Tíminn - 19.03.1988, Blaðsíða 24
Sparisjóösvextir
og yfirdráttur
á téKKareiKningum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrír þig
■......111 —.. .. ...' ..
Okeypis þjónusta
Ef þú erl í vafa um
hvaða ávöxtunarleið
er hagstæðust sparifé
þínu, kynntu þér þá
kosti spariskírteina
ríkissjóðs
einhverja áhæltu með
sparifé mitt?
Ávöxtun sparifjár með spariskírtein-
um ríkissjóðs fylgir engin áhætta. Að
baki þeim stendur öll þjóðin og ríkis-
sjóður tryggir fulla endurgreiðslu á
gjalddaga. Slíkt öryggi býður enginn
annar en ríkissjóður.
innlent lánsfé og draga því úr erlendri
skuldasöfnun. Þetta gerir spariskírt-
eini ríkissjóðs að enn betri fjárfest-
ingu.
Hvernig óvaxta ég
sparifé mitt, sve það
beri háa vexfi umfram
verðtryggingu?
8,5% ársvöxtum umfram verðtrygg-
ingu. Ríkissjóður býður nú til sölu
þrjá flokka verðtryggðra spariskírt-
eina:
1« Söfnunarskírteini sem greiðast
eftir 2 ár með 8,5% ársvöxtum.
2. Söfnunarskírteini sem greiðast
eftir 3 ár með 8,5% ársvöxtum.
3. Hefðbundin spariskírteini með
7,2% ársvöxtum. Binditíminn
er 6 ár en lánstíminn allt að 10
ár. Að binditíma liðnum eru
skírteinin innleysanleg af þinni
hálfu og er ríkissjóði einnig
heimilt að segja þeim upp. Segi
hvorugur skírteinunum upp
bera þau áfram 7,2% ársvexti út
lánstímann, sem getur lengst
orðið 10 ár.
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
Flokkur Lánstiml Ávöxtun Gjalddagi
l.fl.D 2 ár 8,5% l.feb'90
1. fl. D 3 ár 8,5% l.feb ’9t
l.fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb ’94—'98
I
i
Með spariskírteinum ríkissjóðs getur
þú ávaxtað sparifé þitt með allt að
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðia-
banka íslands og hjá löggiltum verð-
bréfasölum, sem m. a. eru viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús
um land allt og aðrir verðbréfamiðlar-
ar. Einnig er hægt að panta skírteinin
með því að hringja í Seðlabankann í
síma 91-699863, greiða með C-gíró-
seðli og fá þau síðan send í ábyrgðar-
pósti.
Hvað meft tekju- og
eignaskatt?
Spariskírteini ríkissjóðs eru tekju- og
eignaskattsfrjáls eins og sparifé
bönkum. Að auki eru
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS
Spá Þjóðhagsstofnunar:
0,7% sam-
dráttur í afla-
verðmæti
Þjóðhagsstofnun hefur nú sent frá
sér yfirlit yfir afla og aflaverðmæti
áranna 1981-1987 og fylgir með spá
yfir þessa sömu liði fyrir þetta ár.
f spánni kemur fram að gert er ráð
fyrir að aflaverðmæti dragist saman
um 0,7% frá síðasta ári.
Þorskafli 1981 var 461.000 þúsund
lestir, 382.000 1982. 294.000 1983,
281.000 1984, 323.000 1985, 366.000
1986, 381.000 á síðasta ári og í ár er
gert ráð fyrir 350.000 lesta afla. Þá
er gert ráð fyrir 3.000 tonna aukn-
ingu í öðrum botnfiski, óbreyttum
síldarafla, eða 72.000 tonnum,
187.000 tonna aukningu af loðnu,
óbreyttum humarafla, 3.000
tonnum, 1.000 tonna aflaukningu
rækju, 1.000 tonna samdrátt í hörpu-
diskveiðum og annar afli verði
óbreyttur frá síðasta ári.
Samkvæmt þessari spá, verður
heildarafli landsmanna á þessu ári
1.761.000 tonn, sem er aukning um
159.000 tonn frá síðasta ári. Þrátt
fyrir aukinn afla reiknast Þjóðhags-
stofnun að aflaverðmætið minnki
um 0,7%, sem er fyrsti samdráttur í
aflaverðmæti síðan árið 1983.
Heildarafli landsmanna 1981 var
1.441.000 tonn, 788.000 tonn árið
1982, 839.000 tonn 1983, 1.536.000
tonn 1984, 1.680.000 tonn árið 1985
og 1.656.000 tonn árið 1986. -SÓL
Landhelgisgæslan:
Úlfur, úlfur
kallaði rella
Landhelgisgæslan nam neyðar-
sendingar lítillar flugvélar í gær,
en þær bárust frá sjálfvirku tæki
sem fer í gang, þegar eitthvað
bjátar á. “Það varð uppi fótur og
fit hérna,“ sagði stjórnstöðvar-
maður Landhelgisgæslu í gær.
Ákvarðað var að sendingamar
bærust frá Vestmannaeyjum, eða
skammt þaðan. Það stóð heima,
þegar að var gáð, því að neyðar-
sendir um borð í flugvél, sem var
stödd á flugvellinum í Heimaey,
hafði af einhverjum sökum farið
af stað. Engin hætta steðjaði þó
aðogsendirinn varlagfærður. þj
Fékkfjögurár
fyrir íkveikjur
Sakadómur Reykjavíkur hefur
dæmt Hörð Gunnarsson, 26 ára
gamlan, í fjögurra ára fangelsi fyrir
að hafa kveikt eld í íbúð að Garða-
stræti 13a og í gistihúsinu Brautar-
holti 22 aðfaranótt 7. september sl.
Kunningi hans svaf ölsvefni í íbúð-
inni við Garðastræti þegar Hörður
bar þar að eld. Hann hlaut alvarleg
brunasár.
Hörður var tekinn höndum þá
þegar og kemur gæsluvarðhaldsvist
frá 7. september til frádráttar
dómnum. Hann var enn fremur
dæmdur til að greiða Húsatrygging-
um Reykjavíkur bætur með vöxtum,
laun saksóknara í ríkissjóð og laun
skipaðs verjenda síns. þj