Tíminn - 20.11.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 20. nóvember 1987
Seltirningar
Aöalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn mánu-
daginn 23. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimili Seltjamarness (efri sal)
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing 29. nóv.
3. Framnesið.
4. Stjórnmálaumræður, Jóhann Einvarðsson þingmaður,
Níels Árni Lund varaþingmaður.
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir
Stjórnin.
Framsóknarkonur í
Reykjavík
Hittumst í Skipholti 21, (Hótel Hof'
laugardaginn 21. nóv. kl. 13.00 oc
bökum okkar vinsæla laufabrauð fyrii
basarinn. Hafið með ykkur áhöld
Mætið vel.
Stjórnin.
Kjördæmisþing í Reykjanesi
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi verður hald-
ið sunnudaginn 29. nóv. 1987 kl. 10 að Garðaholti í Garðabæ.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjaneskjör-
dæmi er opin að Hamraborg 5, Kópavogi kl. 17-19 alla virka daga og
kl. 17-21 á þriðjudögum. Sími 43222.
Stjórnin.
Hvað lögregluþjónar nota sjaldan bílbelti sjálfir var meðal þess sem vakti athygli þessara 12 ára „umferðarrannsókn-
armanna“ úr Hvassaleitis-, Laugarnes- og Melaskóla sem ásamt forsvarsmönnum Umferðarráðs kynntu niðurstöður
umferðarkönnunar á blaðamannafundi. En þar kom m.a. fram að stór hluti ökumanna virðast vera unga fólkinu léleg
fyrirmynd í umferðinni. Tímamynd brein
Könnun grunnskólanema á hlýðni ökumanna í Reykjavík við umferðarreglur:
Um 7. hver yfir
á rauðu Ijósi
Ákveðið „neeeei" kvað við sem
einróma svar frá rúmlega tuttugu 12
ára ungmennum, við spurningu um
hvort ökumenn í Reykjavík fari
almennt eftir umferðarreglum. Þann
28. október s.l., skipti þessi hópur
sér niður á 6 gatnamót í borginni og
skráði, með aðstoð kennara og lög-
reglu, fjölda bíla sem um þau fóru á
einum klukkutíma, kl. 10-11, og hve
margir ökumenn þeirra brytu ein-
hverjar af 5 umferðarreglum. Niður-
stöðurnar voru m.a. þær að ung-
mennin töldu samtals um 740 brot á
umferðarreglum hjá þeim tæplega
1.900 ökumönnum sem könnunin
náði til. í samsvarandi könnun ná-
kvæmlega ári áður töldust 580 brot
hjá heldur fleiri ökumönnum. Upp-
lýsingar þessar komu fram á blaða-
mannafundi á vegum Umferðarráðs.
Auk brotanna sem hinir ungu
„umferðarrannsóknarmenn" skráðu
vakti það athygli þeirra hve margir
ökumenn voru talandi í bílasíma á
leið sinni yfir gatnamótin sem hér
um ræðir. Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs, telur
þarna um vaxandi vandamál að
ræða. T.d. komi það æ oftar fram í
slysaskýrslum lögreglunnar að aðilar
að umferðarslysum hafi verið að tala
í bílasíma þegar slysið átti sér stað.
Af brotunum sem fram komu í
framangreindri könnun má nefna að
á þeim þrem gatnamótum þar sem
umferðarljós eru fóru samtals 35
ökumenn yfir á rauðu ljósi á þessum
eina klukkutíma, sem var 20% fjölg-
un frá samsvarandi könnun fyrir ári.
Hlutfallslega flest voru slík brot á
gatnamótum Bústaðavegar og Háa-
leitisbrautar þar sem 15 af alls 106
ökumönnum sem könnunin náði til
fóru yfir á rauðu. Rétt er að taka
fram, að ekki var skráð brot nema
að ekið væri yfir stöðvunarlínu á
rauðu ljósi.
Algengasta brotið var að stefnu-
ljós var ekki notað. Um 265 öku-
menn slepptu því alveg (fjölgun úr
174 í fyrra) og 130 gáfu stefnuljós of
seint. Þá voru nær 60 ökumenn sem
ekki virtu stöðvunarskyldu. Og loks
skal nefnt að af ökumönnum sem
staðnæmdust við gatnamót voru 250
sem námu staðar of framarlega við
stöðvunarlínu, sem var 55% fjölgun
slíkra brota frá samsvarandi könnun
í fyrra.
Þessi 740 brot á umferðarreglum
voru sem áður segir talin á aðeins
einum klukkutíma á milli kl. 10 og
11 á miðvikudagsmorgni á aðeins 6
gatnamótum í Reykjavík á nákvæm-
lega sama tíma, degi og stöðum og í
fyrra. Gatnamótin eru: Hofsvalla-
gata/Hringbraut, Furumelur/Haga-
melur, Bústaðavegur/Háaleitis-
braut, Réttarholtsvegur/Sogavegur,
Borgartún/Kringlumýrarbaut og
Nóatún/Hátún. Athyglivert er að
bílafjöldinn sem könnunin náði til
var nær sá sami bæði árin, þrátt fyrir
stórfjölgun bíla í borginni.
- HEI
Byrjendanámskeið - Takið eftir!
Viö bjóðum nú aftur uppá hin vinsælu 5 kvölda námskeið í
sjálfsstyrkingu, fundarsköpum og ræðumennsku auk framkomu í
sjónvarpi.
Þrír reyndir leiðbeinendur sjá um leiðsögnina.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 25. nóv. kl. 8-11 að Nóatúni 21,
Reykjavík og stendur svo yfir dagana 30. nóv., 2. des., 7. des. og
lýkur 9. des. kl. 8-11 á sama stað.
Upplýsingar og skráning í síma 24480 f.h.
Verði stillt í hóf.
LFK og SUF.
Vesturland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633
og sími utan skrifstofutíma 51275.
Stjórnin
Happdrætti Suðurlandi
Dregið hefur verið í skyndihappdrætti kjördæmissambands framsókn-
arfélaganna á Suðurlandi.
Vinningurinn Opel Corsa bifreið kom á miða 2322 og var hann seldur
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Nánari upplýsingar í síma 99-6388.
Kjördæmisþing framisóknarmanna í
Norðuriandskjördæmi vestra
verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28.-29. nóv. n.k.
Þingið hefst á laugardag kl. 13.
Dagskrá auglýst síðar.
Akranes - bæjarmálafundur
Fundur um bæjarmálefnin verður haldinn laugadagsmorguninn 21.
nóv. frá kl. 10.30.-12.00 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut.
Bæjarfulltrúarnir
Ingibjörg, Steinunn og Andrés.
Endurskinsmerki
barnaleg?
„Konurnar virðast samviskusam-
ari í umferðinni og leggja meiri
áherslu á öryggisatriðin, ef marka
má svörin í könnuninni - enda er
það þekkt að hlutfallslega mun fleiri
karlar á öllum aldri slasast í umferð-
inni,“ sagði Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastj. Umferðarráðs við kynn-
ingu á niðurstöðum í skoðanakönn-
un Hagvangs varðandi ýmiss örygg-
isatriði í umferðinni.
í könnuninni var fólk spurt um
meginástæðu umferðarslysa, notkun
bílbelta, neglda/óneglda hjólbarða
og litla notkun fullorðinna á endur-
skinsmerkjum.
Of mikill hraði var af flestum
nefndur sem helsta ástæða umferðr-
slysa í skoðanakönnun meðal 18-67
ára íslendinga. Spurning Hagvangs
var opin, þ.e. fólk var spurt hverja
það teldi meginástæðuna fyrir þeim
umferðarslysum sem eiga sér stað í
umferðinni. Hátt í helmingur
kvenna og um þriðjungur karla
nefndi hraðann sem meginorsök.
Rúmlega fjórðungur karlanna og
rúmlega fimmtungur kvennanna
taldi meginorsökina almennt ein-
beitingarleysi en um 6. hluti svar-
enda af báðum kynjum nefndi al-
mennt tillitsleysi. Tæplega fjórðung-
ur svarenda nefndi ýmiss önnur
atriði.
Athyglivert er að þeir eldri í
hópnum nefndu mun oftar hraðann
og tillitsleysið en þeir yngri. Yngsti
hópurinn nefndi hins vegar einbeit-
ingarleysið tvöfalt oftar en sá elsti
(29% á móti 15%).
Hvað varðar endurskinsmerkin
taldi hátt í helmingur fólks litla
notkun fullorðinna stafa af almennu
hugsunarleysi. En athyglivert er að
vel yfir fjórðungur yngsta fólksins
(fleiri konur en karlar) og yfir 5.
hver þáttakandi í könnuninni telur
meginástæðuna þá að það sé “barna-
legt“ að ganga með slík „öryggis-
merki". Þessi tvö atriði skáru sig úr
í svörum fólks þótt fjölmörg önnur
væru til nefnd.
Miðað við álíka kannanir 1986 og
1985 fer bílbeltanotkun vaxandi ár
frá ári. Miðað við vettvangskönnun
Umferðarráðs fyrr á þessu ári telur
Hagvangur að vísu að fólk hafi
nokkuð „fegrað" bílbeltanotkun
sína í könnuninni.
Verulegur munur kom fram milli
kynjanna og sömuleiðis milli borgar
og landsbyggðar. Aðeins rúmlega
helmingur karlanna kvaðst jafnan
nota beltin og nær fjórðungur aldrei,
aðrir stundum. Nær68% kvennanna
sögðust jafnan nota beltin og aðeins
13% aldrei, en 20% stundum. Um
65% svarenda á höfuðborgarsvæð-
inu kvaðust jafnan nota beltin, en
aðeins rúmlega helmingur lands-
byggðarmanna. Hins vegar varengin
notkun álíka mikil í báðum hópum
eða um 18%.
Hvað varðar hjólbarðana þá
kvaðst um helmingur höfuðborgar-
búa kjósa að aka á negldum hjól-
börðum í vetrarumferðinni en um
þriðjungur á ónegldum. Aðrir voru
hlutlausir eða aka ekki bíl. Á lands-
byggðinni kjósa hins vegar 75%
neglda hjólbarða en um 15%
óneglda. Hlutfallslega tvöfalt fleiri
karlar en konur kjósa óneglda
barða. - HEI