Tíminn - 19.03.1988, Page 17
Laugardagur 19. mars 1988
Tíminn 17
Frá aðalfundi Félags sláturleyfishafa.
hrossa var nokkuð í sama horfi í
fyrra og árið á undan. Flutt var út
721 hross, á móti 773 árið 1986. í
fyrra var útflutningurinn að mestu
leyti með tveimur gripaflutninga-
skipum, einu að vori og öðru að
hausti. Talsverðir erfiðleikar reynd-
ust vera á því að fylla skipin, einkum
þó það síðara, og hefur Búvörudeild
því ákveðið að hætta þessum útflutn-
ingi hrossa á fæti, a.m.k. að sinni.
Af æðardúni flutti deildin út rúm
2000 kíló á síðasta ári, og var
verðmæti þess magns 37,5 miljónir
króna. Er þetta eitt mesta magn sem
deildin hefur selt af æðardúni á einu
ári. Salan gekk vel allt árið og var
verðlag stöðugt.
Að því er varðar selskinn þá tókst
Búvörudeild ekki að ná neinum
sölusamningi um þá vöru á árinu.
Eins og kunnugt er hefur verið
veruleg sölutregða á þessari afurð
síðustu árin vegna mótmælaaðgerða
andófshópa. Núna standa þó vonir
til að í kjölfar öflugs sölu- og kynn-
ingarstarfs Grænlendinga á síðustu
mánuðum mæti selskinn ekki sömu
andstöðu og verið hefur, og er
hugsanlegt að einhverjir sölumögu-
leikar skapist á næsta ári ef svo
heldur fram sem horfir.
Stjórn Félags sláturleyfishafa
skipa þeir Árni Jóhannsson kfstj. á
Blönduósi, formaður, Friðrik Guð-
mundsson kfstj. á Stöðvarfirði,
Gunnar Oddsson bóndi í Flata-
tungu, Hreiðar Karlsson kfstj. á
Húsavík og Sigurður Þórólfsson
bóndi í Innri-Fagradal. Varamenn
eru Þórólfur Gíslason kfstj. á Þórs-
höfn og Guðbjartur Gunnarsson
bóndi á Hjarðarfelli.
Ályktun
Svohljóðandi ályktun var afgreidd
frá fundinum um helstu áhersluatriði
er varða afkomu afurðastöðvanna:
„1. Ákvörðun kostnaðar við slátr-
un og sölumeðferð verði byggð á
framlögðum gögnum hverju sinni.
Verði ekki samkomulag í 5-manna
nefnd þá verði hægt að skjóta ágrein-
ingi til yfirnefndar. Verðjöfnunar-
sjóði kindakjöts verði gert fært að
sinna hlutverkum sínum.
2. Fjármagn verði útvegað til
endurskipulagningar sláturhúsa,
sem fari fram í náinni samvinnu við
sláturleyfishafa eða undir forystu
þeirra, sé slíkt mögulegt.
(Tímamyndir: Pjetur)
3. Sláturleyfishafar láti vinna að
endurskoðun einstakra liða búvöru-
laganna í samvinnu við aðra hags-
munaaðila.
4. Sláturleyfishafar fái beina aðild
að framkvæmdanefnd búvörusamn-
inga þegar málefni sem snerta þá eru
rædd.
5. Útflutningsbætur verði ávallt
greiddar á gjalddaga.
6. Verðhækkanir til framleiðenda
verði fjármagnaðar með tilsvarandi
hækkun afurðalána.
7. Birgðir kindakjöts þann 1. sept.
n.k. verði ekki meiri en 1250 tonn.
Gerðar verði nauðsynlegar ráðstaf-
anir í sölumálum til að sá árangur
náist.
8. Fagnað er áformum ríkisstjórn-
arinnar um að endurgreiða framveg-
is vaxta- og geymslukostnað mánað-
arlega út á birgðir kindakjöts. Nauð-
synlegt er að núverandi skuld ríkis-
ins vegna fyrra fyrirkomulags greið-
ist fyrir lok þessa mánaðar.
9. Sláturleyfishafar leggja áherslu
á samstöðu og sameiginlega lausn
vandamála sinna og telja einarða
samstöðu um sölusamtök sín besta
tryggingu fyrir nauðsynlegum ár-
angri.“ -esig
266 mánaða ritstörf
Lokið er úthlutun starfslauna úr
Launasjóði rithöfunda fyrir árið
1988.
í lögum og reglugerð sjóðsins
segir að árstekjum hans skuli varið
til að greiða íslenskum rithöfundum
starfslaun samsvarandi byrjunar-
launum menntaskólakennara. Þessi
laun eru nú kr. 56.382 á mánuði.
Starfslaun eru veitt samkvæmt
umsóknum. Höfundur sem sækir
um og hlýtur starfslaun til þriggja
mánaða eða lengur skuldbindur sig
til að gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna.
Tveggja mánaða starfslaun má veita
vegna verka sem birst hafa á næsta
almanaksári á undan og þeim fylgir
ekki kvöð um að gegna ekki fast-
launuðu starfi.
Alls bárust stjórninni að þessu
sinni umsóknir frá 163 höfundum og
sóttu þeir um því sem næst 878
mánaðarlaun auk mánaðarlauna til
ótiltekins tíma frá 3 þeirra. Fjárveit-
ing til sjóðsins nam hins vegar 266
mánaðarlaunum, en það er 38 mán-
aðarlaunum færra en úthlutað var sl.
ár.
Starfslaun til sex mánaða hlutu að
þessu sinni 18 höfundar, fjögurra
mánaða laun hlutu 15 höfundar,
þriggja mánaða laun hlutu 24 höf-
undar og tveggja mánaða laun hlutu
13 höfundar. Alls hefur því verið
úthlutað starfslaunum til 70 rithöf-
unda.
Öllum umsóknum hefur verið
svarað og skrá um úthlutun verið
send menntamálaráðherra.
Frá stjórn Launasjóðs rithöfunda.
Úthlutun úr Launasjóði
rithöfunda 1988
6 mánaða starfslaun
hlutu 18 ríthöfundar:
Birgir Sigurðsson
Einar Bragi
Einar Már Guðmundsson
Einar Kárason
Fríða Á. Sigurðardóttir
Guðbergur Bergsson
Gyrðir Elíasson
ísak Harðarson
Pétur Gunnarsson
Sigurður A. Magnússon
Stefán Hörður Grímsson
Steinunn Sigurðardóttir
Svava Jakobsdóttir
Thor Vilhjálmsson
Vigdís Grímsdóttir
Þorgeir Þorgeirsson
Porsteinn frá Hamri
Þórarinn Eldjárn
4 mánaða starfslaun
hlutu 15 rithöfundar
Björn Th. Björnsson
Böðvar Guðmundsson
Guðmundur Steinsson
Jóhann Hjálmarsson
Kristján Jóhann Jónsson
Kristján Karlsson
Nína Björk Árnadóttir
Ólafur Gunnarsson
Ólafur Haukur Símonarson
Ómar Þ. Halldórsson
Sigfús Daðason
Sigurjón B. Sigurðs.(Sjón)
Sveinbjöm I. Baldvinsson
Þórunn Valdimarsdóttir
3 mánaða starfslaun
hlutu 24 rithöfundar
Auður Haralds
Ásta Berglind Gunnarsdóttir
S. Birgir Engilberts
Birgir Svan Símonarson
Einar Ólafsson
Erlingur E. Halldórsson
Geirlaugur Magnússon
Guðlaug Richter
Guðmundur Ólafsson
Ingibiörg Haraldsdóttir
Jón Óskar
Kristín Ómarsdóttir
Kristján Árnason
Kristján H. Kristjánsson
Margrét Lóa Jónsdóttir
Oddur Björnsson
Pjetur Hafstein Lárusson
Ragnheiður Sigurðard. (Ragna)
Rúnar Ármann Arthúrsson
Sigrún Eldjárn
Stefán Jónsson
Steinar Sigurjónsson
Sveinbjörn Þorkelsson
Valdís Óskarsdóttir
2 mánaða starfslaun
hlutu 13 rithöfundar:
Árni Ibsen
Gísli Ágúst Gunnlaugsson
Guðmundur Páll Ólafsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Játvarður Jökull Júlíusson
Jóhannes Óskarsson (Jóhamar)
Kjartan Ólafsson
Magnea J. Matthíasdóttir
Magnús Þór Jónsson
Njörður P. Njarðvík
Stefán Snævarr
Steinunn Jóhannesdóttir
Trausti Einarsson
VÉLAR&ÞJÓNUSTA HF. - Vélaborg
SÍMI: 83266-686655
VETO ámoksturstæki
í mörgum stærðum, á flestar
gerðir dráttarvéla.
Leitið tilboða.
Góð greiðslukjör.
BOGASKEMMUR
STÓRAR OG SMÁAR
Fyrir alls konar starfsemi.
Gott verð. Auðveld uppsetning.
Sterk stálgrind og veðurþolinn dúkur.
Leitið upplýsinga.