Tíminn - 02.02.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.02.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 2. febrúar 1988 ÍSHÚSID NÚ ORÐIÐ LISTASAFN ÍSLANDS Það er erfitt að hugsa sér meiri veg- semd fyrir íshús en að verða listasafn heillar þjóðar. í>að átti þó fyrir íshúsi íshússfélagsins Herðubreiðar við Fríkirkjuveg að liggja, en í þessu sérstæða húsi sem Guðjón Samúels- son arkitekt teiknaði á sínum tíma, var Listasafn íslands opnað með viðhöfn s.l. laugardag. Listasafnið hafði verið til húsa við ótrúleg þrengsli í Þjóðminjasafni íslands, en er nú flutt í eigin glæsileg salarkynni þar sem áður dunaði dans fram á nætur, þegar Glaumbær var og hét. Samkvæmt teikningum Garðars Halldórssonar húsameistara ríkisins hefur verið byggð viðbygging við gamla íshúsið og eru byggingarnar tvær tengdar listilega saman með fallegum glerskála. Húsnæði Listasafns íslands að Fríkirkjuvegi 7 er alls um 2600 fermetrar. Þar er að finna fjóra sýningarsali, bókasafn, fyrirlestra- sal, kaffistofu,skrifstofur og geymsl- ur undir menningarverðmæti safnsins. Guðmundur G. Þórarinsson al- þingismaður hefur verið formaður byggingarnefndar listasafnsins frá því ákveðið var að það skyldi stað- sett í húsinu að Fríkirkjuvegi 7. Við opnunarathöfnina á laugardag stikl- Eysteinn Jónsson ræðir hér við Svövu Jakobsdóttur við opnun Listasafns íslands. Eiginkona Ey- steins, Sólveig Eyjólfsdóttir og eigin- maður Svövu, Jón Hnefill Aðal- steinsson fylgjast með. (Tímamynd Gunnar) aði Guðmundur á stóru í sögu lista- safnsins og rakti endurbætur og byggingarsögu safnsins.Hvatti hann listamenn til dáða nú eftir að þessum merka áfanga í sögu listasafnsins væri náð. Guðmundur afhenti síðan Birgi ísleifi Gunnarssyni mennta- málaráðherra húsið fyrir hönd bygg- ingarnefndar. Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins, sýnir forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, hið nýja húsnæði listasafnsins. Bera Nordal forstöðumaður listasafnsins fylgist með. (Tímamynd Gunnar) Guðmundur G. Þórarinsson formaður byggingarnefndar Listasafns íslands rakti byggingarsögu hússins og afhenti menntamálaráðherra húsið formlega. (Tímamynd Gunnar) Samkvæmt sérstöku erindisbréfi afhenti Birgir ísleifur Beru Nordal forstöðumanni Listasafns íslands lyklana að húsinu. Að því loknu opnaði forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir fyrstu sýningu húss- ins sem ber heitið „Aldarspegil! - íslensk myndlist frá 1900-1987“ Jóhann náði vinningsstöðu en gafstsamt upp í 31. leik Ekki tókst Jóhanni Hjartarsyni að tryggja sér áframhaldandi þátt-' töku í áskorendaeinvíginu á laug- ardaginn var. Fram eftir skákinni tefldi Jóhann mjög vel, en á örlaga- ríku augnabliki virtist hann sleginn skákblindu og þurfti skömmu síðar að gefast upp. Kortsnoj heldur þannig enn í vonina um að ná framlengingu í einvíginu með því að sigra í skák- inni sem tefld var í gær. Nú er öll pressan á Jóhanni og Kortsnoj hefur unnið sér inn mörg stig af sjálfstrausti af Jóhanni, sem til þessa hefur teflt mjög vel og í raun mun betur en hinn aldni andstæð- ingur hans. Það sama var uppi á teningunum í 5. einvígisskákinni á laugardag og Jóhann var almennt álitinn hafa vinningsstöðu. Stórmeistarinn Keene, sem skýr- ir skákirnar, sagði að Jóhann væri að vinna þangað til hann sá 28. og 29. leik Jóhanns. Þá varð allt í einu ljóst að Jóhann var að tapa. Skákin gekk svona fyrir sig: Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Viktor Kortsnoj Sikileyjarvöm. 1. e4-c5 2. Rf3-Rc6 3. d4-cxd4 4. Rxd4-Rf6 5. Rc3-e5 Þetta er upphafið á svokölluðu Lasker afbrigði Sikileyjarvarnar. Afbrigði þetta er mjög hvasst og það var einmitt það sem Kortsnoj þurfti í þessari skák því það eina sem honum dugði var sigur. Korts- noj hefur aldrei beitt þessu afbrigði fyrr og hann hefur sjálfsagt undir- búið það í fríinu á föstudag. 6. RdbS-d6 Nú er vænlegast að hvítur leiki 7. Bg5, en Jóhann hefur e.t.v. óttast undirbúning Kortsnoj og leikur öðrum, sennilega ekki síðri leik 7. Rd5-RxRd5 8. exRd5-Re7 9. c4-Rf5 Hér má einnig leika 9. -f5. 10. Bd3-Be7 11.0-0 - 0-0 12. a4- Nú eru komnar hreinar línur í taflið. Hvítur ýtir peðameirihluta sínum á drottningarvæng úr vör og ætlar að ná frumkvæði þar með, 13. a5-. 14. b4- o.s.fr. Kortsnoj beitir frumlegri aðferð til að koma í veg fyrir það. 12. - a6 13. Rc3-a5!? Gefur aftur reitinn b5, en þegar hvítur leikur 14. Rb5 þá á svartur leik í stað þess ef svartur hefði leikið strax í 12. leik a5, þá hefði sama staða komið upp nema hvítur ætti leikinn. Þetta skiptir þó ekki rniklu í framhaldinu. 14. Rb5-g6 15. b3-Bd7 16. Ha2- Þessi leikur kom nokkuð á óvart. Hér virðist Jóhann hafa verið að hugsa um vörn gegn peðasókn Kortsnojs á kóngsvæng, og það er ljóst að hrókurinn getur sveiflað sér yfir á kóngsvæng etir annarri reitaröðinni. 16. - Rg7 Kortsnoj ætlar augljóslega að senda fram peðastorm á kóngs- væng, en hins vegar er það líklega ekki mjög hættulegt því peð svarts á d6 er alltaf veikt og eftir 17. -f5, 18. -e4, þá hefur reiturinn d4 opnast fyrir riddara hvíts á b5. 17. Khl?- f5 Síðustu tveir leikir hvíts hafa stefnt að því að leika 18. f4- , en nú hugsaði Jóhann sig lengi um og hætti við þessa áætlun. E.t.v. fannst honum þetta óþarfi núna en þá er þessi kóngsleikur óþarfi og eins og kemur fram síðar í skákinni raunar til óheilla. 18. Bd2-e4 19. Bbl-BxRb5 Þessi uppskipti eru síður en svo lánleg fyrir svart. E.t.v. óttaðist Kortsnoj 19. -g5, 20. Rd4- og hvítur stendur ágætlega með riddarann sem sterkasta mann. Hins vegar losnar svartur við pressu á veika peðið á d6 með því að drepa riddarann. Jóhann sýnir þó fram á galla þessa leiks með sterkri taflmennsku. 20. axBb5-Bg5 21. b4-BxBd2 22. DxBd2-Dc7 Nú sýnir Jóhann Kortsnoj hvern- ig á að tefla og í raun nær Jóhann miklu betri stöðu með þróttmiklum leikjum og því var taphætta hans Iítil sem engin. I llllll ■I #111 lllllllllll i ■ 11 1 3 i 11 ■1 i llllll ■IA A 11 i H A llllll 4 iiiiii iiiiiii 1II M IHI AIQ 11111, iiii 1 ||I lllllllllll^ 23. c5!!- axb Kortsnoj má ekki leika 23. -dxc, vegna 24. d6-Dc8, 25. Dd5+ - Kh8, 26. bxc- með gjörunnið tafl aðöllum líkindum. Kortsnoj reynir að flækja taflið. 24. c6!- Nú hefur Jóhann náð að skapa sér frípeð og það á að duga a.m.k. til jafnteflis. 24. -HxHa2 25. BxHa2-Da5 26. Bc4 Vill valda peðið á b5. 26. -b6 Kortsnoj vill auðvitað ekki missa peðið sem hann hefur yfir með því að leika 26. -bxc, 27. dxc+ fráskák -Kh8,28. Dxd með léttunnu tafli. 27. Dd4! Sterkur leikur. Mesta hótunin er 28. Hal- og drottning svarts er illa innilokuð. Auk þess setur drottn- ingin þrýsting á b6 og hrókurinn á f8 má ekki fara neitt vegna Df6 og peðið á d6 er í hættu. lil#lllll 1111 1 ■li ■u Uil i ■ AII 111A i iiiiiir ■li S IMU i 101A10 1111 27.-b3 Eini leikurinn. Nú væri einfald- ast að leika 28. Bxb3-Dxb5, 29.Hbl- og peðið á b6 yrði dæmt til að falla með a.m.k. jafntefli. En nú er eins og Jóhann fái skákblindu og fer út í hina afkáralegustu áætlun. 28. Hal?-Db4 Ólafur Helqi Árnason SKÁKSKÝRANDI Jóhann hafur nú hrakið drottn- inguna á betri reit þar sem hún valdar frípeðið á b3 og leppar biskupinn á c4. En nú var best að leika 29. h3- og lofta út, leika síðan eftir 29. -b2 , 30. Hbl-Re8, 31.Hxb2-Del+ o.s.fr með góðu tafli á hvítt. Þess í stað lék Jóhann: 29. c7??? TAPLEIKURINN Jóhann virðist gleyma mátinu í borði eins og honum hafi fundist kóngurinn enn á gl eða hann hafi leikið h3 einhverntíma, og eftir: 29. -b2 30. Hbl-Hc8 Þá var ekki um annað að ræða en gefast upp. Jóhann má ekki drepa með hrók á b2 vegna mátsins á el. 31. Hxb2-Del +, 32 Bfl-DxB+ mát. Ef drepið er með drottningu á b2 þá fellur biskupinn á c4 óbættur. Ef 31. h3- þá -Hxc7, og biskup- inn fellur. Hér lauk skákinni og forskot Jóhanns minnkaði niður í 1 vinning. Ég verð að játa að þetta er stórt áfall fyrir Jóhann að leika skákinni niður í einu vetfangi þegar hann hafði miklu betri stöðu. Betra hefði verið að sætta sig við sann- gjarnt tap. Hins vegar getur Jó- hann raunar hugsað sem svo að Kortsnoj vann ekki af eigin getu heldur klúðraði hann þessu sjálfur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.