Tíminn - 24.11.1987, Side 19

Tíminn - 24.11.1987, Side 19
Tíminn 19 Þriðjudagur 24. nóvember 1987 r Þau Khatyn og llyas Dzhafarov hafa lifaö af 5 stríö. Hún er nú 115 ára en hann 120 IlYAS og Khatyn Dzhafarov héldu upp á brúðkaup sitt með þriggja daga hátíð að vori til 1885. Þau eru líklega einu hjónin í heim- inum sem hafa lifað það að vera yfir 100 ár í hjónabandi. Khatyn var sérlega falleg stúlka og Ilyas sá hana fyrst þegar hún var 14 ára og gætti kinda föður síns. Khatyn sat við læk og baðaði fætur sína. Ilyas fékk föður sinn til að koma bónorðinu á framfæri. Ungu hjónin bjuggu fyrst hjá foreldrum Ilyas, en þegar þriðji sonurinn fæddist hjálpuðu ættingjarnir við að koma upp húsi yfir fjölskylduna. Þau hjónin hafa allt sitt líf lifað með sívaxandi fjölskyldu sinni í Ræður sér loksins Hjón í yfir samankomnir til að gleðjast með gömlu hjónunum. Þau fengu kynst- ur af gjöfum, en einna mesta athygli vakti stórt sjónvarpstæki. Það var ekki algeng sjón þarna um slóðir. í sambandi við afmælið ræddi blaðamaður við þau hjónin og spurði m.a. um hvernig sambúðin hefði verið í gegnum árin. Frúin svaraði fáu til en eiginmaðurinn sagði:“Ég reifst aldrei við hana, - þó ég vissi að ég hefði á réttu að standa. Það borgar sig ekki. Eng- inn meiningarmunur er þess virði að vekja og viðhalda reiði. Nú, og svo skiptir rnisklíðin engu máli eftir svolítinn tíma“. En Khatyn sagði: „Fyrstu 50 árin voru erfið. Líf kvenna er orðið svo miklu léttara nú en hér áður. Konurnar í dag eiga góða daga. En ástin hefur enst okkur langan aldur og árin okkar hafa verið góð“. Það var ást við fyrstu sýn þegar Ilyas sá Khatyn sína 14 ára. Sjálfur var hann þá 19, - en á þessari mynd eru þau 115 og 120 ára! EfTIR skilnaðinn við Benny Anderson var eins og Anni-Frid Lyngstad missti fótanna og það tók hana nokkurn tíma að jafna sig. Nú er hún hins vegar sest að í Sviss vegna skattanna. Hún er vellauðug og á líka búgarð á Mallorca. Líf mitt hefur tekið nýja stefnu, “segir Anni-Frid. Nú reyni ég bara að njóta þess, lifi frá degi til dags og geri nákvæmlega það sem mig langar til. Áður h'afði ég aldrei tækifæri til þess. Anni-Frid var gift Ragnari Fre- deriksson og átti tvö börn árið 1967, þegar hún sigraði í fyrstu söngkeppni, sem hún tók þátt í. Tveimur árum síðar bjó hún í Stokkhólmi og fljótlega eftir það varð ABBA til. Fyrir 1980 voru fjórmenningarnir orðnir auðkýf- ingar, en það kostaði sitt. Bæði hjónaböndin fóru út um þúfur. Hálft annað ár leið, áður en Anni-Frid gat talað um hlutina. Hún settist að í London og síðan í Sviss. Á þessum árum hefur hún eignast góða vini, en engan fastan. Heimili hennar er í bænum Schwyz, þar sem hún á glæsilega íbúð. Á sumrin býr hún hins vegar á Mallorca, við sjávarþorpið Pu- erto Andraix, en þar býr einnig Soraya, fyrrum keisaraynja í íran. Anni-Frid er ekki hætt að syngja, þó lítið heyrist af henni hér heima. Hún syngur gjarnan á plöt- um hjá öðrum, nú seinast einhverj- um Mauro Socco. En hún þarf tæpast að vinna mikið, á nóga peninga og um þessar mundir ein- beitir hún sér helst að því að læra þýsku og frönsku og nýtur þess einnig að hafa nægan tím'a til að lesa. Uyas fer snemma á fætur og heggur við í eldinn enn fjallaþorpinu í Kákasusfjöllum, og ekki haft áhuga á að ferðast eða flytja annað. Höfðinginn ætlaði að stela konunni Þau Khatyn og Ilyas höfðu verið gift í nokkur ár og eignast fjögur börn, þegar ríkur höfðingi kom með sinn einkaherflokk og vildi stela konunni. Hún var fræg fyrir fegurð í héraðinu og víðar. Þorps- búar stóðu allir með Ilyas og hjálp- uðu honum við að verjast mönnum höfðingjans. Þeim tókst að vernda Khatyn, en þrír menn úr þorpinu féllu. Árið 1904 átti Rússland í stríði við Japan og þá var elsti sonurinn tekinn í herinn. Hann var sendur til Mansjúríu og fjölskyldan óttað- ist að hann hefði fallið, þar sem ekkert fréttist frá honum. Það var ekki fyrr en tveimur árum seinna að einmana hermaður sást á leið til þorpsins. Þar var þá sonur þeirra kominn aftur og varð mikill fagn- aðarfundur. í stríðinu 1914-18 flýði Ilyas með syni sína upp í fjöllin þegar her- kvaðningarmenn kontu í þorpið og þeir losnuðu við að fara á vígvöll- inn. En í seinni heimsstyrjöldinni féll yngsti sonurinn. ...reifst aldrei við konuna, sagði Ilyas ...árin okkar hafa verið góð, sagði Khatyn Nú eiga þau Khatyn og Ilyas yfir 200 afkomendur, allt myndarfólk. Á 100 ára brúðkaupsafmælinu 1985 voru yfir 150 af niðjum þeirra Langa-langa-langa... langafínn með yngsta afkomandann af uni 200 talsins w A HúN Melanie Vincz situr ekki auðum höndum og bíður þess að einhver umboðsmaðurinn „uppgötvi" sig. Hún er ekki nema rúmlega tvítug, en hefur þegar farið á fullum krafti eftir framabrautinni, - og ætlar sér miklu hærra. Hún komst fyrst í fyrirsætustörf, en heppnin var með henni í Hollywood og hún fékk smáhlutverk í hverjum sjónvarpsþættinum á fætur öðrum. T.d. „The Love Boat“ og „The Fall Guy“,sem eru vinsælir þar vestra. Þar með var hún komin í sviðsljósið. Hún segist ekkí hafa komist þetta ein og hjálparlaust, ef hún hefði ekki sjálf verið ákveðin og dugleg. T.d. hafi hún stundað líkamsrækt af fullum krafti. - Svo er heppilegt fyrir þær sem vilja láta taka eftir sér að stunda ströndina, segir Melanie. Það hefur hún gert í frístundum, og meira að segja lært að kafa. Annað áhugamál þessarar vel vöxnu leikkonu er að aka kappakstursbílum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.