Tíminn - 20.11.1987, Side 12
12 Tíminn
Föstudagur 20. nóvember 1987
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Sovéska frétt-
astofan Tass sagði að utanrík-
isráðherra Afganistan, Abdul
Wakil, væri farinn frá Moskvu
eftir að hafa átt tveggja daga
viðræður við Eduard Shevar-
dnadze utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna um leiðir til að koma
á friði í Afganistan.
RABAT — Tilkynnt var um
aukna bardaga i Vestur-Sa-
hara milli stjórnarhersins í Mar-
okkó og skæruliða Polisario-
hreyfingarinnar sem berst fyrir
sjálfstæði þessa landsvæois.
Sendinefnd frá SÞ mun vera
væntanleg á þetta svæði innan
tíðar til að kanna möguleikana
á friði og virðast auknir bardag-
ar vera tilkomnir vegna þessa.
LUNDÚNIR — Eldurinn
sem kviknaði í neðanjarðar-
lestarstöðinni við King's Cross
í Lundúnum og varð þrjátíu
manns að bana breiddist svo
hratt út að menn á neyðarvakt
gátu ekkert við ráðið. Þetta var
haft eftir talsmanni neðanjarð-
arbrautarkerfis Lundúna, sem
innlendir nefna einfaldleaa
„The Tube“, og fjölmargir Is-
lendingar hafa sjálfsagt notað
á ferðum sinum í Lundúnum.
LUNDÚNIR — Bandaríkja-
dalur lækkaði í verði gagnvart
öðrum helstu gjaldmiðlum
heims og hlutabréf á mörkuð-
um í Evrópu lækkuðu einnig í
verði. Ástæður þessa voru
áhyggjur fésýslumanna af að
viðræournar í Washington um
minnkun fjárlagahallans
myndu ekki leiðatil nogu mikils
niðurskurðar.
VIN — Fólk í Lettlandi fór í
kröfugöngur og lenti í átökum
við sovéska lögreglu á mið-
vikudaginn þegar 69 ár voru
liðin frá því Lettland lýsti yfir
sjálfstæði.
BELGRAD — Ráðamenn í
Makedóníu, fátækasta hérað-
inu í Júgóslavíu, báðu Branko
Mikulic forsætisráðherra að
endurskoða launa- og verð-
stöðvunina sem komið hefur
verið á í landinu eftir mikil
fjöldamótmæli verkamanna í
Makedóníu.
I
t
BAGHDAD — Herþotur ír-
aka gerðu loftárásir á tvö skip
í Persaflóa í gær og hittu
sprengjur þeirra bæði skot-
mörkin, að sögn talsmanns
hernaðaryfirvalda í Baghdad.
GENF — Lögreglan í Sviss
leitaði í gær sex fanga sem
sluppu út úr fangelsi í vestur-
hluta landsins með því að
saga sundur rimla og láta sig
síga niður á rafmagnssnúrum.
TAIPEI — Búist er við að
stjórnvöld í Tæwan muni gefa
kínverska flóttamanninum,
sem flaug á Mig-19 þotu til
landsins í vikunni, gull að and-
virði milljóna Bandaríkjadala.
Illlllllllllll
llllllllll
ÚTLÖND
Gífurleg verðbólga ogfátækt setur lýðræðislegt stjórnarfar í hættu í Brasilíu:
Samey spjallar um
stjóm sína í þátíð
Jose Sarney forseti Brasilíu: Talaði um stjórn sína í þátíð
Jose Sarney forseti Brasilíu var
ekki bjartsýnn á framtíð sína og
stjórnar sinnar í ræðu sem hann hélt í
vikunni. Þar talaði hann um að eng-
inn forseti hefði verið j afn þolinmóð-
ur og hann og spjallaði um stjórn
sína eingöngu í þátíð.
Sarney virtist vondaufur enda hafa
spjótin beinst mjög að honum og
stjórn hans að undanförnu og margir
telja að ríkisstjórnin eigi ekki langa
lífdaga fyrir höndum.
Einn helsti stjórnmálamaður
landsins hvatti í gær til þess að for-
setakosningar yrðu haldnar fyrr en
áætlað væri til að koma í veg fyrir
hugsanlega byltingu hersins. Jose
Richa öldungardeildarþingmaður
sagði í viðtali við blaðið O Estado
De Sao Paulo að stjórn Sarneys for-
seta væri valdalaus og gæti ekki ráðið
við gífurlega verðbólgu og fátækt.
Richa minnti á byltingar hersins
árið 1945 og 1964 og sagði að þær
hefðu verið gerðar á mun friðsælli
tímum en nú væri. Hann sagði verð-
bólguna vera gífurlega, hún yrði að
minnsta kosti 14% í desember og
20% í janúar, og nauðsynlegt væri að
gera einhverjar ráðstafanir.
Richa er stjórnmálamaður á mið-
og vinstrivængnum og nýtur virðing-
ar t.d. innan hersins. Hann lýsti
þjóðfélagsástandinu í landinu sem
„mjög alvarlegu" og hvatti til þess að
kosningar færu fram til að reyna að
leysa úr stjórnarkreppunni.
Sarney forseti hefur átt í sífeildum
deilum við þingið sem er nú að leggja
drög að nýrri stjórnarskrá.
Nefnd innan þingsins ákvað um
síðustu helgi að ganga þvert á óskir
forsetans og láta kjósa til embættis-
ins á fjögurra ára fresti í stað sex ára
eins og venja hefur verið. Þessi
ákvörðun þýðir að kosningar á að
halda eftir ár en fleiri og fleiri Brasil-
íumenn, þar á meðal Richa, hafa
dregið í efa að stjórn Sarneys muni
halda velli út þetta tímabil.
Sarney tók við embætti forseta í
apríl árið 1985 eftir dauða Tancredo
Neves sem varð fyrsti kjörni leiðtogi
landsins eftir 21 árs herstjórn.
hb/Reuter
Eru sættir að takast
með Assad oa Hussein?
Assad Sýrlandsforseti ofar og Sadd-
am Hussein forseti fraks: Stjórn-
málasamskipti tekin upp?
Dagblað eitt í Kúvait skýrði frá
því í gærað utanríkisráðherrar fraks
og Sýrlands myndu innan tíðar eiga
fund í Amman, höfuðborg Jórdaníu,
til að undirbúa viðræður milli leið-
toga sinna. írakar og Sýrlendingar
hafa eldað grátt silfur saman á
síðustu árum en betri samskipti
þeirra á milli gætu komið miklu
áleiðis í þeirri viðleitni að binda
enda á Persaflóastríðið.
Blaðið Al-Qabas sagði að leið-
togafundur þeirra Assad Sýrlands-
forseta og Saddam Hussein forseta
íraks myndi verða til þess að löndin
tvö tækju að nýju upp stjórnmála-
samband sem slitið var árið 1982.
Sýrlendingar hafa stutt frana í
stríði þeirra gegn írökum. Því telja
Jórdanar og stjórnvöld annarra ríkja
við Persaflóann að sættir milli Sýr-
lands og fraks geti orðið til þess að
þrýsta á írana til að semja frið við
íraka. Stríð þjóðanna tveggja hefur
staðið yfir síðustu sjö árin.
Al-Qabas hafði eftir áreiðanleg-
Finnsk stjórnvöld:
Ætla að vernda
Rúdolf og vini
Tíminn skýrði frá því i gær að
hreindýrabændur á Lapplandi ætl-
uðu sér að selja ferðamönnum
hreindýraveiðitúra yfir jólin. í
gærdag barst síðan frétt þess efnis
að finnska ríkisstjórnin væri að
búa til ný lög sem eiga að banna
sportveiðar á hreindýrum.
Rúdolf rauðnefjaði og félagar
hans sjá því fram á friðsæla daga
á Lapplandi um þessi jól, þökk sé
finnskum stjórnvöldum sem vilja
ólm auglýsa landið sem heima-
land jólasveinsins og rauönefjaða
hreindýrsins Rúdolfs. hb
um heimíldum í Amman að Assad
Sýrlandsforseti hefði lofað Hussein
Jórdaníukonungi að leggja fram til-
lögu um dagsetningu á utanríkisráð-
herrafundinum innan viku.
Saddam Hussein forseti íraks hef-
ur sagt að hann muni senda utanrík-
isráðherra sinn til viðræðna hvenær
sem óskað yrði.
Assad og Hussein tókust í hendur
og spjölluðu saman á ráðstefnu Ar-
abaríkjanna sem haldin var í Amm-
an nú á dögunum og töldu sumir að
þessi atburður táknaði upphafið á
leið til eðlilegra samskipta.
Reuter/hb
Bandaríkin:
Reagan kallar
hrun aðlögun
Rónald Reagan Bandaríkjaforseti
flutti ræðu í gær í viðskiptaráði
landsins og kallaði þar hrunið á verð-
bréfamörkuðunum í síðasta mánuði
þátt í aðlögun sem lengi hefði verið
beðið eftir.
„Ég sé enga ástæðu til að halda að
verðfallið á mörkuðunum núna muni
kalla á kreppu í landinu vegna þess
að aðlögunin skilur eftir sig tvisvar
sinnum stærri markað en þegar efna-
hagsútþensla okkar byrjaði," sagði
Reagan.
Reagan sagði að engin ástæða væri
til að örvænta þótt allrar varúðar
skyldi gætt. Hann tók fram að varast
þyrfti innflutningshöft og taka yrði á
fjárlagahallanum.
Forsetinn sagði að tími væri kom-
inn til að taka lokaákvarðanir í við-
ræðunum um að draga úr fjárlaga-
hallanum. Samningamenn Reagan-
stjórnarinnar og þingsins hafa
undanfarnar vikur rætt um leiðir til
að minnka fjárlagahallann og var
fastlega búist við að samkomulag
næðist fyrir daginn í dag og tilkynnt
yrði um skerðingu útgjalda og ein-
hverjar skattahækkanir. Reuter/hb
ÚTLÖND
UMSJÓN:
Heimir
Berqsson
BLAÐAMAÐURV