Tíminn - 20.11.1987, Side 3
Föstudagur 20. nóvember 1987
Tíminn 3
Þröstur Ólafsson, framkvstj. Dagsbrúnar:
Verkamenn þurfa aukinn
styrk í löggjafarvaldinu
r I ■ r* ^Sggg
1 iif 0 fl IfBlP
1 •1 U . í ' :
r ' ^ frJb 1 llflly
í ÉM f '-Æmm
X{
U
„Verkalýðshreyfingin hefur á
undanfömum árum fundið til þess
að hafa ekki nógu mikinn pólitísk-
an stuöning," sagði Þröstur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Verkalýðs-
félagsins Dagsbrúnar. „Við þekkj-
um það víða erlendis að náið sam-
band hefur verið á milli verkalýðs-
hreyfinga og pólitískra flokka, sem
hafa reynt að hrinda í framkvæmd
ákveðnum hugsjónum verkalýðs-
hreyfingarinnar. í'eir hafa reynt að
vinna þannig á pólitísku sviði að
réttinda og kjara vinnandi fólks
væri gætt með þessum hætti af lög-
gjafarvaldinu.
Verkalýðshreyfingin hefur oft
fundið til þess að þessir svokölluðu
verkalýðsflokkar væru of veikir,
eða forsvarsmenn þeirra hefðu
bókstaflega aðrar skoðanir heldur
en um er að ræða í verkalýðshreyf-
ingunni. Ég geri ráð fyrir því að
þessar vangaveltur séu tengdar ein-
hverju slíku.“ Sagði Þröstur jafn-
framt að menn hefðu rætt þessi mál
talsvert. Sagði hann að það stafaði
af því að það væri mikið bil á milli
hreyfinga og flokka.
Sagði hann að ekki væri tíma-
bært að álykta neitt um samband á
milli stofnunar slíks flokks og vær-
inga innan Alþýðubandalagsins.
Ekki væri rétt að tengja það út af
Guðríður Elíasdóttir varaforseti ASÍ segir ekki óeðiilegt ef verkamenn fyrirsigogaðsjálfsagtværiaðleyfa
stofnuðu sinn eigin llokk. Tímamynd: Pjctur nýrrj forystu að sýna hvað í henni
býr. Við verðum að reyna að vinna
heiðarlega með henni, en ef það
reynist ekki mögulegt þá verðum
við að taka afleiðingum af því þeg-
ar að því kemur,“ sagði Þröstur
Ólafsson að lokum.
Skarparandstæður
í þjóðfélaginu
„Ég held að það hafi aidrei verið
annar eins launamismunur á rnilli
fólks í landinu eins og núna,“ sagði
Guðríður Elíasdóttir, varaforseti
ASÍ. Aðspurð um hvort hún væri
tilbúin til að starfa í Verkamanna-
flokknum, ef af stofnun hans yrði,
svaraði hún: „Af hverju ekki.“
Kvað hún andstæður hafa skerpst í
þjóðfélaginu og ekki væri óeðlilegt
að verkamenn stofnuðu eigin
flokk- Sagði hún að mikill kurr væri
í konum kvennafélaganna og innan
verkalýðsfélaganna.
Veit ekki hvarégdey
„Ég get ekki svarað þessum tíð-
indum öðruvísi en þannig að verka-
mannaflokkur er til staðar. Það er
Alþýðuflokkurinn," sagði Karvel
Pálmason, varaformaður Verka-
mannasambands íslands, er Tím-
inn leitaði eftir viðbrögðum hans í
málinu. „Svo fremi hann kann að
spila úr sínum spilum á þessari
stundu, þá er hann verkamannaf-
lokkur og þannig verður það.“
Ekki kannaðist hann við að hafa
heyrt um að stofnun Verkamanna-
flokks stæði fyrir dyrum. En hvort
hann myndi skipta yfir? „Ég er í
Alþýðuflokknum og ég segi ekkert
um það fyrirfram hvort ég dey
þarna eða á þessum stað. Það er allt
annað mál.“
Ekki með Guðmundi
Jaka
„Mér finnst hugmyndin fádæma
vitlaus, ef Guðmundur Jaki ætlar
að fara að gcra þetta,“ sagði Jón
Karlsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Fram á Sauðárkróki, er
Tíminn hafði samband norður.
Sagði hann samt að hugmyndin að
stofnun verkamannaflokks gæti
mjög vel komið til skoðunar. „En
það sem mér kom fyrst í huga var,
að ef það eru þessir toppar í verka-
lýðshreyfingunni sem ætla að gera
þetta, þá er ekkert ólíklegt að upp
komi vangavcltur um það hvernig
þessum mönnum hefur tekist að
leiða verkalýðshreyfinguna. Er þá
líklegt að þeim gangi eitthvað bet-
ur að leiða stjórnmálaflokk?"
KB/óhþ
Skólastefna Kennarasambandsins á prent:
Sjálfstæði skóla
við stefnumörkun
Atkvæöagreiöslur á Fiskiþingi:
Umbun í kvóta
fyrir betri
„Mennt er máttur. Menntunin er
leið mannsins til að virkja afl huga
og handa til verndar og vaxtar öllu
lífi. Framfarir og umbætur verða
fyrir mannlegan tilverknað. Fors-
enda þeirra er menntun sem aflað er
á heimilum, almennum vinnustöð-
um og eigi síst í skólum vegna
sífelldra breytinga á öllum sviðum
þjóðlífsins. Því verður hlutverk
skóla í samfélaginu aldrei of hátt
metið“.
Svo eru upphafsorð 50 síðna
plaggs sem nefnist Skólastefna og
Kennarasamband íslands hefur gef-
ið út. Skólastefna K.í. er afsprengi
samþykktar á fulltrúaþingi sam-
bandsins í júní sl. um heildarstefnu
í menntamálum, en unnið hefur
verið að henni á vegum Kennara-
sambandsins og skólamálaráðs Kí
sl. þrjú ár.
Kennarasamband íslands boðaði
í gær til blaðamannafundar vegna
útkomu nefnds skólastefnubæklings.
Þar var Birgi ísleifi menntamálaráð-
herra og Jóni Baldvin fjármálaráð-
herra formlega afhent hvorum sitt
eintakið af „Skólastefnunni". í máli
Svanhildar Kaaber formanns KÍ við
þetta tækifæri kom fram að með
þessari útgáfu kæmist í fyrsta skipti
á prent heildstæð stefna þar sem
tekið væri á öllum meginþáttum
skólastarfsins. Svanhildur sagði að
skólastefnan væri mjög í anda grunn-
skólalaga og lög og reglugerðir varð-
andi skólastarf hefðu verið hafðar til
hliðsjónar við mótun hennar. Svan-
hildur sagði ennfremur að í skóla-
stefnunni birtist framtíðarsýn
kennara á skólastarfið í landinu og
um leið vilji þeirra til að vinna að
nýtingu afla
Ráðherrum stillt upp við vegg. Svanhildur Kaaber formaður KÍ afhendir
Birgi ísleifi og Jóni Baldvin fyrstu eintökin af „Skólastefnunni“.
Tímamynd: BREIN
þeim umbótum í skólastarfi sem
gætu hrint skólastefnu í framkvæmd.
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra óskaði Kenn-
arasambandinu til hamingju með
útkomu „Skólastefnunnar" og bætti
við að í megindráttum færi hún
saman við sínar skoðanir um skóla-
stefnu.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði að mótun skóla-
stefnu væri stórt mál sem krefðist
mikillar umræðu. Hann sagðist ekki
vera sammála öllu sem fram kemur
í „Skólastefnunni", t.d. að ríkið ætti
að kosta alla skóla. Jón Baldvin
sagðist þvert á móti vera því hlynnt-
ur að skólarnir fái aukið sjálfstæði
og dregið verði þannig úr miðstýr-
ingunni í skólamálum. Hann bætti
því við að þetta atriði hefði m.a.
komið til tals í umræðum um breyt-
ingu á verkaskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga.
Áætlað er að í þessum mánuði
hittist grunnskólakennarar um allt
land og ræði skólastefnuna, en upp
úr áramótum er ætlunin að kynna
hana fyrir foreldrum landsins. óþh
Næst síðasti dagur Fiskiþings var
í gær og skiluðu þá starfsnefndir af
sér tillögum. Málalyktir þeirra urðu
hinar margvíslegustu, en þó náðu
flestar fram að ganga.
Þrennt stóð þó upp úr á þinginu
í gær. í fyrsta lagi var samþykkt
breyting á lögum félagsins þar sem
tvenn ný samtök voru tekin inn í
félagið. Það voru Landssamband
smábátaeigenda og Félag rækju- og
hörpudiskframleiðenda, sem eftir
nokkurn biðtíma, fengu loksins
fullgildan félagsrétt, en þau höfðu
aðeins verið með málfrelsi og til-
lögurétt fram að þessu. Tillagan
var samþykkt samhljóða af fund-
armönnum og var nýju meðlimun-
um fagnað með lófataki. Þessi til-
laga kom frá Laga- og félagsmála-
nefnd.
Hinar tvær tillögurnar sem vöktu
verulega athygli voru frá Sjávarút-
vegsnefnd. Hin fyrri var svohljóð-
andi:
„46. Fiskiþing leggur til að at-
hugaðir verði möguleikar á að skip-
um verði umbunað í kvóta ef þau
bæta nýtingu sína og færa að landi
meiri verðmæti, svo sem hrogn, lif-
ur og meltu." Tillagan kom upp-
haflega frá Jóni Ólafssyni, frá fisk-
mjölsframleiðendum, en hann
benti á að allt að 60% aflans væri
hent og sjómenn væru yfirleitt óf-
áanlegir til að hirða meira. Þessi
tillaga gæti snúið þróuninni við.
-SÓL
Sambönd Veitu-
stofnana þinga
Skipulag raforkudreifingar
annarsvegar og áhrif fyrirhugaðr-
ar gjaldskrárbreytingar Lands-
virkjunar á rekstur og markað
hitaveitna hins vegar munu að
öllum líkindum verða aðalmál
árlegs vetrarfundar Sambands ís-
lenskra hitaveitna og Sambands
íslenskra rafveitna sem hefst í
dag.
Á fundinum í dag er verða
fyririestrar á sameiginlegri
dagskrá, en á morgun mun fund-
urinn skiptast í tvo hluta, hita-
veituhluta og rafveituhluta. Má
þá búast við fjörugum umræðum
á hvoru sviði fyrir sig. Framtíðar-
skipulag raforkudreifingar verð-
ur aðalmál rafveituhlutans, en
gjaldskrárbreytingin aðalmál
hitaveituhlutans auk þess sem
orkuöflun Fjarhitunar Vest-
mannaeyja verður að líkindum
ofarlega á baugi. -HM