Tíminn - 30.07.1987, Síða 15
Fimmtudagur 30. júlí 1987
Tíminn 15
AÐ UTAN
iiiniiiiniiiiiiiii
iiiiiiiiiiiflimiiniii
iiiiiiii
Þær ólust upp hjá
„röngum“ mæðrum
Fyrir hálfri öld var
ekki hægt að sanna
að skipt hefði verið
um börnin á sjúkra-
húsinu og því var
vísað á bug.
Dætrunum var sagt
það 18 ára.
Nýlega gerðist það á írsku sjúkra-
húsi, að ruglast var á nýfæddum
börnum. Ætla mætti að cinfalt væri
að bæta úr slíku, en í þessu tilviki
bar svo við, að önnur móðirin neitaði
að afhenda barnið, sem henni hafði
verið fært. Hún var sannfærð um að
eiga það sjálf. Það var ekki fyrr en
réttu foreldrarnir fengu sér lögfræð-
ing, scm krafðist blóð- og vefjarann-
sókna, að málið leystist, aðeins 10
dögum eftir fæðingu barnanna.
Við þessar fréttir rifjuðust upp
daprar minningar hinnar 78 ára
görnlu Margaret Wheeler í Nott-
hingham í Englandi. Það sama gerð-
is nefnilega hjá henni fyrir réttum 50
árum og þá var endirinn ekki jafn
farsællegur. Hún vissi að hún hafði
fengið barn annarrar konu, en var
neydd til að taka því.
- írsku foreldrarnir voru heppnir,
að sjúkrahúsið skyldi viðurkenna
mistökin, segir Margaret. - Þegar ég
sagði starfsfólki sjúkrahússins í
Notthingham á sínum tíma, að ég
væri viss um að hafa fengið rangt
barn, var því algerlega vísað á bug.
Nú á tímum er líka hægt að ganga
úr skugga um slíkt með alls kyns
sýnum, en árið 1936, þegar ég fæddi
dóttur mína, var ekki um neitt slíkt
að ræða, jafnvel þó hinir foreldrarnir
hefðu fallist á það.
Sjö ár liðu, þar til Margaret og hin
móðirin, Blanche Rylatt, fengu
sannanir fyrir, að skipt hafði verið
um dætur þeirra. Þá gerðu þær með
sér leynilegt samkomulag.
Vegna þess hve það hefði haft í för
með sér mikið tilfinningarót fyrir
margt fólk, að draga sannleikann
fram í dagsljósið, ákváðu þær að
þegja yfir öllu saman, en halda góðu
sambandi milli fjölskyldnanna, svo
Mæðurnar með „réttar“ dætur sínar: Margaret og Peggy (t.v.) og Blanche og Valerie.
þær ættu þess kost að fylgjast að
nokkru leyti með „rétta“ barninu
sínu.
Mæðurnar komu sér ennfremur
saman um að segja dætrunum sann-
leikann þegar þær yrðu 18 ára og sú
ákvörðun reyndist skynsamleg.
Fyrir nokkru gerðist það svo, að
dæturnar, Peggy og Valerie héldu
sameiginlega upp á fimmtugsafmæli
sín með báðum fjölskyldunum. - Ég
finn ekki til rieinnar beiskju yfir að
hafa alist upp hjá „röngum" foreldr-
um, fullyrðir Peggy. - En það var
svolítið áfall að heyra sannleikann.
Hún bætir svo við: - Vissulega var
þetta mikil reynsla fyrir okkur „syst-
urnar“, en fjölskyldur okkar hafa
fyrir vikið tengst nánari böndum.
Við köllum báðar mæður okkar
mömmu og börnin okkar eiga einni
ömmu fleiri en önnur börn.
Allt hófst þetta á sjúkrahúsi í
Notthingham árið 1936, þegar Mar-
garet Wheeler og Blanche Rylatt
lágu saman á stofu, áður en þær
fæddu. - Okkur kom prýðilega sam-
an segir Margaret. - Én ég veitti því
strax athygli, að mitt nafn stóð á
hennar rúmi og öfugt, en við kærð-
um okkur kollóttar, það yrði leið-
rétt.
Síðan fæddust dætur okkar nánast
samtímis og allt frá upphafi var ég
sannfærð um, að eitthvað væri ekki
eins og það ætti að vera.
Ég reyndi að sannfæra hjúkrunar-
konurnar um, að þær hefðu látið mig
fá rangt barn, en þær harðneituðu
því.
Blance Rylatt sagði þá, að hún
tryði ekki, að slík mistök gætu átt sér
stað, en hún samþykkti þó að halda
sambandi við Margaret eftir að þær
væru komnar heim.
Peggy, sem ólst upp hjá Blance
Rylatt, sagðist oft hafa hugsað um
það, þcgar hún var unglingur, hvað
börn Margaretar „frænku" og hún
sjálf væru svipuð t' útliti.
- Þegar ég var 18 ára og nýtrúlof-
uð, fékk ég loks að vita sannleikann,
segir hún. - Wheeler-hjónin komu í
heimsókn og báðu mig að koma með
sér í gönguferð. Mamma sagðist
þurfa að sýna mér nokkrar gamlar
fjölskyldumyndir.
Ég greip eina, sem ég var viss um
að væri af mér, en þá sögðu þau að
þetta væri Denise dóttir þeirra. Alit
í einu rann Ijósið upp fyrir mér og ég
sagði ósköp blátt áfram: - Þú ert
raunverulega móðir ntín, er það
ekki? Margaret viðurkenndi það.
Hvað Valerie varðar, segir Pcggy,
að þetta hafi orðið henni öllu meira
áfall, en þegar þær ræddu málin,
kom þeim saman um að breyta
engu. - Ég var líka að fara að gifta
mig og flytja inn í eigið hús bráðlega,
bætir hún við.
- Börn okkar beggja vita sannleik-
ann og mcð árunum hafa tengsl
fjölskyldnanna orðið nánari.
Vildi Peggy, að þetta hefði orðið
öðruvísi? - Nei, þegar ég lít til baka,
get ég ekki ímyndað mér, hvað hefði
gerst, ef við hefðum átt að skipta um
foreldra og heimili sjö ára gamlar,
segir hún. - Ég dáist bara að mæðr-
unum tveimur fyrir að hafa kjark til
að taka jafn óeigingjarna ákvörðun
og halda þessu leyndu í ellefu ár.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Alla miðvikudaga
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
TIL HJALPAR
— gegn vimuefnum —
ÁHEITASÍMINN
62 • 35 • 50
62 svo byrjar baga
bræður og systur hlýðið á
35 ég held til haga
hverju sem okkur gagnast má
50 hjartans höfðinginn,
hringdu nú elsku vinur minn
AUGLÝ3NG
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKfRTEINA RÍKISSJÓEIS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl.A 01.08.87-31.01.88 kr. 243,86
*lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
GÍRÓNÚMERIÐ
62 10 • 05
Innlausn spariskírteina ríkissjóös ferfram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
KRÝSUVÍKURSAMTðKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK
S 62 10 05 OG 62 35 50
Reykjavík, júlí 1987
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Santa Maria .......... 10/8
Gloucester:
Jökulfell..............20/8
Jökulfell............. 10/9
New York:
Jökulfell..............31/7
Jökulfell..............21/8
Jökulfell............. 11/9
Portsmouth:
Jökulfell............. 19/8
Jökulfell.............. 9/9
SKIPADEILD
^&kSAMBANDSINS
LINDARGATA 9A
PÓ^TH. 1480 • 121 REYKJAVlK
SlMÍ 28200 ■ TELEX 2101
TÁKN TRAUSTRA FlJUmilNGA