Tíminn - 26.03.1988, Side 23
Laugardagur 26. mars 1988
Tíminn 23
'"''v
wmmi
T;o'.£-y
- ■;•■
g§g§|
mémm
Enn elskar Stallone
I jVV\ leið á löngu þar til Sylvester Stallone komst á fast
eftir skilnaðinn við Gittu hina fullkomnu. Raunar hefur
hann verið orðaður við hinar og þessar glæstar ljóskur
undanfarið, en eitthvað hafa þau sambönd reynst laus í
reipunum, enda hefur Stallone-mamma ekki samþykkt
nýja tengdadóttur.
Nú er vöðvahetjan hins vegar komin með enn eina
ljóshærða, sem meira að segja mamma er ánægð með.
Gamla konan er greinilega mesta snobb og stúlkan er
engin önnur en Cornelia Qúest, guðdóttir hertogahjón-
anna af Windsor og vellauðugur erfingi bandarískrar
stálsamsteypu.
Cornelia kom til Hollywood til að nema alvarlega
leiklist og lenti í skóla með Toni, systur Stallones. Þar með
leið ekki á löngu uns fallegi erfinginn hitti hetjuna í eigin
persónu.
- I samanburði við Corneliu eru allar aðrar konur, sem
ég hef þekkt, eins og götudrósir, segir Sylvester ánægður.
- Hún er klassapía og ég elska hana.
unnar
Allir þekkja Doris Day og
nú standa vonir til að þau
kynni verði endurnýjuð, í Ætt-
arveldinu. Henni hafa verið
boðnar einar fimm milljónir
fyrir hvern þátt, í von um að
áhorfendum fjölgi á ný, en
þeim hefur fækkað stórlega
undanfarið, svo eitthvað verð-
ur að gera. Doris er nú 63 ára
og fannst erfitt að segja nei við
svo góðu boði.
Framleiðendur Ættarveldis-
ins ala þá von í brjósti, að þeim
takist að fá Doris til að varpa
af sér margra ára helgislepju
og leika ósvífna og illviljaða
samkvæmisgellu. Takmarkið
er að sameina gamlar vinsældir
Dorisar og forvitni um hina
nýju Doris, þannig að áhorf-
endur fái nýjan áhuga.
Doris sjálf hefur ekki sagt
orð um tilboðið, en kvað hafa
mikinn áhuga. Tilhugsunin um
endurkomu í sjónvarpi er ekki
ný fyrir henni og hún hefur
alltaf fylgst með af áhuga með
Ættarveldinu.
lífið leitt
ún Drew Barrymore var orðin leikkona barn að aldri, enda
af frægri leikaraætt, m.a. lék hún smástelpu í myndinni E.T. og
einnig var hún eftirminnileg í myndinni „Firestarter“, þar sem hún
gat kveikt eld í hlutum með því einu að horfa á þá! Það mátti með
réttu kalla „brennandi augnaráð“.
Nú er Drew Barrymore orðin 14 ára og heilmikil dama, svo sem
sjá má á myndinni.
Nýlega kom hún í kvikmyndaverið þar sem verið var að mynda
sjónvarpsþáttinn Hasarleik (Moonlighting) með Bruce Willis og
Cybill Shepherd í aðalhlutverkum.
Drew kom þarna með yfirmanni fyrirtækisins, Glenn Caron,
sem er náinn vinur Barrymore-fjölskyldunnar. Caron kynnti
Drew fyrir aðalleikurunum, og það var eins og við manninn mælt,
að hin unga mær varð ástfangin upp fyrir haus af kvennagullinu
honum Bruce og hafði ekki augun af honum.
Hún gerði sér lítið fyrir og fór að koma í heimsókn á staðinn
þegar hún vissi að verið var að taka upp Moonlighting og elti Willis
eins og lítill hvolpur. Þetta fór að fara í taugarnar á stjörnunni.
Loks sprakk hann af illsku - þegar þessi 14 ára dama sendi
honum smáblómvönd og fylgdi með miði með fögrum orðum, þar
sem hún bað hann að bjóða sér út. Viðbrögð Willis urðu þau að
hann æpti að stjórnendum kvikmyndaversins:
- Komið henni í burtu, látið krakkann ekki vera hér, rekið hana
heim. Ég held að stelpan sé ekki almennileg að vera að eltast við
mig sem gæti verið pabbi hennar!
Þegar Drew frétti af móttökunum sem blómvöndurinn og bréfið
höfðu fengið varð henni svo mikið um að hún brast í grát.
Mótleikari Bruce Willis, hin fagra Cybill Shepherd, gerði grín
að honum fyrir að taka þetta svona alvarlega. „Hugsa sér annað
eins, að vera með þessi læti út af einni lítilli stelpu þó hún sé skotin
í þér! - Þú áttir að tala við hana sjálfur. Við hvað ertu hræddur,
- ertu maður eða mús?“ sagði hún.
Drew var orðin leikkona 8
ára. Nú er hún að grenna
sig og fara að leika í
„skvísu-hlutverkum“.
Úr
djúpi
gleymsk-
Aumingja Itruce Willis, sem var þó
öllu vanur í kvennamálunum, féll
allur ketill í eld þegar 14 ára stúlkan
elti hann á röndum og játaði honum
ást sína.
Þegar ástin grípur unglinginn...
Fjórtán ára smástjarna