Tíminn - 20.11.1987, Page 5
Föstudagur 20. nóvember 1987
Tíminn 5
Jón Baldvin um „strandviðræður“ vinnuveitenda og Verkamannasambandsins:
Ríkissjóður borgar
ekki þjóðarsáttina
Þá hefur samningaviðræðum
Verkamannasambandsins, Vinnu-
veitendasambandsins og Vinnum-
álasambandsins verið siglt í strand.
Verkamannasambandsmenn
stöldruðu stutt við á samningafundi
í gær, þeir töldu sýnt að frekari
viðræður væru gagnslausar. Ástæð-
ur eru einfaldar segja þeir; vilji
vinnuveitenda til samninga nú er
enginn.
Stóra spurningin í stöðunni nú
er hvað sé framundan. Ef ,til vill
baktjaldaþreifingar viðræðuaðila
eða inngrip ríkisvaldsins í málin?
Endurgreiðsla
söluskatts
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra sagði í gær í samtali við
Tímann að ekkert hefði verið um
það rætt að ríkisvaldið gripi inn í
atburðarásina, t.d. hefði ekki kom-
ið til tals að endurgreiða uppsafn-
aðan söluskatt til fiskvinnslunnar,
en á máli vinnuveitenda hefur mátt
skilja að sú leið sé líklegust af hálfu
ríkisvaldsins til að greiða fyrir
samningum. Jón Baldvin Hanni-
balsson fjármálaráðherra sagði að
í óformlegum viðræðum hafi verið
rætt um þennan möguleika til að
liðka fyrir samningum. „Ég hef þó
sagt að leiðin út úr þessum vanda
sé ekki sú að breyta rekstrarvanda
einhverra greina í atvinnulífinu
yfir í ríkisfjárlagavanda. Pað hafa
menn reynt áður árangurslaust. Ef
þetta þýðir tekjutap ríkissjóðs
verður að mæta því með einhverj-
um öðrum hætti,“ sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson.
Óraunhæft dæmi
Þórarinn V. Þórarinsson sagði
að líklegast hefði verið farið í
sameiginlegar viðræður vinnuveit-
enda og Verkamannasambandsins
við ríkisvaldið um endurgreiðslu á
söluskatti ef samningaviðræðunum
hefði orðið lengri lífdaga auðið.
„Við vinnuveitendur höfum rætt
þessi mál við talsmenn ríkisstjórn-
arinnar og munum örugglega halda
því áfram. Það eru uppi áform um
að endurgreiða ekki söluskatt á
næsta ári og sömuleiðis um að taka
upp launaskatt á næsta ári. Að
okkar mati eru menn hér að tala
um 800 milljóna skattheimtu á
útflutnings- og samkeppnisgreinar.
Það er dæmi sem einfaldlega geng-
ur ekki upp,“ sagði Þórarinn V.
Þórarinsson.
Lok og læs
hjá vinnuveitendum
Forsvarsmönnum Verkamanna-
sambandsins var mikið niðri fyrir á
blaðamannafundi sem þeir boðuðu
til í gær eftir að upp úr slitnaði í
viðræðum þeirra við vinnuveitend-
ur. Þeir sögðust ekki hafa fengið
jákvæðar undirtektir vinnuveit-
enda við einu eða neinu sem þeir
hafi borið á borð í samningavið-
ræðunum, allar hugmyndir vinnu-
veitenda hafi gengið í skerðingar-
átt.
Vinslit
Það var greinilega kurr í mönn-
um vegna nýrrar þjóðhagsspár sem
Vinnuveitendasambandið hefur
látið vinna. Karvel Pálmason vara-
formaður Verkamannasambands-
ins sagði að það væri gamla sagan
að þegar ræða ætti um laun þeirra
sem að verst væru staddir, þá
pöntuðu menn skýrslur héðan og
þaðan sem væru þeim hagstæðar.
„Þessi vinslit verða kannski til þess
að skerpa línur í samningamálum í
framtíðinni ef hafa skal þennan
hátt á af hálfu Vinnuveitenda og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna. Hér er nánast um vinslit
að ræða eins og málum er háttað í
dag en trúlega sjá menn að sér,“
sagði Karvel Pálmason.
Hvað svo?
Það kom fram í máli Verka-
mannasambandsmanna að samn-
ingar væru ekki lausir fyrr en um
áramót og sú staðreynd hafi reynst
nokkur hemill í viðræðum við
vinnuveitendur. Margt bendir því
til að viðræðuaðilar setjist ekki að
samningaborði fyrr en upp úr ára-
mótum. Þangað til nota menn
tímann til viðræðna á báða bóga og
margt bendir til sérkjarasamninga-
gerðar víða um land. Þess má geta
að á Vestfjörðum sitja menn enn
við samningaborðið.
Sprungið hjá
vinnuveitendum?
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
Ábúðarmiklir forsvarsmenn
Verkamannasambandsins skýra
stöðu máia á fundi með frétta-
mönnum í gær.
Talið frá vinstri: Guðríður Elías-
dóttir, Þórir Daníelsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Karvel
Pálmason, Þröstur Ólafsson og
Björn Grétar Sveinsson.
Tímamynd BREIN
stjóri Dagsbrúnar lét þá skoðun í
ljós á fundinum í gær að sundrung-
ar væri tekið að gæta í röðum
vinnuveitenda því ýmsir úr þeirra
röðum út um land hafi lýst ákveðn-
um vilja til sérkjarasamningagerð-
ar.
Um þetta sagði Þórarinn V.
Þórarinsson framkvæmdastjóri
VSÍ; „Vinnuveitendasambandiðer
ekki að springa. Við stöndum nú í
viðræðum með okkar félagsmönn-
um á Vestfjörðum þar sem í athug-
un er breyting á bónuskerfi. Við
munum jafnt verða í sambandi við
okkar félagsmenn út um allt land
sem hér í Reykjavík þannig að það
er ekki um að ræða neinn samslátt
í okkar röðum,“ sagði Þórarinn V.
Þórarinsson. óþh
Húsbóndinn í Garðastræti, Þórarinn V. Þórarinsson laumast síðastur inn
á uppslitafund Verkamannasambandsins og vinnuveitenda í gær.
Tímamynd Pjetur
JAFNRÆDII ÞORSKIGILDUM
Sá liður sem vakti hvað mestar
deilur á Fiskiþingi í gær, voru tillög-
ur Sjávarútvegsnefndar um stjórn
fiskveiða. Miklar umræður spunnust
um tillögurnar sem voru í 10 liðum
og sýndist sitt hverjum.
Tillaga nefndarinnar náði þó,
flestum á óvart, fram að ganga nær
óbreytt, því aðeins var bætt inn í
hana þremur viðaukum og þrjú orð
voru felld út.
Tillögurnar voru:
í fyrsta lagi, að afli sem fluttur er
óunninn á erlendan markað verði
áfram reiknaður með allt að 10%
álagi, þegar metið er hversu miklu af
aflamarki eða aflahámarki skips er
náð hverju sinni.
Til að leitast við að draga úr
útflutningi á ferskum fiski verði
sóknardögum í útgerðarflokki 1
fækkað um 10 á þriðja tímabili (maí
til ágúst) og verði þessir dagar fluttir
á 1. og 4. tímabil.
Þetta var samþykkt en tveimur
viðaukum bætt við. Annars vegar að
fyrri liðurinn eigi líka við um loðnu
sem landað er erlendis og hins vegar
að við seinni liðinn bætist að fjölgað
verði sóknardögum vertíðarbáta á
vetrarvertíð og samskonar fækkun
færist á önnur tímabil.
í öðru lagi, að sóknarmarksskip
fái að flytja til sín afla með óbreytt-
um sóknarmarksdögum án þess að
það hafi áhrif á eigin aflareynslu,
eða aukningu á heildarafla.
Þetta er nýmæli og var samþykkt
með þorra atkvæða.
I þriðja lagi, að heimilt verði að
flytja allt að 20% af aflamarki hverr-
ar botnfisktegundar og 20% af afla-
hámarki frá einu ári yfir á næsta ár
á eftir, en heimild þessi fellur niður,
nýtist hún ekki á því ári.
Hér er sú breyting gerð á gildandi
lögum að prósentin eru ekki upp-
safnanleg milli ára. Þetta var sam-
þykkt samhljóða.
í fjórða lagi, að heimilt verði að
veiða 7% umfram úthlutað aflamark
af tiltekinni fisktegund af heildar-
verðmæti aflaúthlutunar, enda
skerðist aflamark á öðrum tegund-
um hlutfallslega.
Breytingin hér er sú að í gildandi
lögum er heimilt að veiða 10%,
tillögur sjávarútvegsráðuneytis
hljóða upp á 5%, en hér er gert ráð
fyrir 7%.
f fimmta lagi, að takmarka rækju-
veiðar, og telur Fiskiþing eðlilegt að
við stjórn rækjuveiða verði settur
kvóti á hvert veiðiskip, þar sem mið
verði tekið af aflareynslu einstakra
skipa síðastliðin þrjú ár. Framsal
verði leyft á rækjuaflamarki.
Þetta var samþykkt með eftirfarandi
viðauka:
Leita á til sjávarútvegsráðuneytis að
samræma veiðar og vinnslu.
í sjötta lagi, að taka ber sérstakt
tillit til mikillar rýrnunar tekna af
loðnuveiðum hjá loðnuskipum síðan
veiðibanni var aflétt af loðnu haustið
1983, við ákvörðun nú í haust.
Þetta var samþykkt eftir að þrjú orð
voru tekin úr greininni.
f sjöunda lagi, að Fiskiþing fer
fram á það að framsal á aflamarki
verði ekki háð því að skipin hafi
samskonar veiðileyfi. Þetta var sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæð-
um.
Jafnframt var samþykkt að heimilt
verði að flytja aflareynslu sóknar-
marksskipa milli skipa innan sama
útgerðarstaðar.
Þetta er nýmæli og var samþykkt
með meginþorra atkvæða.
í áttunda lagi, og um þennan lið
var mest þjarkað og þrasað, að við
ákvörðun aflahámarks þorsks og
karfa sóknarmarkstogara skuli þess
gætt að jafnræði sé í þorskígildum
milli svæða.
Hér er sem sagt tekið á norður-
suður skiptingunni og reynt að finna
málamiðlun sem allir gætu sætt sig
við. Tvær breytingatillögur litu dags-
ins ljós og voru felldar, en umræður
sem tóku nokkrar stundir, snerust
að mestu um þennan lið.
í níunda lagi, var samþykkt að um
veiðar báta undir 10 brl giltu eftirfar-
andi reglur:
Að nýir bátar fái ekki veiðileyfi
nema sambærilegir hverfi úr rekstri
og miðast þessi takmörkun við 1.
janúar 1988.
Að bátar sem stunda netaveiðar
skuli velja sér aflamark eða meðal-
aflamark sem miðast við aflareynslu
hóps og hvers báts frá 1. nóv. ’84 til
1. nóv. ’87
Að bátar sem stunda línu og hand-
færaveiðar sæti almennum sóknar-
takmörkunum.
Þessi tillaga var samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum.
Og í tíunda og síðasta lagi, að lög
um stjórn fiskveiða gildi fyrir árin
1988-1991 með ákvæði um endur-
skoðun eftir tvö ár.
Tillagan samþykkt með þorra grei-
ddra atkvæða.
Með þessum breytingum, sam-
þykkti 46. Fiskiþing frumvarp sjáv-
arútvegsráðherra um stjórn fisk-
veiða. Fiskiþingi lýkursvo í dag. -SÓL