Tíminn - 24.11.1987, Síða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 24. nóvember 1987
Bókavertíðin að hefjast
Jólabækurnar streyma á markaðinn
i
Shrine, a visitor's companion er
ensk þýðing á Þingvullabók dr.
Björns Þorsteinssonar sagnfræð-
ings, gerð af prófessor Peter Foote
í London. Önnur bók á ettsku er A
Guidc to the Flowering Plants and
Ferns of Iceland. sem er ensk
útgáfa Plöntuhandbókareftir Hörð
Kristinsson sem kom út í fyrra.
Fuglahandbókin eftir Þorstein
Einarsson er með ljósmyndum af
öllum íslenskum varpfuglum. Efni
og orka eftir Robin Kerrod og Neil
Ardley í þýðingu Ólafs Halldórs-
sonar og Egils Þ. Einarssonar er
um meginþætti eðlis- og efnafræði.
Honio Faber er skáldsaga eftir
Max Frisch í þýðingu Ástráðs Ey-
steinssonar og Eysteins Þorvalds-
sonar. Þá kemur Ævisaga Jónasar
Kristjánssonar læknis. skráð af
Benedikt Gíslasyni frá Hofteigi,
og gefin út af Náttúrulækningafé-
lugi íslands, en Örn og Örlygur
annast dreifingu. Þá kemur endur-
útgefin bókin Edgar Cayce, undra-
læknirinn og sjáandinn. eftir Jess
Stern í þýðingu Lofts Guðmunds-
sonar, og loks er að nefna bókina
Spaugsami spörfuglinn, minningar
Þrastar Sigtryggssonar skipherra
sem Sigurdór Sigurdórsson blaða-
maður hefur skráð.
Þá koma út fimm barnabækur,
m.a. um Dagfinn dýralækni og
bangsann Paddington. og tvær
hljómplötur. Á annarri syngur Elín
Ósk Óskarsdóttir og á hinni Ragn-
heiður Guðmundsdóttir.
Mál og menning
Hjá Máli og menningu koma að
þessu sinni út skáldsögur eftir tvo
höfunda sem vakið hafa athygli
síðustu árin. Það eru Iiringsól eftir
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og
Gangandi íkorni eftir Gyrði
Þrjú bindi af ritsafni Sigurðar
Nordals koma einnig, og cru þar
m.a. Ijóð hans, sögur og leikrit.
fyrirlestrarnir Einlyndi og marg-
lyndi, svo og greinar um líf og
dauða, listir og fræði, heilbrigði og
útivist, og fleira.
Fimmta bindi af Ecikritum Shak-
espeares í þýðingu Hclga Hálfdan-
arsonar kcmur einnig núna fyrir
jólin. Aðrar bækur cru Saga þern-
unnar eftir Margaret Atwood í
þýðingu Áslaugar Ragnars, Nátt-
fari eftir Sigurð Hrciðar sem fjallar
unt sautján sakamál, Á bökkum
Laxár, frásagnir eftir Jóhönnu
Steingrímsdóttur, Heimili og húsa-
gerð 1967-1987 eftir Pétur Ár-
mannsson, Samskipti forcldra og
barna cftir Thomas Gordon í þýð-
ingu Inga Karls Jóhannssonar, Olla
og Pési eftir Iðunni Steinsdótturog
Silfurstóllinn eftir C.S.Lewis í þýð-
ingu Kristínar R. Thorlaeius.
Þá hefur Bókaklúbbur AB að
vanda gefið út eina bók í mánuði á
árinu. Þar á meöal eru þrjú bindi
af Sögu mannkyns, fimm þýddar
skáldsögur, Stafsetningarorðabók
Halldórs Halldórssonar og korta-
bókin Atlas AB scm er að koma
út.
Örn og Örlygur
Hjá Erni og Örlygi koma út
rúmlega tuttugu bækur fyrir full-
orðna, og að auki nokkrar barna-
bækur og hljómplötur. Þar á meðal
er Islenskt þjóölíf í þúsund ár eftir
Daniel Bruun í þýðingu Steindórs
Steindórssonar frá Hlöðum, með á
áttunda hundrað teikningum og
ljósmyndum eftir höfundinn. Líka
kemur annað bindi af Rcykjavík,
sögustað viðSundcftir Pál Líndal.
Ásta grasalæknir cr um líf Ástu,
lækningar og dulræna reynslu,
skráð af Atla Magnússyni blaða-
manni. Líka kenrur nú út 18. bindi
Nú er koniinn sá árstími sem oft er kenndur við bókavertíðina.
Forlögin eru sem óðast að senda frá sér jólabækurnar, og að því
líður að áhugamenn fari aö lesa ritdóma, kynna sér auglýsingar
og bókafréttir, og reyna þannig að átta sig á því hvað verði helst
hitastætt á markaönum fyrir hvern og einn.
Að því er helst er að sjá verður úrvalið núna síst minna en oftast
áður, og ekki er að efa að flestir munu finna þar eitthvað við sitt
hæfi. Hér fara á eftir upplýsingar frá nokkrum forlógum, sem
okkur hafa horist um það helsta sem er á döfinni hjá þeim.
af Þrautgóöir á raunasfund. björg-
unar- og sjóslysasögu Islands eftir
SteinarJ. Lúðvíksson. Gullnaflug-
an eftir Þorleif Friðriksson sagn-
fræðing er saga átaka í Alþýöu-
flokknum og erlendrar íhlutunar
um íslensk stjórnmál í krafti
fjármagns. Geymt en ekki gleymt
er annað bindi æviminninga Emils
Björnssonar, en hið fyrsta kom út
í fyrra. Þá kemur út þriðja bindi af
ntinningum Huldu Á. Stefánsdótt-
ur undir heitinu Húsfreyja á höfuð-
bóli.
Eftir Arna Johnsen kcmur út
bókin Fleiri kvistir á lífstrónu og
hefur að geyma samtalsþætti. Árni
Björnsson sendir frá sér bókina
Ilræranlegar hátíöir og fjallar unt
þá helgidaga kirkjuársins sem
tengjast páskahaldi. Itréf fráskáld-
uin til Guðmundar Finnbogasonar.
í útgáfu dr. Finnboga Guðmunds-
sonar, hefur að gcyma bréf frá 22
íslcnskum skáldum til Guðmundar
á árunum 1897-1943. Eftir dr.
Gísla Gunnarsson kemur bókin
Upp er boðið ísaland og fjallar um
cinokunartímann. Bókavarðatal
cftir Guðrúnu Karlsdóttur er upp-
sláttarrit um þá sem unnið hafa viö
bókavörslu hér á landi.
Systkinarööin eftir dr. Kevin
Leman í þýðingu Guðmundar Þor-
steinssonar fjallar um áhrifin af
stöðu fólks innan fjölskyldusinnar.
Thingvellir, Iccland's Nationaí
Almenna bókafélagið
Hjá Almenna bókafélaginu
koma meðtil tinnars út tvær skáld-
sögur núna fyrir jólin. Önnur er
eftir Matthías Johannessen og
Kristján Karlsson: Ný Ijóöabók.
nefnist Sól á lieimsenda. en hin er
eftirÓmar Þ. Halldórsson oghcitir
Blindflug. Þá kemur ljóðabók eftir
Kristján Karlsson, og nefnist hún
Kvæði 87.
Þórbergur Þórðarson: Dagbækur og bréf.
Sverrir Kristjánsson: Ritsafn,
fjórða liindi.
Elíasson. Eftir Einar Kárason er
von á smásagnasafni, ogsömuleiðis
á þýðingum Sigurðar Pálssonar á
ljóðum eftir Jacques Prevert. Þáer
þegar komið út ljóðasafnið Haug-
rof eftir Gyrði Elíasson.
Önnur íslensk verk verða m.a.
Endurminningar Haraldar Ólafs-
sonar togarasjómanns scm Jón
Guðnason sagnfræðingur hefur
skráð. Náttúra íslands I: Fuglar
eftir Guðmund Ólafsson er með
ljósmyndum og teikningum af öll-
um fuglum íslands. Þá kemur bók
með safni úr dagbókum, bréfurn
og öðrum ritum Þórbergs Þórðar-
sonar, eins konar framhald af
Ljóra sálar minnar sent kom út í
fyrra. Einnig kemur út fjórða bindi
af Ritsafni Sverris Kristjánssonar,
annað bindi af Heimsmynd á hver-
fanda hveli eftir Þorstein Vil-
hjálmsson, listasögubók eftir
Björn Th. Björnsson og listaverka-
bók um Louisu Matthíasdóttur.
Sigurður Nordal: Þrjú bindi af heildarútgáfu.
Þýddar skáldsögur eru einntg
nokkrar, þar á meðal Hús andanna
eftir Isabel Allende í þýðingu
Thors Vilhjálmssonar, Fávitinn,
síðara bindi cftir Fjodor Dostójev-
skí þýtt af Ingibjörgu Haraldsdótt-
ur og Furstinn eftir Machiavelli í
þýðingu Ásgrínts Albertssonar. Þá
koma Saga af sæháki eftir Gabríel
García Marquez í þýðingu Guð-
bergs Bcrgssonar, Myndin af Dori-
an Gray eftir Oscar Wilde, þýðing
Sigurðar Einarssonar, og Kass-
andra eftir Christa Wolf sem Jór-
unn Sigurðardóttir þýðir. Þrjár
stórbækur eru auk þess væntanleg-
ar, ein með norrænum ævintýrum.
önnur með skáldverkum íslenskra
kvenna 1880-1960 og sú þriðja nteð
úrvali af sögum Astrid Lindgren.
Einar níu barna- ogunglingabækur
koma auk þess út hjá Máli og
menningu. þar á meðal tvær ís-
lenskar, Stjörnustælar eftir Andrés
Indriðason og Sonur Sigurðar eftir
Guðlaugu Richter. Einnig kemur
út Saga af Suðurnesjuin. Ijóð eftir
Jóhannes úr Kötlum með myndutn
eftir Ragnheiði Gestsdóttur.
Svart á hvítu
Bókaforlagið Svart á hvítu gefur
út allmargar bækur í ár. Þar á
meðal eru þrjár íslenskarskáldsög-
ur, Kaldaljós eftir Vigdísi Gríms-
dóttur, Tungumál fuglanna eftir
höfund sem skrifar undir dulnefn-
inu Tómas Davíðsson, og Sólstafir
eftir Bjarna Guðnason prófessor.
Þá kemur út ljóðabókin Útganga
um augað læst eftir Isak Harðar-
son, og leikritið Brúðarmyndin
eftir Guðmund Steinsson. Auk
þess er að nefna bókina Að breyta
fjalli, bernskuminningar Stefáns
Jónssonar fyrrverandi alþingis-
ntanns.
Leggur og skel eftir Jónas Hall-
grímsson kemur einnig á bók, svo
og unglingasaga eftir Rúnar Ár-
mann Arthúrsson. Þá koma þýð-
ingar Árna Ibsens á sögum, leikrit-
um og Ijóðum eftir Samuel
Beckett, og þýðing Þórarins
Guðnasonar læknis á skáldsögunni
BabelshúseftirP.C. Jersild. Einnig
er væntanleg útgáfa á Sturlunga
sögu með nútímastafsetningu. Auk
þess korna samtalsbókin Samræður
um heimspeki eftir Brynjólf
Bjarnason, Halldór Guðjónsson
og Pál Skúlason, viðtalsbók við
Winnie Mandela. bókin Sambúð
inanns og sjávar eftir Gísla
Pálsson, Alþýðubandalagiö,
átakasaga eftir Óskar Guðmunds-
son, og Forritun með Logo,
kennslubók eftir dr. Jón Torfa
Jónasson.
Tákn
Bókaútgáfan Tákn sendir frá sér
fimm bækurnúna fyrir jólin. Gagn-
njósnarinn er þýðing á ævisögu
breska leyniþjónustumannsins Pet-
ers Wright, sem á frummálinu
heitir Spycatcher. 68-hugarflug úr
viðjum vanans eftir Gest Guð-
mundsson og Kristínu Ólafsdóttur
er samtíðarsaga þeirrar æskukyn-
slóðar hér á landi sem kennd er við
bítlatónlist og Karnabæjartísku.
Þá er bókin Ætternisstapi og átján
vermenn, safn 19 þátta eftir Þor-
stein frá Hamri. Bókin Ég vil lifa
geymir sjö samtalsþætti Guðmund-
ar Árna Stefánssonar og Önundar
Björnssonar við fólk sem staðið
hefur augliti til auglitis við dauð- I
ann, og er þetta þriðja útgáfa
bókarinnar. Loks er að nefna Lán j
í óláni, sjálfsævisögu Sir Alec Gu- ;
inness, sem kom út fyrir síðustu jól !
en er nú sett á markaðinn að nýju.
-esig
Bjarni Guðnason: Skáldsaga.
Emil Björnsson: Annað bindi af
æviminningum.