allan heim fyrir að
túlka dyggilega málstað hans,
kom í gær út. Ekki var það
merkilegt utan þess að hér var
um 25 þúsundasta tölublað blaðs-
ins að ræða en það var stofnað af
Lenín árið 1912 fyrir fall keisara-
dæmisins.
Aðalfyrirsögn blaðsins var
rauðlituð mjög og í greininni sem
fylgdi var Pravda sögð hafa styrkt
sig í sessi sem blað fjöldans, nú
þegar Mikhail Gorbatsjov og
samstarfsmenn hans reyndu að
koma fram með sögulegar
ákvarðanir sem væru byltingar-
kenndar í anda.
í blaðinu var birt eftirprentun
af fyrsta tölublaði þess scm kom
út þann 4. apríl áið 1912ogeinnig
var birt ljósmynd frá árinu 1917
er bolsevíkar undir stjórn Leni'ns
komust til valda. Þar mátti sjá
fólk þyrpast í kringum blaðasala
er seldi fólki Prövdu.
í síðustu viku birti blaðið for-
síðufrétt þar sem einn yfirmanna
leyniþjónustunnar KGB skýrði
frá brottrekstri eins starfsmanna
sinna vegna ólöglegrar handtöku
á blaðamanni. Þessi yfirlýsing
fylgdi í kjölfar „rannsóknar-
blaðamennsku“ tveggja blaða-
manna Prövdu sem sendir voru
til Úkraínu til að afla nánari
frétta af handtöku blaðamanns
sem skýrt hafði frá spillingu em-
bættismanna og lögreglu.
Þótt slík frétt hafi ekki áður
birst í Prövdu og blaðið haldi
áfram að birta fordæmingar á
utanríkisstefnu Bandaríkja-
manna og aðrar slæmar fréttir frá
Washington þykja greinar þess
heldur sjálfstæðari síðan Mikhail
Gorbatsjov tók við völdum í
landinu í mars árið 1985 og
boðaði “hreinskilni" áöllum svið-
um þjóðfélagsins.
Pravda þýðir sannleikur á rúss-
nesku.
Kína:
Rottuhalar fyrir
hjónavígsluvottorð
Pekíng-Reuter
Kínverskt dagblað skýrði frá því í
gær að útrýmingarherferðin gegn
rottum í landinu hefði gengið svo
langt að í sumum tilfellum hefði pör
sem ætlaðu að ganga í það heilaga
orðið að borga fyrir hjónavígsluvott-
orðið með rottuhölum.
Blaðið Wen Hui Bao sagði em-
bættismenn í sumurn héruðum
landsins hafa gripið til þessa ráðs til
að geta skilað kvóta þeim yfir dauðar
rottur sem þeim var ætlaður.
Blaðið gagnrýndi þetta „ótrúlega
fyrirbæri“ og gaf í skyn að embættis-
menn víða um landið hreinlega lygju
til, í skýrslum til hærra settra yfir-
valda, um fjölda þeirra rotta sem
drepinn var á þeirra svæðum.
Yfirvöld í Pekíng skýrðu nýlega
frá því að 15 milljónir rotta hefðu
verið drepnar í útrýmingarherferð
gegn dýrunum á síðasta ári.
íranskir herfangar í haldi Íraka: Persaflóastríðið heldur áfram að vera í fréttum, aðallega fyrir hrikalegt mannfall
í herjum beggja aðila og framsóknir er deyja út. Ljóst er að stríðið kostar bæði íraka og írana geysilega fjármuni
og nú hefur t.d. gengið svo á gjaldeyrissjóði íraka að þarlend stjórnvöld hafa fengið frestun hjá vestrænum
bönkuin á endurgreiðslu á 500 milljóna dollara láni.