Tíminn - 03.02.1988, Síða 15
Míðvikudagur 3. febrúar 1988
Tíminn 15
AÐ UTAN
iiiiiiiinii
hárið og það hefði ekki verið sjón
að sjá. Hún hafi líka neyðst til að
vera í skólabúningnum sínum í
leyfum af því að hún hafi ekki átt
önnur föt. „Það er ekki satt,“
grípur þá mamma hennar fram í.
„Þú vildir bara ekki vera í notuðu
fötunum sem ég keypti."
Margt líkt með
mæðgunum
Þó að þær mæðgur eigi það til að
jagast, eins og mæðgna er siður,
heldur Sheiia því fram að Sarah sé
líkust henni af börnunum. Þær eru
báðar fæddar í bogmannsmerkinu
og báðar nokkuð fljótfærar, opin-
skáar og hláturmildar. Og þær eru
einar um það í fjölskyldunni að
eiga létt með að skrifa.
En þær eru líka ólíkar um margt.
Sheila er búin að vera í hamingju-
sömu hjónabandi í 30 ár. Maður
hennar var áður blaðamaður við
Time en er nú orðinn sérfræðingur
í fjármálum og hefur fullt starf við
að ráðstafa hinum miklu tekjum
konu sinnar á sem skynsamlegast-
an hátt. Og Sheilu þykir enn ákaf-
lega gaman að búa til einfaldan og
ódýran mat eins og t.d. spaghetti
bolognese, sem er eftirlætisréttur
allrar fjölskyldunnar.
Sarah aftur á móti er þegar búin
að slíta þrem trúlofunum og hefur
búið með heilli rokkhljómsveit.
Það sem veldur mömmu hennar þó
mestum áhyggjum er sá ávani
Söruh að skjótast allt í einu og
fyrirvaralaust alein í ferð til ein-
hvers afskekkts heimshluta. Hún
er skapmikil og óstöðug í rásinni.
Enda er hún fljót að viðurkenna að
hún eyði öllum peningum jafnfljótt
og hún afli þeirra. „Ég var floga-
veik á unglingsárunum og var auð-
vitað hrædd við það. Og þó að ég
kenni mér núna einskis meins gerði
sjúkdómurinn þá mér ljóst að ég
myndi ekki lifa eilíflega. Þess
vegna er ég ákveðin í að gera það
sem ég hef gaman af á meðan ég
get,“ segir hún. En þá fannst Söruh
allt í einu hún vera orðin of
alvarleg og sló á léttari strengi.
„Það sem mig vantar helst núna er
sterkur maður sem bjargar mér úr
klípunni þegar ég hef gert mig að
fífli!“
Önnur skrifar til að
græða peninga - hin til að
hverfa á vit draumanna
Það voru ólíkar ástæður sem:
drógu þær mæðgur út á ritvöllinn.
Sarah skrifaði sína fyrstu bók til að
græða peninga því að hún gat ekki
hugsað sér að draga fram lífið á
venjulegum launum. Sheilu aftur á
móti dreymdi aldrei um annað en
að drýgja ofurlítið heimilispening-
ana með skriftunum. Hún hafði
hins vegar ákaflega gaman af því
að skrifa og segir að það hafi verið
líkast því að fara í gott frí að hverfa
þannig á vit draumanna. „Það er
varla til erfiðara starf en að vera
móðir allan sólarhringinn og þegar
krakkarnir voru litlir bjuggum við
úti í sveit. Fjölskylda mín bjó hins
vegar öll í London og ég var oft
einmana. Fyrstu 7 árin var ég
stöðugt bundin heima því það var
enga barnfóstru að fá. Og þó að
mér þætti auðvitað afskaplega vænt
um bömin mín gerðu þau stöðugar
kröfur til mín. Þau voru ekki beint
óþekk en vom gefin fyrir það sem
sálfræðingar kalla nú „þroskandi
leiki“. Einu sinni tóku þau t.d. upp
á því að búa til stórhríð inni úr
öllum gömlu dagblöðunum sem
pabbi þeirra hafði safnað. Ég var í
marga klukkutíma að plokka bréf-
miðana upp úr gólfteppinu.
Sheila hafði vanist því á æsku-
heimili sínu að hafa gaman af
rómantískum ástarsögum. Henni
fannst þess vegna sjálfsagt að velja
sér þannig söguefni þegar hún
settist fyrst við skriftirnar og fyrstu
bókina skrifaði hún um eina helgi.
Hún þurfti heldur ekki að hafa
mikið fyrir að finna fyrirmyndir að
söguhetjunum sínum, hún studdist
við uppáhalds skáldsögupersón-
urnar frá æskuárunum. Hún virðist
hafa lifað sig meira og minna inn í
þessa söguveröld því að maðurinn
hennar gæti sem best hafa stigið út
úr henni, hávaxinn, dökkur á brún
og brá og ömggur í framkomu.
„Ég vil að karlmaður sé karlmann-
legur en ekki einhver tuska. En
Richard myndi aldrei láta það
spyrjast að hann læsi bók frá Mills
and Boon!“ segir Sheila.
Sarah dóttir hennar hefur hins
vegar enga lifandi fyrirmynd að
styðjast við þessa dagana þar sem
hún er á lausum kili. Hún segist
aftur á móti hafa til hliðsjónar
hvern þann mann sem hún hafi
orðið ástfangin af um dagana.
Þannig hafi t.d. spænski söngvar-
inn Julio Iglesias verið fyrirmynd
hetjunnar í fyrstu bókinni hennar
enda hafi hún á þeim tíma verið
svo ástfangin af honum að „það
stöð gufustrókur út úr eyrunum á
mér,“ segir hún. Þar með var
söguefnið komið, ung stúlka rekst
á frægan söngvara úti á götu og
verður auðvitað ástfangin upp fyrir
haus.
Var aldrei í vafa um að
hún gæti skrifað
Sheila varð yfir sig undrandi
þegar dóttir hennar var búin að
skrifa bók. Sarah hafði aldrei sýnt
minnsta áhuga á hvort heldur var
að lesa eða skrifa, en Sarah skýrir
áhugaleysið út með því að mamma
hennar hafi alltaf verið að reyna að
þvinga hana til að fá lánaðar bækur
á bókasafninu. „En þegar ég var
búin að ákveða að mér myndi
aldrei líða vel ef ég yrði ekki rík
settist ég niður og kynnti mér
hverja einustu bók sem mamma
hafði skrifað. Ég var ekki í nokkr-
um vafa um að ég gæti skrifað
svona bók. Þess vegna skældi ég í
marga klukkutíma þegar mamma
sagði að fyrsta bókin sem ég skrif-
aði væri ekki nógu góð til að verða
gefin út. Núna sé ég að sú bók var
ekkert lík bókunum hennar
mömmu. En þá var ég svo reið að
ég settist strax niður og skrifaði
aðra bók í mínum eigin stíl. Sú bók
var gefin út,“ segir Sarah.
Stíllinn hennar Söruh er ástríð-
uþrungnari en móður hennar og
það bregður fyrir kvalalosta og
ofbeldi í heitum og æsilegum ástar-
atriðum. Hún segir það stafa af því
að hún sé til í að gera tilraunir á
ritvellinum og þar að auki láti hún
tilfinningar sínar í ljós með líkam-
anum. Móðir hennar tekur þessar
skýringar óstinnt upp. Hún segist
líka geta brugðið undir sig betri
fætinum í kynlífslýsingunum og
ein bókin hennar hafi í rauninni
verið einar samfelldar samfarir,
aðeins með smáhléum til að borða
og taka sér sundsprett við sólar-
strönd í Vestur-Indíum.
Sheila segir það skoðun sína að
konur séu búnar að fá nóg af að
lesa nákvæmar lýsingar á ástarlífi.
Nú skrifi hún um það sem skelfi
hana mest, eins og nauðgun og
barnsrán fyrir utan stórmarkaðinn.
„Ég er kona og hef mikið ímynd-
unarafl svo að ég get séð fyrir mér
hryllinginn í sambandi við svona
atburði," segir hún.
Stundum erfitt að greina
á milli lífsins sjálfs og
ævintýranna í bókunum
Líf Söruh er hins vegar svo
fjörlegt að það liggur ekki alltaf í
augum uppi hvað er raunverulegt
og hvað skáldskapur. Hún lendir
oft sjálf í ævintýrum sem mætti
halda að gerðust bara í bókunum
hennar. Hún segir t.d. frá því að
eitt sinn þegar fjölskyldan hafi
verið á ferðalagi í Egyptaiandi hafi
komið til þeirra glæsilegur og töfr-
andi Arabi á hvítum gæðingi. Hann
hafi spurt hvort Sarah vildi ekki
koma á bak og fá tekna af sér
mynd. Hún þáði boðið en þá skipti
engum togum að hann keyrði hest-
inn sporum og hvarf út í eyðimörk-
ina! En Sarah brást ekki við eins
og söguhetja hennar myndi gera.
Hún varð skelfingu lostin og fór að
gráta svo að ævintýraprinsinn á
hvíta hestinum varð að skila henni
aftur í móðurfaðminn án þess að
reyna að koma vilja sínum fram
við hana!
Sheila hlær að endurminning-
unni og bætir við söguna að maður
hennar hafi ekki kippt sér upp við
fréttina um að Arabi hafi rænt
dóttur þeirra. „Hann hlýtur að
skila henni aftur," var það eina
sem Richard Holland hafði til mál-
anna að leggja.
Og Sheila segir aðra sögu sem
helst minnir á ævintýrin í hennar
eigin bókum. Þau hjónin voru á
ferðalagi í Grikklandi og á Ieiðinni
til Delfí tók Sheila allt í einu eftir
að brennisteinsgulur reykur liðað-
ist upp úr jörðinni í þorpi sem þau
fóru um. Það fór um hana og hún
krafðist þess að snúa aftur til
Aþenu. Þó að manni hennar væri
það þvert um geð lét hann það eftir
þessari móðursjúku og heimsku
eiginkonu sinni. Klukkutíma eftir
að þau komu til Aþenu varð mikill
jarðskjálfti á þessum slóðum og
þorpið þurrkaðist út. „Þetta var
rétt eins og í bók sem ég hafði
skrifað nokkrum árum fyrr þar
sem kvenhetjunni var bjargað úr
jarðskjálfta," segir Sheila.
„Enginn hæfileiki jafnast
á við fáviskuna“
En hver er leyndardómurinn við
að skrifa svona vinsælar bækur?
Sheila svarar snöggt. „Enginn hæfi-
leiki jafnast á við fáviskuna. Ég
vissi ekkert um hvernig á að skrifa
bók þegar ég byrjaði svo að ég
skrifaði bara það sem mér datt í
hug. Það gekk ágætlega. En svo
fyrir nokkrum árum kom nýr rit-
stjóri til Mills and Boon og hann
setti eitthvað smávegis út á eitt-
hvað sem ég hafði skrifað. Þá hætti
ég að geta skrifað, í hvert skipti
sem ég settist við ritvélina lamaðist
ég, ég var svo hrædd um að skrifa
einhverja vitleysu. Eina ráðið til
að komast út úr þessum hring var
að skrifa bara hreinlega það sem
mér datt í hug. Fyrst var það algert
rugl en því meira sem ég skrifaði
því afslappaðri varð ég og þeim
mun eðlilegar kom textinn frá
mér.“
Sarah hefur frá svipaðri reynslu
að segja. Hún segir frá því að á
tímabili hafi hún reynt að semja
háfleygari bækur af því að vinir
hennar hefðu sagt henni að þetta
væri bara heimskubull sem hún
skrifaði. „En nú hlusta ég ekkert á
það sem aðrir segja,“ segir hún,
„ég skrifa bara eins og ég sjálf vil
hafa það.“ Móðir hennar er skipu-
leg í skrifum sínum og lætur sér nú
nægja að skrifa 4 bækur á ári í stað
þeirra 12 sem hún skrifaði fyrr á
árum þegar hún átti í fjárhagsbasli.
Sarah aftur á móti skrifar bók
þegar hana vantar peninga og lætur
það nægja. „Ekki það að ég skrifi
bara peninganna vegna,“ segir
hún, „mér þykir gaman að skrifa,
en mér þykir líka gaman að lifa.“
Lausar stöður
Við Kennaraháskóla íslands eru eftirtaldar lektors-
stöður lausar til umsóknar:
1. Lektorsstaða í uppeldis- og kennslufræð-
um.
Störf lektorsins verða m.a. á sviði hagnýtingar
tæknimiðla við nám og kennslu, námsgagna-
og námsefnisgerð. Forstaða gagnasmiðju KHÍ
er jafnframt hluti af lektorsstöðunni.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í uppeldis-
greinum frá viðurkenndum háskóla. Þeir skulu
láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um
vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og
námsferil sinn og störf.
2. Lektorsstaða í myndmennt.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá viður-
kenndum háskóla eða sambærilegri mennta-
stofnun. Þeir skulu auk þess hafa lokið prófi í
uppeldis- og kennslufræðum.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vinnu við listgrein sína,
fræðistörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og
námsferil og kennslustörf.
Gert er ráð fyrir, að stöðurnar verði veittar frá 1.
ágúst 1988. Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 5. mars n.k.
Menntamálaráðuneytið,
29. janúar 1988
Lausar dósentstöður
við raunvísindadeild
Háskóla íslands
Við raunvísindadeild Háskóla íslands eru eftirtald-
ar stöður dósenta í matvælafræði lausar til um-
sóknar:
Staða dósents í matvælafræði. Dósentinum er
ætlað að stunda rannsóknir og sjá um kennslu í
matvælaefnafræði og matvælaefnagreiningu.
Staða dósents í matvælafræði. Dósentinum er
ætlað að stunda rannsóknir og sjá um kennslu í
matvælavinnslu og matvælatækni.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil og fyrri störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1.
apríl 1988.
Menntamálaráðuneytið
29. janúar 1988
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Vatns-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í ductile
aronironfittings.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
mars kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Vatns-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í ductile
aronpípur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
mars kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBORGAR_
Frikirkjuvcgi 3 — Simi 25800