Tíminn - 20.11.1987, Qupperneq 11
Föstudagur 20. nóvember 1987 Tíminn 11
lllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR H lllll: ......... ::illlli!l!IF: ...................... .iJilllllllF'-' ,,lilllllll|!lll'1' .......... .Hlllllllll'!1" .ijillllllll:i: ,1.1:11111111!; .lllT ..........I................... :,I........... ................
Einsoa svart og hvítt
Pólverjar komu fram hefndum á
íslendingum á handknattleiksvellin-
um í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
íslendingar sigruöu sem kunnugt er
með miklum mun í leik liöanna í
fyrrakvöld en í gærkvöidi fóru Pól-
verjar með sigur af hólmi, 25 mörk
gegn 22 eftir að staðan í leikhléi var
jöfn 13-13. Munurinn á leik íslenska
liðsins í þessum tveimur leikjum var
mikill, nánast eins og svart og hvítt.
í fyrrakvöld stórleikur en í kvöld
leikur undir meðallagi og niðurstað-
an því tap.
íslenska liðið fór ágætlega af stað
þó strax kæmi í ljós að þeir væru
ekki í því feiknar stuði sem áhorf-
endur í Laugardalshöll fengu að sjá
í gærkvöldi. Jafnræði var með liðun-
um í fyrri hálfleik, forskotið þó
yfirleitt fslandsmegin. í upphafi síð-
ari hálfleiks kom þessi klassíski
slæmi kafli og Pólverjar gerðu fimm
mörk gegn einu. fslendingar jöfnuðu
21-21 en þá kom annar slæmur kafli
og úrslitin voru ráðin þegar tvær
mínútur voru eftir.
Það er ekki gott að segja hvað fór
úrskeiðis hjá íslenska liðinu í þessum
leik, það var ekki eitt heldur öllu
fremur allt. „Mér fannst einbeitingin
ekki vera eins góð og í gær,“ sagði
Alfreð Gíslason var með fallbyssuna vel stillta í fyrri hálfleik og skoraði þá sjö mörk, hvert öðru glæsilegra. Hér er
eitt þeirra ■ uppsiglingu og augnabliki síðar var knötturinn í markinu án þess að Pólverjar fengju rönd við reist.
Tímamynd Pjetur.
Tuttugu og eins-árs landslið íslands gegn ísraelsmönnum:
Guðmundur Arnar sá
um stigið fyrir ísland
- Varði eins og berserkur og skoraði jöfnunarmarkið
Það fer líkast til enginn í grafgöt-
ur með hver var maður leiksins
þegar 21-árs landslið íslands í
handknattleik keppti við ísraels-
menn í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Guðmundur Arnar Jónsson heitir
sá og er markvörður liðsins. Hann
varði geysilega vel allan leikinn og
best í síðari hálfleik en klykkti svo
út með því að skora jöfnunarmark
íslenska liðsins þvert yfir völlinn á
lokasekúndunni.
Leikurinn var að öðru leyti
óskaplega dapur á að horfa. Sóknin
hvorki gekk né rak gegn sterkri
ísraelskri vörn og vörn íslenska
liðsins opnaðist oft illa. Það hefði
sannarlega ekki þurft að spyrja að
leikslokum ef Guðmundar Arnars
hefði ekki notið við.
Héðinn meiddur
fslenska liðið lék án Héðins
Gilssonar sem meiddist á hendi í
leliknum gegn Portúgölum í fyrra-
kvöld og er nú með hönd í fatla.
Þann leik unnu íslendingar 27-20
og var það ekki síst að þakka
stórgóðri markvörslu Guðmundar
nokkurs Arnars. Héðinn var
markahæstur í þeim leik með 5
mörk. Gegn tsraelum skoraði Skúli
Gunnsteinsson 4 mörk, Sigurjón
Sigurðsson 4(3), Gunnar Bein-
teinsson 3, Pétur Pedersen 3,
Bjarki Sigurðsson 1, Árni Friðleifs-
son 1, Guðmundur A. Jónsson 1,
Sigurður Sveinsson 1 og Þórður
Sigurðsson 1. Guðmundur Arnar
varði 16 skot í leiknum.
Nokkrar helstu tölur: 1-0, 3-2,
3-4, 5-5, 6-6, 7-7, 8-8, 8-9 - 8-10,
10-10, 10-12, 11-13, 13-13, 13-18,
17-18, 17-19, 19-19.
-HÁ
Úrvalsdeildin í körfuknattleik, ÍBK-ÍR 104-52:
Algerir yfirburðir
Frá Margréli Sanders á Suðurnesjum:
Keflvikingar sigruðu ÍR 104-52 í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Keflavík í gærkvöldi. Eins og tölurn-
ar gefa til kynna var um algera
yfirburði að ræða. Keflvíkingar spil-
uðu mjög góða vörn, sér ■ lagi í fyrri
hálfleik og það ásamt vel útfærðum
hraðaupplaupum skóp þennan sigur.
Strax á fyrstu mínútunum var
hægt að sjá hvert stefndi og eftir 6
mín. leik var staðan orðin 20-3 fyrir
Keflvíkinga og juku þeir forskotið
jafnt og þétt. Staðan í hálfleik var
55-23.
ÍR-ingar byrjuðu síðari hálfleik
betur en þann fyrri, veittu örlitla
mótspyrnu í vörninni en munurinn
var orðinn of mikil og endaði leikur-
inn eins og áður sagði 104-52.
Hjá Keflavík var liðsheildin sterk
og oft brá fyrir skemmtilegu spili.
Einnig voru þeir geysisterkir undir
körfunni. Bakverðirnir Karl Guð-
laugsson og Jón Örn Guðmundsson
stóðu uppúr hjá ÍR-ingum.
Ágætir dómarar voru Jón Otti
Jónsson og Kristinn Albertsson.
Áhorfendur voru 250.
Nokkrar helstu tölur úr leiknum: 20-3,
26-9, 47-16, 53-18, 55-23 - 67-27, 71-35,
82-43, 97-47, 105-52.
Stigin, ÍBK: Hreinn Þorkelsson 23, Guðjón
Skúlason 20, Magnús Guðfinnsson 15, Axel
Nikulásson 12, Falur Harðarson 9, Sigurður
Ingimundarson 8, Jón Kr. Gislason 7, Matti
ó. Stefánsson 6, ólafur Gottskálksson 4. ÍR:
Karl Guðlaugsson 17, Jón öm Guðmundsson
16, Vignir M. Hilmarsson 6, Bjöm Steffensen
4, Jóhannes Sveinsson 4, Bjöm Bollason 3.
Guðjón Guðmundsson liðsstjóri eft-
ir leikinn. „Varnarleikurinn fannst
mér líka slakur. Ég er þó í sjálfu sér
ekki svo óánægður með þennan leik,
við áttum toppleik í gær og eigum
inni einn leik á móti þeim á Akureyri
um helgina. Ég vona að það gangi
betur þar,“ sagði Guðjón.
Á lokamínútum leiksins hjálpað-
ist allt að í sókninni, ekkert gekk
upp og aldeilis annað uppi á teningn-
um en í fyrrakvöld.
Alfreð Gíslason og Kristján Ara-
son voru bestu menn íslenska liðsins
í þessum leik. Alfreð skoraði hvert
markið öðru fallegra, þar af 7 í fyrri
hálfleik, og Kristján mataði með-
herjana á sannkölluðum gullsend-
ingum í fyrri hálfleik auk þess sem
hann skoraði fjögur mörk sjálfur.
Þorgils Óttar Mathiesen lék einnig
vel.
Vörnin átti í mesta basli með
Landsleikur í handknattleik:
Ísland-Pólland
22-25(13-13)
Laugardalshóll
Loikurinn i tölura: 1-0, 2-1. 3-2, 3-4, 7-5,
9-7, 10-9, 11-11, 13-12, 13-13 - 13-14,
14-14, 16-18, 17-20, 21-21, 21-24, 22-24,
22-25.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 8(1),
Kristján Arason 4, Þorgils Óttar Mathies-
en 4, Karl Þráinsson 2. Jakob Sicpirðsson
2, Páll Ólafsson 2.
Markvarsla: Einar Þorvarðarson varði 9
skot og Guðmundur Hrafnkelsson 4.
íslendingar voru utan vallar í 6 rain.
Mörk Póllands: Bogdan Wenta 9, Leslaw
Dziuba 5. Krzysztof Staszewski 4, Marek
Kordowiecki 2. Zbigniew Plechoc 2. Dar-
ius Bugaj 1, Grzegorz Subocl 1, Ryszard
Maslon 1.
Markvarsla: Wieslaw Goliat varði 7(1)
skot og Krzysztof Latos 2.
Pólverjar voru utan vallar í 4 min.
Dómarar: Öjvind Bolstad og Terje Ant-
honsen frá Noregi, dæmdu mjög vel.
langskot Pólverjanna og markvarsl-
an var ekki eins góð og í fyrrakvöld.
Að öðru leyti var vörnin lengstum
ágæt, einkum Geir Sveinsson, Þor-
gils Óttar og Alfreð.
Pólverjarnir sýndu í gærkvöldi að
þeir láta ekki ganga yfir sig, a.m.k.
ekki tvö kvöld í röð og sá heimsfrægi
Bogdan Wenta var gjörsamlega óst-
öðvandi í fyrri hálfleik, skoraði þá 8
mörk.
íslenska landsliðið heldur í dag
norður yfir heiðar þar sem KEA
fjögurra Iiða mótið hefst í kvöld. Á
Akureyri Ieika í kvöld ísland-ísrael
kl. 20.00 og Pólland-Portúgal kl.
21.30. -HÁ
I stuttu máli
ÞorgiU Óttar Mathieson skoraði fjögur
mörk, eitt skot hans var varið og hann
náði boltanum tvívegis úr höndum and-
stæðinganna.
Jakob SigurdsBon skoraði tvö mörk, átti
eitt skot framhjá og náði boltanum einu
sinni.
Karl Þráinsson skoraði tvö mörk, átti eitt
skot framhjá, eitt í stöng og eitt var varið.
Sigurður Gunnarsson átti tvær sending-
ar sem gáfu mark og tapaði boltanum
einu sinni.
Alfroð Gislason skoraði átta mörk, þar af
eitt úr víti. Hann átti eitt skot í stöng, eitt
skot var varið og eitt víti einnig varið. Þá
átti hann eina sendingu sem gaí mark.
Páll Ólaísson skoraði tvö mörk, átti eitt
skot í stöng og eitt var varið. Hann tapaði
boltanum einu sinni, steig einu sinni á
línu og fókk dæmdan á sig ruðning einu
sinni. PáU átti eina sendingu sem gaf
mark.
Guðmundur Gudmundsson átti línu-
sendingu sem gaf mark en eina skot hans
var varið.
Kristján Arason skoraði fjögur mörk,
þrjú skot voru varin og eitt fór í stöng.
Kristján átti 6 sendingar sem gáfu mark,
missti boltann einu sinni og náði honum
einu sinni.
Sigurður Sveinsson fékk einu sinni
dæmdan á sig ruðning.
Fræðsluráð Ólympíunefndar íslands:
, Fyrirlestur um
Ólympíuhugsjónir
Fræðsluráð Ólympíunefndar ís-
lands efnir í samráði við nefndina til
fyrsta fræðslufundar ráðsins laugar-
daginn 21. nóvember nk. kl. 17.00 í
stofu 101 í Odda, húsnæði hugvís-
indadeildar Háskóla íslands
Það verður Jim Parry lektor við
íþróttadeild Háskólans í Leeds á
Énglandi sem flytur aðalfyrirlestur-
inn á fundinum. Parry er þekktur
íþróttafræðimaður á Bretlandseyj-
um og mjög eftirsóttur fyrirlesari
víða um heim. Hann mun fjalla um
Ólympíuleika í nútíð og framtíð og
hugsjónir þær sem Ólympíuleikarnir
byggjast á í ljósi raunveruleika sam-
tímans. Parry var um tíma leikmað-
ur með knattspyrnuliðinu Derby Co-
unty.
Valdimar Örnólfsson, formaður
fræðsluráðs Ólympíunefndar, Gísli
Halldórsson, forseti Ólympíunefnd-
ar og Sigmundur Guðbjarnason
háskólarektor munu flytja stutt
ávörp á fundi þessum.
Að auki flytja Ingólfur Hannesson
og Þorsteinn Einarsson stutt erindi.
Ingólfur ætlar að fjalla um starfsemi
og aðstöðu Alþjóða Ólympíu-
akademíunnar í Grikklandi og Þor-
steinn nefnir sitt erindi þátt íþrótta í
fornum hátíðum.
Öllum er heimill aðgangur og
aðgangseyrir er enginn. Sérstaklega
er boðið þeim er tekið hafa þátt í
Ólympíuleikum, hafa þjálfað
íþróttafólk til keppni á leikunum og
starfað að þátttöku íslands að öðru
leyti.
Jim Parry fyrirlesari við íþróttadeild háskólans í Leeds ætlar að flytja
athyglisverðan fyrirlestur um íþróttir og Ólympíuleika hér á landi um helgina.