Tíminn - 30.07.1987, Qupperneq 7
■ Fimmtudagur 30. júlí 1987
Tíminn 7
Skýrsla um framtíð sauðfjárræktarinnar til aldamóta:
Kindakjöt verði áfram
meginhiuti kjötneyslu
„Sauðfjárræktinni verði áfram
ætlað að sjá þjóðinni fyrir megin-
hluta þess kjötmetis, er þjóðin
þarfnast á ári hverju, að eðlilegum
öryggisbirgðum meðtöldum," segir
m.a. í skýrslu um framtíð sauðfjár-
ræktar á íslandi fram til næstu alda-
móta sem var skilað til landbúnaðar-
ráðherra í byrjun vikunnar.
Helstu rök þessa eru að sauðfjár-
ræktin nýti auðlindir landsins með
þeim hætti að aðeins fáar aðrar-
atvinnugreinar hæfi betur því mark-
miði að vera grundvöllur dreifðrar
byggðar í landinu og að hún leggi til
hráefni sem sé undirstaða umfangs-
mikils úrvinnsluiðnaðar í landinu.
Sauðfjárræktin sé auk þess öryggis-
þáttur um öflun matvæla en það sé
nauðsynlegt í veröld vaxandi óvissu
um framtíð matvælaöflunar þegar til
lengri tíma sé litið.
Sauðfjárbændur verði hins vegar
að nýta gæði landsins með fyrir-
hyggju og koma til móts við kröfur
markaðarins um gæði og fjölbreytta
vöru á sanngjörnu verði. Sauðfjár-
ræktin eigi samt sem áður að skila
bændum viðunandi tekjum auk þess
sem bændur eigi að búa við sann-
gjarnt framleiðsluöryggi sem miðað
sé við hinn langa aðdraganda að
framleiðslu afurðanna.
Skýrsluhöfundar telja að þessi
markmið um sanngjarnt verð og
viðunandi tekjur geti stangast á og í
þeim tilfellum verði stjórnvöld að
koma inn í dæmið. Stjórnvöld,
bændur, sláturhús, iðnaður og versl-
un eru þeir aðilar sem einkum ráða
verði kindakjöts og því verði það
undir þessum aðilum komið hvernig
framtíð sauðfjárræktarinnar verður.
Höfundar telja að stjórnvöld verði
að ákveða hve mikil áhrif landbún-
aðarstefna annarra þjóða eigi að
hafa á byggð og atvinnu hérlendis og
Ársverkum í úrvinnslunni hefur fjölgað jafnframt því sem vinnuafl
bundið frumframleiðslu hefur dregist saman. Ef við nú gerum ráð
fyrir að helmingur ársverka í almennum búrekstri sé við sauðfjár-
rækt, og athugum hve mörg úrvinnslustörf eru á bak við hver 100
ársverk á sauðfjárbúum, koma eftirfarandi tölur í Ijós:
1976-77 36 ársverk í úrvinnslu pr. 100 ársv. á sauðfjárbúum.
1978-79 44 ársverk í úrvinnslu pr. 100 ársv. á sauðfjárbúum.
1980-81 45 ársverk í úrvinnslu pr. 100 ársv. á sauðfjárbúum.
1982-83 50 ársverk í úrvinnslu pr. 100 ársv. á sauðfjárbúum.
1984- 54 ársverk í úrvinnslu pr. 100 ársv. á sauðfjárbúum.
(Úr skýrslunni um framtíð sauðfjárræktar á íslandi. Bent er á að taka þessum
tölum með ákveðnum fyrirvara en þær gefa a.m.k. hugmynd um hvernig
ársverkin skiptast.)
Hvenær borðar fólkið
meira af dilkakjöti?
Kindakjötssala á islandi einkenn-
ist mjög af sveiflum frá einum tíma
til annars og allt frá því að vera um
2000 tonn á mánuði niður í 200 til
300 tonn.
Sölúsveiflurnar má „fyrst og
fremst rekja til ákvarðana stjórn-
valda um niðurgreiðslur á kindakjöti
og svonefndra kjötútsala sem gripið
hefur verið til“, segir í skýrslu starfs-
hóps um sauðfjárræktina á fslandi,
stöðu og stefnu. Þetta sést nokkuð
glöggt á mynd sem sýnir samspil sölu
og verðs á kjöti. Um leið og verð
hækkar dregst salan saman og öfugt.
Árið 1982 er selt einna mest af
kindakjöti og þá er verð fremur lágt.
Sömu sögu er að segja árið 1979.
Hagvangur spurði að því í könnun
síðastliðinn vetur hvað þyrfti að
gera til þess að auka neyslu á
lambakjöti og svöruðu 59% því til
að lækka þyrfti verðið, aðrir nefndu
vöruþróun og fleiri þætti. Aðeins
17% töldu sig ekki kaupa meira af
lambakjöti þrátt fyrir lækkað verð.
Á sama tíma og þessar niðurstöð-
ur liggja fyrir segir starfshópur um
framtíð sauðfjárræktar í landinu að
ljóst sé að kindakjöt hafi hækkað
meira í verði en annað kjöt. Þetta
eigi einkum við um stykkjað kinda-
kjöt. Árið 1976 var kindakjöt í
heilum skrokkum 88% ódýrara en
kjúklingakjöt en árið 1986 er það
einungis 25% ódýrara. ABS
T ONN
I i 000
7000
77 78 79 00 81 02 83 04 85
*) Verð á I verðflokks klndak |ötl, kr pr kp Framfærsluvlsilala 1987.
Helmlld: Landbunaðarrá&uneytlð
Sala og verðlag kindakjöts innanlands 1977 til 1985
gera það m.a. með því að marka
fóðurstefnuna skýrar. Einnig þurfi
að marka skýra stefnu hvað niður-
greiðslur og útflutningsbótafé
varðar.
Bændur verði að auka afurðasemi
og komst nefndin að þeirri niður-
stöðu að „kjörbú" sem skilaði 33%
meiri frjósemi, 10% meiri fallþunga
og 6% minni ársvinnu gæti skilað um
29% meiri heildartekjum og 51%
meiri framlegð en meðalbúið. Sauð-
fjárrækt við lágmarkskostnað sé ekki
líklegur til hagkvæmrar framleiðslu
fyrir utan að slíkur búskapur er
óæskilegur frá sjónarmiði landnýt-
ingar.
Sláturhús, iðnaður og verslun
verði að hafa aðhald til þess að
þessir kostnaðarliðir fari ekki úr hófi
fram. Um þessar mundir sé slátur-
og heildsölukostnaður um fjórðung-
ur af óniðurgreiddu heildsöluverði
kindakjöts og því sé mikið unnið
með lækkun hans. Vöruþróun og
markaðsstarf sé ákaflega mikilvægt
en fyrst og fremst skuli miða við
innanlandsmarkaðinn og eðlilegt sé
að á næstu árum verði meginhluta
opinbers rannsóknarfjár til sauðfjár-
ræktar varið til þróunarstarfs á sviði
afurða hennar. -ABS
Framleiöslukostnaður kindakjöts:
VERDUR KINDA-
KJÖT AUKAAFURD
BYGGÐAVARÐ-
VEISLU EDA ÖFUGT?
Þróun framleiðslukostnaðar
kindakjöts mun ráða miklu um það
hver framtíð sauðfjárræktarinnar
verður að áliti starfshóps landbún-
aðarráðuneytisins.
Stærsti einstaki kostnaðarliður-
inn í framleiðslunni eru laun, eða
51%. ímjólkurframleiðsluerhann
41% og þaðan af minna í svína- og
alifuglarækt enda er í hinu síðast-
talda ekki um heimaöflun fóðurs
að ræða og einkum notað erlent
fóður.
Ef lækka á launalið sauðfjárbúa
munu mun færri geta stundað sauð-
fjárrækt en ef hann yrði ekki
lækkaður og segja höfundar skýrsl-
unnar því að valið standi á milli
þess að a) kindakjöt verði auka-
afurð byggðavarðveislu sem þýddi
verulega tilfærslu fjármuna frá ríki
til sauðfjárræktarinnar eða b) að
byggðavarðveisla verði aukaafurð
sauðfjárræktar sem „ótvírætt
myndi leiða til lækkunar sauðfjár-
afurða vegna hagræðingar, vinnu-
sparnaðar og ítrustu nýtingar
þeirra framfaramöguleika sem til
staðar eru í sauðfjárræktinni. Þeim
fylgir hins vegar byggðabylting
með erfiðleikum og umtalsverðum
kostnaði fyrir samfélagið þar sem
bændafólk þyrfti að hverfa frá
staðfestu sinni til byggða þar sem
upp þyrfti að koma húsnæði og
atvinnu," segirorðrétt í skýrslunni.
Hins vegar er því svo bætt við að
ekki skuli lagt mat á það hvor
leiðin yrði i raun dýrari fyrir sam-
félagið þegar á heildina væri litið.
Greint er frá því að á fjölmörg-
um minni búum þar sem eingöngu
sé búið með sauðfé sé afraksturinn
í engu samræmi við kröfur hins
almenna þegns um tekjur.
Orðrétt segir um þessi litlu sauð-
fjárbú: „Engu að síður unir fólk
við þennan búrekstur, því það
finnur í honum svölun annarra
þarfa, svo sem fyrir frjálsræði,
sjálfstæði og metur mikils mögu-
leikann á að umgangast og ala önn
fyrir sauðfénu í lifandi umhverfí
náttúru og fólks með söniu áhuga-
mál - (leturbr. Tímans) kannski
einmitt svipuð gildi og borgarbúinn
sækist eftir og hjá honum birtist í
hestamennsku og vel ræktum
sumarbústað. ABS
ÐÆNDUR - HELGARÞJONUSTA
Varahlutaverslun okkar Ármúla 3, verður opin á
laugardögum í sumar frá kl. 10.00 f.h. til kl. 14.00 e.h.
Komið eða hringið
Beinn sími við verslun 91-39811
Greiðslukortaþjónusta
BÚNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900