Tíminn - 19.03.1988, Page 14
14 Tíminn.
Laugardagur 19. mars 1988
FRETTAYFIRLIT
NIKÓSÍA - íranar réðust að
bremur skipum á Persaflóa,
Irakar skutu fjöldamörqum
eldflauqum á Teheran og íran-
ar sögðust hafa náð miklum
árangri í bardöaum í norður-
hluta írak. íranar gerðu
sprengiárásir á írakskar borgir
með flugvélum, stórskotaliði
og eldflaugum. írakar svöruðu
með loftárásum á íranskár
borgir. Stjórnvöld í Bagdad
sögðu að írakski herinn hafi
gert viðamiklar eldflaugaárásir
á Teheran. Þá sögðust írakar
hafa gert árás á tvö skip á
Persaflóa.
DUBA! - Franskt herskip og
ómanskt varðskip hröktu á
brott íranska fallbyssubáta
sem hugðust gera árásir á
flutningaskip á Persaflóa.
GAZA - Israelskir hermenn
skutu Palestínumann til bana,
og særðu að minnsta kosti.
tuttugu og einn í óeirðum sem
brutust út eftirföstudagsbæna-i
gjörð múslíma á Gazasvæð-
inu, að sögn starfsmanns
Sameinuðu þjóðanna
TEL AVIV - Israelskt stór-
skotalið hóf skothríð að skæru-
liðum í suðurhluta Líbanon rétt
norðan við það svæði sem
ísraelsmenn hafa lýst sem ör-
yggisbelti. Skæruliðarnirdrógu
sig f hlévegnaskothríðarinnar.
§UBROVNIK,JÚGÓ-
LAVIU - Leiðtogi Sovét-
ríkjanna Mikhael Gorbatsjof
lauk fimm daga heimsókn sinni
til Júgóslavíu með því að lýsa
yfir að Sovétmenn hygðust
ekki hafa afskipti af því hvernig
samherjar þeirra útfæra
kommúnismann og sagði að
framtíð sósíalismans væri
björt.
MOSKVA - Flóttamenn frá
Sumgaitborg þar sem kyn-
þáttaátök áttu sér stað fyrir
nokkru streyma nú til Yerevan
höfuðborgar Armeníu. Að
sögn sendifulltrúa í Yerevan
kemur fólkið til borgarinnar
með flugj, lestum og á eigin
bílum. Útvarpið í Yerevan
skýrði frá því að nær 1660
flóttamenn af armensku þjóð-
erni hafi komið til borgarinnar
frá því hópar Azerbædjana
eltu uppi Armena og drápu 32
þeirra i óeirðum í Sumgait 28.
febrúar s.l.
BONN - Háttsettur austur-
þýskur embættismaður sem
hefur vitneskju um fjölda njósn-
ara Sovétmanna oq annarra
austantjaldsríkja hefur flúið til
Vesturlanda.
KOLOMBÓ - Skæruliðar
aðkilnaðarsinnaðra tamíla
réðst á Jþorp sinalesa á aust-
urhluta Sri Lanka og drápu 15
manns þar af tvö börn og sex
konur.
ÚTLÖND
ísraelar vilja hafa hönd í bagga meðfréttumfrá hernumdu svæðunum:
ísraelsher
ritskoðaði
Reutersfrétt
Iraelsher er nú farinn að ritskoða
fréttasendingar Reuters fréttastof-
unnar og í gær kom fréttaskeyti þar
sem herinn hafði numið brott hluta
fréttarinnar.
Hin ritskoðaða frétt fjallaði um
það að ísraelsher hafi handtekið
fjölda Palestínumanna vegna gruns
um að þeir væru að skipuleggja
ofbeldisherferð gegn ísraelsmönn-
um sem hefjast ætti 30. mars, en
þann dag árið 1976 drápu ísraelskir
hermenn sex ísraelska araba. Þá
hafa ísraelar lokað fyrir símasam-
band hernumdu svæðanna til út-
landa, takmarkað ferðir á milli
þessara svæða, stöðvað eldsneytis-
flutninga þangað og sett á út-
ísraelsher lætur nú ekki nægja að
lumbra á fréttaljósmyndurum
heldur rítskoðar hann fréttaskeyti
Reuters og nemur óþægileg atriði
á brott.
göngubann yfir nætur á Gazasvæð-
inu.
Fjölmiðlar hafa farið mjög fyrir
brjóstið á ísraelsmönnum og hafa
þeir kennt fjölmiðlum um að
magna róstur á hernemdu svæðun-
um sem nú hafa staðið í fjórtán
vikur og kostað að minnsta kosti 97
Palestínumenn lífið. Undanfarnar
vikur hafa ferðir blaðamanna um
hernumdu svæðin verið mjög tak-
markaðar af ísraelsher. Þá hafa
ljósmyndarar orðið fyrir barsmíð-
um ísraelskra hermanna og borg-
ara á hernumdu svæðunum.
Spennan eykst á landamærum
Hondúras og Níkaragva. Hondúr-
aslier grandaði herþyrlu Níkara-
gvahers í loftárás í gær.
Nú gæti farið að styttast í það
að Tíminn verði boðinn sovésk-
um almenningi til sölu á Rauða
torginu, en hingað til hefur sala
vestrænna dagblaða verið bönn-
uð í Sovétríkjunum. Háttsettur
sovéskur embættismaður sagði á
fimmtudag að nú gæti farið að
styttast í það að vestræn dagblöð
og tímarit yrðu seld á blaðsölu-
stöðum í Moskvu og stærri borg-
um í Sovétríkjunum.
Fjodor Burlatskí formaður
sovésku mannréttindanefndar-
innar sem stofnuð var á síðasta
ári tilkynnti blaðamönnum þessi
tíðindi, en sagði að áður en
endanleg ákvörðun yrði tekin
þurfi menn í allra hæstu stöðum
að taka afstöðu til málsins. „Við
í nefndinni höfum lagt þetta til
við stjórnvöld, svo nú er bara að
bíða og sjá.“
Aðspuður um það hvort sala
vestrænna blaða yrði bundin við
forréttindahópa sagði Fjodor
„Nei, í held að blöðin verði seld
til allra sem áhuga hafa á að
kaupa þau.“
Aðeins sovésk blöð eru nú seld
á blaðsölustöðum í Sovétríkjun-
um, en þó kemur fyrir að blöðum
vestrænna kommúnistaflokka
eins og til dæmis hið fransk
L’Humanité bregði þar fyrir.
Hondúrasher gerir loftárás á herflokk Níkaragva eftir að
3200 bandarískir hermenn héldu til Hondúras:
Bandaríkin að
dragast inn í
hernaðarátök?
Þó Ronald Reagan hafi ein-
göngu sent 3200 bandaríska her-
menn til Hondúras til að undir-
strika stuðning sinn við stjórn
Hondúras og skæruliða kontra og
til að þrýsta á bandaríska þingið
svo það samþykki fjárframlög til
kontraskæruliða, þá gætu þessir
herflutningar orðið til þess að
Bandaríkjaher dragist beint inn í
hernaðarátök við stjómarher Ník-
aragva.
Daníel Ortega forseti Níkaragva
hótaði því í gær að ef Bandaríkja-
menn hygðust nota hersveitir sínar
til að verja búðir kontraskæruliða
í Hondúras myndi her Níkaragva
ekki víla fyrir sér að ráðast á
bandaríska hermenn og ganga frá
hersveitum þeirra.
Mikil spenna ríkir nú á landa-
mærum Níkaragva og Hondúras
eftir að hondúraskar herþotur
gerðu loftárás á hersveit Níkara-
gvamanna og eyðiiögðu meðal
annars herþyrlu Nfkaragvahers.
Níkaragvastjóm sakar Hondúras-
menn um að loftárásin hafi verð
gerð á herflokk sem staðsettur var
innan landamæra Níkaragva, en
Hondúrasstjóm kveður herflokk-
inn hafa haldið inn fyrir landamæri
Hondúras. -HM
Átök Eþíópíuhers og skæruliöa í Tígerhérði:
Skærulidar segja
mannfallid mikið
í stjórnarhernum
Skæruliðar í Erítreu og Tígerhér-
aði hafa átt í átökum við stjórnar-
her Eþíópíu í 27 ár.
Skæruliðar í Tíger í norðurhluta
Eþíópíu segjast hafa hrundið sókn
stjórnarhersins í Tígerhéraði.
Sögðust skæruliðarnir hafa eytt sex
herdeildum stjórnarhersins á síð-
astliðnum tveimur vikum og tekið
2000 stjórnarhermenn til fanga.
f yfirlýsingu skæruliðasamtak-
anna í Tíger segir að á mánudag
hafi þeir gersamlega upprætt tvær
herdeildir stjórnarinnar við bæinn
Ambo í norðvesturhluta Tíger.
Segja skæruliðarnir að alls hafi
6000 stjórnarhermenn verið
drepnir, teknir höndum eða særðir
í bardögum í héraðinu í þessum
mánuði. Sjálfir segjast skæruliðar
hafa orðið fyrir tiltölulega litlu
manntjóni, en vilja ekki gefa upp
tölur í því sambandi.
Að sögn talsmanna skærulið-
anna náðu þeir á sitt vald miklu
magni af hergögnum, þar á meðal
voru vopnuð ökutæki, sprengju-
vörpur og fallbyssur.
Her stjórnarinnar í Eþíópíu sem
nýtur stuðnings Sovétríkjanna hef-
ur ekkert tjáð sig um þessi átök.
Auk skæruliða í Tígerhéraði á
stjórnarherinn í átökum við frels-
issamtök Erítreu sem liggur norð-
austur af Tígerhéraði. Frelsissam-
tök Erítreu hafa átti í átökum við
mismunandi stjórnvöld í Eþíópíu í
27 ár.