Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 6. ágúst 1987 Aðalfundur Norræna áhugaleikhúsráðsins: Norræn leiklistar- miðstöð áhugafólks Norræna áhugaleikhúsráðið - NAR - hélt sinn 20. aðalfund í Lýðháskólanum í Rómaríki í Noregi fyrir skömmu. Þar var samþykkt menningarstefnuskrá fyrir NAR, sú fyrsta í sögu ráðsins. I stefnuskránni er lögð áhersla á að varðveita og þróa áhugaleikhusið sem kraftmikla hreyfingu, þar sem allir geti verið með, óháð kyni, aldri, stöðu, upp- runa og stjórnmálaskoðunum. Áhugaleikhúsið skipar núorðið þann sess í menningarlífi á Norður- löndum og í norrænni samvinnu, að NAR mun í framtíðinni leggja meg- ináherslu á að koma á fót norrænni leiklistarmiðstöð. í slíkri miðstöð kæmu allir þættir áhugaleikhússins saman, en menntun og upplýsinga- miðlun sætu þar í fyrirrúmi. Bandalag íslenskra leikfélaga hef- ur frá 1970 tekið virkan þátt í NAR og íslenskt áhugaleikhús hefur eflst mjög af því samstarfi. Eitt gleggsta dæmið þar um er norræna leiklistar- hátíðin sem haldin var sl. sumar í Reykjavík. Auk þess hafa íslensk leikfélög átt þess kost að fara í leikferðir til Norðurlandanna og sækja námskeið í háum gæðaflokki. Aðalfund NAR í Rómaríki, leik- smiðju og námskeið í tengslum við hann sóttu 23 íslendingar frá leikfé- lögum alistaðar að af landinu. For- maður NAR er Ella Róyseng frá Noregi, en varaformaður Einar Njálsson, Húsavík. þýddi bókina, sem er 279 blaðsíður að stærð og prentuð hjá Nörhaven á Jótlandi. Teikn hannaði kápu. Gulleyjan eftir Einar Kárason kom fyrst út hjá Máli og menningu árið 1985 og er því endurútgáfa. í fyrra sendi kiljuklúbburinn áskrif- endum sínum sögu Einars, Þar sem djöflaeyjan rís, en Gulleyjan er sjálfstætt framhald hennar. Sagan fjallar um hina litríku fjölskyldu í Gamla húsinu. Þessar tvær bækur Einars Kárasonar hafa komið út í stórum upplögum, og var sýning byggð á þeim sýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur í vetur við góðar undir- tektir. Gulleyjan er215 blaðsíður að stærð og prentuð hjá Nörhaven á Jótlandi. Guðjón Ketilsson hannaði kápuna. Hitaveituframkvæmdir á Ólafsfirði: Nýr heitavatnsgeymir vopnið gegn tæringu Nú eru í undirbúningi fram- kvæmdir við byggingu nýs heita- vatnsgeymis fyrir Hitaveitu Ólafs- fjarðar. Að sögn Valtýs Sigurbjarn- arsonar bæjarstjóra á Ólafsfirði hef- ur nokkuð borið á tæringu af völdum efnasambanda í heita vatninu þar. Fyrirhugaður heitavatnsgeymir er því fyrst og fremst ætlaður til afloft- unar á súrefni úr vatninu til að koma í veg fyrir tæringu. Geymirinn sem ætlað er að taki 120 tonn mun þó að einhverju leyti nýtast til miðlunar á heitu vatni. Geymirinn gefur einnig möguleika á að koma við ákveðnum stýribúnaði sem bæði sparar raforku við dælingar og kemur í veg fyrir ónauðsynlegt rennsli á heitu vatni sem ekki nýtist hitaveitukerfinu. í fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar- kaupstaðar er gert ráð fyrir að framkvæmdir við hitaveituna í ár nemi samtals fjórum milljónum króna og er uppsetning heitavatns- geymisins og stýrikerfisins lang- stærsti einstaki liðurinn í þeim frani- kvæmdum. Ólafsfirðingar fá heita vatn sitt frá tveimur megin uppsprettum, annars vegar úr Skeggjabrekkudal og hins vegar úr borholu á svokölluðu Laug- arengi. Gert er ráð fyrir að í framtíð- inni verði fyrst og fremst tekið vatn úr borholunni í Laugarengi til upp- hitunar þar sem vatnið er heitara og í því minna súrefni sem þýðir minni tæringu. Vatnið úr Skeggjabrekku- dal verði hins vegar frekar notað til annarra nota eins og til fiskeldis eða hluta þar sem vatn þarf ekki að vera mjög heitt. Að sögn Valtýs er bygging heita- vatnsgeymisins og uppsetning stýris- kerfisins einn liður í því að nýta betur það heita vatn sem nú til fellur á Ólafsíirði og lengja þann tíma sem líður áður en bora þarf eftir heitu vatni á nýjan leik. -HM Vestur-Þýskaland: Þýskar húsmæður vilja ekki f isk Sala fersks fisks liggur nú nán- ast niðri í Vestur-Þýskalandi í kjölfar upplýsinga sem komu fram í sjónvarpsþætti í síðustu viku, um að fiskur úr Norðursjó væri ormasýktur. Upphafið af þessum umræðum má rekja til þess að fólk veiktist og töldu læknar að hægt væri að rekja orsökina fyrir því til danskrar síldar. Ormarnir sem fundust í síldinni eiga að hafa valdið ýms- um kveisum, jafnvel svo alvarleg- um að þurft hefur að skera burt hluta úr þörmum á fólki. Vilhjálmur Vilhjálmsson, starfs- maður Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við Tímann að sölutregðan hefði mjög alvarlegar afleiðingar fyrir okkur Islendinga. „Gerðar hafa verið til- raunir til að selja fisk af íslands- miðum í Vestur-Þýskalandi, en það gengur ekki. Menn sitja uppi með allan fiskinn. Það virðist ekki skipta neinu máli þó verðið sé lækkað. Vestur-þýskar húsmæður vilja einfaldlega ekki fisk sem stendur“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði jafnframt að reynt yrði að stilla veiðum á fiski til sölu á Þýskalandsmarkað í hóf á næstunni því það væri eina ráðið. IDS Þrjár nýjar uglur íslenski kiljuklúbburinn sendi fyr- ir skömmu frá sér þrjár nýjar bækur. Þær eru Saga af sæháki eftir Gabríel García Marquez, Ekki kvenmanns- verk eftir P.D. James og Gulleyjan eftir Einar Kárason. Saga af sæháki heitir reyndar fullu Helgin varir lengur í Árbæ Það eru ekki allir sem eru búnir að átta sig á því að verslun- armannahelginni er lokið. Það má að minnsta kosti segja um þá tvo ölvuðu ökumenn sem lögregl- an í Árbæ tók bak við stýrishjól bifreiða sinna í gærmorgun. Ann- ar var tekinn í miðju Árbæjar- hverfi og þótti reikull í akstri og hinn í Breiðholtinu. Engin slys hlutust af akstri þessara einstak- linga. -SÓL nafni Saga af sæháki sem rak í tíu daga á fleka án matar og drykkjar, var lýstur þjóðarhetja, kysstur af fegurðardísum, auglýsingamennsk- an auðgaði hann, en svo var hann fyrirlitinn af stjórnvöldum og gleymdist um aldur ogeilífð. Marqu- ez skrifaði þessa bók upphaflega þegar hann var ungur blaðamaður í Kólumbíu eftir frásögn sjómanns sem varð skipreka. Þetta er saga um ótrúlegar mannraunir, og um leið vísar hún til þess samfélags sem hún er sprottin af. Guðbergur Bergsson þýddi söguna á íslensku og er hér um frumútgáfu að ræða. Saga af sæháki er 128 blaðsíður að stærð og prentuð hjá Prentstofu G. Benediktssonar. Kápu hannaði Robert Guillemette. Ekki kvenmannsverk eftir P. D. James kemur út í kjölfar sögunnar Vitni deyr sem kiljuklúbburinn sendi frá sér í fyrra. Báðar eru spennusög- ur, enda er höfundurinn heimskunn- ur fyrir slíkar bækur. í þessari sögu er söguhetjan ung kona sem rekur leynilögreglustofu og kemst í hann krappan við lausn morðgátu. I sögu- lok bregður Dalgliesh lögreglufor- ingja fyrir, sem margir kannast við úr öðrum bókum P.D. James og úr sjónvarpsþáttum sem hér hafa verið sýndir. Álfheiður Kjartansdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.