Tíminn - 24.11.1987, Qupperneq 20

Tíminn - 24.11.1987, Qupperneq 20
Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ókeypis þjónusta STRUMPARNIR 1917 Á R A 1987 frugtrhstiller Tíininn Eggert Haukdal um niðurskurðinn: HRESSA KÆTA Tíminn AST A JONIBALDVIN VERÐUR ADMINNKA Það er víða komið við í stjórnmálaályktun flokksráðs og for- mannafundar Sjálfstæðisflokksins um sl. helgi. Víða í þessari ályktun er hendi hressilega slæmt í Jón Baldvin og niðurskurð- arhníf hans. Ályktað er um hjartans mál Sverris Hermannssonar fyrrv. menntamálaráðherra, þjóðarbók- hlöðuna og kvikmyndasjóð á þann veg að „staðið verði við skuldbindingar gagnvart kvik- myndasjóði og við áform um byggingu þjóöarbókhlöðu". Sarn- kvæmt fjárlögum fyrir 1988 er gert ráð fyrir drjúgum niður- skuröi á báðum þessum fram- kvæmdum. Kvikmyndasjóði eru ætlaðar 400 þús. kr á næsta ári (fékk 550 þús. kr á fjárlögum yfirstandandi árs). Þjóðarbók- hlaðan fær í sinn hlut, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, 500 þús. kr. til framkvæmda. Samkvæmt lög- um frá 1986 um sérstakt þjóðar- átak til byggingar þjóðarbók- hlöðu hefði byggingin átt að fá í sinn hlut tæpar 1,8 millj. kr af innheimtu sérstaks eignaskatts. lJað vekur einnig athygli í nefndri ályktun flokksráðs- og íormannafundar Sjálfstæðisflokks- ins að hnýtt er ótæpilega í niður- skurð fjármálaráðherra til land- búnaðarmála. í ályktuninni segir að markvisst þurfi að vinna að vöruþróun og markaðsmálum ís- lenskra búvara auk þess sem efla verði nýjar búgreinar og skapa skilyrði fyrir fjölbreytilegri at- vinnuháttum í sveitum. „Til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að rannsókna- og leiðbeininga- starfsemi verði aukin og breytt", segir í ályktun flokksráðsins. Hér er spjótum beint að þeirri fyrir- ætlan, sem birtist í fjárlagafrum- varpinu, að skera niður framlög til Búnaðarfélags íslands og þar- með búnaðarsambanda í landinu. Minna má á í þessu sambandi að Félag ísl. náttúrufræðinga hefur ályktað um þennan fyrirhugaða niðurskurð, þar sem segir að hann kunni að orsaka fækkun ráðunauta í landinu og þarmeð þverrandi leiðbeiningaþjónustu fyrir bændur. Eggert Haukdal. Þessi ályktun um landbúnað- armál vekur upp þá spurningu hvort þingflokkur sjálfstæðis- manna sé á sömu skoðun og flokksráðið um fyrirhugaðan niðurskurð fjármálaráðherra til þessa málaflokks. Eggert Hauk- dal þingm. Sjálfstæðisflokks sagði að ekki ríkti almenn ánægja Jón Baldvin Hannibalsson. stjórnarliða með marga þætti í fjárlagafrumvarpinu, t.d. kafla um landbúnaðarmál. „Ég vil segja að landsbyggðarmenn í þingflokki sjálfstæðismanna séu óánægðir með þennan niðurskurð og raunar gildir hið sama um landsbyggðarþingmenn hinna stjórnarflokkanna". Eggert sagði að í sambandi við landbúnaðar- kafla fjárlaga mætti gjarnan koma fram að það vantaði betri stýr- ingu á neyslu sauðfjárframleiðsl- unnar en slíkt þyrfti að gera með auknum niðurgreiðslum. „Ég legg áherslu á að þetta er ódýrasta byggðastefnan gagnvart landbún- aðinum. Ef að stórlega á að skera l niður sauðfé frá því sem nú er orðið, þá hrynur byggðin vítt og breitt um landið, ekki bara sveitirnar heldur einnig bæir og þorp um- hverfis landið sem þjóna land- búnaðinum", sagði Eggert. En er Eggert Haukdal vongóð- ur um að fá leiðréttingu á land- búnaðarkafla fjárlaga við endan- lega afgreiðslu þeirra? „Mér sýn- ist sem Jón Baldvin og kratarnir ráði nokkuð miklu. En það kem- ur auðvitað allt í ljós við endan- lega afgreiðslu fjárlaga hvort við þegjandi og hljóðalaust stórauk- um elsku okkar á Jóni Baldvin. Það skyldi nú ekki vera að í bæði Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki mætti minnka elskan á Jóni Baldvin", sagði Eggert Haukdal að lokum. óþh. Forsnickkurinn af jólaskrcyttum Laugavegi, en miðbærinn mun Ijóma sem aldrei fyrr um jólin. Reykjavíkurborg ætlar að skreyta miðbæinn allt frá Aðalstræti að Hlemmi og frá Skólavörðuholti niður í Bankastræti. (Tímamynd Gunnar) Ljómandi miðbær í desember Það mun verða Ijómandi jóla- stemmning í miðbænum í desem- bermanuði, svo er fyrir að þakka borgarráði og Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en á þeirra vegum verða settar upplýstar jólaskreyt- ingar yfir Austurstræti, Banka- stræti, Laugaveg að Hlemmi, auk þess sem Skólavörðustígurinn verður allur uppljómaður af jóla- skreytingum. Að sögn Aðalsteins Guðjohnsen rafmagnsveitustjóra verða jóla- skreytingarnar að mestu með hefð- bundnu sniði að öðru leyti en því að aldrei áður hefur svo stór hluti miðbæjarins verið skreyttur. Þó verða fluttar inn breskar jóla- skreytingar í tilraunaskyni, í litlum mæli þó. Þá verða tré við Lauga- veginn lögð jólaljósum. Eins og áður hefur komið fram í Tímanum samþykkti borgarráð að miðbærinn yrði uppljómaður myndarlega á þennan máta um jólin. Mun kostnaðurinn, sem áætl- aður er að verði um 2,5 milljónir króna, skiptast jafnt á milli borgar- sjóðs og Rafmagnsveitu Reykja- víkur sem sér um framkvæmdina. Má ætla að jólaljósin verði tendruð laugardaginn 5. desember. - HM Landlæknir berst fyrir bættri ökukennslu: Ökukennsla verði valfag í skólunum „Ef litið er á slysakúrfur, þá kemur í Ijós að meirihluti þeirra sem slasast er á aldrinum 17 - 19 ára. Fólk á þessum aldri er í fjórum til fimm sinnum meiri hættu á að valda, eða lenda í umferðarslysi. Af hverju? Jú, þau vantaræfingu“ sagði Ólafur Ólafsson, landlæknir, í samtali við Tímann, en hann hefur enn tekið upp gamalt baráttumál, að fá ökuherma keypta til landsins og nota í efstu bekkjum grunn- skóla og í framhaldsskólum, ásamt því að ökukennsla verði tekin upp sem valfag. Ólafur rökstyður mál sitt á þann hátt, að slysakúrfur sýna að slysum stórfækkar eftir því sem fólk verður eldra. Það sýnir að eftir því sem æfingin verður meiri, því færri verða slysin. Ökuhermar hafa verið notaðir nokkuð í Bandaríkjunum og eru nú notaðir í yfir 1000 skólum í 40 fylkjum. Þeir geta samt ekki komið nema að nokkru leyti í stað öku- kennara. En rannsóknir hafa sýnt að þeir sem höfðu hlotið 12 tíma þjálfun í ökuhermi, stóður sig mun betur en þeir sem höfðu tekið 3 tíma í bifreiðaakstri. Talið er að þriggja klukkustunda kennsla í ökuhermi megi jafna við einnar klukkustunda ökukennslu í umferð. En það geta mun fleiri lært í herminum fyrir minni kostnað en á bílunum.? Ólafur benti einnig á að umferð- armál eru ekki eingöngu dómsmál, heldur einnig heilbrigðismál, því „við lendum með þá sem lenda í slysurn.4' -SÓL

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.