Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 18
<4 Sr' •>
18 Tími
KVIKMYNDAGAGNRYNI:
Stjörnugjöf frá einni til fimm = ★★★★
WILD /
Háskólabio: SOMETHING
VILLTIR DAGAR
Aöalhlutverk: Jeff Daniels, Melanie
Griffith, Ray Liotta.
Leikstjóri: Jonathan Demme
Handrit: E. Max Frye
Háskólabíó hefur nú frumsýnt
hina stórgóðu og umtöluðu mynd,
Villtir dagar. Myndin er full af
stjörnum, innan sem utan. Þetta er
stjarna sem skín, öfugt við sumar
aðrar.
Myndin greinir frá verðandi varaforseta fjármálafyrirtækis, Charles
Driggs (Jeff Daniels, lék m.a. í Terms of endearment, The purple rose of
Cairo, Marie og Heartburn), sem stingur af matsölustað án þess að borga.
Lulu Hankel (Melanie Griffith, lék m.a. í Body Double, Night moves og
Fear City), tekur eftir þessu, eltir hann út, rænir honum, hálf viljugum,
fer með hann á mótel, kemur upp um ýmsar duldar þrár og dregur hann
loks með sér á endurfundi gamalla skólafélaga í smábæ einum í
Pennsylvaniu.par mætir enginn annar en Ray Sinclaire (Ray Liotta),
krimmi og geðsjúklingur nýsloppinn út úr fangelsi. Ray er ckki allur þar
sem hann sýnist... og spennan hefst.
Það er ekki oft sem maður sér jafn góða mynd og Villtir dagar er. Það
er heldur ekki oft sem maður verður vitni að því að kvikmyndahús sýnir
tvær jafn frábærar myndir í röð og Háskólabíó hefur nú gert. Fyrst kom
Platoon og nú þessi.
Leikstjóri myndarinnar er Jonathan Demme, en hann hcfur leikstýrt
myndum eins og Mclvin og Howard (nýlega sýnd í sjónvarpinu), Caged
heat, The last embrace, Stop making sense, með David Byrne og Talking
Heads, ásamt aragrúa af tónlistarmyndböndum, eins og Pve got you babe,
með Chrissie Hynde og UB40. Tónlistin í myndinni er frábær, má þar
nefna lög eftir tónlistarmenn og hljómsveitir eins og David Byrne, The
Troggs, Bach, New Order, Fine Young Cannibals, Carlos Alomar, David
Bowie, John Lennon, Timbuk 3 og The Motels, svo dæmi séu nefnd.
Myndin er hátíð fyrir augu og eyru allra sem vilja njóta konfektsins.
Leikur stjarnanna er góður, en þó fer Ray Liotta best út úr góðu. Hann
er frábær í sínu geðveika hlutverki. Par með er ekki sagt að hinir
leikararnir komist ekki vel frá sínu. Það gera þeir og gott betur. Sem er
meira en hægt er að segja um sjónvarpsstjóra Stöðvar 2.
Niðurstaða: Sú besta í bíó og ef hún væri á video, þá stæði hún upp úr
þar líka. Þetta er stjarna sem skín og brosandi mynd. Ef bíómyndir væru
allar svona góðar, þá væri ég til í að leigja mér sæti í Háskólabíó. Og hana
nú. -SÓL
Villtir dagar:
SÚBESTA
f / /
IBIO!
BÍÓ/LEIKHÚS
LAUGARAS=
Salur A
Andaborð
Ný bandarísk dulmögnuð mynd. Linda hélt
að andaborð væri skemmtilegur leikur. En
andarnir eru ekki allir englar og aldrei að vita
hver mætir á staðinn. Kyngimögnuð mynd.
Aðalhlutverk: Todd Allen, Tawny Kitaen,
Stephen Nichols.
sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Salur B
Gustur
Ný hrollvekja um ungan rithötund sem leitar
næðis á afskekktum stað til að skrifa.
Aðalhlutverk: Meg Foster, Wings Hauser
og Roberl Marley
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
Bönnuð innan 16 ára
Salur C
Meiriháttar mál
Morð er ekkert gamanmál, en þegar það
hefur þær afleiðingar að maður þarf að eyða
hálfri milljón dollara fyrir mafiuna, verður
það alveg sprenghlægilegt.
Aðalhlutverk: Steve Donmeyer, Joe
Phelan, Christina Cardan.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
Gratt gaman og mögnuð spenna. Stórgóð
tónlist. Mynd sem kemur blóðinu á
hreyfingu.
irkirk Chicago Tribune
kkk'h Daily News.
kkk New York Post.
Leikstjóri Jónathan Demme.
Aðalhlutverk Melanie Griffith, Jeff
Daniels, Ray Liotta.
Frumsýnd kl. 7,9 og 11.10
Bönnuð innan 16 ára
Dolby Stereo
Bt NÁSKÖUBfÖ
atmntm sÍMi 2 21 40
Frumsýnir grín og spennumyndina
Something wild
Villtir dagar
Fimmtudagur 6. ágúst 1987».
ÚTVARP/SJÓNVARP
1111
Fimmtudagur
6. ágúst
6.45 Veöuriregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7,03 Morgunvaktin - Hjördís Finnbogadóttir og
Jóhann Hauksson. Fréttir sagðar kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 en áður
lesið úr forustugreinum dagblaðanna. Tilkynn-
ingar lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur
Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Berðu mig til
blómanna“ eftir Waldemar Bonsel Ingvar
Brynjólfsson þýddi. Herdís borvaldsdóttir les
(18).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur Umsjón: Anna Ingólfsdóttir og
Hákon Leifsson. (Þátturinn verður endurtekinn
að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Viðtalið Ásdís Skúladóttir
ræðir við Unu Pétursdóttur. Síðari hluti. (Þáttur-
inn verður endurtekinn nk..mánudagskvöld kl.
20.40).
14.00 Miðdegissagan: „Á hvalveiðaslóðum",
minningar Magnúsar Gíslasonar Jón Þ. Þór les
(4).
14.30 Dægurlög á milli stríða
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Sumar í sveit Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri) (Endurtekinn þáttur frá kvöldinu
áður).
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar a. Konsert nr. 1 í C-dúr
eftir Johann Christian Schickhardt. Chateaug-
uay-kammersveitin leikur undir stjórn Jocelyne
Laberge. b. Peter Pears syngur ensk lög frá
sautjándu öld við lútuundirleik Julians Bream. c.
Sónata í a-moll op. 1 nr. 3 eftir Joseph Haydn.
William Bennett leikur á flautu, Harold Lester á
sembal og Denis Nesbitt á víólu da Gamba.
17.40 Torgið Umsjón: Þorgeir Ólafsson og Anna
M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá morgni sem
Guðmundur Sæmundsson flytur.
Að utan Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Vegryk Þáttur í umsjá Jóns Hjartarsonar.
20.40 Wagner, Beethoven og Grieg a. Tónlist úr
óperunni „Tannháuser“ eftir Richard Wagner.
b. Rómansa op. 50 eftir Ludwig van Beethoven.
c. Lýrísk svíta op. 54 eftir Edward Grieg.
21.30 Skáld á Akureyri Áttundi og síðasti þáttur:
Rauðahússkáld. Umsjón: ÞrösturÁsmundsson.
(Frá Akureyri)
22.00 Fréttir . Dagskrá morgundagsins . Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hugskot Þáttur um menn og málefni í umsjá
Stefáns Jökulssonar.
23.00 Sumartónleikar í Skálholti 1987 Hljóm-
sveitarverk eftir Georg Friedrich Hándel. Ber-
okksveit Sumartónleikanna leikur undir stjóm
Helgu Ingólfsdóttur. Konsertmeistari: Ann
Wallström. Kynnir: Hákon Leifsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
(Endurtekinn þáttur frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
ái
00.10 Næturvakt Útvarpsins Magnús Einarsson
stendur vaktina.
6.00 í bitið - Karl J. Sighvatsson.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur í umsjá Skúla Helgasonarog
Kristínar Bjargar Þorsteinsdóttur.
Meðal efnis: Tónleikar um helgina - Ferðastund
- Fimmtudagsgetraun.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir
og Sigurður Gröndal.
16.05 Hringiðan Umsjón: Broddi Broddason og
Snorri Már Skúlason.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Vinsældalisti rásar 2 Gunnar Svanbergs-
son og Georg Magnússon kynna og leika 30
vinsælustu lögin.
22.07 Tíska Umsjón: Ragnhildur Arnljótsdóttir.
23.00 Kvöldspjall Alda Arnadóttir sér um þáttinn
að þessu sinni.
00.10 Næturvakt Útvarpsins Magnús Einarsson
stendur vaktina til morguns.
Fréttir kl.:
7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5 Umsjón: Kristján Sigurjóns-
son og Margrét Blöndal.
Fimmtudagur
6. ágúst
7.00- 9.00 Pétur Steinn og morgunbylgjan.
Pétur kemur okkur réttu megin framúr með
tilheyrandi tónlist og lítur yfir blöðin.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmælis-
kveðjur og spjall til hádegis. Fjölskyldan á
Brávallagötunni lætur í sér heyra.
Fréttirkl. 10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Þorsteinn spjallar við fólkið sem ekki er í fréttum
og leikur létta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00-17.00 Ásgeir Tómasson og síðdegis-
poppið. Gömlu uppáhaldslögin og vinsælda-
listapopp í réttum hlutföllum. Fjallað um tónleika
komandi helgar.
Fréttir kl. 14.00,15.00, og 16.00.
17.00-19.00 Stefán Benediktsson í Reykjavík
síðdegis. Leikin tónlist, litið yfir fréttirnar og
spjallað við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður milli kl. 19.03 og
19.30. Tónlist til kl. 21.00.
21.00-24.00 Jóhanna Harðardóttir - Hrakfalla-
bálkar og hrekkjusvín. Jóhanna fær gesti í
hljóðstofu. Skyggnst verður inn í spaugilega
skuggabletti tilverunnar.
24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist
og upplýsingar um veður og flugsamgöngur.
Fimmtudagur
6. ágúst
07.00-09.00 Þorgeir Ástvaldsson. Snemma á
fætur með Þorgeiri Ástvalds. Laufléttar dæg-
urflugur frá því í gamladaga fá að njóta sín á
sumarmorgni. Gestir teknir tali og mál dagsins
í dag rædd ítarlega.
08.30 STJÖRNUFRETTIR. (fréttasími 689910)
09.00-12.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja...
Helgason mættur!!! Það er öruggt að góð tónlist
er hans aðalsmerki. Gulli fer með gamanmál,
gluggar í stjörnufræðin, og bregður á leik með
hlustendum í hinum og þessum get leikjum.
09.30 og 11.55 STJÖRNUFRÉTTIR (fréttasími
689910)
12.00-13.00 Pia Hansson. Hádegisútvarpið er
hafiö. Pia athugar hvað er að gerast á hlustun-
arsvæði Stjörnunnar. Tónlist. Kynning á ís-
lenskum hljómlistarmönnum sem eru að halda
tónleika.
13.00-16.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Lagalistinn
er fjölbreyttur á þessum bæ. Gamalt og gott
leikið af fingrum fram, með hæfilegri blöndu af
nýrri tónlist. Helgi fylgist vel með því sem er að
gerast.
13.30 og 15.30 Stjörnufréttir (fréttasími 689910)
16.00-19.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi hressi
sveinn fer á kostum með kántrý tónlist og aðra
þægilega tónlist, (þegar þið eruð á leiðinni
heim). Spjall við hlustendur er hans fag og
verðlaunagetraun er á sínum stað. Síminn er
681900.
17.30 STJÖRNUFRÉTTIR. (fréttasími 689910)
19.00-20.00 Stjömutiminn á FM 102,2 og 104.
Gullaldartónlist í einn klukkutíma. „Gömlu"
sjarmamir á einum stað, uppáhaldið þitt. Elvis
Prestley, Johnnye Ray, Connie Francis, The
Marcels, The Platters og fleiri.
20.00-22.00 Einar Magnússon. Létt popp á síð-
kveldi, með hressilegum kynningum. Þetta er
maðurinn sem flytur ykkur nýmetið.
22.00-23.00 örn Petersen. Ath. Þetta er alvarlegur
dagskrárliður. Tekið er á málum líðandi stundar
og þau brotin til mergjar. örn fær til sín
viðmælendur og hlustendur geta lagt orð í belg
ísíma 681900.
23.00 STJÖRNUFRÉTTIR.
23.15-00.15 Tónleikar. Tónleikar á Stjörnunni í
Hi-Fi stereo og ókeypis inn. Að þessu sinni
hljómsveitin Pretenders.
00.15-07.00 Gísli Sveinn Loftsson. Sjörnuvaktin
hafin. Ljúf tónlist, hröð tónlist, sem sagt tónlist
við allra hæfi.
6
0
STOÐ2
Fimmtudagur
6. ágúst
16.45 Sumarið langa (The Long Hot Summer).
Bandarísk kvikmynd frá árinu 1958, gerð eftir
sögu William Faulkner. Stjórnsamur bóndi í
suðurríkjum Bandaríkjanna verður fyrir von-
brigðum með veikgeðja son sinn. Hann býður
ungum manni að búa á býli sínu og gengur
honum í föðurstað. Þetta fellur að vonum ekki í
góðan jarðveg hjá fjölskyldunni. Með aðalhlut-
verk fara Paul Newman, Joanna Woodward,
Orson Welles, Lee Remick og Angela Lansbury.
18.35 Þegar pabbi missti atvinnuna. Unglings-
stúlka tekur þátt í raunum föður síns er hann
stendur uppi atvinnulaus.
19.00 Ævintýri H.C. Andresen. Skopparakringl-
an og boltinn. Teiknimynd með íslensku tali. -
Leikraddir: Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjáns-
son og Saga Jónsdóttir.
19.30 Fréttir
20.05 Opin lína. Áhorfendur Stöðvar 2 gefst kostur
á að vera í beinu sambandi í síma 673888.
20.40 Sumarliðir. Hrefna Haraldsdóttir kynnir
dagskrár Stöðvar 2 næstu vikuna, ásamt þeim
skemmti og menningarviðburðum sem hæst
ber. Stjórn upptöku annast Hilmar Oddsson.
20.50 Dagar og nætur Molly Dodd (The Days
And Nights Of Molly Dodd). Bandarískur gam-
anflokkur um fasteignasalann Mollý Dodd og
mennina í lífi hennar. I helstu hlutverkum: Blair
Brown, William Converse-Roberts, Allyn Ann
McLerie og James Greene.
21.30 Dagbók Lyttons (Lyttons Diary). Breskur
sakamálaþáttur með Peter Bowles og Ralph
Bates í aðalhlutverkum. Ung kvikmyndastjarna
skiptir um skoðun á síðustu stundu og neitar að
koma fram nakin í mynd sem hún er að leika í.
Lytton og Dolly eru mætt til þess að taka viðtal,
en svo virðist sem eitthvað meira búi undir.
22.25 Eldur í æðum (Burning Bed). Bandadrísk
sjónvarpsmynd frá 1984, sem byggð er á
sannsögulegum atburðum. Myndin er byggð á
sögu Francine Hughes sem varð fyrir þeirri
ógæfu að giftast manni sem barði hana. Þó
einkennilegt megi virðast voru Francine alla
bjargir bannaðar, börnin hennar þrjú bundu
hana heimilinu og hvorki foreldrar hennar né
yfirvöld vildu skipta sér af erjum milli hjóna. Að
lokum greip Francine til örþrifaráða. Með aðal-
hlutverk fara Paul LeMat og Farrah Fawcett, en
hún hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í þessari
mynd. Leikstjóri er Robert Greenwald. Mynd
þessi er alls ekki við hæfi barna.
23.40 Flugmenn (I Spy) Bandarískur njósna
myndaflokkur með Bill Cosby og Robert Culp í
aðalhlutverkum. Skemmdarverkamenn gera til-
raun til þess að eyðileggja geimfar sem fara á
til tunglsins, en Scott og Robinson undirbúa
gildru fyrir þá.
00.35 Dagskrárlok.