Tíminn - 24.11.1987, Side 5
Þriojuaagur 24. nóvember 1987
.Tíminn 5
Hugmyndir um byggingu gríðariegra vatnsaflsvirkjana á íslandi:
Fljótandi vinnukvíar
með 2000 Asíumðnnum
Fri DavM Keys fréttarilara Tímaiu f London:
Forstjóri North Venture fyrirtækisins heftu- iýst yfir áhuga
sínum á að byggja gríðarlega stórar vatnsaflsvirkjanir á Isiandi og
flytja inn allt að 2000 erlenda verkamenn til að vinna verkið.
Fyrirtækið steftiir að þvf að halda fundi með orkumálayfirvöldum
á íslandi í janúar.
í ítarlegu viðtali sem Timinn átti við forstjóra þess á Bretlandi,
Alex Copson, kom fram að alþjóðlega fyrirtækið North Venture
en farið verður að vinna að raftnagnsútflutningi. Alex Copson
uppiýstí Tímann einnig um ýmsa einstaka þættí í áætlun sinni.
f fyrsta lagi sagði hann að á milli
1500 og 2000 erlendir verkamenn
gætu verið fluttir inn til íslands til
byggingarvinnunnar.
íöðru lagi, að öll myndun verka-
lýðsfélaga yrði bönnuð á meðal
þeirra sem fluttir verða inn til að
vinna verkið. Þeir sem reyni að
hefja einhvers konar verkalýðsbar-
áttu, verði teknir úr verkinu og
aðrir settir inn í staðinn.
í þriðja lagi, að allir verka-
mennimir myndu hafa gistiaðstöðu
á fljótandi búðum í höfn á borð við
Reykjavfkurhöfn.
I fjórða lagi, að verkamennimir
yrðu að taka út refsingu ef þeir
faem í land til að gera nokkuð
axmað en að vinna.
í fimmta lagi að verkamennimir
yrðu hugsanlega fengnir frá Japan
eða Kóreu, þó svo að ekki yrði
útilokað að evrópskir verkamenn
fengju að taka þátt í áætluninni.
,Hafði hann sérstaklega f huga
ftalska starfsmenn, enda er einn af
samstarfsaðilunum ftalskur.
AlexCopsonog
reglumar
Alex Copson er 35 ára og kemur
hann úr breskri hermannafjöl-
skyldu. Lagði hann áherslu á að öll
áætlunin yrði undir „mjög agaðri
yfirstjórn“. Hinum innfluttu verka-
mönnum yrði bannað að koma inn
á veitingahús landsmanna eða á
skemmtistaði, eða að taka nokkum
þátt í óopinbemm samkomum af
'nokkm tagi á landi.
Reglumar yrðu mjög strangar,
eins og hann sagði, en kaupið mjög
hátt. Hann sagði að eftirlitið yrði
af því tagi að engin blöndun ætti
sér stað, samfélagsleg eða persónu-
leg. Hin harða yfirstjóm hefði það
að helsta markmiði að stöðva hina
2000 aðfluttu verkamenn f því að
fara út með fslenskum stúlkum eða
finnast drukknir f íslenskum
bæjum. Yfirmenn North Venture
gera sér fullljóst að 2000 erlendir
menn á aldrinum 20-30 ára, gætu
haft talsverð siðferðileg áhrif á
samfélag sem þetta.
„Við myndum vera þama til að
vinna verk, en ekki til menningar-
legrar blöndunar,“ sagði Copson.
Framkvæma og tala svo
Hugmyndin að því að flytja út
rafmagn frá íslandi hefur verið
skoðuð af nokkrum samtökum á
liðnum ámm. Núna hefur North
Venture möguleika á að gera hug-
myndina að veraleika. „Mjög
margir taia um hlutina án þess að
framkvæma þá, en við framkvæm-
um hlutina og tölum síðan um þá
á eftir,“ sagði Copson í viðtali sínu
við Tfmann. „Þess vegna þarfnast
ísland mín. Hugmyndin að íslensk-
breska raforkukaplinum þarf á ein-
hverjum að halda sem gripið getur
upp boltann og hlaupið með hann.
Hafi íslensk yfirvöld áhuga á að
taka þessi mál alvarlega, vona ég
að þeir sendi mér opinbert boð um
að koma og ræða málin ofan í
kjölinn.“
Copson segist hafa rætt þetta
þegar við fulltrúa f iðnaðarráðu-
neytinu, sem hafi verið á ferð um
London, og einnig hafi hann rætt
Jxetta við sendiherra Islands í
London.
Núþegarmeð
viðskiptavini
North Venture segist þegar vera
í sambandi við tvo viðskiptavini á
Bretlandi. Annar þessara aðila er
norður-skoska rafveitan.
„Við ætlum að gera þetta og það
eina sem við þurfum, er tækifæri
hjá fslenskum yfirvöldum," sagði
Cópson.
Sagði hann að nýjustu viðræður
sfnar við fulltrúa Pirelli á Ítalíu,
sem er framleiðandi kapalsins,
hefðu sannað að möguleikinn yrði
raunhæfur og vel mjög hagkvæmur
kostur.
Copson segist hafa í hyggju að
flytja utan til Bretlands allt að 10
gígawattsstundir raforku. Að
minnsta kosti fjögur gígawött eiga
að koma frá virkjunum sem sér-
staklega verða byggðar til þessa
verkefnis. Áætluninni f heild er
ætlað að sjá Bretlandi fyrir um-
! ræddu rafmagni í 80 ár hið minnsta.
Petta gæti kostað um 2.000 milljón
sterlingspund.
Þessu til samanburðar kostar
kjarnorkuver, sem framleiðir um
1,2 gígawött og endist aðeins í um
25 ár, um 3.000 milljón sterlings-
pund. North Venture vill sjá þá
tfma að raforka frá kjarnorkuver-
um verði minna áríðandi þáttur í
orkuöflun Bretlands.
Fyrri stórvirkí North
Venture
Fyrirtækið North Venture hefur
áður staðið að stórum verkum, en
hefur ekki unnið að sambærilegu
verki við raforkuöflun. Þeir sáu til
dæmis um að setja upp og stýra
1000 manna vinnubúðum á Falk-
landseyjum fyrir fáeinum árum.
Fyrirtækið hefur haft það að verk-
efni m.a. að smíða sérhönnuð skip
fyrir Konunglega breska sjóherinn
og ameríska sjóherinn.
Á meðal verkefna er losun
kjarnorkuúrgangs á úthöfum og
jframleiðsla og hleðsla á helíum
fyrir kafara. Þeir hafa einnig unnið
i að uppsetningu á dvalarbúðum fyr-
lir bresku stjórnina á ýmsum
svæðum.
Fyrirtæki þetta hefur sérhæft sig
j í að kaupa inn sérfræðinga í ýmsum
greinum frá öðram löndum og
vinna þannig í alþjóðlegu samstarfi
að stórum verkefnum.
Könnun á handleggsbrotum:
Eldri konur brothættar
Eldri kona í launavinnu sem
dettur á götu eða gangstétt
vegna vanrækslu opinberra aðila
er dæmigerður sjúldingur sem
kemur á slysadeild Borgarspítal-
ans með brotinn framhandlegg.
Mestar líkur eru á að eldri konan
hafi dottíð I Kvosinni í Bakara-
brekkunni eða á Laugaveginum
í snjó og hálku.
Þetta má lesa úr niðurstöðum
könnunar sem Gunnar Þór Jónsson
og Grétar O. Róbertsson læknar á
slysadeild Borgarspftalans gerðu á
framhandleggsbrotum á áranum
1985 og 1986.
Ástæða þess að eldri konum er
hættara við framhandleggsbrotum
en öðram er að þeim er hættara við
beinþynningu og þar af leiðandi
beinbrotum. Skýringin á þvf að kon-
um f launavinnu er hættara við
brotum en öðram konum virðist
vera sú að konur í launavinnu era
meira á ferðinni í slæmri færð en
aðrar.
Af 191 framhandleggsbroti þar
sem orsök slyss var skráð, þá var 121
tilfelli vegna falls á jafnsléttu, 27
vegna falls úr hæð, 24 vegna falls í
tröppum, 7 vegna höggs og 12 af
öðrum örsökum. ís eða snjór var
orsakavaldur f 84 tilfellum, klaufska
f 34 tilfellum, hálka vegna bleytu í
20 tilfellum, holur öllu slysum f 9
tilfellum, en í 44 tilfellum var slysa-
valdur annar.
Athygli vekur að af 191 sem gáfu
upp orsök framhandleggsbrots era
106 í launavinnu, 48 elli- eða örorku-
þegar, 19 ráku eigin atvinnurekstur,
6 vora nemar og 2 heimavinnandi. í
flestum tilfellum var birta góð eða í
123 tilfella, skuggsýnt var í 28 tilfell-
um og myrkur f 35 tilfellum.
Gunnar Þ. Jónsson gerði ásamt Grétari O. Róbertssyui könnun á
framhandleggsbrotum árin 1985-1986. Hér er sá fyrmefndi við hluta af
gögnum þeirra.
Aidur
Alþingismaður í kvótasvindli?:
Skúli gerist
óþolinmóður
Skúli Alexandersson, alþingis-
maður og framkvæmdastjóri Jökuls
hf. á Hellissandi, sem sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur sakað um verkun á
ólöglegum sjávarafla að magni 120
lestir af óslægðum þorski, er nú orð-
inn óþolinmóður á að bíða eftir svari
frá ráðuneytinu. Hefur hann ritað
bréf til ráðuneytisins þar sem hann
ftrekar áskoran um lúkningu
málsins.
„Þar sem nú era að verða 3 mán-
uðir frá því að hinu háa ráðuneyti
] barst kærabréf mitt vegna úr-
skurðarins, en í kæranni kemur fram
að ég tel úrskurðinn bæði gallaðan
að formi til og rangan efnislega, þá
; leyfi ég mér að skora á hið háa ráðu-
' neyti að flýta afgreiðslu málsins, þar
sem ég tel mannorðsskerðingu í því
fólgna, sem framkvæmdastjóri Jök-
uls hf., að liggja undir áburði um lag-
abrot varðandi ólöglegan sjávarafla,
auk þess sem ég tel það sérstaklega
meiðandi fyrir mig sem alþingis-
, mann og andstæðing núverandi
I kvótafyrirkomulags“
Hann ítrekar enn sakleysi sitt og
segir að lokum:
„Ljóst er að óhæfilegur dráttur
hefur orðið á afgreiðslu málsins og
læðist óneitanlega að sá grunur að
þannig sé viljandi staðið að verki."
-SÓL
Saknaði
Lýst er eftir 20 ára gömlum
i manni Guðmundi Finni Björnssyni
frá Hvannabrekku, nú til heimilis .
að Tjamargötu 10 hér í borg.
Guðmundur er um 182 cm hár,
grannur, ljóshærður og notar gler-, J
augu. Hannvarklæddurf ljósgráan
herrafatajakka og ljósgráar buxur,
skyrtu og með hálstau og í svörtum
1 skóm. |
Guðmundur sást síðast um '
miðnætti aðfaranótt s.l. sunnudags |
við samkomuhúsið Hollywood við
Ármúla. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um ferðir Guðmundar eft-
ir þann tfma vinsamlega geri lög-
reglunni viðvart.