Tíminn - 03.02.1988, Page 19
Miðvikudagur 3. febrúar 1988
^Tíminn 19
rignir yfir
sjónvarpsstjörnur
Katherine Helmond, sem is-
lenskir sjónvarpsáhorfendur minn-
ast með ánægju úr þáttunum Löður
og Hver ræður, á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir. Hún og
maður hennar, David Christian
hafa verið ótrúlega óheppin með
nágranna að því er virðist og nú er
Tony Danza þarf líka að verja
hendur stnar.
svo komið að kærumálin ganga á
víxl og skaðabótakröfur á þau
hjónin eru komnar upp í eina og
hálfa milljón dollara! Og Tony
Danza, sem heldurheimilinugang-
andi í Hver ræður (Who Is the
Boss) á yfir höfði sér 5 milljón
dollara skaðabótakröfu frá ungri
stúlku sem þykist eiga honum grátt
að gjalda.
Kærumálin á hendur Katherine
og David eru frá nágrönnum þeirra
James og Shirley Ickes, sem bera
þau öllum illum sökum. Ákærur
Ickes-hjónanna eru margvíslegar,
m.a. að Katherine og David hafi
vaðið yfir lóð þeirra í leyfisleysi,
eyðilagt girðingar, geymsluskúra
og undirstöður þeirra, stolið dýr-
mætum fornum sjálfsala, mynda-
vél, verkfærum og útbúnaði fyrir
útvarp og sjónvarp. Og ekki nóg
með það, þau hafi „gert þarfir
sínar bæði stórar og smáar" á
lóðinni og kastað þangað alls kyns
rusli og drasli. Og verst af öllu sé
að þau hafi hótað því að drepa
þessa nágranna sína.
Allur þessi nágrannakrytur
hófst, segja Ickes-hjónin, þegar
þau Katherine og David hugðust
byggja við sundlaugabygginguna
sína, reisa nýjan múrvegg og girð-
ingu við glæsiheimilið sitt í Laurel
Canyon. Allt þetta umstang og
óleyfilegur umgangur þeirra um
lóð Ickes-hjónanna hafi valdið
þeim síðarnefndu „ótta, kvíða,
taugaóstyrk, andlegri kvöl og al-
varlegri tilfinningalegri kreppu"
sem þau meta hálfrar milljónar
dollara virði. Auk þess meta þau
„munnlegar líflátshótanir“ og fleiri
aðgerðir gegn þeim á eina milljón
dollara.
Katherine og David hafa lfka
lagt fram kæru. Þau segja Ickes-
hjónin, ásamt syni sínum Kevin,
hafa ráðist inn á landareign þeirra
og brotið upp pípulagnir með exi,
auk þess sem þau hafi eyðilagt
hluta af sundlaugarbyggingunni
með hjálp sleggja og kúbeina. Þau
fara fram á að “eyðileggingarher-
ferð Ickes-fjölskyldunnar“ verði
stöðvuð.
Tony Danza á líka í vök að
verjast þessa dagana. Ung stúlka,
upprennandi leikkona, heldur því
fram að Tony hafi komið því til
leiðar að hún var rekin úr starfi
eftir að hún hafði sagt yngri bróður
hans upp. Hún heldur því fram að
bróðirinn hafi ofsótt hana, líkam-
lega og andlega, eftir að hún sagði
honum að hún vildi ekkert eiga
saman við hann að sælda lengur.
Og daginn áður en hún var rekin
úr starfinu hafi Tony sagt við hana
að hún hefði um tvennt að velja,
annað hvort að vera góð við strák-
inn eða verða rekin.
Hún var sem sagt rekin og fer
fram á 5 milljón dollara skaðabæt-
ur.
Katherine Helmond og maður hennar David Christian eiga í dýrum
útistööum við nágranna sína.
Dallas-stjarna
orðin predikari
Susan Howard átti langa dvöl í
liðinu sem heldur Dallas-þáttun-
um gangandi. Þar var hún lengi
gift Ray Krebbs og gekk sjálf
undir nafninu Donna Krebbs. En
skyndilega stóð hún uppi atvinnu-
laus þegar ekki þótti lengur vera
pláss fyrir hana í hinni stórbrotnu
fjölskyldu á Southfork.
Susan venti þá sínu kvæði í
kross og gerðist umferðarpredik-
ari og þar kemur henni til góða
reynslan úr Dallas-þáttunum.
Hún kynntist nefnilega náið þar
flestum þeim mannlegu löstum
sem ímyndunarafl handritshöf-
unda leyfir.
Nú eru 10 ár liðin síðan Susan
fékk köllun. Hún var þá 36 ára og
var eiginlega sokkin til botns í
sukkinu í Hollywood. Þá kynntist
hún núverandi manni sínum,
Calvin Chrane og þau fóru að
stunda kirkjuferðir saman. „Síð-
an elskar Susan Jesú og Calvin
mest af öllu,“ segir vinur hennar.
Susan greip tækifærið þegar
hún var rekin frá Dallas og gerðist
umferðarpredikari ásamt Calvin
og nú eru þau farin að sjá um
útvarpsþætti þar sem þau boða
fagnaðarerindið. Nú er hlutverk
Susan að bjarga sálum manna frá
eilífri glötun. Og eins og að
líkum lætur eru Dallas-þættirnir
henni óþrjótandi efniviður til að
vara sakleysingjana við vonsku
heimsins, eða liggur ekki í augum
uppi að þar er drýgð ein syndin
annarri meiri: eilíft framhjáhald,
gruggug og brögðótt viðskipti
J.R., ágirndin höfð að leiðarljósi
o.s.frv.
Slíkur lifnaður leiðir ekki til
eilífrar sælu og Susan leggur sig
alla fram um að leiða hlustendum
sínum það fyrir sjónir.
Besti vinurmannsins
Jane Seymour - hundsbit.
Anfh
gjafi.
Catherine Oxenberg - verðlauna-
köttur.
Sögur um samskipti frægs fólks
og dýra eru alltaf vinsælar. Hér eru
nokkrar: Jane Seymour fékk að
reyna um daginn, að laun heimsins
eru vanþakklæti. Hún bjargaði litl-
um hundi frá drukknun í síki einu
og þar sem enginn í grenndinni
kannaðist við hvutta, tók hún hann
heim með sér. Varla hafði hún sett
hann niður, þegar hann beit Katie,
fimm ára dóttur Jane í andlitið.
Ljótt sár hlaust af og telpan var á
augabragði send á sjúkrahús í
plastíska aðgerð.
Breski leikarinn Anthony And-
rews er mikill hestamaður og oft
spurður ráða, ef einhver ætlar að
fjárfesta í hesti. - Ég hef ekki selt
ráð mín hingað til, segir Anthony,
- en þegar ég sé, hvað fólk eyðir
miklum peningum til hestakaupa,
getur verið að ég endurskoði af-
stöðu mína. Annars vil ég helst
leika í myndum, þar sem hestar
eru. Þegar ég sé, hvernig fólk
kemur fram hvert við annað, er ég
sannarlega ánægður yfir að hestar
skuli vera til.
Catherine Oxenberg fagnaði
mjög þegar einn af síamsköttunum
hennar fékk fyrstu verðlaun á
kattasýningu um daginn. - Ég
hafði ekki ætlað að taka þátt í
sýningunni, segir Catherine, - en
grannkona mín taldi mig á það.
Auðvitað var ég bæði ánægð og
hissa. Þegar við kisa komum heim
aftur, bauð ég grannkonunni upp á
kampavín í eldhúsinu. Kettirnir
fengu rækjur.
Elton John er hins vegar ekki
eins jákvæður, að minnsta kosti
ekki gagnvart köttum. Hann var
rétt óstiginn upp í flugvél til Japans
nýlega til að gera sjónvarpsauglýs-
ingu um sólgleraugu og þóknunin
skyldi nema litlum 90 milljónum
króna. Þarna á flugvellinum missti
svo einhver út úr sér að með Elton
í auglýsingunni ættu að vera 22
kettir, auðvitað allir skrýddir sól-
gleraugum.
Skyndilega varð tilboðið afar
fráhrindandi fyrir Elton, sem þegar
í stað fékk kast af kattaofnæmi og
flýtti sér heim aftur. Sem betur fór
var hann ekki búinn að skrifa undir
samninginn.
Blómatíð lögfræðinganna:
Skaðabótakröfum