Tíminn - 24.11.1987, Side 13

Tíminn - 24.11.1987, Side 13
Þriðjudagur 24. nóvember 1987 Tíminn 13 FRETTAYFIRLIT ÚTLÖND VATÍKANIÐ — Vatíkanið neitaði fréttum um að Jó- hannes Páll páfi væri að skipuleqgja ferð sína til Kína og sagði að enginn mögu- leiki væri á slíkri ferð eins og ástandið væri nú. PARÍS — Ríkisstjórnin í Kampútseu og leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa komist að samkomulagi um að halda viðræður í Parísar- borg þar sem reyna á að finna leiðir til að binda enda á skæruliðahernað síðustu níu ára. BRUSSEL — Ráðherrar Evrópubandalagsins komu saman til viðræðna sem væntanlega munu leiða í Ijós hvort hægt verði að samþykkja róttækar aðgerð- ir á þingi EB í næstu viku sem rétt gætu við lélegan fjárhag þess. DACCA — Óeirðalögregla leysti upp mótmælasam- komu í Dacca, höfuðborg Bangladesh í gær. Stjórnar- andstaðan hafði kallað til fundarins til að mótmæla banni stjórnvalda við að blöð birti fréttir eða myndir af mótmælafundum í landinu. Aðgerðir sem beint hefur verið gegn Ershad forseta hafa staðið yfir síðustu tvær vikurnar. SEOUL — Mótmælendur í Suður-Kóreu hentu eld- sprengjum að forsetafram- bjóðanda stjórnarflokksins Roh Tae-Woo. Þeir voru í hópi meira en þúsund námsmanna sem áttu í átök- um við óeirðalögreglu eftir að hafa staðið fyrir mótmæl- um gegn Roh. Forsetafram- bjóðandinn, sem forseti landsins Chun Doo Hwan vonast til að setjist í sæti sitt eftir kosningarnar í næsta mánuði, slapp ómeiddur. DUBAI — íranskir byssu- bátar réðust á tvö skip í Hormúzsundi, mynni Pers- aflóans. Eldur kviknaði í öðru skipanna og þrír áhafn- armeðlimir slösuðust. JERÚSALEM - Banda- rískur skjalasérfræðingur sagði að gögnin sem notuð eru í málinu gegn John Demjanjuk, sem sakaður er um að hafa verið stríðs- glæpamaður nasista, gætu verið fölsuð. LUNDÚNIR — Þjófur var skotinn til bana og annar særður eftir skotbardaga milli þeirra og lögreglum- anna í Lundúnaborg í gær. Lögreglumennirnir eltu þjóf- ana eftir að þeir höfðu rænt peningum úr öryggisvagni og skömmu síðar kom til skotbardagans. Shultz og Shevardnadze á fundi í Genf: Beðið eftir samningi George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna og hinn sovéski starfsbróðir hans Eduard Shevardnadze funduðu stíft í Genf í gær og munu halda áfram í dag að reyna að ganga frá öllum lausum endum í sáttmála stórveldanna um eyðingu allra meðaldrægra og skamm- drægar kjarnaflauga. Þessar eiga að fara: Bandarísk Pershing 11 flaug þeytist á loft. Báðir ráðherrarnir sögðust vera bjartsýnir á að geta gengið frá sam- komulagi í dag þannig að leiðtogar ríkjanna þeir Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov geti skrifað und- ir það á fundi sínum í Washington þann 7.-10. desember. Helsta vandamálið snýst um eftir- lit með því að samningurinn sé hald- inn og þar er að mörgu að hyggja. Einn bandarískur samningamaður í Genf sagði reyndar við blaðamenn að utanríkisráðherra sinn væri kannski of bjartsýnn því hann gerði sér ekki grein fyrir hvað „sumir þess- ara hluta eru erfiðir". Shultz sagði á sunnudag að samn- ingamenn stórveldanna hefðu kom- ist að samkomulagi í öllum aðal- atriðum hvernig framfylgja mætti eftirliti með eyðingu kjarnaflaug- anna. Þessar flaugar hafa skotsvið á bilinu milli 500 kílómetrar og 5.000 kílómetrar. Shultz sagði að báðir aðilar hefðu samþykkt að þeir fengju að koma inn í mikilvægar stöðvar hvor annars til að tryggja að flaugunum yrði eytt á næstu þremur árum og myndu halda áfram heimsóknum sínum næstu tíu árin til að fylgjast með að ekki væri farið að framleiða slíkar flaugar í trássi við samkomulagið. „Við höfum góða eftirlitsáætlun meira og minna í höndunum. En slík áætlun er full af smáatriðum í sam- bandi við framkvæmd og þau eru sí- fellt að koma upp á yfirborðið", sagði bandaríski utanríkisráðherr- ann. Fjármálamenn bíða átekta: Minni halli nær ekki að lyfta dalnum úr lægð Samningur sá um minnkun fjárlagahallans í Bandaríkjunum sem gerður var í Washington á föstudagkvöldið og Tíminn skýrði frá á laugardaginn virtist ekki ætla að hafa afgerandi áhrif á gengi dalsins og verð á hlutabréfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í gær. „Við höfum ákveðið í samráði við George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna að ljúka vinnu okk- ar, sameiginlegum tilraunum til að ganga frá sáttmála um meðaldrægar og skammdrægari tlaugar ', sagði sovéski utanríkisráðherrann. Þrátt fyrir þessi bjartsýnisorð eru vandamálin til staðar t.d. hvernig megi jafna saman bandarískum og sovéskum kjarnorkuflaugaverum og hversu víðtækt eftirlitið þar á að vcra. Stjórnvöld í Bandaríkjunum vilja t.d. fylgjast meðfrantleiðslu SS- 25 flauga sem ekki eru taldar með í sáttmálanum. Ástæðan er sú að fyrsta stig framleiðslu þeirra er hið sama og SS-20 flauganna sem á að eyða. Þá hafa Sovétmenn krafist að fá að fylgjast með framleiðslu í Itelsta kjarnorkuflaugaveri Banda- ríkjamanna í San Diego í Kaliforn- íu. Þar verður hætt að framleiða meðaldrægar flaugar en engu að síð- ur haldið áfrant að framleiða stýrif- laugar sem skotið er frá sjó. Slíkar flaugar eru ekki taldar með í sam- komulaginu en eru nánast eins og þær stýriflaugar sem Bandaríkja- menn ætla að flytja frá meginlandi Evrópu og eyðileggja. Shultz hefur sagt það opinberlcga að hann sé orðinn leiður á samkomu- laginu um eyðingu meðaldrægra og skammdrægari flauga og vilji Ijúka því sem fyrst. Utanríkisráðherrann bandaríski hefur nteiri áhuga á að fara að ræða af alvöru um möguleika á samkomulagi unt helmingsminnk- un langdrægra kjarnorkuflauga. Báðir aðilar hafa lýst því yfir að þcir hafa hug á því að undirrita slíkt sam- komulag á hugsanlcgum leiðtoga- fundi í Moskvu á næsta ári. En fyrst er að sjá hvernig þeim Shultz og Shcvardnadzc semur í Genf, hvort þeim tekst að Ijúka al- veg við samkontulagið um cyðingu allra meðaldrægra og skammdrægari kjarnaflauga eða hvort óinögulegt reynist að færa ljónin af santninga- veginum. hb/Reuter ÚTLÖND UMSJÓN: Bandaríkjadalur lækkaði í verði gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum heims á flestum mörkuðum í gær eft- ir að hafa hækkað dálítið síðdegis á föstudaginn vegna hins yfirvofandi samkomulags. Að vísu var lítið að gerast, flestir biðu eftir að opnað væri í New York til að sjá hvernig hlutabréfum og gjaldmiðlum vegn- aði í Wall Street. Þegar svo opnað var lækkuðu bæði dalurinn og hlutabréf frá því á föstudaginn og virtist sem fésýslumenn væru ekki yfir sig ánægðir með samkomulagið í Washington. Einn höndlari í París sagði að í heildina væru menn óánægðir með fjárlagaviðræðurnar í Washington og sérstaklega væru smáatriðin óljós í samkomulaginu sem þingið og Re- aganstjórnin náði. Samþykkt var að minnka fjárlagahallann um 76 ntillj- arði dala á næstu tveimur fjárlagaár- um. Hagfræðingar sögðu í gær að þrátt fyrir samkomulagið stefndi í að fjár- lagahallinn yrði um 150 milljarðar dala á þessu ári. Fésýslumenn hafa einmitt litið á minnkun fjárlagahall- ans sem prófstein á getu bandarí- skra stjórnvalda til að taka á því sem að þeim snýr í vandamálum hins al- þjóðlega efnahagslífs. Bandaríkjadalur lækkaði um eitt til eitt og hálft vestur-þýskt pfennig og eitt japanskt yen á mörkuðum í Lundúnum í gærdag. Dalurinn var seldur á 1,6650 mörk og 134,60 yen. Gull hækkaði hinsvegar nokkuð eða um 2,55 dali hver únsa og var seld á 468,25 dali. Vestur-þýski Seðla- bankinn keypti dali fyrir 38,3 mill- jónir á hádegi til að gera gjaldmiðil- inn stöðugari gagnvart markinu. Sumir fjárfestendur sögðu að minnkun fjárlagahallans hefði ekki verið nóg, aðrir óttuðust að erfitt gæti oröið að koma samkomulaginu í höfn t.d. hvar skattahækkanir ættu að gilda en að því var aðeins óljóst kveðið í sáttmálanum milli þingsins og stjórnarinnar. Enn aðrir sögðust bíða eftir því hvað þjóðir á borð við Vestur-Þýskaland og Japan myndu gera t.d. hvort vextir yrðu lækkaðir í þessum löndum til að örva efnahags- lífið heima fyrir. hb/Reuter Samkomulagið í Washington virtist í gær ekki ætla að koma í veg fyrir lækkandi gengi dalsins. Hreinlífið í tísku Ungar konar í Vestur-Þýska- landi eru ekki á því að hoppa upp í rúmið með hvaða karlmanni sem er og telja sér orðið til tekna að vera hreinar meyjar þar til þær hafa fundið hinn rétta. Þetta kom fram í könnun sem kynlífsstofnun Ham- borgar gerði nýlega. Niðurstöður könnunarinnar munu birtast í vikuritinu Quick á næstu dögum en blaðamenn fengu að glugga í þær í gær. Þar kom í Ijós að ein af hverjum þremur vestur- þýskum konum á aldrinum 18-25 ára hafði aldrei haft samfarir. Alls töldu 64% af aðspurðum konum það mikilvægt að vera hreinar meyjar og 96% kvennanna lögðu áherslu á tryggð. Quick segir í grein sinni að svo virðist sem sjúkdómurinn eyðni hafi áhrif á þessa afstöðu kvenn- anna og auk þess séu þær orðnar langþreyttar á að vera álitnar kyntákn, auðveld bráð karlanna. Konurnar leituðu eftir varanlegu sambandi sem byggðist á ást og um- hyggju. Quick sagði að mikil breyting væri á þessari afstöðu borið saman við sjöunda áratuginn þegar það var álitið framsækið að sænga með karlmanni eins fljótt og færi gafst á. Vikuritið hafði eftir einum sér- fræðingi í kynlífinu að það væri aft- ur orðið í tísku að bíða eftir hinni einu sönnu ást og stúlkur litu á það sem dyggð að vera hreinar meyjar. hb/Reuter

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.