Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 16

Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn Miðvikudagur 5. ágúst 1987 Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 7.-12. ágúst (6 dagar): Landmannalaugar - Þórsmörk. Gengið á fjórum dögum frá Landmanna- laugum til Þórsmerkur. Gist í sæluhúsum F.í. 7.-16. ágúst (10 dagar): Hálendið norðan Vatnajökuls. Gist í sæluhúsum. Ekið norður Sprengi- sand um Gæsavatnaleið í Herðubreiðar- lindir, þar næst í Kverkfjöll yfir nýju brúna við Upptyppinga og í leiðinni komið við í Oskju. I Kverkfjöllum er dvalið í þrjá daga síðan farið að Snæfelli og dvalið í tvo daga. 9.-16. ágúst (8 dagar): Hrafnsfjörður - Norðurfjörður. Gengið með viðleguútbúnað um Skorar- heiði í Furufjörð og áfram suður til Norðurfjarðar, þar sem ferðinni lýkur og áætlunarbíll tekur hópinn til Reykjavík- ur. 11. -16. ágúst (6 dagar); Þingeyjarsýslu. Á fjórum dögum verða skoðaðir mark- i verðir staðir í Þingeyjarsýslum. Gist í svefnpokaplássi. 12. -16. ágúst (5 dagar): Þórsmörk - Landmannalaugar. Ekið til Þórsmerkur að morgni miðviku- dags og samdægurs gengið í Emstrur, síðan áfram milli gönguhúsa uns komið er til Landmannalauga á laugardegi. 14.-19. ágúst (6 dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk Gist í sæluhúsum. 19.23. ágúst (5 dagar): Landmannalaugar - Þórsmörk. Aukaferð. Þessari ferð er bætt við áður skipulagða ferðaáætlun vegna mikillar aðsóknar. 21.-26. ágúst (6 dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk. ATH.: Síðasta skipulagða gönguferðin í sumar frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.I., Öldugötu 3. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins eru ódýrastar. Kynnið ykkur verð og tilhögun ferðanna. Ferðafélag Íslands. Útivistarferðir Fjölskylduhelgi í Þórsmörk 7.-9. ágúst. Brottför er á föstudag kl. 20:00 og laugardag kl. 08:00. Góð gisti- aðstaða í Básum, skálum Útivistar, og í tjöldum. Dagskrá: Gönguferðir, ratleikur, varð- eldur, kvöldvaka, pylsugrill. Farmiðar á skrifstofu (kr. 2500). Böm 10-15 ára greiða hálft gjald, en börn yngri en 10 ára fá frftt í fylgd fullorðinna. Góð fararstjórn. Einsdagsferð í Þórsmörk sunnud. 9. ágúst kl 08:00. Útivist Sumarleyfisferðir Útivistar 1. Tröllaskagi 9.-15. ágúst: Barkárdalur Tungnahryggur - Hólar (3 d.) - Siglufjörð- ur - Héðinsfjörður - Ólafsfjörður (3 d.) Bæði bakpokaferð og dvöl á sama stað. Hús og tjöld. 2.1ngjaldssandur 18.-23. ágúst. Kynnist áhugaverðum stöðum á Vestfjörðum, á skaganum milli Önundarfjarðar og Dýra- fjarðar. Létt ferð, enginn burður. Gott berjaland. Gist í húsi. 3. Berjaferð í ísafjarðardjúp 20.-23. ágúst. Skoðunar- og berjaferð. Æðey - Kaldalón - Snæfjallaströnd - Króksfjörð- ur. 4.Núpsstaðarskógar 27.-30. ágúst. 4 dagar. Gist í tjöldum. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732. Útivist Listasafn Alþýðusambands íslands: Meistarar I Listasafni ASÍ verða dagana 8.-23. ágúst til sýnis ýmsar af perlum safnsins. Þar ber hæst nokkur listaverka þeirra eftir eldri meistara íslenskrar myndlistar, sem voru í stofngjöf Ragnars Jónssonar í í Smára til safnsins, en einnig önnur verk. Sýningin verður opin virka daga kl. 16-20, en um helgar kl. 14-22. Opið hús fyrir erlenda ferða- menn í Norræna húsinu Fyrirlestur um Snorra Sturluson í Opnu húsi. Næst á dagskrá í Opnu húsi í Norræna húsinu, fímmtudaginn 6. ágúst kl. 20.30 er fyrirlestur sem dr. Finnbogi Guð- mundsson, landsbókavörður flytur á norsku og nefnir. „Snorri Sturlusons skildring av dei nordiske folk“. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmynd Osvalds Knudsens „Surtur fer sunnan" og er hún með dönsku tali. Kaffistofan býður uppá ljúffengar veiting- ar og bókasafnið er opið en þar liggja frammi bækur um Island og íslenskar hljómplötur. Laus staða Staða skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu, greiðslu og eignasviði, er laus til umsóknar. Áskilin er viðskiptafræði-, hagfræði- og/eða lögfræði- menntun. Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 20. ágúst 1987. Fjármálaráðuneytið, 31. júlí 1987 Sumarferð ’87 Sumarferð framsóknarfélaganna verður farin 8. ágúst. Farin verður Fjallabaksleið syðri. Skráning í síma 24480. Framsóknarfélögin í Reykjavík. Kjördæmisþing Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum verður halidð 23. til 24. ágúst n.k. að Núpi, Dýrafirði. Nánar auglýst síðar. Stjórn K.F.V. Framsóknarkonur Landssamband framsóknarkvenna heldur landsþing sitt að Varma- hlíð í Skagafirði dagana4.-6. sept. n.k. Allar framsóknarkonur hvattar til að mæta og taka með sér gesti. Þeir sem vilja láta skrá sig á þingið hafi samband við framkvæmda- stjóra L.F.K., Guðrúnu Kristjánsdóttur á skrifstofu flokksins, Nóatúni 21 í síma 91-24480. Nánari upplýsingar síðar. Sæktu hann! Og svo eru þeir hissa á að við séum með höfuðverk á kvöldin Þú ert bara að handtaka mig af því ég er kona, karlrembusvinið þitt! Georg?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.