Tíminn - 25.04.1987, Blaðsíða 10
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum:
Lada 1600 .........................árgerð 1986
Fiat Uno ..........................árgerð 1985
Polonez............................ árgerð 1981
Lada 1600 .........................árgerð 1981
Daihatsu Charade ..................árgerð 1980
Daihatsu Charade ..................árgerð 1980
Toyota Crolla .....................árgerð 1980
Fiat 128 X 1/9.....................árgerð 1980
Mazda 323 .........................árgerð 1977
Ford Escort........................árgerð 1975
Daf vörubifreið ................... árgerð 1982
Polaris snjósleði..................árgerð 1987
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 27. apríl 1987, kl. 12-16.
Á sama tíma:
Á Selfossi
MMC Galant........................ árgerð 1977
Á Egilsstöðum
Chevrolet Blazer...................árgerð 1974
Tilboðum skal skilað til Samvinnutrygginga g.t.
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 28. apríl 1987.
5AMVINNU
TRYGGINGAR
ARMVLA 3 108 REYKJAVIK SIMI (91)881411
Útboð
Tilboð óskast í jarðvinnu vegna byggingar heima-
vistar fyrir Verkmenntaskóla Austurlands í Nes-
kaupstað. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjartæknifræðings að Egilsbraut 1 Neskaupstað
og á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen að
Glerárgötu 30, Akureyri, 27. apríl n.k. gegn 2.000,-
kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila í lokuðu
umslagi, merktu nafni útboðsins, til bæjarstjórans
í Neskaupstað fyrir kl. 14.00 föstudaginn 8. maí
1987.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað.
fftl Kópavogur-
^ garðlönd
Tekið er á móti umskóknum um garðlönd sumarið
1987 á Náttúrufræðistofu Kópavogs af Hermanni
Lundholm, sími 40630 þriðjudaga-fimmtudaga kl.
9.30-11.30, fram til 8. maí.
Garðyrkjustjóri Kópavogs.
Þjálfari óskast
Knattspyrnudeild Gróttu óskar að ráða þjálfara
fyrir 5. og 6. flokk. Viðkomandi á einnig að sjá um
knattspyrnuskóla í sumar.
Upplýsingar í síma 611133 milli kl. 13-17 virka
daga.
Umsóknir sendist íþróttafélaginu Gróttu, Knatt-
spyrnudeild, Pósthólf 165, 170 Seltjarnarnes.
Útboð
''//m
\
Álftafjörður 1987
Vegagerð rikisins óskar eftirtilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegakafla samtals 7,9 km, fyllirig 900
m3 og neðra burðarlag 9.500 m3.
Verki skal lokið 1. júli 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
VEGAGERÐIN ísafirði og í Reykjavik (aðalgjaldkera) frá og með
27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 11. maí 1987.
Vegamálastjóri.
Norðurlandamótið í körfuknattleik:
Tveir fyrstu töpuðust
10 Tíminn
Laugardagur 25. apríl 1987
ÍÞRÓTTIR
Norðurlandameistaramót 18 ára pilta:
- í leik sem var afskaplega daufur
íslcnska piltalandsliðið í handknattlcik'
lagði danska landsliðið að vclli í fyrsta leik
sínuni á Norðurlandameistaramóti 18 ára.
pilta sem hófst í íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi í gærkvöldi. fslenska liðið gerði
24 mörk gegn 20 mörkum Dananna en
leikurinn var afskaplega lítt skemmtilegur
á að horfa, einkum og sér í lagi síðari
háifleikur.
hað voru Danirnir sem höfðu undirtökin
framanaf, komust í 2-0 og 4-2 en íslending-
arnir náðu að jafna 4-4 eftir 8 mínútna leik.
Þeir sigu síðan smám saman framúr og voru
komnir í 15-8 skömmu fyrir hálfleik en
staðan í leikhléi var 15-9. Danirnir mættu
grimmir í seinni hálfleikinn og minn'
muninn jafnt og þétt. Minnstur varð
2 mörk, 21-19 og 22-20 cn íslenska
náði að bæta stöðuna fyrir leikslok og
lokatölur urðu 24-20.
Leikurinn var þokkalegur í fyrri hálfleik,
meira að segja mjög góður á köflum. Bar
þar hæst stórgóða frammistöðu Héðins
Gilssonar sem lél skotin bylja í danska
markinu hvcrt á fætur öðru. Seinni hálf-
leikurinn var mjög leiðinlegur á að horfa.
Sókn íslenska liðsins var lengi vel alveg í
rusli en varnarleikurinn hélst þó óbrenglað-
ur. íslenska liðið gerði ekki mark í tæpar 14
mín. um miðjan seinni hálfleik (milli 20. og
21. marksins) en Danirnir gerðu heldur
ekki mark í 10 mín. á því tímabili svo það
kom ekki að stórri sök úrslitanna vegna en
Héðinn Gilsson átti góðan leik með íslcnska piltalandsliðinu í gærkvöldi. Hann skoraði'
mörk með þruniuskotum og hér er eitt þeirra á lciðinni.
Tímamynd Pjetur
skemmtilegur var þessi kafli ekki.
Bestu menn voru Héðinn Gilsson sem
lék vel bæði í vörn og sókn og Árni
Friðleifsson í fyrri hálfleik en Ólafur Kristj-
ánsson og Konráð Olavsson léku einnig
ágætlega.
Mörkin ísland: Héðinn Gilsson 7, Konr-
áð Olavsson 7(2), Árni Friðleifsson 4,
Ólafur Kristjánsson 4, Halldór Ingólfsson
I, Sigurður Sveinsson 1. Danmörk, marka-
hæstir: Ulrik Asmussen 4, Peter Jörgensen
Már Hermannsson l)MFK kom fyrstur í mark i Víðavangshlaupi ÍR á sumardaginn fyrsla. Már
hljóp 4 km á 13:24 mín. Annar varð Jóhann Ingibergsson FH á 13:30 og Sleinn Jóhannsson FH þriðji á 13:37. Steinunn
Jónsdótlir sigraði í kvennallokki á 16:47, Hulda Pálsdóttir varð önnur á 17:19 og Hildur Björnsdóttir þriðja á 17:30.
Þær eru allar í Armanni. í rneyjaflokki sigraði Guðrún Erla Gísladótlir HSK á 18:32 og ísleifur Karlsson IJBK sigraði
í sveinaflokki á 15:56 mín.
Van Basten
til Milano
Hollenski landsliðsmaðurinn Marco
van Basten icikur ineð ítalska knatt-
spyrnuliðinu AC Milano á næsta
kcppnistímabiii. Van Basten var
kcyptur frá Ajax Amsterdam í vikunni
fyrir 2,3 milljónir dollara og var samn-
ingur gerður til þriggja ára. Ruud
Gullit, félagi van Basten í hollenska
landsliðinu var nýverið keyptur til AC
Milano á 8,5 milljónir dollara.
- 70-75 gegn Norðmönnum og 80-96 gegn Svíum
fslcnska landsliðið í körfuknattleik tap-
aði tveimur fyrstu leikjum sínum á Norður-
landamótinu í körfuknattleik sem hófst í
Horsens í Danmörku á flmmtudaginn.
íslenska liðið lék gegn Norðmönnum á
fimmtudaginn og tapaði 70-75 eftir að
staðan í hálflcik var 30-43 og í gær tapaði
liðið fyrir Svíum 80-96 eftir að vera yfir
46-45 í hálfleik.
fslenska liðið átti fremur slakan leik á
móti Norðmönnúnum, einkum brást sókn-
arleikurinn að sögn Einars Bollasonar
landsliðsþjálfara. Hittnin var afleit og því
fór sem fór þrátt fyrir að liðið léki mjög
góðan varnarleik. „Við hefðum unnið þetta
ef hittnin hefði bara verið í meðallagi"
sagði Einar eftir leikinn, óhfess að vonum.
Bestu menn íslenska liðsins voru ívar
Wcbster sem tók 13 fráköst og skoraði 13
stig, Guðmundur Bragason sem barðist
eins og ljón og Jóhannes Kristbjörnsson
kom einnig mjög vel frá leiknum, hélt
liðinu hreinlega á floti á köflum. Þá lék
Hreinn Þorkelsson einnig vel. Jóhannes
varð stigahæstur með 16 stig, fvar gerði 13,
Hreinn 11, Pálmar 10, Guðni og Guðmund-
ur 8 og Valur 4.
I leiknum gegn Svíum léku íslendingar á
als oddi í fyrri hálfleik og höfðu eins stigs
forystu í leikhléi. Þeir höfðu og yfirhöndina
framan af fyrri hálfleik en þá fór Guðmund-
ur Bragason útaf með 5 villur og við það
Landslið íslands í knattspyrnu skipað
leikmönnum 18 ára og yngri keppir fyrsta
leik sinn í Evrópukeppni unglingalandsliða
á þriðjudaginn. Leikið verður gegn Dönum
komust Svíarnir inn í leikinn, það munar
mikið um svo stóran mann í jvörninni.
Svíarnir sigu jafnt og þétt framúr og voru
komnir í 20 stiga forskot en sigruðu að
lokum 96-80. ívar var sem fyrr sterkastur,
skoraði nú einnig mest en Guðmundur átti
einnig góðan leik og reyndar liðið sem heild
að frátöldum lokamínútunum.
á Bornholm. lslenska liðið hefur verið valið
og er það skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir: Karl Jónsson Þrótti R. og
Kjartan Guðmundsson Þór A.
Aðrir leikmenn: Rúnar Kristinsson KR,
Þormóður Egilsson KR, Bjarni Benedikts-
son Stjörnunni, valdimar Kristófersson
Stjörnunni, Helgi Björgvinsson Fram,
Hólmsteinn Jónsson Fram, Árni Þór Árna-
son Þór A., Gunnlaugur Einarsson Val,
Steinar Adólfsson Val, Egill Örn Einarsson
Þróttir R. fyrirliði, Leifur Hafsteinsson Tý
V., Haraldur Ingólfsson ÍA. Þórarinn
Ólafsson UMFG og Ólafur Viggósson
Þrótti N.
Knattspyrna:
Unglingalandsliðið mætir
Dönum í Evrópukeppninni
Tíinamynd Bjarni
BBBsa?;
Laugardagur 25. apríl 1987
(þróttir
fA
W NBA
Úrslitakoppni bandariska NBA köríu-
boltans hóíst á fimmtudagskvöldid.
Fjórir leikir voru á dagskrá þá og urðu
úrslit þeirra þessi:
Austurströndin:
Boston Celtics-Chicago....... 108-104
Vesturströndin:
Dallas-Seattle............... 151-129
Utah Jazz-Golden State ........ 99-85
LA Lakers-Denver Nuggets ... 128-95
Liðin leika sín á milli þar til annað
hefur sigrað í þremur leikjum. Leikið er
innan riðla (austur-vestur) þannig að
það lið sem varð i efsta sæti mætir
neðsta liðinu o.s.frv. önnur lið sem
mætast eru þessi: Austur: Atlanta-Indi-
ana, Detroit-Washington, Milwaukee-
Phil. 76ers, Vestur: Dallas-Seattlo, Port-
land-Houston, Utah Jazz-Golden State.
Bailey hættur
Gary Bailey sem hefur átt sæti
í enska landsliðinu og verið aðal-
markvörður Manchcster United
hefur hætt knattspyrnuiðkun 28
ára að aldri. Bailey hefur átt við
þrálát hnémeiðsl að stríða og var
svo koinið að læknar töldu eins
líklegt að hann hlyti varanlega
örkumlun af ef hann hætti ckki
knattspyrnuiökun hið snarasta.
Bailey meiddist upphaflega á
hné á landsliðsæfingu fyrir rúmu
ári.
Shilton ekki með
Peter Shilton landsliðsmark-
vörður Englendinga í knatt-
spyrnu leikur ekki með liðinu i
Evrópukeppninni á miðvikudag-
inn. Shilton er tognaður á kvið-
vöðva og taldi sér ekki fært að
keppa.
Boniek ekki heldur
Zbigniew Boniek leikur ekki
heldur með í Evrópukeppninni á
miðvikudaginn en hann er sá
lcikreyndasti i pólska landsliðinu.
Boniek telur sig ekki vera í formi
og gefur ckki kost á sér í leikinn.
Norskur sigur
Norðmenn unnu Finna í opn-
unarleik Norðurlandamóts 18 ára
pilta í Digranesi í gærkvöldi.
Lokatölur leiksins urðu 27-24.
Færeyingar og Svíar léku einnig í
gærkvöldi en leiknum var ekki
lokið þegar Tíniinn fór í prentun.
Islendingar mæta Færeyingum
kl. 10.30 í dag og Norömönnuin
kl. 16.30, Finnuin kl. 10.30 í
fyrramálið og loks Svíum í síðasta
lcik niótsins kl. 18.00.
íslensk framtið
er verkefni okkar
Iðnþróunarsjóður var stofnaður af
Norðurlöndunum árið 1970 við
aðild íslands að EFTA. Samkvæmt
stofnsamningi var upphaflegt
markmið sjóðsins að efla útflutnings-
iðnað og auðvelda aðlögun íslensks
iðnaðar að breyttum aðstæðum vegna
aðildarinnar. Megintilgangur
Iðnþróunarsjóðs er nú að stuðla að
alhliða uppbyggingu atvinnulífs á
íslandi með fjármögnun meiriháttar
fjárfestinga.
Verksvið Iðnþróunarsjóðs er því
ekki einvörðungu bundið langtíma
fjárfestingarlánum til tækni- og iðn-
þróunar. Áhersla er lögð á arðsemi
fjárfestinga, styrka stjórnun og að
fjárhagsleg uppbygging sé traust.
Iðnþróunarsjóður
veitir eftirtalin lán:
• Almenn fjárfestingalán
• Fjárfestingalán með áhættu-
þóknun
• Þróunarlán
Hvaða verkefni eru lánshæf?
• Bygging eða kaup á atvinnu-
húsnæði
• Kaup á vélum, tækjum og búnaði
• Nýting tölvutækni
• Vöruþróun - endurbætur
og nýjungar í framleiðslu
• Erlend markaðsöflun
• Kaup á framleiðslurétti og
tækniyfirfærsla
Iðnþróunarsjóður bendir þeim á, er undirbúa fjárfestingu í íslensku atvinnulífl,
framleiðslu og þjónustu, að kynna sér möguleika á fjármögnun hjá sjóðnum.
Iðnþróunarsjóður er fluttur í nýtt
húsnæði í nýja Seðlabankahúsinu
við Kalkofnsveg, 3. hæð.
IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
KALKOFNSVEGI 1 - SÍMI 69 99 90
SÆKJUM/SENDUM
Við vinnum fyrir þig
Við komum með gáminn til þín og þú gengur frá vörunni í hann
eins og þú vilt. Við sækjum gáminn til þín aftur og komum honum
um borð í Ríkisskip. Það er ástæðulaust að gera einfalt mál
flókið. Komdu og kynntu þér gámaþjónustu okkar.
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822