Tíminn - 19.03.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 19. mars 1988
Útboð -
Malbikun
Hafnarfjaðarbær leitar tilboða í malbikun gatna og
göngustíga sumarið 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði gegn 10.000
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
29. mars kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
w
Félag járn-
iðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 1988 kl.
20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Kosning fulltrúa á 13. þing M.S.Í.
3. Kjaramál.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Sápugerðin Frígg
er að markaðssetja nýtt
þvottaduft til hreinsunar á mjalta-
kerfum og öðrum mjaltaáhöldum.
Okkurvantargottnafnáduftið. Verð-
launin eru kr. 15.000,- fyrir besta
nafnið. Ef fíeirí en einn aðili er með
sama nafnið, deilist upphæðin á þá
aðíla.
skal skila til Sápugerðar-
fyrir 5. apríl 1988.
VSamkeppni
Lyngási 1 - 210 Garðabæ
SÁPUGERÐIN
Ráöstefna Norðurlanda um sjúkdóma í fiskeldisstöðvum:
Heilbrigðiskröfur
við laxeldi hertar
Jón Helgason, landbúnaðarráðherra og Paul Midtlyng yfirdýralæknir Noregs
í fisksjúkdómum á ráðstefnunni á Hótel Esju í gær. Tímamynd Gunnar
Nú stendur yfir ráðstefna á Hótel
Esju um sjúkdóma í eldisfiski og
leiðir til að bæta heilbrigðisástand á
fiskeldisstöðvum. Samhliða henni er
verið að undirbúa væntanlegan
seiðaútflutning til Noregs. Allar
Norðurlandaþjóðirnar eiga fulltrúa
á ráðstefnunni og er hún haldin í ár
með tilstyrk frá Norðurlandaráði.
Að sögn Paul Midtlyng, yfirdýra-
læknis Norðmanna í fisksjúkdóm-
um, stendur til að gefinn verði út
bæklingur sem verður hvort tveggja
til leiðbeiningar og einnig til stöðlun-
ar á þeim kröfum sem gera verður til
eldisstöðva um sjúkdómaeftirlit og
hreinlæti. Eru staðlar þessir ofan við
þau mörk sem nú er víða miðað við
og er stefnt að því að heilbrigðiskröf-
ur á laxeldisstöðvum verði auknar til
muna á öllum Norðurlöndum.
Að sögn Jóns Helgasonar, land-
búnaðarráðherra, hefur komið fram
að Norðmenn hafa verið ánægðir
með heilbrigðisástand í íslenskum
eldisstöðvum. Samt er ljóst að sögn
ráðherra að gera verður meiri kröfur
hér á landi, áður en tekin verður
ákvörðun um áframhaldandi og auk-
inn útflutning á laxaseiðum til
Noregs. Taldi Paul Midtlyng að vel
kæmi til greina að Norðmenn flyttu
inn laxaseiði í auknum mæli frá
íslandi. Þó væri Ijóst að kröfur um
hreinlæti og sjúkdómaeftirlit yrði að
auka á íslandi áður en það verður
ákveðið. Sagði hann að strax að
lokinni ráðstefnunni færu nokkrir
Norðmenn hringinn í kringum land-
ið til að kanna ástand þessara mála.
Verða niðurstöður þeirra úr ferðinni
lagðar til grundvallar öllum innkaup-
um héðan. Búast má við að hver
stöð verði skoðuð sérstaklega og
ákvarðanir teknar um það frá hvaða
stöðvum innkaupin verða gerð.
Aðalverkefni ráðstefnunnar er að
bera saman mismunandi kröfur um
lágmarkseftirlit á stöðvunum víða á
Norðurlöndum. Markmið þess er að
koma á ákveðnum staðli sem fram-
leiðendur og heilbrigðisyfirvöld geta
miðað starf sitt við. Þá er ætlunin að
gefinn verði út bæklingur til að auka
alla leiðbeiningu fyrir starfsmenn
eldisstöðvanna varðandi hreinlæti.
Það sem helst hefur rekið á eftir
dýralæknum og ráðamönnum til að
setja um þessi mál strangari kröfur,
en áður hafa tíðkast, er það mikla
tjón sem Norðmenn og aðrar þjóðir
hafa orðið fyrir í þessari grein land-
búnaðar. Hafa Norðmenn t.d. haft
á orði að ástand þessara mála hafi
verið í talsverðum ólestri allt frá
byrjun þar í landi.
Jón Helgason, landbúnaðarráð-
herra, fór varlega í að spá fyrir um
mikla aukningu í seiðaútflutningi.
Sagði hann að þrátt fyrir að Norð-
menn hefðu orðið fyrir þessum
miklu áföllum vegna sjúkdóma,
vildu þeir greinilega standa sem
mest á eigin fótum í seiðarækt.
Innflutningur á seiðum væri því
alltaf frekar takmarkaður og jafnan
í því lágmarki sem stöðvarnar kom-
ast af með. Vildi ráðherra því ekki
lýsa yfir óþarfa bjartsýni um aukinn
útflutning, þó að ljóst væri að ein-
hver aukning yrði. Á síðasta ári voru
um ein milljón gönguseiða flutt utan
til Noregs í fyrra.
Nýlega greindi Tíminn frá þvf að
Landssambandi fiskeldis- og hafbeit-
arstöðva hefði borist skeyti' frá
norska landbúnaðarráðuneytinu þar
sem innflutningur gönguseiða var
heimilaður í vor. Eru Norðmenn
óvenju snemma á ferðinni í ár með
þessa leyfisveitingu. Búist er við að
vegna tímabundins skorts á göngu-
seiðum þar í landi verði jafnvel um
fimmfalt meira magn að ræða í ár.
Talað er í hálfum hljóðum um fjórar
til fimm milljónir seiða í ár, ef
íslenskar stöðvar uppfylla ströng
skilyrði Norðmanna. KB
Margföld forstjóralaun í boöi fyrir stund sem varið ertil verðsamanburðar:
Myndatakan fjórfalt
dýrari en fermingin
Fyrir fermingarmyndatökuna
þurfa foreldrar fermingarbarnanna
nú flestir hverjir að snara út meira
en vikulaunum, samkvæmt niður-1
stöðum verðkönnunar Verðlags-
stofnunar hjá um tveim tugum
ljósmyndastofa á höfuðborgar-
svæðinu. Fyrir fermingarmyndir af
börnum sfnum gætu foreldrar
þeirra þurft að snara út urn eða yfir
40 milljónum króna þetta vorið.
Lappa og tvær stækkaðar myndir
er óvíða að fá undir 10.000 kr. og
allt upp í 13.000 krónur. Sam-
kvæmt þessu taka ljósmyndarar
því flestir hverjir fjórfalt hærra
gjald fyrir fermingarmyndatökuna
heldur en prestarnir (3.300 kr.)
fyrir margra mánaða fermingar-
undirbúning og ferminguna sjálfa.
Nokkrar undantekningar finnast
þó frá þessu háa verði - jafnvel allt
niður í 5.200 kr. hjá Ljósmynda-
stofu Kristjáns í Hafnarfirði, enda
mun síminn tæpast hafa þagnað
hjá honum síðan sagt var frá niður-
stöðum verðkönnunarinnar í sjón-
varpsfréttum. Petta sýnir sömu-
leiðis hvað gífurlegur verðmunur
getur verið á þessari þjónustu eins
og margri annarri.
Út úr verðkönnuninni má sjá að
verðsamanburður milli Ijósmynda-
stofa verður þó ekki afgeiddur
með þeirri einföldu spurningu:
rmmgarmynda- Uka. lappar innrtaldrr Aukagiald vegna myndaloku a lermingardaginn Staekkun mynd 13-18 Stckkun myrtd 20 - 25 Polaroid mynda- laka i vegabrel
Barna- og fjólskylduijosmyndir Austurstræti 6, R. 7000’ 0 1485 2070 700
Hraftmyndir Hverfisgotu 59, R. 1100 1600 750
Ljosmyndarinn Johannes Long Þarabakka 3, R. 7450 0 13903 1960} 800
Ljosmyndast. Gunnar Ingimarss. Stigahhð 45. R. 6800 900 1900 2500 850
Ljosm.st. Jons K. Sæmundss. Tjarnarg. 10b. R. 4000 0 1500 2000
Ljosmyndastofa Kopavogs Hamraborg 11. Kop. 130003 0 1680 2600
Ljosmyndast. Kristjans Skerseyrarvegi 7, Hafnarf. 5200’ 0 1360 1720 750
Ljosmyndastofa Reykjavikur Hverfisgótu 105, R. 6800 900 1920 2580 800
Ljosmyndastofa Þoris Rauftararstig 16, R. Ljosmyndastofan Amator Laugavegi 82. R. 6600 1200 1870 2400 800
Ljosmyndastofan Loftur Ingolfsstræti 6, R 5100 900 1600 2200 800
Minutumyndir Hafnarstræti 20, R. 700
Mynd Trönuhrauni 8. Hafnarfirði 110003 0 1700 2600 800
Nyja myndastofan Laugavegi 18. R. 6480 470 1750 2190 750
Nærmynd Laugavegi 178. R. 6500 1000 1650 2150 800
Passamyndir Hlemmi, R. 800
Skyndimyndir Templarasundi 3. R. 700
Studio Guðmundar Einholti 2, R. 5900 0 T500 1920 650
Svipmyndir Hverfisgotu 18, R. 8000 1000 1650 2200 900
Inmfalið i veröi eru tvær stækkamr 13X18 Sertilboð sem gildir lil mailoka 1 Inmfalið i verði eru Ivær stækkamr 18x24
Hvað kostar fermingarmynda-
taka? Á sumum stofum eru tvær
stækkanir innifaldar í því gjaldi
(frá 5.200 og upp í 13.000 kr.) en
hjá flestum er þá aðeins átt við
lappana og síðan er sérstök
greiðsla fyrir hverja stækkaða
mynd - t.d. frá 1.720 kr. og upp í
2.600 kr. fyrir eina 20x25 mynd.
Um helmingur ljósmyndaranna
tekur auk þess frá 470 og upp í
1.200 kr. aukalega fyrir myndatöku
á sjálfan fermingardaginn en hinn
helmingurinn ekki. Verðmunur á
löppunum einum er allt frá 4.000
og upp í 9.000 kr. sé um mynda-
töku á fermingardaginn að ræða.
Má af þessu ráða að fólki bjóðast
jafnvel margföld forstjóralaun fyrir
þá stund sem það verði til verðsam-
anburðar í stað þess láta bara
tilviljunina ráða við pöntun á
myndatöku. - HEI