Tíminn - 09.05.1987, Side 12
12 Tíminn
Laugardagur 9. maí 1987
FRETTAYFIRLIT
GENF - Samningamenn
Bandaríkjastjórnar í afvopnun-'
arviöræðum risaveldanna í
Genf höfðu í gær í hyggju að
leggja fram uppkast að sam-
komulagi, sem gerir ráð fyrir
mikilli fækkun langdrægra eld-
flauga, á sérstökum fundi með
samningamönnum Sovét-
stjórnarinnar.
JÓHANNESARBORG-
Helen Suzman, baráttukona
fyrir umbótum á aðskilnaðar-
stefnu Suður-Afríkustjórnar,
sagði að framvegis yrðu slíkar
umbætur ekki ofarlega á
stefnuskrá stjórnvalda. Frjáls-
lyndi framfaraflokkurinn, flokk-
ur Suzman, tapaði fyrir hægri-
öflunum í kosningunum á mið-1
vikudaginn.
JÓHANNESARBORG
Stjórnmálamenn og aðrir töldu
Ifklegt að suður-afrísk stjórn-
völd myndu, í kjölfar kosninga-
sigurs hægri aflanna í landinu,
taka hart á allri andstöðu gegn
kynþáttaaðskilnaðarstefnu sinni
og yrðu verkalýðsfélög
blökkumanna og baráttuhópar j
gegn aðskilnaðarstefnunni
fyrst til að finna fyrir aukinni
hörku.
WASHINGTON -Atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum minnk-
aði í aprílmánuði og er nú
6,3%. Bandarískir embættis-
menn sögðust vera hæfilega
bjartsýnir á að dollarinn styrkt-
ist í sessi og viðskiptadeilur á
alþjóðlegum mörkuðum hjöðn-
uðu.
DANAO, Filippseyjar -
Þúsundir manna fögnuðu
Corazon Aquino forseta Fil-
ippseyja er hún kom til bæjar-
ins Danao í lok baráttuherferð-
ar sinnar fyrir þingkosningarn-
ar á mánudaginn þar sem
kosið verður til hins nýja þings.
Bæjarbúar í Danao afneituðu
Aquino fyrir rúmu ári síðan
þegar hún fór í framboð gegn
Marcosi þáverandi forseta.
NYJA DELHI - Þingmenn
stjórnarandstöðunnar í neðri
deild indverska þingsins gengu
út í mótmælaskyni eftir að
Ftajiv Gandhi forsætisráðherra
hafði neitað aö látaforsetanum
Zail Singh í hendur upplýsing-
ar um vopnasöluhneyksli sem
nú fyllir forsíður dagblaðanna
þar i landi.
BANGUI - Jean-Bedel
Bokassa fyrrum einræðisherra
í Mið-Afrfkulýðveldinu, sem nú
er fyrir rétti sakaður meðal
annars um morð og mannát,
hefur einnig verið sakaður um
að hafa stolið peningum frá
velferðarkerfi landsins.
UTLOND
HÆTTUR
Bandaríkin:
HART
ER
- Ásakanir fjölmiðla um samband hans við aðra
konu en sína eigin urðu helsta forsetaefni demó-
krata að falli
Kittredge, Coloradó-Reuter
Gary Hart, sem líklegastur hefur
þótt til að hljóta útnefningu demó-
krata sem forsetaefni þeirra fyrir
kosningarnar á næsta ári, er hættur
kosningabaráttu sinni, aðeins 25
dögum eftir að hún formlega hófst.
Hart hélt blaðamannafund á hót-
eli í Denver í heimafylki sínu Color-
adó í gær og tilkynnti þar um
ákvörðun sína. Orðrómur þess efnis
hafði reyndar borist út í fyrrinótt.
Vonir Harts um að verða næsti
forseti Bandaríkjanna urðu fyrir
verulegu bakslagi síðasta sunnudag
þegar blaðið Miami Herald birti
frétt þess efnis að hann hefði eytt
helginni með 29 ára gamalli leikkonu
og sýningarstúlku, Donnu Rice, á
meðan kona hans sat heima í Color-
adó.
Hinn fimmtugi Hart hætti kosn-
ingabaráttu sinni í New Hampshire
í fyrradag og flaug til síns heima til
að vera hjá konu sinni. Hún hafði
lýst yfir stuðningi við mann sinn og
sagðist trúa honum fullkomnlega
þegar hann neitaði að hafa átt í
nokkru ástar- eða kynlífssambandi
við Donnu Rice. Donna tók reyndar
í sama streng og sagði að aðeins væri
um vináttu að ræða.
Það skipti samt litlu þótt Hart
hefði neitað, fjölmiðlar voru komnir
í málið og köfuðu djúpt. f gær
sögðust talsmenn stórblaðsins The
Washington Post hafa haft undir
höndum gögn um samband Harts
við aðra konu frá Washington og
höfðu samskipti þeirra staðið lengi
yfir. Þess ber að geta að Hart hefur
tvívegis slitið samvistum við konu
sína en þau síðan tekið saman aftur.
Washingtonpósturinn vildi fá við-
brögð Harts við upplýsingunum sem
það hafði en nokkrum stundum
síðar ákvað hann að hætta baráttu
sinni sem hann hafði ætíð sagst vilja
byggja á málefnum, ekki á persónu
frambjóðandans.
Brotthvarf Harts þýðir að nú getur
nánast hver sem er af þeim sjö
frambjóðendum sem eftir eru tryggt
sér útnefningu demókrata. Forystu-
menn flokksins sögðu í gær að þetta
myndi einungis styrkja demókrata
en flestir aðrir voru þó á öndverðum
meiði.
Sovéska dagblaðið Izvestia studdi
Hart í grein í gær og sagði banda-
ríska fjölmiðla hafa ofsótt forseta-
frambjóðandann og tekið hann af
lífi pólitískt séð. Hefði allt fárið um
konumál Harts komið Reagan-
stjórninni til góða þar sem athyglin
hefði færst frá yfirheyrslunum í
íransmálinu sem nú standa yfir í
Washington.
Gary Hart ásamt konu sinni og dóttur við rætur Klettafjalla í síðasta mánuði
þar sem hann tilkynnti formlega um þátttöku sína í forsetaslagnum. Þeirri
þátttöku hefur hann nú hætt vegna ásakana um að hafa haldið framhjá konu
sinni með smástirninu Donnu Rice (innfellda yndin).
Bretland:
Ekkert stendur
fyrir Thatcher
- íhaldsflokkur hennar var sigurvegari bæjar- og sveitarstjórnar-
kosninganna - Nánast öruggt aö þingkosningar verða í næsta
mánuði
Lundúnir-Reuter
Ekkert virðist nú geta komið í veg
fyrir að kosningar verði haldnar í
Bretlandi þann 11. júní eftir að úrslit
í bæjar- og sveitarstjórnarkosning-
unum á fimmtudaginn urðu að mestu
ljós.
Úrslit kosninganna voru sigur fyrir
Margréti Thatcher forsætisráðherra
og íhaldsflokk hennar og allt bendir
nú til að hún verði kjörin forsætis-
Yfirheyrslurnar í íransmálinu:
Færri trúa
Reagan
New York-Reuter
Meirihluti Bandaríkjamanna
telur að Reagan forseti hafi logið
þegar hann sagðist ekki hafa vitað
að hluti ágóðans af vopnasölunni
til írans hafi farið til Contra skæru-
liðanna í Nicaragua. Þetta kom
fram í niðurstöðum skoðana-
könnunar sem birtar voru í stór-
blaðinu The New York Times í
gær.
í könnuninni kom fram að 55%
þeirra 749 manna sem talað var við
voru á því að forsetinn hefði logið
og viti meira um málið en hann vill
vera láta. Aðeins 31% aðspurðra
sagði forsetann segja sannleikann.
The New York Times sagði
könnunina hafa verið gerða á
þriðjudag og miðvikudag í þessari
, viku, skömmu eftir að sjónvarps-
útsendingar hófust frá yfirheyrsl-
um rannsóknanefnda þingsins (
íransmálinu. Þær hófust á þriðju-
dagsmorguninn.
Könnunin sýndi ennfremur að
einn þriðji aðspurðra hafði fylgst
með sjónvarpsútsendingunum að
einhverju leyti. Meirihlutinn, eða
55% , taldi að yfirheyrslurnar
myndu leiða eitthvað nýtt í ljós í
málinu en 34% töldu að hér væri
einungis um leiksýningu að ræða.
Skoðanakönnun þessi sýnir að
ótrú á Reagan forseta hefur aukist.
f febrúarmánuði, skömmu eftir að
Towerskýrslan svokallaða var birt,
var gerð samskonar könnun og þá
sögðu 47% að forsetinn hefði logið
um vitneskju sína í málinu en 37%
sögðust trúa honum.
ráðherra þriðja kjörtímabilið í röð
eftir kosningarnar í júní.
Thatcher þarf ekki að efna til
kosninga fyrr en í júní á næsta ári
þegar kjörtímabili hennar lýkur og
samkvæmt heimildum innan íhalds-
flokksins var hún helst á því, þangað
til fyrir fáeinum vikum, að bíða til
haustsins með að boða til kosninga.
En góð frammistaða í nýlegum
skoðanakönnunum, vel heppnuð
ferð til Moskvu, þokkalegar efna-
hagshorfur, vandræði innan Verka-
mannaflokksins og nú góð úrslit í
bæjar- og sveitarstjórnarkosningum
hafa örugglega sannfært Thatcher
um að næsti mánuður sé tilvalinn
kosningamánuður.
Kosið var um tólf þúsund sæti í
369 bæjar- og sveitarstjórnum víðs
vegar um landið í fyrradag og vann
íhaldsflokkurinn nokkur sæti. Flest-
ir höfðu hins vegar búist við að
flokkurinn tapaði allt upp í sex
hundruð sætum þar sem sú árátta
fylgir einatt kjósendum hans að
mæta illa þegar kosið er til bæjar- og
sveitarstjórna.
Bandalag frjálslynda og jafnað-
armanna, undir forystu þeirra David
Owens og David Steels, vann einnig
á í kosningunum en Verkamanna-
flokkur Neil Kinnocks tapaði hins-
vegar fylgi og missti völdin í sjö
bæjarráðum.
Thatcher mun halda til á sveita-
setri sínu um helgina ásamt öðrum
helstu leiðtogum Ihaldsflokksins og
ráðgjöfum sínum. Þar munu kosn-
ingaúrslitin verða íhuguð gaumgæfi-
lega og forsætisráðherrann mun að
öllum líkindum tilkynna Elísabetu
drottingu á mánudaginn að kosning-
ar verði þann 11. júní.
Margrét Thatcher forsætisráðherra Bretlands: Stefnir á þriðja kjörtímabilið