Tíminn - 19.03.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 19. mars 1988
ra Sumarstörf
^ 1988
Skráning er hafin í sumarstörf hjá Kópavogskaup-
staö fyrir sumarið 1988. Um er að ræða neðangreind
störf.
1. Verkamenn í almenn garðyrkjustörf, malbikunar-
- vinnu, gangstéttargerð og almenna jarðvinnu og
viðhaldsstörf.
2. Afleysingamennávinnuvélar(meðstarfsréttindi).
3. Flokksstjóra við garðyrkjustörf og gangstéttar-
gerð.
4. Aðstoðarmenn og leiðbeinendur á íþróttavelli,
leikvelli, skólagarða, starfsvelli og í siglingaklúbb.
5. Flokksstjóra hjá Vinnuskóla Kópavogs.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá atvinnumála-
fulltrúa Kópavogs, Digranesvegi 12 sími 45700.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir 15. apríl
1988.
Gatnadeild, Garðyrkjudeild
íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs
Verzlunar-
mannafélag
Reykjavíkur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn í samkomusal Holiday Inn hótelsins
mánudaginn 28. mars og hefst kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Námsstyrkur
Menningar- og minningarsjóður kvenna hefur
ákveðið að veita námsstyrk, einn eða fleiri fyrir
námsárið 1988-89
Umsóknum sé skilað fyrir 15. maí n.k. á skrifstofu
sjóðsins að Hallveigarstöðum, Túngötu 14,3. hæð
sími 18156 á eyðublöðum sem þar fást. Skrifstofa
sjóðsins eropin mánudaga-fimmtudagakl. 13-16
og fást þar nánari upplýsingar.
Sjóðsstjórn.
TVÖFALT s/f
s.91-46672
Sveitarfélög - Einstaklingar
TVÖFÖLD hús. Öll hús.
Tilbúið efni í gámi til yðar í tiltekinni viku.
Verðhugmyndir: 2ja-5 herbergja hús frá 600-700
þús. - 1200 -1300 þús. Bílgeym. að auki fyrir
200-300 þús. kr.
TVÖFALT s/f - s. 91-46672
Dagvist barna
Austurborg
Dagheimilið Austurborg óskar eftir uppeldis-
menntuðum starfsmanni í stuðning sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 38545.
HH Dagvist barna
'I Múlaborg
Vegna skipulagsbreytinga höfum við lausa stöðu
fyrir einn starfsmann við uppeldisstörf.
Upplýsingar gefa forstöðumenn í síma 685154
næstu daga.
Þrír liðsmenn írska lýðveldishers ins voru felldir á Gíbraltar í skot árás sérsveita breska hersins fyrir skemmstu.
Nú hafa komið upp efasemdarraddir um réttmæti þeirrar aðgerðar.
Ekkert lát
á blóðbaöinu
á Norður-írlandi:
IRAR VAN
TREYSTA BRET'
UNIÆ MEIR
Bretar og írar hafa eldað saman grátt silfur um langt
skeið þar sem Bretar halda verndarhendi yfir mótmælenda
trúarmönnum í Norður-írlandi. Stjórnmálamenn hafa
stundum gert tilraun til að brúa bilið milli valdhafanna í
London og Dublin og fyrir tveim og hálfu ári náðist
samkomulag milli þeirra sem átti að slaka á spennunni í
Norður-írlandi. Sú bjartsýni sem þá vaknaði um bætta
sambúð kaþólskra og mótmælenda í Norður- írlandi hefur
orðið fyrir ýmsum áföllum að undanförnu og nú ríkir
tortryggni milli stríðandi fylkinga sem fyrr.
Einn ásteytingarsteinninn er at-
burður sá sem gerðist á Gíbraltar
sunnudaginn 6. mars, þegar sér-
sveitir breska hersins skutu til bana
þrjá félaga frska lýðveldishersins,
en þá þótti ýmsum sem of harka-
lega væri gengið til verks gagnvart
vopnlausu fólki.
Enda fór útför þremenninganna
í Belfast miðvikudaginn 16. mars
ekki friðsamlega fram. Um 10.000
manns fylgdu hinum látnu til
grafar, en þá varpaði öfgafullur
mótmælandi handsprengjum inn í
hópinn í kirkjugarðinum og hóf
síðan skammbyssuskothríð, sem
endaði með því að a.m.k. 3 lágu í
valnum og 23 særðust, sumir alvar-
lega.
Bjóða lögreglumönnum
„farmiða til Gíbraltar“
í aðalstöðvarnar í Dublin komu
mörg hundruð manns til að rita
nafn sitt á samúðarlista. Á mörgum
stöðum í írska lýðveldinu skutu
aðvörunarsveitir upp kollinum. Á
Norður-írlandi, í breska héraðinu
Ulster, drógu kaþólikkar svarta
fána að hún. Iðulega snerust sorg-
arathafnir í ofbeldissamkundur og
má t.d. nefna að æstur múgur
kveikti í strætisvögnum f Belfast,
unglingar köstuðu Molotov-
sprengjum að lögreglustöðvum og
buðu lögreglumönnum í hæðnistón
„farmiða til Gíbraltar".
{ ensku nýlendunni Gíbraltar á
suðurodda Spánar höfðu öryggis-
sveitir lagt að velli 3 liðsmenn
IRA, írska lýðveldishersins, og
komið írum í báðum hlutum ír-
lands í uppnám með harkalegu
framferði sínu. Baráttusveit írska
lýðveldishersins reyndist nefnilega
vera óvopnuð og sjónarvottar
sögðu að það væri líkast því að
írarnir þrír, 2 karlar og 1 kona,
hefðu verið tekin af lífi án dóms og
laga, svo markvisst hefðu öryggis-
sveitirnar beint skotum sínum.
Lík píslarvottanna
máttu ekki hafa viðkomu
á ensku landi
Drápið á hermdarsveitar-
mönnunum vakti þess vegna meiri
athygli en árásin sem var ráðgerð
en fór út um þúfur hefði gert. írskir
þjóðernissinnar gátu þannig gert
sér mat úr heimflutningi líkanna
þriggja og komið af stað pólitískum
mótmælum. í stað þess að flytja
líkkisturnar með áætlunarflugi á
leiðinni Gíbraltar-London-
Belfast, en þær eru tíðar, var beðið
eftir beinu flugi á vegum írska
flugfélagsins Aer Lingus frá Ma-
laga til Dublin í þeim tilgangi að
geta myndað mikla fjöldagöngu á
leiðinni yfir landamærin til Belfast.
Píslarvottarnir áttu ekki að þurfa
að þola það að þurfa að hafa
viðkomu á ensku landi.
írski forsætisráðherrann Charles
Haughey sagði að ríkisstjórn sín
gæti ekki tekið því þegjandi að
óvopnaðir borgarar væru felldir
vísvitandi með byssuskotum.
„Þannig fara hryðjuverkamenn og
glæpamenn að,“ sagði hann. Og
þingmenn í írska þinginu lögðu
Atvinnulíf í dreifbýli
Gildi þess fyrir þjóðfélagið
Jón Helgason landbúnaðarráðherra
boðar til opins stjórnmálafundar um
atvinnulíf í dreifbýli og gildi þess fyrir
(Djóðfélagið í Hótel Borgarnesi
fimmtudaginn 24. mars kl. 21.00.
Alexander Stefánsson alþingismað-
ur kemur á fundinn.
Fjölmennið og takið þátt í umræðum
um brýnasta hagsmunamál dreifbýl-
isins.
Landbúnaðarráðherra