Tíminn - 19.03.1988, Side 13
12 Tíminni
Laugardagur 19. mars 1988
Laugardagur 19. mars 1988
Tíminn 13
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan um helgina:
Nær Liverpool
að slá metið?
- Keppa við Everton á Goodison Park á rhorgun
Liverpool á aðeins eftir eina
hindrun til að slá met Leeds í ensku
1. deildinni, að leika 30 leiki í röð án
taps. Hindrunin er þó ekki af minna
taginu, það eru sjálfir erkiféndurnir
Everton sem verða mótherjarnir á
morgun og það á Goodison Park.
Liverpool jafnaði met Leeds síð-
astliðið miðvikudagskvöld með því
að gera 1-1 jafntefli við Derby.
Metið setti Leeds á árunum 1973-74
þegar þeir léku 29 leiki án taps.
Everton er eina liðið sem náð
hefur að sigra Liverpool á þessu
keppnistímabili. Það var í deildabik-
arkeppninni en 36 sinnum hefur
Liverpool lokið leik án taps. Þrítug-
asti deildarleikurinn í vetur, á
Goodison Park, verður að sjálfsögðu
stórleikur helgarinnar í Englandi og
hefði vart þurft mettilraun til, það er
alltaf stórviðburður þegar Liver-
poolliðin tvö mætast. Reyndar væri
nær lagi að kalla þetta stórleik
keppnistímabilsins. Leikmenn
Everton segjast staðráðnir í að binda
enda á sigurgöngu nágrannanna.
„Við höfum keppt við þá þrisvar í
vetur, unnið þá einu sinni og tvisvar
tapað gegn gangi leiksins," sagði
Gary Stevens varnarmaður Everton
í samtali við fréttamann Reuters í
gær. “Pað mætti kalla þetta bikarúr-
slitaleik ef menn vilja. Ef við ætlum
að enda í 2. sæti þá verðum við að
vinna Liverpool. Þeir hafa öllu að
tapa í þetta skiptið. Styrkur þeirra
liggur í vörninni og ég held að eitt
mark ráði úrslitum á sunnudaginn."
Liverpool hefur 15 stiga forskot á
toppi 1. deildarinnar en baráttan um
2. sætið er hörð. Everton stefnir eins
og Stevens sagði að 2. sætinu en
Manchester United og Nottingham
Forest sem einmitt mætast í dag á
City Ground hafa sama takmark.
„Svo virðist sem Liverpool hafi
tryggt sér titilinn en það er mikilvægt
fyrir okkur að ná öðru sætinu fari
svo að enskum liðum verði aftur
leyft að taka þátt í Evrópukeppn-
inni,“ sagði Bryan Robson fyrirliði
Man.Utd og bætti við „Það kemur
stundum fyrir að menn halda að þeir
geti slakað á í deildinni þegar þeir
nálgast leik á Wembley, ég er að
vona að Forest geri það“.
- HÁ/Reuter.
Valur Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga sem nú eru orðnir deildarmeistarar einn ganginn enn,
skoraði 21 stig á móti Grindvíkingum í gærkvöldi.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Deildarmeistara-
titillinn fór aftur
til Njarðvíkinga
Frá Margréti Sanders fréttaritara Tímans í
Njarðvík:
UMFN sigraði Grindavík 101-64 í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Njarðvík í gærkvöldi og eru þeir þá
orðnir deildarmeistarar þótt hin liðin
eigi einum eða fleiri leikjum ólokið.
Njarðvíkingar sitja hjá í síðustu
umferð íslandsmótsins.
Staðan í hálfleik í leiknum í gær-
kvöldi var 58-31.
Jafnræði var með liðunum í byrjun
en síðan náðu Njarðvíkingar forystu
og jukuhanajafnt ogþétt. Leikurinn
var grófur og mikil barátta enda
voru menn komnir í villuvandræði í
fyrri hálfleik. Valur Ingimundarson
var kominn með fjórar villur strax
um miðjan hálfleikinn og Hjálmar
Hallgrímsson Grindvíkingur sömu-
leiðis nokkrum mínútum síðar.
Njarðvíkingar notuðu varaliðið
mikið og stóð það sig mjög vel.
Ungu strákarnir, Friðrik Ragnars-
son og nafni hans Rúnarsson stóðu
vel fyrir sínu; efnilegir strákar. Teit-
ur Örlygsson var bestur Njarðvík-
inga og Hreiðar Hreiðarsson átti
einnig góðan leik.
Grindvíkingar voru óvenju slakir.
Hjálmar Hallgrímsson stóð sig þó
ágætlega í síðari hálfleik.
Helstu tölur: 2-0, 4-5, 17-11, 26-
20, 33-20, 42-33, 49-25, 58-31 -
64-33, 67-39, 73-42, 79-46, 82-52,
91-56, 93-62, 101-64.
Stigin, UMFN: Teitur Örlygsson
25, Valur Ingimundarson 21, Hreið-
ar Hreiðarsson 20, Árni Lárusson
14, Friðrik Ragnarsson 8, Sturla
Örlygsson 4, Jóhann Sigurðsson 3,
ísak Tómasson 2, Ellert Magnússon
2, Friðrik Rúnarsson 2. UMFG:
Hjálmar Hallgrímsson 15, Jón Páll
Haraldsson 14, Guðmundur Braga-
son 12, Eyjólfur Guðlaugsson 5,
Rúnar Árnason 5, Sveinbjörn Sig-
urðsson 4, Guðlaugur Jónsson 4,
Ólafur Þór Jóhannsson 2, Marel
Guðlaugsson 2, Steinþór Helgason
1.
Dómarar: Ómar Scheving og
Kristinn Albertsson.
íþróttaviðburðir
helgarinnar
Kórfuknattieikur
Úrslit um þessa helgi ráða miklu um framhaldið því
Grindavík, Haukar, KR og Valur herjast um tvö laus
sæti í úrslitakeppni úrvalsdeildarínnar og ÍR-ingar
eiga reyndar veika von.
Urvalxleild:
ÍR-Valur.........
KR-Haukar .......
1. deild kvenna:
KR-lR............
Haukar-ÍBK.......
1. deildkaria:
UÍA-HSK .........
.. SeljaskóU Uu. kl. 14.00
. HagaskóU sun. ki. 20.00
. HagaskóU sun. kl. 14.00
Strandgötu sun. kl. 20.00
Egíisstööum iau. kl. 14.00
Blak
Úrslit gætu ráðist í báðum deildunum um helgina,
vinni Þróttur ÍS f karlaflokki og Víkingur UBK í
kvennaflokki.
Úrslitakeppni karla:
ÍS-Þróttur ........................
HK-KA .............................
Urslitakeppni kvema:
Þróttur-IS ........................
UBK-Vikingur.......................
Hagaskóla lau. kl. 14.00
Digranesi sun.kl. 14.00
Hagaskóla iau. kl. 1S. 16
Digranesi sun. kl. 15.30
Fimleikar
ísiandsmót í Laugardalshöll, laugardag kl. 15.0(1-
18.30 og sunnudag kl. 14.00-16.40.
jþróttirfatlaðra
Islandsmót í sundi, Sundhöll
Reykjavíkur laugardag kl. 16.00. Allir bestu sund-
mcnn úr röðum fatlaðra verða meðal keppenda og
hafa nokkrir af keppendum sett sér það takmark að
ná lágmarki fyrir Olympíuleika fatlaðra sem haldnir
verða í Seoul í október.
Skíði
Bláfjallagangan laugardag kl. 13.00. Skráning frá kl.
11.00 við gamla Borgarskálann. Allir þátttakendur fá
viðurkenningu. Veitingar að göngu lokinni.
Meistaramót UÍA, ulpagreinar, Oddsskarð laugardag
og sunnudag.
Glima
Grunnskólamót í íþróttahúsi Kennaraháskólans laug-
ardag kl. 13.00.
Frjálsaríþróttir
Breiðholtshlaup ÍR laugardag kl. 14.00 við sundluug-
ina i Breiðholti. Karlar 17 km, konur, drengir og
byrjendur 8,5 km.
Veggtennis
Stjömu-Ektelon-inótið í Raquetball. Veggsport
sunnudag Id. 13.00.
Borðtennis
Punktumót KR, allir flokkar, KR-húsi sunnudag kl.
13.00.
Handknattieikur
Meistaraflokkarnir eiga frí en leikið vcrður til úrslita
í 2. flokki karla og kvenna, 4. flokki karla og kvenna
og 6. flokki karla.
Hver er munurinn áþessum myndum?
Verðmunurinn
í11. tölublaði Verðkönnunar
VERÐLAGSSTOFNUNAR sem gefin var út
18. mars, kemur fram ótrúlegur verðmunur á
f ermingarmyndatökum.
Á ljósmyndastofu Jóns K. Sæmundssonar
kostar myndatakan 4000 kr., og er ekkert
aukagjald þó hún fari fram á fermingardegi. Hjá
Svipmyndum kostar fermingarmyndatakan 8000
kr., og aukagjald tekið ef hún fer fram á
fermingardegi, kr. 1000. Hér er verðmunurinn
4000 kr. eða 100% - Það munar um minna.
VERÐLAGSSTOFNUN kannaði verðlagningu
hjá ljósmyndastofum á höfuðborgarsvæðinu.
Könnunin náði til fermingarmynda, stækkana og
skilríkjamynda. Hjá Ljósmyndastofu Kópavogs
kostar fermingarmyndatakan enn meira en
áðurnefnt dæmi sýnir eða 13000 kr. og eru þá
innifaldar tvær stækkanir (18x24 cm). Þetta sýnir
okkur að vissara er að hafa augun opin þegar fólk
ber saman verð hjá ljósmyndastofum.
Það er augljóst að það borgar sig að gera
verðsamanburð á milli ljósmyndastofa og
sérstaklega nú þegar fermingarnar eru skammt
undan.
VERUM Á VERÐI
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Milljónir á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111
Dregið í Evrópukeppninni:
PSVgegnReal
Dregið var í undanúrslit á
Evrópumótunum i knattspyrnu í
gær. Tvö af allra sterkustu liðum í
álfunni um þessar mundir, PSV
Eindhovcn frá Hollandi og Real
Madrid frá Spáni drógust saman í
Evrópukeppni meistaraliða.
Evrópukeppni meistaraliða:
Real Madrid (Spáni)-PSV (Holl-
andi)
Steaua (Rúmeníu)-Benfica (Por-
túgal)
Evrópukeppni bikarhafa:
Mechelcn (Belgíu)-Atalanta (ítal-
íu)
Marscille (Frakkl.)-Ajax (Holl-
andi)
Evrópukeppni félagsliða:
Club Brugge (Belgíu)-Espanol
(Spáni)
Leverkusen (V-Þ)-Werder Brem-
en (V-Þ)
Búasl má við að PSV veiti Real
harðari mótspyrnu en þeir hafa
mætt í Evrópukcppninni hingað
til. PSV hefur gert 95 mörk í 26
lcikjum á kcppnistímabilinu scm
cr incsta markaskorun í Evrópu en
reynsluleysi liðsins»Evrópukeppn-
inni gæti þó háð þeim.HÁ/Reuter