Tíminn - 03.02.1988, Síða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 3. febrúar 1988
Á Brunamálastofnun:
Samþykkir hönnun
starfsfélaga síns
Sérmenntaður starfsmaður
Brunamálastofnunar hefur nú um
nokkurt skeið unnið teikningar að
brunavarnarkerfum húsa gegn
sérstakri þóknun og hefur sam-
starfsmaður hans samþykkt teikn-
ingarnar. Er hér um nokkuð mörg
kerfi að ræða í flestum stærri
húsum og hótelum, sem byggð
hafa verið í seinni tíð. Brunamála-
stjóri segist hafa verið látinn vita af
a.m.k. einu tilfelli og telur hann
ekki æskilegt að samstarfsmenn
stundi með þessum hætti sjálfstæða
vinnu til hliðar við starf sitt á
stofnuninni. Brunamálastjóri hef-
ur þó ekki talið ástæðu til.að setja
ofan í við menn sína, þar sem ekki
er hægt að segja að hér sé um
ólöglegt athæfi að ræða. Þá bendir
hann á að fáir. eða engir verk-
fræðingar í landinu séu jafn fróðir
í þessu fagi og viðkomandi starfs-
maður.
Þessi starfsmaður er verkfræð-
ingur með sérmenntun í viðvörun-
arkerfum og brunavörnum og er
hann einn af örfáum slíkum á
landinu. Ekki er því óeðlilegt að
byggingarmenn hafi leitað til hans
með verk af þessu tagi, enda eru
þeir þá alveg öruggir með að
teikningarnar verða samþykktar.
Þá hafa málin þróast á þann hátt
á skrifstofu brunamálastjóra, að
arkitektar og verkfræðingar hafa í
auknum mæli komið með ófrá-
gengna hönnun þessara kerfa og
óskað leiðsagnar frá grunni. Má
sem starfsmenn ekki hanna sjálfir
gegn aukagreiðslu, séu unnar að
meira eða minna leyti af þeim
sjálfum í formi ítarlegrar leiðsagn-
ar.
Brunamálastjóri sagði þá starfs-
menn oft hafa rætt þessa þróun og
þá í ljósi aukins vinnuálags á
stofnuninni. Það væri hins vegar
greinilegt að hönnuðir leituðu mik-
ið eftir þeirri sérmenntun, sem
starfsmenn sínir byggju yfir og
treystu þeim mjög vel til að gefa
sér holl ráð. KB
Bandaríski
flotamála-
ráðherrann
í heimsókn
James H. Webb yngri flotamála-
ráðherra Bandaríkjanna mun dvelja
hér á landi í dag og á morgun. En
hann tók nýlega við embætti flota-
málaráðherra eftir að John Lehman
sagði af sér.
Á meðan dvöl hans stendur mun
flotamálaráðherrann eiga viðræður
við Þorstein Pálsson forsætisráð-
herra og Steingrím Hermannsson
utanríkisráðherra.
Heimsókninni lýkur síðan með
sameiginlegum blaðamannafundi
hans og utanríkisráðherra n.k. mið-
vikudag.
Hlíf í Hafnarfirði:
Ætla þingmenn
í hungurstríð?
Á fundi Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði 28. janúar s.l.
var samþykkt ályktun þar sem harð-
lega var mótmælt hverskonar
skattaálagningu á matvöru. Bent er
á að nú sé svo komið að dagvinnu-
laun verkamanns dugi ekki lengur
fyrir matvöruútgjöldum, lágmarks-
laun séu 27.577 kr. á mánuði en
útgjöld vísitölufjölskyldunnar til
matarkaupa í janúar s.l. 28.200 kr.
í lok ályktunar Hlífar er skorað á
alþingismenn að kynna sér betur
launakjör verkafólks og fella niður
matarskattinn, „nema þeir ætli sér
vísvitandi í hungurstríð við lágtekju-
fólkið í landinu". Einnig er lýst
„fyllsta stuðningi við Neytendasam-
tökin og baráttu þeirra gegn okri og
óeðlilegum viðskiptaháttum", eins
og segir orðrétt í ályktun frá Verka-
mannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði.
óþh
Elín Líndal
á Alþingi
Elín Líndal varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra tók í gær
fyrsta skipti sæti á Alþingi, en hún
kemur inn sem varamaður Stefáns
Guðmundssonar. Þá kom Níels
Árni Lund ritstjóri inn á þing í
fjarveru Steingríms Hermannsson-
ar utanríkisráðherra.
Aðrir varaþingmenn, sem tóku
sæti á Alþingi eftir fundarhlé voru
Sigríður Lillý Baldursdóttir
(Kvl.Rvk.) og Þórður Skúlason
(Ab.N.v.)
LEIÐRÉTTING
Sú villa var í leiðara blaðsins s.l.
laugardag að sagt var, að tillaga
Framsóknarflokksins í umferðar-
málum miðaðist við að framlengdur
Bústaðavegur myndi tengjast nýjum
vegi sunnan tannlæknahússins.
Hið rétta er að tillagan miðast við
að Bústaðavegur tengist bæði Mikla-
torgi og vegi norðan við tannlækna-
húsið, þ.e. núverandi Vatnsmýrar-
vegi. Leiðréttist þetta hér með.
Húsnæði saumastofunnar Hennes sem SS var boðið til kaups. Jón H. Bergs forstjóri SS segir að ekki standi til
að kaupa húsið. . .
Akranes:
SS skoðaði húsnæði
saumastofu Hennes
Samkvæmt heimildum Tímans er
Sláturfélag Suðurlands að ígrunda
aukin umsvif í verslunarmálum á
Akranesi. Jón H. Bergs forstjóri
Sláturfélags Suðurlands segir þó að
ekkert slíkt standi til þó Sláturfélag-
ið hafi skoðað húsnæði saumasto-
funnar Hennes sem boðið verður
upp í byrjun næsta mánaðar.
Samkvæmt heimildum Tímans
hafði Sláturfélag Suðurlands hug á
að kaupa Skagaver sem er stærsta
verslunin á Akranesi og gengu for-
svarsmenn Sláturfélagsins á fund
eigenda Skagavers af því tilefni.
Ekki varð úr neinum samningavið-
ræðum um kaupin þar sem eigendur
Skagavers höfðu ekki hug á að selja
verslun sína. Þá skoðuðu forsvars-
menn Sláturfélagsins húsnæði
saumastofunnar Hennes sem varð
gjaldþrota fyrir nokkru, en það
húsnæði hentar mjög vel undir stór-
markað, auk þess sem það liggur vel
við akstursleiðum til og frá Akra-
nesi. Sláturfélag Suðurlands á Akra-
nesi hefur einnig gert teikningar að
hugsanlegri stækkun á verslun sinni
þar.
Forstjóri Sláturfélagsins staðfesti
að húsnæði saumastofunnar hafi ver-
ið boðið SS til kaups og að forsvars-
menn Sláturfélagsins hafi skoðað
aðstæður þar. Ekkert hafi þó orðið
úr nánari viðræðum um kaup, enda
sagði Jón að Sláturfélag Suðurlands
hygðist ekki auka umsvif sín á Akra-
nesi umfram það sem nú er. -HM
Minna vatn renni til sjávar
Vatn er sykurlaust, vatn er drykk-
ur náttúrunnar, vatn er alls staðar og
þar að auki ókeypis.
Einmitt þess vegna þykir í fyrstu
það skjóta skökku við að heilbrigðis-
ráðuneytið reyni að „selja“ ókeypis
vöru með auglýsingaherferðinni fyr-
ir aukinni vatnsneyslu íslendinga.
En ágóðann er að finna í öðru en
beinhörðum gjaldmiðli. Tann-
skemmdum fækkar, því að með
aukinni vatnsneyslu minnkar
drykkja ropvatns ósjálfrátt og þá um
leið óhófleg sykurneysla íslendinga.
í vatni eru aukin heldur engin rot-
varnarefni, litarefni eða önnur efni
sem teljast óheppileg. Það er því
heilbrigðiskerfinu og landanum í
hag að minna vatn renni til sjávar og
rneira af því haft til drykkjar.
Skátar hafa beitt sér í herferð
ráðuneytisins og kynntu íslenskt ina Hér skála þeir {i>söluvörunni“:
gvendarbrunnavatn í sérhönnuðum H20 (tært og gott)
auglýsingabás í Kringlunni um helg- (Tíminn: Gunnar)