Tíminn - 30.07.1987, Qupperneq 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 30. júlí 1987
Svefnlyfið Halcion óæskilegt eldra fólki?
Kvartað undan
minnisleysi og
þunglyndi
Eins og fram hcfur komið í frcttum, þá standa yfir í Holiandi málaferli
vegna svcfnlyfsins Halcion. Hollenskur lögmaður hcfur stefnt bandaríska
lyfjafyrirtækinu Upjon vcgna manns sem tók lyfiö fyrir nokkrum árum,
cn licfur síöan þjáðst af gleymsku og þunglyndi. Þess bcr þó aö geta að í
Hollandi er lyfiö gefiö í allt að fjórfalt stærri skömmtum cn hér.
Tíminn hafði samband við Ólaf
Ólafsson landlækni og spurði hvort
Landlæknisembættinu heföu bor-
ist kvartanir vegna lyfsins.
Ólafur sagði, að íyf þetta hefði
ekki verið lengi á markaði hérlend-
is, en þó hefðu einhverjir þeirra
sem taka þetta lyf kvartað undan
minnisleysi og þunglyndi.
Aðspurður um hvort það væri
ekki oftast eldra fólk sem þjáðist
öllu jöfnu af minnisleysi og þung-
lyndi, sagði Ólafur það rétt vera. í
Ijósi þess var Ólafur spurður hvort
rétt væri að ávísa þessu lyfi einmitt
til eldra fólks, þar sem hætta væri
á aukaverkunum sem yllu enn
meira þunglyndi og minnistapi.
Ólafur svaraði, að visssulega væri
það umhugsunarvert, og það væri
mjög brýnt að læknar fylgdust vel
með eldra fólki sem væri á þessu
lyfi.
Tíminn hefur heimildir fyrir að
læknar ávísa þessu lyfi í nokkrum
inæli, einmitt til eldra fólks. Lyf
þetta mun hafa þann kost umfram
önnur sambærileg lyf, að helming-
unartími lyfsins er mun styttri þ.e.
aðeins 4-8 klukkustundir.Halcion
er af þeim sökum ekki slæmt lyf
fyrir yngra fólk sem þarf á svefn-
lyfjurn að halda.
Einnig hefur Tíminn þær upplýs-
ingar að til að mynda á sjúkra-
húsumí Noregi er Halcion að öllu
jöfnu ekki gefið sjúklingum yfir
fimmtugt. Einnig kemur fram í
flestum fræðiritum um lyf, að varað
er við framngreindum aukaverkun-
um lyfsins og af þeim sökum mælst
til að eldra fólk neyti ekki lyfsins.
-BD.
Aflari röð t.v. Hallur Kristvinsson, Kristín Sætran, Oddgeir Þórðarson.
Fremri röð t.v. Elísabet V. Ingvarsdóttir, Þórdís Zoéga, Heiða Elín
Jóhannsdóttir.
•-
Félag húsgagna- og innanhússarkitekta:
Ný stjórn tekur við
Aðalfundur Félags húsgagna- og
innanhússarkitekta var haldinn fyrir
skömmu. Á fundinum var kjörin ný
stjórn félagsins og skipa hana, Þór-
dís Zoéga formaður, Heiða Elín
Jóhannsdóttir gjaldkeri og Elísbet
V. Ingvarsdóttir ritari. í varastjórn
eru Hallur Kristvinsson, Kristín
Sætran og Oddgeir Þórðarson. Fé-
lagsmenn í Félagi húsgagna- og
innanhússarkitekta eru nú 59 talsins
og fjölgaði um tvo á árinu. Félagið
var stofnað árið 1956 og er því
liðlega 30 ára gamalt. Á aðalfundin-
um var ákveðið að láta skrifa sögu
félagsins sem samhliða yrði úttekt á
hlut félagsmanna í hönnun húsgagna
og innréttinga á tímabilinu. Þann
30. apríl 1986 voru samþykkt lög á
Alþingi um lögverndun starfsheitis
húsgagna- og innanhússhönnuða,
sem hefur verði mikið baráttumál
félagsins urn árabil. Ákveðið hefur
verið að gera tæmandi félagaskrá,
með nöfnum allra þeirra sem hafa
fengið lögverndun starsheitisins, en
það eru allir félagsmenn FHI.
næst þegar þú ferðast innanlands
Tíminn er takmörkuð auðlind. Flugið sparar ■
tíma og þar með peninga.
Flugleiðir og samstarfsaðilar í lofti og á láði
tengja yfir 40 þéttbýliskjarna innbyrðis
og við Reykjavík.
Með þaulskipulagðri og nákvæmri áætlun
leggjum við okkur fram um að farþegum okkar
nýtist tíminn vel.
Þannig tekur ferð landshorna á milli
aðeins stutta stund efþú hugsarhátt.
FLUGLEIDIR
ísfugl:
Nákvæmt eftirlit
með kjúklingum
Forsvarsmenn ísfugls vilja að
gefnu tilefni koma þvt' á framfæri,
að þeir kjúklingar, sem talið er að
hafi orsakað matarsýkinguna nú
fyrir skömmu í J.L. Húsinu, voru
ekki frá ísfugli, segir í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu. Þar segir
jafnframt að allt sé gert af fyrir-
tækisins hálfu til að koma í veg
fyrir að salmonellusýking geti aftur
komið upp vegna kjúklinga frá
fyrirtækinu. Frá áramótum hafa
verið tekin sýni daglega úr slátrun
Halldóra Viktorsdóttir, nýráðin
framkvæmdastjóri Frjáls framtaks.
frá hverjum bónda. Sýnin eru tekin
úr hálsaskinnum og saur, en þar
finnst salmonellan sé hún til staðar,
segir jafnframt í fréttatilkynning-
unni. Salmonellusýkillinn deyr við
■ 65 gr hita, en kjúklingar eru steiktir
í ca klukkutíma við 200-250
gráður, þannig að hættan er vægast
sagt lítil sé meðhöndlunin rétt.
Fyrirtækið vill benda fólki á að
aðalatriðið sé að nota ekki sömu
íiát og áhöld fyrir hrátt kjöt og
steikt.
Ritstjóri Íslenskra fyrirtækja, Hall-
dóra J. Rafnar.
Mannaráðningar hjá Frjálsu framtaki:
Halldórur ráðnar í rit-
Halldóra Viktorsdóttir hefur nú
verið ráðin framkvæmdastjóri
útgáfufyrirtækisins Frjáls framtaks
hf. Halldóra er fædd á Akureyri
1948, lauk stúdentsprófi frá M.R.
1968 og starfaði st'ðan sem flugfreyja
um tíma hjá Flugfélagi íslands, var
síðan heimavinnandi húsmóðir í all-
mörg ár, þar til hún réðst til starfa
hjá Frjálsu framtaki. Þar starfaði
hún fyrst við almenn skrifstofustörf,
síðan sem gjaldkeri og skrifstofu-
stjóri varð hún fyrir tveimur árum.
Halldóra J. Rafnar hefur verið
ráðin ritstjóri fyrirtækjaskrárinnar
fslensk fyrirtæki, sem fyrirtækið hef-
ur gefið út í 17 ár. Halldóra lauk
stúdentsprófi frá máladeild M.R.
1967, BA prófi í ensku og sagnfræði
frá. Háskóla íslands 1972 og starfaði
við framhaldsskóla í Reykjavík árin
1971 til 1984. Ári síðar hóf hún störf
sem blaðamaður á Morgunblaðinu.
-SÓL