Tíminn - 30.04.1987, Side 16

Tíminn - 30.04.1987, Side 16
16 Tíminn !fl LAUSAR STÖÐUR HJÁ M REYKJAVIKURBORG Starfsmaður óskast í fullt starf við Áfangastaðinn Amtmannsstíg 5A, sem er heimili fyrir konur sem hafa farið í áfengismeðferð. Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg háskóla- menntun áskilin eða reynsla á sviði áfengismeð- ferðar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 26945, f.h. virka daga. Umsóknarfrestur er til 18. maí n.k. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Veiðifélag Elliðavatns Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörg, unglingar (12-16 ára) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið afhent veiðileyfi án greiðslu. Veiðifélag Elliðavatns. Olofshús Sjómanna- félags Reykjavíkur Orlofshús félagsins að Hraunborgum Grímsnesi og að Húsafelli verða leigð út frá og með 4. maí. Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu félagsins gegn greiðslu dvalargjalds frá kl. 9.00 n.k. mánudag. Stjórnin. Au pair Stúlka 19 ára eða eldri óskast á bandarískt heimili í Philadelpiu til að sjá um létt húsverk og aðstoða við pössun á 2 drengjum (2 1/2 og 5 ára). Um ársdvöl er að ræða og þarf viðkomandi að geta talað eitthvað í ensku. Upplýsingar gefur Sigga í síma 18300 (kl. 9-5) og 23132 eftir kl. 18 á daginn. Hestamenn - Hestamenn Munið sýningu á stóðhestum í Gunnarsholti laug- ardaginn 2. maí kl. 14.00. Stóðhestastöð ríkisins. t Innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúö og hlýhug viö fráfall og útför Séra Benjamíns Kristjánssonar Þóra Björk Kristinsdóttir Jósep H. Þorgeirsson Margrét Þorsteinsdóttir Björn Ingvarsson Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa Símonar Teitssonar Þórólfsgötu 12, Borgarnesi Guð blessi ykkur öll. Unnur Bergsveinsdóttir örn R. Símonarson TeiturSímonarson Sigrún Símonardóttir Sigurbjörg Símonardóttir Bergsveinn Simonarson Sonja Ásbjörnsdóttir Margrét Jónsdóttir Ólafur Á. Steinþórsson Siguröur Óskarsson JennýJohansen barnabörn og barnabarnabörn ■ Fimmtudagur 30. apríl 1987 DAGBÓK Guðrún Sigurðardóttir Urup Gallerí Gangskör: Sýning Guðrúnar Sigurðar- dóttur Urup Á morgun, föstudaginn 1. maí kl. 14.00 veröur opnuð í Gallerí Gangskör viö Latkjargötu sýning á klippimyndum (col- lage), silkiþrykki (serigrafi) og gvass- myndum (gouachemyndum) eftir Guö- rúnu Sigurðardóttur Urup, listmálara. Guðrún er húsett í Danmörku. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands á sínum tíma undir handleiðslu Kurt Zier og Þorvaldar Skúlasonar. Hún kenndi myndlist um skeið hér heima, en hélt síðan utan og lauk námi frá Kunst- akademíunni í Kaupntannahöfn. Enn- fremur á hún að baki námsdvalir í mörgum löndum svo sem Frakklandi, Ítalíu, Kússlandi og Mexíkó. Guðrún hefur unnið aö glerlist og vann að gerð glugganna í Sauðárkrókskirkju ásamt manni sínum Jcns Urup. listmál- ara. Guðrún hefur tekið þátt í sýningum í Danmðrku en ekki sýnt hérlendis fyrr en nú. Sýningin er opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um hclgar. Sýningunni lýkur föstudaginn 15. maí. Listasafn ASÍ: Fréttaljósmyndir - „World Press Photo ’87“ Alþjóðlega fréttaljósmyndasýningin World Press Photo '87 verður opnuð í Listasafni ASf í dag fimmtudaginn 30. apríl kl. 16.00. Á sýningunni, sem var frumsýnd í Amsterdam um miðjan apríl. eru liðlega 200 Ijósmyndir, sem hlutu verðlaun og viðurkenningu í árlegri samkeppni frétta- Ijósmyndara um allan heim. Verðlaun voru veitt í 9 cfnisflokkum, þar á meðal eru fréttir, íþróttir, daglegt líf. fólk í fréttum, vísindi og tækni, og gleðilegir viðburðir. Sýningin er opin kl. 16-20 virka daga, en kl. 14-22 unt helgar. Sýningunni lýkur Í7. maí. Málstofa heimspekideildar Heimspekideild Háskóla Islandsgengst fyrir málstofu um menningarbyltinguna 1880-1930. Næsta erindi verður flutt í dag, fimmtud. 30. apríl, 16.15 í stofu 301 í Árnagarði og cr öllum opið. Umræður verða að loknu erindinu. f dag talar Sveinn Skorri Höskuldsson: Gegn straumi aldar. Nokkrir þættir í hugmynd- um Gunnars Gunnarssonar 1920-1940. Dagsferðir F.í. I.maí 1. Kl. 10.30 Hengill - gönguferð. Ekið áleiðis að Sleggjubeinsskarði og gengið þaðan. Verð kr. 500. 2. Kl. 13 Húsntúli-Innstidalur. Ekið að Kolviðarhóli og gengið þaðan. Verð kr. 500. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust- anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag fslands Útivistarganga 1. maí Kl. 10:30 á fösfud. 1. maí: Norðurbrón- ir Esju. Góð fjallganga frá Tindstaðafjalli að Skálatindi. Tilkomumikið útsýni. Kl. 13:00: Maríuhöfn-Búðasandur- Laxárvogur. Létt ganga með kræklingatín- slu. Skoðaðar minjar um merkilega kaup- höfn frá 14. öld. Sjá nánar í grein í ársriti Útivistar 1984. Brottför í ferðirnar frá BSÍ, bensín- sölu, og farmiðar seldir við bíl (600 kn.). Frítt fyrir börn með fullorðnum. ' Helgarferð Útivistar 30. apríl-3.maí Brottför fimmtud. 30. apríl kl. 20:00: 1. Öræfajökull-Skaftafell - Gengin Sandfellsleið á Hvannadalshnúk. Tilvalið að hafa með göngusktði. Uppl. á skrif- stofu. 2. Öræll-SkaflafeU - Göngu- og skoðunarferðir. Gist í nýja félagsheimil- inu að Hofi. Uppl. og farm. á skrifstof- unni Grófinni 1, símar 14606 og 23732. Leyniþjónustan Leyniþjónustan á ferðinni ( kvöld, fimmtudagskvöld, leikur hljómsveitin „Leyniþjónustan" í Glaumbergi í Keflavik, - og á föstudags- kvöldið í Inghóii á Selfossi. í Leyniþjónustunni eru: Ragnhildur Gísladóttir, Jakob Magnússon. Jón Kjell og gestaspilari nú er Gunnlaugur Briem trommuleikari og Stefán Hilmarsson, Sniglasöngvari og „Vormaður (slands. - Arútjan Akopjan sjónhverfingamaður og Tónleikar og töfrabrógð Fimtp sovéskir listamenn eru staddir hér á landi í boði MÍR. Menningartengsla íslands og Ráðstjórnarríkjanna: Þjóð- lagatríóið „Bylina", söngkonan Galina Borisova og einn frægasti sjónhverfinga- maður Sovétríkjanna, Arútjan Akopjan. Listafólkið kemur fram á nokkrum „þjóðlistamaður Sovétríkjanna“. skemmtunum næstu daga, í Hlégarði í Mosfellsssveit í kvöld, föstudaginn 1. maí kl. 21, á Hótel Selfossi laugardaginn 2. maí kl. 16 og í Gamla bíói (íslensku óperunni) sunnudaginn 3. maí kl. 15. Einnig verður listafólkið á ferðakynningu MÍR í Þjóðleikhúskjallaranum mán- udagskvöldið 4. maí kl. 20.30. Frá sýningu Sigrúnar Jónsdóttur í Festi. Myndlistarsýning í Grindavík Sigrún Jónsdóttir heldur þessa dagana listsýningu j samkomuhúsinu Festi í Grindavík. Á sýningunni eru glermyndir og batikmyndir, auk hökla. Sýningin cr opin daglega kl. I6.(X1- 19.00 (4-7 e.h.) nema á föstudag, laugar- dag og sunnudag nk verður opið til kl. 22.00. Sýningin stendur til 3. maí. Tónleikar Tónmenntaskólans Laugardaginn 2. maí, kl. 2 e.h. mun Tónmenntaskóli Reykjavíkur efna til tón- leika í Gamla bíói. Á þessum tónleikum koma einkum fram yngri nemendur skólans með ein- leiks- og samspilsatriði á ýmis hljóðfæri. Á þessum tónleikum koma einkum fram yngri nemendur skólans með ein- leiks- og samspilsatriði á ýmis hljóðfæri. Auk þess verður hópatriði úr forskóla- deild. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.