Tíminn - 20.11.1987, Síða 20
Þjónusta
í þína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Borgarstjóri og ráðhús Reykjavíkur:
INNKAUP EKKI UM
INNKAUPASTOFNUN
Sigrún Magnúsdóttir, borgar -
fulltrúi Framsóknarflokksins, telur
sjálfstæðismenn vera komna inn á
hættulega braut með því að láta
útboð og innkaup vegna byggingar
ráðhúss ekki fara í gegnum Inn-
kaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Með því sé komið fordæmi fyrir
því að borgarstofnanir leggi ekki
útboð og innkaup sín fyrir Inn-
kaupstofnun eins og lög gera ráð
fyrir. Þetta var rætt á borgarstjórn-
arfundi í gær varðandi skipun verk-
efnisstjórnar við ráðhúsið.
Sigrún sagðist telja Innkaupa-
stofnun nauðsynlega til að veita
borgarstofnunum aðhald í inn-
kaupum og tryggja þannig hag-
kvæmari innkaup og útboð hjá
Reykjavíkurborg. Hún benti á að
í þau fjögur ár sem hún hafði setið
í Innkaupastofnun hafi ýmsar
borgarstofnanir, sérstaklega veit-
ustofnanirnar, þrýst á að fá að gera
innkaup sín fram hjá Innkaupa-
stofnun. Sigrún benti á að innkaup
myndu ekki tefjast að ráði þó að
Innkaupastofnun sæi um innkaup
og útboð aðfanga í ráðhúsið. Sigr-
ún sagðist að öðru leyti samþykk
skipun verkefnastjórnar við
ráðhús. Davt'ð Oddsson taldi
BRBMHHi
hins vegar énga hættu á ferðum, þó
aðföng í ráðhúsið færu ekki í
gegnum Innkaupastofnun. Hann
sagði samþykkt um verkefnastjórn
lúta aðeins að ráðhúsinu. Gagnvart
öðrum stofnunum borgarinnar
færu sem hingað til útboð og inn-
kaup'í1 gegnum Innkaupastofnun.
HM
iiniMiiiiiwi iimpmiiJiii'iMiiiiii' il 1 i’arpa*Ti7rTii"ii;iTgg|9g*5gBHB"|BM,M|1^
Samband íslenskra rafveitna:
Jóni B. send
köld kveðja
Jón Baldvin Hannibalson fjár-
málaráðherra fékk í gær snarpa
orðsendingu frá Sambandi íslenskra
rafveitna vegna ummæla sinna um
yfirtöku ríkissjóðs á fjárhagsskuld-
bindingum raforkugeirans á árunum
1983-1987.
Einkum pirruðu ummæli ráðherr-
ans menn í raforkugeiranum þegar
hann sagði að væri „orkugeiranum
afhent skuldasúpan“ þyrfti að hækka
gjaldskrá almennrar raforkunotkun-
ar um 20%. f orðsendingu sinni segir
Samband íslenskra rafveitna að frá
sjónarhóli raforkufyrirtækja séu um-
mæli Jóns „ófullnægjandi, raunar
villandi fyrir fólkið í landinu." Hið
rétta í málinu segja raforkumenn
vera að ríkið sjálft hafi tekið allar
þessar kostnaðarsömu ákvarðanir,
s.s. Kröfluvirkjun, rannsóknir á
Norður- og Austurlandi og byggða-
línur, en ekki raforkufyrirtækin
sjálf. Auk þess benda þeir á að
Landsvirkjun hafi keypt þessi mann-
virki með því að yfirtaka skuldbind-
ingar, sem á núvirði nema um 5,4
milljörðum króna. Fjármagns- og
rekstarkostnað af þessum mann-
virkjum sé þegar búið að taka inn í
útreikninga á gjaldskrárverði. Hins
vegar standi eftir um 5,2 milljarðar
á núvirði af fjárhagsskuldbindingum
hjá ríkissjóði, en í orðsendingunni
er rækilega á það bent að til þessara
skulda hafi upphaflega verið stofnað
af ríkinu en ekki raforkugeiranum
og því síður raforkufyrirtækjunum
sjálfum. í lok orðsendingarinnar
draga raforkumenn saman niður-
stöður sínar og segja: „Raforkufyrir-
tæki (Landsvirkjun) yfirtóku 5,4
milljarða af ríkinu gegn afhendingu
tiltekinna verðmæta. Ríkið yfirtók
ekki 8 milljarða af raforkufyrirtækj-
um, heldur fyrst og fremst skuldir
sem það hafði sjálft stofnað til.“
Uritan-slys
í Húsafelli
Menn frá vinnueftirliti ríkisins
voru í allan gærdag að rannsaka
aðstæður í sumarbústað einum við
Húsafell, vegna slyss er hlaust af því
er úritan-brúsi sprakk í höndum
sumarbústaðareiganda. Hann liggur
enn á sjúkrahúsinu á Akranesi en
hann fótbrotnaði í slysinu.
Slysið vildi þannig til að brúsi með
úritanfyllingu, sem er vinsælt þétti-
efni í húsbyggingar,hafði staðið full
nálægt ofni í bústaðnum, en slíkt
efni þolir ekki meiri hita en 50
gráður samkvæmt varnaðartexta.
Þegar maðurinn tók brúsann sér í
hendur og hugðist vinna með efninu,
sprakk hann I tætlur. Botnstykkið
skaust niður og braut fótlegg hans en
efnið dreifðist um allan bústað. Það
mun hafa bjargað andliti mannsins
frá enn alvarlegra slysi að hann gekk
með gleraugu og var auk þess al-
skeggjaður. Bústaðurinn er allur
útataður í úritan út í hvert horn,
enda er mikill þrýstingur á efninu.
KB
Bjargvættimar og tikin Týra, meðan eldurinn var slökktur að Frostaskjóli.
(Tímínn: Pjetur)
Týra ein heima
þegar kviknaði
í kjailaranum
Iðnaðarbankinn:
Má byggja
Hið fræga veggjakrot íbúa við
Safamýri gegn byggingu Iðnaðar-
banka á horni Safamýrar, Háa-
leitisbrautar og Miklubrautar
hafði ekkert að segja í borgar-
stjórn í gær frekar en efasemdir
skipulagssérfræðinga Reykjavík-
urborgar um réttmæti byggingar
á þessum stað.
Byggingarleyfið var sérstak-
lega borið undir atkvæði og vakti
athygli að Katrín Fjeldsted, einn
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna,
sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokks
greiddu atkvæði með byggingar-
leyfi en fulltrúar minnihlutans
greiddu atkvæði gegn leyfinu.
Tíkin Týra varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu síðdegis í
gær, þegar reykur tók að berast inn
á heimili hennar að Frostaskjóli.
Eldur kviknaði í kjallara og sótsvart-
ur mökkur barst upp á efri hæð þar
sem Týra var ein heima.
Komu reykkafara slökkviliðs og
lögreglu var því ákaflega fagnað og
var Týra leidd út til að anda að sér
fersku lofti. Eldurinn var jafn skjótt
kveðinn niður og hann kom upp og
tjón varð ekki mikið.
En tíkin tók ekki almennilega
gleði sína fyrr en heimilisfólk kom
heim og í gærkvöld færði hún sig
ekki fet frá húsráðendum. Nóg kom-
ið af ævintýrum á einum degi.þj