Tíminn - 25.04.1987, Blaðsíða 20

Tíminn - 25.04.1987, Blaðsíða 20
INGOLFSSON hefur verið aðstoðarmaður minn síðast lið- in fjögur ár og þennan tíma hefur hann átt mikinn þátt í að móta og framkvæma þá stefnu í sjávarútvegsmálum sem mörkuð hefur verið undir minni stjórn. Það hefur verið mér ómetanlegt að hafa svo hæfan samstarfsmann. Innan Fram- sóknarflokksins hefur Finnur aflað sér mikils trausts. Hann á nú sæti í æðstu stjórn flokksins. Ég get því fullvissað Reykvíkinga að Finnur væri verðugur full- trúi þeirra á Alþingi. Á tímum upplausnar þarf Alþingi á kraftmiklu og dugandi fólki að halda. Ég skora á Reykvíkinga að kjósa Finn Ingólfsson á þing. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur öðlast dýrmæta pólitíska reynslu sem mikilvægt er að þjóðin fái að njóta. Með kveðju, Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.