Tíminn - 24.11.1987, Blaðsíða 10

Tíminn - 24.11.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn Þriðjudagur 24. nóvember 1987 Þriðjudagur 24. nóvember 1987 Tíminn 11 Skúli Óskarssotl kom, sá og sigraði og stóð við stór orð sín þegar hann keppti á opna Reykjavíkurmeistaramótinu í kraftlyftingum um helgina. Skúli setti Islandsmet í hnébeygju (245 kg) og réttstöðulyftu (270,5 kg) í 67,5 kg flokki. Metlyftan í réttstöðulyftu var aldeilis dæmalaus og seiglan í Skúla hreint ótrúleg þegar hann streittist við stöngina - og hafði sigur. Á mótinu voru sett fimm fullorðinsmet karla, fimm unglingamet og 12 kvennamet. Skúli og systkini hans tvö, Nína og Már, settu alls 12 met á mótinu. Sterk fjölskylda þar á ferð. Nánar á morgun. - HÁ/Tímamynd Pjelur. L Islandsmótið í blaki Fjórir af blakleikjum helgar- innar urðu nokkuð sögulegir, af mismunandi sökum. Einn því þar vann HSK sinn fyrsta sigur í vetur, annar var sá lengsti í vetur og var það viðureign HK og Þróttar R. sem stóð í 119 mín. en sá þriðji var stysti leikur vetrarins þar sem ÍS vann Þrótt N. á aðeins 35 mín. Fjórði leikurinn var í 1. deild kvenna þar sem taplausu liðin tvö, UBK og Víkingur áttust við. Varð minna úr þcint stórleik en von var á og vann Breiðablik 3-0. Úrslit í leikjum helgarinnar urðu annars þessi: 1. deild karla: HK-Þróttur R 2-3 (15-12, 13-15, 12-15, 17-15, 4-15) HSK-Þróttur N. 3-0 (15-11, 15-10, 17-15) ÍS-Þróttur N. 3-0 (15-5, 15-2, 15-1) Víkingur-HSK 3-0 (15-10, 15-9, 15-6) tS ............... 6 6 0 18-3 12 Þróttur R.......... 6 60 18-6 12 HK ............... 7 4 3 15-10 8 KA ............... 5 3 2 9-9 6 Fram ............. 5 2 3 9-10 4 Víkingur.......... 6 2 4 11-13 4 HSK .............. 6 1 5 3-15 2 Þróttur N......... 7 0 7 3-21 0 1. deild kvenna: HK-Þróttur N. 3-0 (15-10, 15-7, 15-10) ÍS-Þróttur N. 3-0 (15-6, 15-9, 15-2) Víkingur-UBK 0-3 (7-15, 13-15, 9-15) UBK .............. 5 5 0 15-1 10 Vikingur.......... 54 1 12-4 8 ÞrótturR.......... 5 3 2 11-6 6 ÍS ............... 5 3 2 9-6 6 HK .............. 7 3 4 9-14 6 Þróttur N......... 6 1 5 4-17 2 KA ............... 5 0 5 3-15 0 Norðurlandamótið í karate: Tvö fengu silfur Jónína Olesen og Árni Einarsson náðu bestum árangri íslensku kepp- endanna á Norðurlandamótinu í karate sem haldið var í Noregi um helgina. Jónína fékk silfurverðlaun í -53 kg flokki í kumite og brons í kata og Árni varð í öðru sæti í -60 kg flokki í kumite en í 5. sæti í kata. íslenskir karatemenn hafa aldrei fyrr fengið silfurverðlaun á Norður- landamóti en hinsvegar brons. Þetta Norðurlandamót var mjög sterkt og allir bestu karatemenn Norðurlanda meðal keppenda. T.d. voru Evrópu- eða heimsmeistarar meðal keppenda í flestum flokkum. Svíar urðu sigursælastir á mótinu, fengu 9 gull, þrjú silfur og þrjú brons en næstir komu Norðmenn (2-5-5), þá Finnar (2-2-4), þá íslendingar (0-2-1) og loks Danir (0-1-0) sem ekki hafa keppt á Norðurlandamót- um fyrr. - HÁ Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Valssigur Körfuknattleikur: l.deild kvenna ÍBK-KR ..................67-39 UMFN-UMFG................29-22 ÍS og Haukar léku í gærkvöldi og verður sagt nánar frá þeim leik og þeim tveimur sem að ofan eru taldir í Tímanum á morgun. Staðan fyrir leik ÍS og Hauka: ÍBK ............. 5 4 1 289-220 8 ÍR .............. 5 4 1 274-234 8 llaukar............ 422 215-213 4 ÍS............... 4 2 2 154-161 4 UMFN ............ 523 194-196 4 UMFG ............ 6 2 4 199-249 4 KR............... 5 1 4 202-254 2 l.deild karla ÍA-Léttir UMFT-ÍS HSK-UMFS . . . . UÍA 6 UMFT Léttir HSK ís ÍA UMF Reynir Valsmenn unnu Grindvíkinga með 89 stigum gegn 79 í leik liðanna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik að Hlíðarenda á sunnudagskvöldið. Leikurinn var fjörugur, mikill hraði og spenna fram á síðustu mínútur. Góður kafli Valsmanna í upphafi síðari hálfleiks reyndist þegar upp var staðið tryggja þeim sigurinn. Leifur Gústafsson átti góðan leik í liði Vals, barðist mjög vel og var sterkur undir körfunni. Þá var Torfi Magnússon að vanda sterkur í vörn- inni. Einar Ólafsson átti ágætan leik og Svali Björgvinsson gerði góða hluti í síðari hálfleik. Þá lék Tómas Holton vel í sókn en klaufalegar villur gerðu honum erfitt fyrir í vörninni. Hjá Grindavík var Guð- mundur. Bragason yfirburðamaður, bæði í vörn og sókn. Nefna má einnig Rúnar Árnason og Guðlaug Jónsson og Eyjólfur Guðlaugsson hitti mjög vel í síðari hálfleik auk þess sem hann barðist mjög vel. Stigin, Valur: Leifur 21, Torfi 18, Einar 16, Svali 12, Tómas 10, Kristján 6, Björn 4, Jóhann 2. UMFG: Guðmundur 20, Eyjólfur 13, Guðlaugur 13, Jón Páll 10, Rúnar 9, Hjálmar 8, Steinþór 5, Ólafur 2. Þór-KR 100-108 (47-64) Mikill hraði var í leiknum og var hann skemmtilegur á að horfa. Voru menn fyrir norðan á því að þetta hefði verið besti leikur Þórsara í vetur. Munurinn varð minnstur 6 stig. Stigin, KR: Guðni 27, Simon 24, Ástþór 21, Birgir 20, Matthías 13, Guðmundur 2, Árni 1. Þór: Konráð 27, Guðmundur 20, Jóþann 14, Einar 8, Bjarni 8, Eiríkur 7, Jón 6, Ágúst 6, Björn 2, Hrafnkell 2. Haukar-UMFN 76-66 (32-42) Þessi leikur var afskaplega lítið spennandi og var mikið um mistök á báða bóga. Njarðvíkingar voru yfir allan tímann og var nánast ekki spurning hvoru megin sigurinn lenti. Stigin, Haukar: Henning 22, ívar W. 12, Ivar Á. 11, Tryggvi 10, Pálmar 7, ólafur 4. UMFN: Jóhannes 17, ísak 14, Valur 14, Hreiðar 12, Helgi 10, Teitur 5, Ellert 2, Sturla 2. -HÁ Guðmundur Bragason gnæfir hér hátt yfir Björn Zoéga Valsmann. Guðmundur átti góðan leik gegn Val. Tímamynd Pjetur. „Náðum takmarki okkar“ - íslenska landsliðiö í Frá Jóhannesi Bjarnasyni á Akureyri: fslcnska landsliðið í handknattieik sigr- aði á KEA-mótinu sem Iauk á Akureyri á sunnudag. Pólverjar urðu í öðru sæti eftir að lúta í lægra haldi fyrir íslending- um, 25-26, í siðasta leik mótsins. „Við stefndum að því að vinna Pólverja í tveimur leikjum af þrem og jafnframt að sigra á KEA-mótinu og það má því segja að við höfum náð takmarki okkar“ sagði Guðjón Guðmundsson liðsstjóri íslenska landsliðsins eftir að sigurinn var í höfn. Það var Guðmundur Guðmundsson sem tryggði íslendingum sigur með marki fjórum sekúndum fyrir leikslok gegn Pólverjum á sunnudaginn, í leik sem var bæði jafn og spennandi. Segja má að hraðaupphlaup Islendinga hafi ráðið úrs- litum í þessum leik og voru þau vel út færð. íslendingar skoruðu sjö mörk úr hraðaupphlaupum í leiknum en Pólverjar ekkert. Jafnræði var með liðunum lengst af í leiknum, munurinn aldrei meiri en þrjú mörk en Pólverjar þó oftar með forystu. Lokamínúturnar voru æsispennandi. Þegar 2:15 mínútur voru eftir og staðan var jöfn 24-24 var Atli Hilmarsson rekinn af leikvelli og íslendingar því einum færri. Þrátt fyrir það skoraði Kristján Arason með þrumuskoti en Kordowiecki jafnaði þegar 35 sek. voru eftir. fslend- ingar héldu boltanum uns Atli var kom- inn inná aftur og stuttu síðar barst boltinn til Guðmundar Guðmundssonar sem fór innúr horninu og skoraði úr mjög þröngu færi við gífurlegan fögnuð 1400 áhorfenda á Akureyri. „Eg er ánægður með ieikinn og loksins náðum við að sýna almennilegan leik á Akureyri“ sagði Guðjón Guðmundsson eftir leikinn. „Ég tei leikinn hafa verið mjög góðan og skemmtilegan fyrir áhorf- endur en við vorum óncitanlcga heppnir að sigra með einu marki.“ Kristján Arason var bestur íslendinga í þessum leik, átti í stuttu máli stórleik. KEA-mótið i handknattleik Ísland-Pólland.. 26-25 (11-13) Akureyrí 22.11.’87 Leikurínn í tulum: 1-0, 1-3, 2-4, 5-4, 9-7, 9-10, 11-10, 11-13 - 11-14, 12-14, 12-15, 15-15, 20-19, 20-22, 22-22, 22-23, 24-23, 24-24, 25- 24, 25-25, 26-25. Mörk íslands: Kristján Arason 9(4), Þorgils Óttar Mathiesen 6, Guðmundur Guðmundsson 3, Karl Þráinsson 3, Atli Hilmarsson 2, Sigurður Gunnarsson 2, Páll Ólafsson 1. Mörk Póllands: Wenta 7, Dziuba 7(3), Plechoc 4, Kordowiecki 4, Dariusz 1, Krzysztof 1, Marek 1. Dómarar: Öjvind Bolstad og Terje Anthonsen Noregi, mjög góðir. handknattleik sigraði á KEA-mótinu og vann Pólverja í tveimur af þremur viðureignum á fimm dögum Þorgils Óttar Mathiesen lék einnig mjög vel og aðrir áttu flestir góðan dag. „Þetta er sennilega besti leikur okkar á Akureyri frá upphafi“ sagði Kristján Arason eftir leikinn. „Sóknin var vel spiluð í dag og leikurinn örugglega skemmtilcgur fyrir áhorfendur þrátt fyrir slakan varnarleik“. En er Kristján Ára- son sammála þeim orðum Bogdans Kow- alczyk landsliðsþjálfara eftir tapið gegn Pólverjum á fimmtudagskvöldið að ís- lenska landsliðið geti ekki leikið vel heilt mót og að liðið þurfi sálfræðing eða töfralækni til að bæta úr því? „Þetta var vanmat fyrir leikinn, af hálfu þjálfara, leikmanna og áhorfenda. Bogdan er mjög metnaðargjarn og var því mjög svekktur eftir leikinn. Nei, ég er aiveg á móti því að gera handbolta það alvarleg- an að það þurfi sálfræðing eða töfralækni með liðinu“. Zenon Lakomy þjálfari Pólverja var þungur á brún eftir leikinn, sagði hann reyndar hafa verið fjörugan og áreiðan- lega skemmtilegan fyrir áhorfendur en talaði um að dómararnir hefðu verið slakir. ísland'Portúgal............29-18 Leikur íslenska liðsins gegn Portúgöl- um var annar og betri en á móti ísraels- mönnum kvöldið áður og brá oft fyrir skemmtilegu spili. Liðið var nokkuð breytt, Kristján Arason, Guðmundur Guðmundsson og Einar Þorvarðarson hvíldu fyrir úrslitaleikinn og Alfreð Gíslason var farinn til V-Þýskalands en þó var greinilegur getumunur á liðunum. Portúgalar byrjuðu betur en Þorgils Óttar Mathiesen tók þá til sinna ráða og gerði þrjú mörk í röð. Hann gerði fjögur af fyrstu fimm mörkum íslands og virtist stórleikur hans í uppsiglingu en hann var tekinn útaf eftir 9 mínútur, hvíldur fyrir Pólverjaleikinn. I stuttu máli Ísland-Pólland 26-25 Krístján Arason skoraði 9 mörk, þar af 4 úr vítum. Eitt skot hans var varið og hann átti fjórar sendingar sem gáfu mark. Þorgils Óttar Mathicscn skoraði 6 mörk, tvö skot voru varin, hann fiskaði eitt víti, steig einu sinni á línu og missti boltann einu sinni. Karl Þráinsson skoraði þrjú mörk, fiskaði eitt víti og missti boltann einu sinni. Atli Hilmarsson skoraði 2 mörk, fjögur skot voru varin og eitt fór yfir. Atli átti tvær sendingar sem gáfu mark. Guðmundur Guðmundsson skoraði þrjú mörk, átti eina sendingu sem gaf mark og fiskaði eitt víti. Sigurður Gunnarsson skoraði tvö mörk, átti eina sendingu sem gaf mark, fiskaði eitt víti og missti boltann fjórum sinnum. Páll ólafsson skoraði citt mark, tvö skot voru varin og eitt fór framhjá. Páll fiskaði eitt víti. Heldur dró sundur með liðunum er á leið og góður kafli stuttu fyrir hlé gerði út um leikinn, eftir það var aldrei spurning. Leikurinn fór heldur niður á við eftir því sem nálgaðist lok en fyrri hálfleikur var lengst af vel leikinn. Þorgils Óttar Mathiesen fór hamförum þær níu mínútur sem hans naut við en að öðru leyti var enginn afgerandi betri en aðrir í liðinu. Allt á réttri leið „Það var stígandi í mótinu hjá okkur, okkar fyrsti leikur var gegn ísrael á föstudag og var hann slakastur af leikjum okkar í mótinu. í gær (laugardag) spiluð- um við þokkalega gegn Portúgölum og síðan ágætlega í kvöld (sunnudag) gegn Pólverjum“ sagði Kristján Arason eftir að KEA- mótinu lauk. Úrslit í leikjum mótsins urðu þessi: ísland-ísrael............................ 20-15 Pólland-Portúgal........................ 27.-16 Pólland-ísrael........................... 27-16 Ísland-Portúgal ........................ 29-18 Portúgal-ísrael.......................... 18-13 Ísland-Pólland .......................... 26-25 ísland........................ 3 3 0 0 75-58 6 Pólland ...................... 3 2 0 1 79-58 4 Portúgal...................... 3 1 0 2 52-69 2 ísrael........................ 3 0 0 3 44-65 0 - HÁ Guðmundur Guðmundsson fór inn úr horninu á Pólverjum og skoraði sigurmarkið. lokasekúndum leiksins gegn Tímamynd Pjetur. KEA-mótið í handknattleik: Ísland-Portúgal... 29-18 (16-9) Húsavik 21.11.'87 Leikurinn í tölum: 0-2, 1-3, 4-3, 8-5, 9-7, 14-7, 16-9-20-11,25-14, 29-18. Mörk íslands: Atli Hilmarsson 5, Sigurður Sveinsson 5, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus Jónasson 4, Þorgils óttar Mathiesen 4, Páll ólafsson 3(1), Bjarki Sigurðsson 2, Sigurður Gunnarsson 2(1). Brynjar Kvaran varði 6 skot og Guðmundur Hrafnkelsson 7(1). Mörk Portúgals: Rodrigues 4, Graoa 3, Tires 3, Lacerda 2, Gonovales 2, Lopes 1, Lcite 1, Ferreira 1, Gentil 1. (stuttu máli Ísland-Portúgal..............29-18(16-9) Atli Hilmarsson skoraði 5 mörk, átti tvær send- ingar sem gáfu mark, tapaði boltanum einu sinni og fiskaði eitt víti. Þorgils Óttar Mathiesen skoraði 4 mörk og skaut einu sinni yfir en lék aðeins í 9 mínútur. Páll ólafsson skoraði 3 mörk, þar af citt úr víti, tvö skot voru varin og eitt fór framhjá. Páll tapaði boltanum einu sinni. Sigurður Sveinsson skoraði 5 mörk, þrjú voru varin, þar af eitt víti, og eitt fór framhjá. Sigurður tapaði boltanum tvívegis en fiskaði eitt víti. Jakob Sigurðsson skoraði 4 mörk, átti eina sendingu sem gaf mark og fiskaði eitt víti. Júlíus Jónasson skoraði fjögur mörk. Bjarki Sigurðsson skoraði tvö mörk, tapaði boltanum þrisvar og fiskaði eitt víti. Sigurður Gunnarsson skoraði 2 mörk, þar af eitt úr víti, þrjú skot voru varin og eitt fór framhjá. Sigurður átti eina sendingu sem gaf mark. Karl Þráinsson tapaði boltanum einu sinni. Norðurlandamót unglinga í sundi: Hugrún og Eyleifur fengu silfur- og bronsverðlaun Hugrún Ölafsdóttir náði bestum árangri íslensku keppendanna á Norðurlandamóti unglinga í sundi sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Eyleifur Jóhannes- son náði einnig í verðlaun á mótinu en þau Hugrún og Eyleifur voru einu Íslendingarnir sem komust í þrjú efstu sætin. Guðmundur Harðarson landsliðsþjálfari sagðist eftir mótið vera ánægður með árangur krakkanna en þó þyrfti að líta á málið frá tveimur hliðum. í fyrsta lagi væri á að líta að krakkarnir væru á þessu móti mörg hver að bæta eigin árangur og hefðu t.d. fallið 6 unglingamet og það væri mjög gleðilegt. Hinsvegar væri frammistaða íslendinganna iniðað við hinar Norðurlandaþjóðirnar og sagðist Guðmundur gjarnan vilja hafa hana betri. Á það bæri þó að líta að t.d. væri Hugrún að búa sig undir að reyna sig við Ólympíulág- mörkin í febrúar og því væri hún kannski ekki í sínu allra besta formi um þessar mundir. Hugrún Ólafsdóttir varð í verðlaunasæti í eftirtöldum greinunt: 2. sæti í 100 m skriðsundi (59,31 sek.), 3. sæti í 200 m fjórsundi (2:27,11 mín.) og 3. sæti í 200 m skriðsundi (2:06,99 mín.). Eyleifur varð annar í 200 m baksundi (2:18,41 mín.) og þriðji í 100 m baksundi (1:04,08 mín.) - HÁ 1. 3. Vinningstölurnar 21. nóvember 1987 Heildarvinningsupphæð: 5.561.113,- vinningur var kr. 2.789.238,- og skiptist hann á milli 3ja vinningshafa, kr. 929.746,- á mann. vinningur var kr. 833.433,- og skiptist hann á 353 vinningshafa, kr. 2.361,- á mann. vinningur var kr. 1.938.442,- og skiptist á 10.366 vinningshafa, sem fá 187 krónur hver. 532 Upplýsingasími: 685111 Háir vextír Grunnvextir á Kjörbók eru nú 32% á ári og leggjast þeir við höfuðstól tvisvar á ári. Efinnstæða, eða hluti hennar, hefur legið óhreyfð í 16 mánuði hækka vextir í 33,4% og í 34% eftir 24 mánuði Þrepahækkun þessi er afturvirk, hámarks ársávöxtun er því allt að 36,9% án verðtryggingar. Verðtrygging Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun Kjörbókarinnar borin saman við ávöxtun 6 mánaða bundinna verðtryggðra reikninga. Reynist ávöxtun verðtryggðu reikninganna hærri er greidd uppbót á Kjörbókina sem því nemur. Örugg og óbundin Þrátt fyrirháa vexti og verðtryggingu er innstæða Kjörbókar alltaflaus. Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,85%, en reiknastþó ekkiafvöxtum tveggja síðustu vaxtatímabila. Kjörbókin erbæði einfaltog öruggt sparnaðarform. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.