Tíminn - 20.11.1987, Blaðsíða 19
Föstudagur 20. nóvember 1987
Tíminn 19
og enn dansa
Nýjasta myndin af dansfé-
lögunum 0‘Connor og Reynolds
á dansgólfi
„Það hefur gengið á ýmsu hjá mér og lífið
hefur svo sannarlega ekki alltaf verið dans á
rósum“, sagði Debbie Reynolds í blaðaviðtali
nýlega. En söng- og dansstjarnan (55 ára) var
þá nýkomin úr löngu sýningarferðaiagi með
sínum gamla dansfélaga Donald 0‘Connor.
Þau hafa ferðast um með leikflokki um
Ameríku, Bretland og Ástralíu og Debbie og
Donald hafa m.a. dansað og sungið atriði úr
hinum sígilda söngleik „Singin1 In The Rain“,
sem þau léku í árið 1952. Þau hafa með þessu
ferðalagi haldið upp á 35 ára dansafmæli sitt
saman.
Debbie var gift Eddie Fisher og
þau áttu tvö börn og allt var í
lukkunnar velstandi. En þá missti
Elizabeth Taylor eiginmann sinn,
Mike Todd leikstjóra, í flugslysi.
Ekkjan var óhuggandi, og reyndu
þau Debbie og Eddie aö aöstoða
Liz vinkonu sína eftir bestu getu.
Helst lét hún huggast þegar Eddie
var hjáhenni. Þaðfórsvo að Eddie
Fisher yfirgaf Debbie og börnin og
fékk skilnað til að geta gifst Eliza-
beth Taylor.
Þetta var mjög umtalað jafnvel í
Hollywood þar sem menn kalla
ekki allt ömmu sína.
En Elizabeth hitti brátt annan
enn betri huggara, - þegar hún lék
á móti Richard Burton í Kleó-
pötru, og þá lét hún Fisher lönd og
leið.
Debbie giftist líka. Hennar mað-
ur var Harry Karl, vel stæður
skóframleiðandi , en þó fór svo að
hann tapaði öllu sínu og þau skildu,
en Debbie var dæmd til að borga
spilaskuldir hans og ýmsa óreiðu-
reikninga, því þau höfðu sameigin-
legan fjárhag. Hún varð að selja
hús sitt í Beverly Hills og annað á
Malibu-strönd og stóð uppi eigna-
laus.
Debbie hefur alltaf haldið áfram
að dansa. „Ég kann ekki að sauma,
ég prjóna ekki, mér finnst ekkert
gaman að matargerð eða húsverk-
um, - en í næstum 40 ár hef ég
unnið við skemmtibransann; kom-
ið fram og dansað, gefið út mitt
eigið æfinga-prógramm með lík-
amsæfingum og kennt dans og
leikfimi. Vinnan er mér nauðsyn,
bæði af fjárhagsástæðum og vegna
þeirra ánægju sem hún veitir mér“,
segir Debbie í lok viðtalsins, sem
vitnað var í hér að framan.
í kennslu-
stund hjá
Debbie
Þriöji eig-
inmaður
hennar
Debbie er
Richard
Hamlett,
og þau
eru sam-
taka í aö
lifa rólegu
lífi en
vera ekki
í sviös-
Ijósinu
Sonurinn Todd og dóttir Carrie
eru bæöi börn Eddie Fishers.
- Börnin eru þaö besta sem
lífið hefur gefiö mér, segir
Debbie, og þeim kemur saman
um aö móöir þeirra hafi alltaf
verið þeim stoð og stytta
Debbie Reynolds er glæsileg kona, 55 ára kjarnakona, þó hún sé
ekki há í loftinu