Tíminn - 26.03.1988, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Laugardagur 26. mars 1988
FRETTAYFIRLIT
^ / \
,.T vl'
GENF - Diego Cordovez
sáttasemjari Sameinuöu þjóö-
anna í málefnum Afganistan
berst fyrir því aö bjarga friðar-
viöræöum þeim sem fram fara
í Genf eftir að fulltrúum stór-
veldanna mistókst aö ná
samningafleti í friðarviðræðun-
um. Birgðaflutningar Sovét-
manna til stjórnarinnar í Kabúl
á meðan á brottflutningi
sovéska hersins stendur er
ásteytingarsteinninn í við-
ræðnum.
LONDON - Hlutabréf víðs
vegar um heim féllu í verði, en
verðfall í kauphöllinni í Tokyo
og London varð ekki eins mikið
og menn óttuðust.
PEKING - Kínverjar munu
hleypa af stokkunum áætlun
sem miðar að endurbótum í
efnahagsmálum, en munu að
líkindum þurfa að berjast við
verðbólgudrauginn á næst-
unni. Þessu lýsti Li Peng for-
sætisráðherra í opnunarræðu
kínverska þingsins. I víðfeðmri
ræöu Li boðaði forsætisráð-
herrann refsiaðgerðirgagnvart
þeim þjóðernissinnum í Tíbet
sem tóku þátt í andkínverskum
óeirðum þar í síðasta mánuði.
JÓHANNESARBORG-
Átök á milli kirkjuleiðtoga sem
fordæma aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda í Suður-Afríku og
stjórnarinnar mögnuðust í gær
þegar ráðstefna biskupa róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar sak-
aði lögreglu um ao hafa gert
húsleit á heimilum presta.
LERIDA, SPÁNI - Hraðlest
ók á skólabíl í Katalóníu í gær
með þeim afleiðingum að tólf
ung börn og þrír fullorðnir létu
lífið.
SJANGHÆ - Björgunar-
menn börðust við myrVur og
þoku er þeir björguðu jc. önsk-
um stúdentum úr rústum járn-
brautarlestar sem fór út af
sporunum í nánd viðSjanghæ.
28 létu lífið og 165 slösuðust.
BOMBAY - Arabískumæl-
andi byssumaöur skaut og
særði ítalskan flugstjóra og
varpaði tveimur handsprengj-
um að lögreglumönnum áflug-
vellinum f Bombay í gaer.
Sprengjurnar sprungu ekki. It-
alska sendiráðið i Bombay
sagði að greinilega hefði verið
um skipulagða hryðjuverka-
árás að ræða.
NIKOSÍA - íranar lýstu þvi
yfir í gær að hersveitir landsins
hefðu hrundið morgunárás ír-
aka í norðurhluta írak, en íran-
ar hafa náð á vald sitt land-
svæðum þar. Iranar sögðust
hafa skotið niðurfjórar (rakskar
orrustuþotur í bardögunum.
Fyrr um daginn skýrðu (rakar
frá því að írakskar orrustuþotur
hefðu gert árás á tvö skip út af
ströndum Irans og hétu því að
halda áfram eldflaugaárásum
á borgir og bæi í Iran.
RAMALLAH, VESTUR-
BAKKINN - Israelskir her-
menn skutu tvo Palestínu-
menn til bana í Ramallah í
cjær. Þá voru tveir óbreyttir
israelskir borgarar sakaðir um
að undirbúa vopnaðar árásir á
Palestínuaraba. I Amman lauk
fimm daga ráðstefnu ísl-
amskra ríkja með því að lýst
var yfir fullum stuðningi rikj-
anna við uppreisn Palestínu-
manna.
ÚTLÖND
1
Sovésk yfirvöld senda hermenn til Jere-
van til aö koma í veg fyrir mótmælafundi
Sýður upp úr í
Jerevan í dag?
Það gaeti farið svo að upp úr
sjóði í Jerevan höfuðborg Armen-
íu í dag, en sovésk yfirvöld hafa
sent hermenn til borgarinnar til að
framfylgja mótmælafundabanni
sem armensk yfirvöld settu á mið-
vikudag eftir að forsætisnefnd
Æðsta ráðs Sovétríkjanna úrkurð-
aði að Nagorno- Karabakh hérað
sem nútilheyrir Azerbaidjan, verði
ekki sameinað Armeníu. Var einn
af leiðtogum þeirra Armena sem
krefjast sameiningar handtekinn í
gær.
Miklar kröfugöngur . og mót-
mælafundir höfðu verið skipulagð-
ir í Jeravan í dag og var mótmæla-
fundabann armenskra yfirvalda
greinilega beint gegn þessum til-
teknu mótmælafundum, en sam-
kvæmt ákvörðun stjórnvalda er
leyfilegt að halda mótmælafundi
svo fremi sem um það sé sótt með
tíu daga fyrirvara. Svipaðar reglur
hafa einnig verið settar í Azerba-
idjan þar sem miklar kynþátta-
óeirðir brutust út milli Azerbaidj-
ana og Armena um síðustu mán-
aðamót með þeim afleiðingum að
32 Armenar létu lífið.
Hinir múslímsku Azerbaidjanar
og hinir kristnu Armenar hafa
marga hildi háð í gegnum tíðina.
Sovésk yfirvöld viðurkenndu í síð-
ustu viku að yfirvöld í Azerbaidjan
hafi vanrækt Nagorno-Karabakh
hérað sem aðallega er byggt Arm-
enum. Hafa sovésk stjórnvöld til-
kynnt að sérstakt átak verði gert í
uppbyggingu héraðsins og verði
400 milljónum rúblum varið sér-
staklega til þess á næstu sjö árum.
Þá hyggjast sovésk stjórnvöld ýta
undir útgáfu bóka á armensku í
héraðinu, auk þess sem stúdentum
þaðan verður gefinn kostur á að
sækja háskólanám til Armeníu.
Hvort þessar ákvarðanir sové-
skra yfirvalda verða til þess að
Armenar í Jerevan hætti við fyrir-
hugaða mótmælafundi í borginni í
dag er ekki gott að segja, en ef svo
verður ekki er hætta á að upp úr
sjóði í borginni.
Sovéskir hermenn eru nú á götum Jerevanborgar til að framfylgja
fundabanni armenskra yfirvalda, en í dag ætluðu Armenar að halda
fjölmenna mótmælafundi í borginni.
París:
300 ára
erótík á
uppboði
Æstir safnarar erótískra muna
fjölmenna að líkindum á uppboð
sem haldið er á erótískum munum í
París í dag. Munirnir eru allt að 300
ára gamlir og koma víða að úr
heiminum. Uppboðsgestir sem sam-
kvæmt reynslu fyrri ára eru flestir
karlmenn munu koma tii með að
bjóða í ætimyndir, indverskar
styttur, útskurð og gimsteinum
prýddar myndir sem allar eiga það
sameiginlegt að fjalla um hin víðu
svið kynferðislegra hugaróra.
Hátindur uppboðsins sem talið er
að standi í allan dag. verður þegar
olíumálverkið „Spunavélin" verður
boðið upp. Er olíumálverkið metið
á átta þúsund dollara og langverð-
mætasti hluturinn á uppboðinu, en
alls eru munirnir taidir vera um 20
þúsund dollara virði.
„Vandamálið er hvar á að geyma
þennan fjársjóð,“ sagði einn þeirra
uppboðsgesta sem skoðuðu upp-
boðsmunina í gær. „Alltjent ekki í
setustofunni.“
Umsjón
Hallur Magnússon
Spænsk réttvísi setur
Evrópumet:
Löggan
þefar uppi
300 kíló
kókaíns
Spænska lögreglan náði haldi á
300 kílóum af kókaíni í gær og er
það stærsti kókaínfarmur sem
íögregla í Evrópu hefur gert upp-
tækan. Níu manns voru hand-
teknir vegna þessa máls.
Kókaínið fannst í vöruskemmu
í Madríd þar sem það var falið í
gámum sem áttu að innihalda
stálbita. Lögreglan hafði haft
njósnir af gámunum er þeim var
landað í Barcelona í síðustu viku.
Lögreglan sagði að hinir hand-
teknu væru fimm Kólombíu-
menn, þrír Ekvadormenn og einn
Spánverji. Er hópurinn grunaður
um að eiga aðild að stórum
eiturlyfjahring sem dreifir kóka-
íni víðs vegar um Evrópu.
Bandaríkjamenn
styrkja neriög-
reglu í Panama
Bandaríkjamenn hafa sent 670
sérþjálfaða herlögreglumenn til
Panama frá 14. mars og er þeim
ætlað, að sögn Bandaríkjastjórnar,
að vernda eignir og starfsmenn
bandaríska hersins við Panama-
skurðinn ef upp úr sýður í Panama.
Herlögreglumönnunum sem eru
sérþjálfaðir í að berja niður óeirðir
mun ekki verða beitt til þess að
þvinga Noriega hershöfðingja úr
valdastól í Panama, ef marka má orð
Ronald Reagans forseta. „Það er
engin hætta á því að við grípum inn
í málin með afli okkar og og
vöövum," sagði Reagan í gær og
vildi með því árétta að Bandaríkja-
stjórn hygðist ekki beita herafla
sínum til að koma Noriega frá völd-
um þó stjórninni sé það kappsmál að
hershöfðinginn segi af sér þar sem
hann er eftirlýstur fyrir eiturlyfja-
smygl í Bandaríkjunum.
Nokkrir árekstrar hafa orðið á
milli hermanna í setuliði Banda-
ríkjamanna við Panamaskurðinn og
öryggissveitir Panamahers. Á
þriðjudag voru fjórir bandarískir
Sextíu og fimm ólöglegir innflytjendur frá Mexíkó björguðust við dyr dauðans:
Hefðu látist innan stundar
Sextíu og fimm ólöglegir innflytj-
endur, þar af konur og börn, voru
nær dauða en lífi í tveimur innsigluð-
um gámum í suðurhluta Texas í
vikunni. Fólkið hafði verið læst inni
í gámunum af atvinnusmyglurum og
átti að flytja það frá landamærabæn-
um Brownsville norðar í Bandarík-
in.
Landamæralögregla sagði að fólk-
ið sem læst hafði verið inni í gámun-
um í tíu tíma hefði verið mjög
aðframkomið og ekki átt eftir súr-
efnisbirgðir nema til einnar klukku-
stundar til viðbótar.
Á síðasta ári létust sautján ólög-
legir innflytjendur frá Mexíkó þegar
þeim var smyglað inn í Bandaríkin á
þennan hátt.
hermenn teknir höndum og látnir
dúsa átta klukkustundir í fangelsi. Á
miðvikudag var bandarískur her-
flutningabíll stöðvaður af panamísk-
um öryggissveitum og tólf banda-
rískir hermenn hnepptir í varðhald í
tvær klukkustundir.
Spennan eykst með degi hverjum
í Panama enda lama mótmælaverk-
föll atvinnulíf Panamaborgar. Á
fimmtudag áttu opinberir
starfsmenn, þar með taldir 16 þús1
und hermenn landsins að fá laun sín
greidd, en þar sem Bandaríkjamenn
hafa fryst innistæður Panama í
Bandaríkjunum og hætt mánaðar-
legum greiðslum sínum til landsins
fyrir afnot af Panamaskurði, þá
getur panamíska ríkið ekki greitt
þessi laun, en gjaldmiðill Panama er
bandarískur dollar.
Yfirvöld í Panama hafa beðið
bankastjóra í Panama, sem lokuðu
bönkum sínum þegar Bandaríkja-
menn frystu fjármagn Panama í
bandarískum bönkum, um nítján
milljón dollara lán til að greiða
opinberum starfsmönnum laun sín.
Ekki er ljóst hvort bankastjórarnir
verða við þeirri bón.