Tíminn - 30.04.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 30. apríl 1987
Matareitrun í Dölum:
Mjög hættulegur
Salmonellasýkill
- allt að 50 manns sýktir
Fcrmingarveislur fara oft öðru-
vísi cn ætlað er. Þrjár fermingar-
veislur í Dölum reyndust ekki vera
þeir gleðivaldar sem þeim var ætlað
að vera. í matnum reyndist skæð
salmonellasýking og hafa nú allt að
50 manns sýkst, bæði innan héraðs
sem utan.
Að sögn Halldórs Runólfssonar,
deildarstjóra hollustuverndar, ligg-
ur það fyrir að sýkillinn sem um
ræðir heitir Salmonella Typhimuri-
um og er mjög hættulegur matar-
eitrunarsýkiíl. Unnið er að rann-
sókn hvernig hann hafi komist í
matvælin. „Málið er í heildarrann-
sókn, bæði er verið að rannsaka
starfsfólkið sem kom nálægt þessu
og síðan matvælin. En það er ljóst
að þetta er mjög skæð týpa, miðað
við hvað fólk vcikist hastarlega"
sagði Halldór.
Sigurbjörn Sveinsson, heils-
ugæslulæknir á Búðardal sagði að
orðið hefði að leggja suma inn á
sjúkrahús og gerðar hefðu verið
allar ráðstafanir til að fólk fengi
sem mestar leiðbeiningar og alla
þá hjálp sem það þyrfti. „Þessi
atburður minnir okkur á hvað
heilbrigðiscftirlit er nauðsynlegt í
nútímaþjóðfélagi. Gott eftirlit get-
ur komið í veg fyrir þjáningar
einstaklinga og að þetta skaði sam-
félagið. Heilbrigðiseftirlitið mætir
misjöfnum skilningi, sérstaklega í
atvinnugreinum tengdum matvæla-
iðnaði, því eftirlitið kostar jú
pcning. En atburðir sem þessir
styðja kröfuna um strangt eftirlit.
Það er ljóst að u.þ.b. 30 manns
sýktust innan héraðs, og 10-20
manns utan þess. Það er því ljóst
að um skæðan sýkil er að ræða,“
sagði Sigurbjörn að lokum.
Heilbrigðisfulltrúinn á Vestur-
landi hefur þegar gert vettvangs-
könnun og tekið sýni hjá veitinga-
sölunni sem útbjó kalda borðið í
þessar afdrifaríku lermingarveisl-
ur. Þó er ekki talið að sýkillinn sé
þaðan kominn.
- SÓL
Færð:
Aurbleyta á
hliðarvegum
- víðast góð færð
Það má segja að víðast sé góð færð
á Suðurlandi, Austurlandi og
Norðurlandi. Að vísu ber nokkuð
mikið á aurbleytu á ýmsum hliðar-
vegum á Suðurlandi. Vesturland er
yfirleitt greiðfært líka. Þó er snjór á
Holtavörðuheiði en mokað var í
gær. Heiðin er því fær öllum bílum
en varað er við hálku.
Á Snæfellsnesi er aurbleyta og
vegir víða skemmdir. Öxulþungi er
takmarkaður við 7 tonn eins og víða
annars staðar. Fróðárheiði er aðeins
fær jeppum, þannig að minni bílar
verða að fara inn Kerlingarskarð og
norðanvert nesið. Fært er vestur um
Heydal og Dalasýslu og mokað var
á Kletthálsi í dag, þannig að fært er
til Patreksfjarðar. Einnig voru
Kleifaheiði og Steingrímsfjarðar-
heiði mokaðar í gær og eru þær
jeppafærar.
Góð færð er yfirleitt á Norður- og
Austurlandi. - SÓL
Vinstri sósíalistar 1. maí:
Ræða málin eftir fund
- á Hótel Borg
Vinstri sósíalistar ætla að loknum
kröfugöngum og útifundum að efna
lil almenns fundar á Hótel Borg, þar
sem nokkrir forkólfar VS munu
ræða málin.
Ragnar Stefánsson ætlar að ræða
stöðu vinstrihreyfingarinnar nú eftir
kosningar, Soffía Sigurðardóttir
mun ræða stöðu verkalýðshreyfing-
arinnar og stöðuna framundan og
loks mun Kristján Ari Arason kynna
hugmyndir um stofnun útvarps-
stöðvar á vegum VS og hugsanlega
annarra samtaka einnig.
Á meðan fundargestir ræða á-
standið í stjórnmálunum yfir kaffi-
bollum. ætla þeir Árni Hjartarson
og Ársæll Másson að skemmta með
söng og gítarspili og Þorvaldur Örn
Árnason mun stýra fjöldasöng eftir
því sem áhugi fundarmanna leyfir.
- phh
Málmfríður Sigurðardóttir, Kvennalista,
um frétt Alþýðublaðsins:
Alþýðublaðs*
menn nefur dreymt
þetta í nótt
■ - fréttin er uppspuni
„Þetta sem stendur í Alþýðublað-
inu í ntorgun, er bara eitthvað út í
loftið. Þetta hlýtur að vera eitthvað
sem þá hefur dreymt í nótt.Þetta er
bara uppspuni og ekkert á bak við
þetta,“ sagði Málmfríður Sigurðar-
dóttir, þingmaður Kvennalistans í
samtali við Tímann í gær.
í „draumi“ þeirra Alþýðublaðs-
manna kom fram að nú væru línur í
stjórnarmyndunarviðræðunum farn-
ar að skýrast og Kvennalisti gerði
m.a. kröfu til að fá ákveðnar fjár-
hæðir tryggðar til þeirra ráðuneyta
sem þær hefðu áhuga á að fá. í
draumnum kom einnig fram að
Kvennalistann dreymdi um að fá
fjármálaráðherrann í sinn hlut.
Annars sagði Málmfríður að
Kvennalistakonur væru nú á kafi í
undirbúningsvinnu, svona þegar
tími gæfist til vegna stöðugra hring-
inga erlendis frá, en mjög mikill
áhugi væri úti í hinum stóra heinii á
málefnum Kvennalistans og hvað
væri eiginlega að gerast á fslandi
þessa dagana.
- phh
Lionsmcnn munu hcimsækja alla grunnskóla landsins 2. maí og næla merki Vímulausrar æsku í barm unglinga
Lionshreyfingin á Noröurlöndunum:
Burt með vímuefni
Lionshreyfingin á Norður-
löndunum hefur tileinkað sér fyrsta
laugardag í maí sem baráttudag
gegn vímuefnum.
I tilefni baráttudagsins munu
Lionsfélagar um allt land heim-
sækja hvern einasta grunnskóla og
næla merkinu Vímulaus æska í
barm allra unglinga sem eru 12 og
13 ára. Þess er vænst að unglingarn-
ir beri merkið næstu daga og gangi
um leið í lið með Lionssamtökun-
um í varnarbaráttu gegn vímuefn-
um.
í úrslitakeppni í hjólreiðum sem
fer fram á Laugardalsvellinum
þennan sama dag munu allir kepp-
endur verða auðkenndir með
merkinu og munu Lionsfélagar
verða á staðnum til að fræða hvern
sem þess óskar um starf það sem
Lionshreyfingin vinnur að á al-
þjóðavettvangi í vörnum gegn mis-
notkun vimuefna.
íslenskir Lionsmenn hafa helgað
sig baráttu fyrir betra lífi og bjart-
ari framtíð ungs fólks og áttu m.a.
aðild að stofnun samtakanna
Vímulaus æska.
ABS
Jón Baldvin Hannibalsson um óformlegar stjórnarmyndunarviðræður við
Kvennalista og Sjálfstæðisflokk:
„I mean business“
rTil umræöu aö Kvennalisti fái fjármálaráöuneytiö - Telur stjórn meö
Alþýöuflokki og Framsókn afar ólíklega
„Ég kannast aðeins við þær kröf-
ur Kvennalistans sem fram koma í
Alþýðublaðinu í dag, sem almenn-
ur blaðalesandi og get ekki staðfest
þær. En ekkert sem þar kemur
fram er að mínu mati frágangssök
og krafa þeirra um fjármálaráð-
herraembættið hlýtur að vera til
umræðu," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokks í samtali við Tímann í gær.
í forsíðufrétt Alþýðublaðsins er
talað um að Kvennalistinn geri það
að forsendu fyrir stjórnarsamstarfi
að fá „tryggingu fyrir ákveðnum
fjárveitingum til þess eða þeirra
fagráðuneyta sem koma í þeirra
hlut.“ Þá ereinnig talað um að þær
geri kröfur til fjármálaráðuneytis-
ins.
Varðandi hugsanlcgt stjórnar-
samstarf Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks sagði Jón að flokkana
greindi mjög á um mörg mál.
Aðspurður um hvort t.d. landbún-
aðarstefna Alþýðuflokksins gcrði
stjórnarsamstarf þessara flokka
ómögulegt, sagði Jón að hún hefði
gert það hingað til og það yrði að
telja það mjög líklegt að hún gerði
það í framtíðinni.
„Ágreiningsefni okkar við Fram-
sóknarflokkinn eru auðvitað gam-
alkunn og þau cru þessi helst:
Stefna í landbúnaðarmálum og þar
af leiðandi í ríkisfjármálum,
annað: Stjórnkerfið og þá fyrst
tillögur okkar um nýtt bankakerfi
sem við munum taka upp aftur.
Ýmislegt í þeim tillögum hcfur
ekki mátt ncfna, frekar en snöru í
hengds manns húsi í þingflokki
Framsóknarflokksins."
Aðspurður hvort þetta þýddi
ekki að hans mati að það væri
nánast ógerlegt að mynda stjórn
með þátttöku þessara tvcggja
flokka, svaraði Jón: „Það verður
mjög erfitt að mynda stjórn með
þessum tveimur flokkum, í ljósi
þessa ágreinings".
Sagði Jón að þetta væri m.a.
ástæða þess að hann leitaði nú
hófanna hjá Kvennalista og Sjálf-
stæðisflokki, því það væri miklu
vænlegri kostur að hans mati. „Og
eins og Kanarnir segja: I mean
business," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson að lokum.
- phh
Bubbi kóngur
á Akureyri
í gærkvöldi, miðvikudagskvöld,
frumsýndi Leikfélag Menntaskólans
á Akureyri leikritið Bubbi kóngur
eftir Alfred Jarry, undir stjórn Ein-
ars Jóns Briem leikara. Að sögn
Einars fjallar verkið um valda-
græðgi, eigingirni, hefnigirni, og
flest hið vonda í manninum á nijög
spaugilegan og ýktan hátt. Aðalper-
sónan, Bubbi, er lítill karl við hirð
Veneslasar konungs. Bubbi steypir
konungi af stóli með líkamsmeiðing-
um og lúalegum aðferðum.
Alls taka um 25 manns þátt í
sýningunni en helstu hlutverk eru í
höndum Þorgeirs Tryggvasonar sem
leikur Bubba, Drífu Arnþórsdóttur
sem leikur Bubbu og Sigurðar Arnar
Árnasonar sem leikur Grjóna
hirðfífl.
Sýningar verða í Leikhúsinu á
Akureyri sunnudaginn 3. maí og
þriðjudaginn 5 maí og hefjast sýn-
ingar kl 20:30.