Tíminn - 31.03.1988, Side 10

Tíminn - 31.03.1988, Side 10
10 Tíminri; Fimmtudagur 31. mars 1988 Illllllllllllllll ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllll HÁTÐ Á HLÍDARENDA - Valsmenn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í handknattleik með sigri á FH í stórkostlegum leik Valsmenn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í handknattleik með sigri á FH í stórkostlegum leik í íþróttahúsinu á Hlíðarenda í gærkvöldi. Lokatölur urðu 26-23 eftir að Valsmenn voru yfír í leikhléi 12-10. Leikurinn var mjög vel leikinn þrátt fyrir að vera svo mikilvægur og áhorfendur sem troðfylltu Valsheimilið skemmtu sér hið besta. „Ég er alveg í skýjunum,“ sagði Júlíus Jónasson stórskytta Valsliðsins eftir leikinn. „Það er ólýsanlegt að vinna titilinn og það á okkar heimavelli. Við viljum bikarinn líka, ég held að það sé rétt hjá mér að Valur hafí ekki unnið hann síðan 1972 og það er sannarlega kominn tími á það að vinna hann aftur.“ Valsmenn voru yfir allan leikinn þótt munurinn yrði aldrei mikill. Leikurinn var mjög fast leikinn á báða bóga en þó ekki gróft og varnarleikurinn góður. Leikmenn Vals áttu allir góðan dag en af LEIKURINN í TÖLUM VALDIMAR GRÍMSSON skoraði 10 mörk. Þar af voru 4 víti. Fjögur skot hans voru varin, hann fískaði eitt víti, náði knettinum einu sinni, átti eina sendingu sem gaf mark, var einu sinni rekinn af leikvelli í 2 mínútur og einu sinni var dæmd á hann lína. JÚLÍUS JÓNASSON skoraði 7 niörk. Eitt skot hans var varið og eitt víti einnig. Júlíus fiskaði tvö víti, átti eina línusendingu sem gaf mark og fékk að sjá gula spjaldið einu sinni. JAKOB SIGURDSSON skoraði 5 mörk úr jafn mörguin tilraunum. Einu sinni voru dæmd á hann skref og hann var einu sinni rekinn af leikvelli í tvær mínútur. ÞÓRÐUR SIGURÐSSON skoraði 3 mörk. Hann átti eitt skot framhjá og þrjú voru varin. Þórður fékk einu sinni dæmdan á sig ruðning. JÓN KRISTJÁNSSON skoraði 1 mark og átti eitt skot framhjá. Hann átti tvær sendingar sem gáfu mark, fiskaði eitt víti og tapaði knettinum einu sinni. GEIR SVEINSSON fiskaði eitt víti og átti eina sendingu sem gaf mark. ÞORBJÓRN GUÐMUNDSSON lék aðeins í vörninni. Hann fékk gula spjaldið einu sinni. EINAR ÞORVARDARSON varði 14 skot. Þar af voru 2 víti. Einar átti eina misheppnaða sendingu í hraðaupphlaupi. 68,4% sóknarnýting VALSMENN fengu 38 sóknir í leiknum og skoruðu 26 mörk sem er 68,4% sóknarnýt- ing. í fyrri hálfleik gerðu þeir 12 mörk í 18 sóknum (66,6%) og í þeim síöari 14 mörk í 20 sóknum (70,0%). Flest mörk úr hornum VALSMENN gerðu 26 mörk í leiknum. Þar af voru 7 gerð úr hornunum, 6 fyrir utan, 4 úr vítum, 3 með gegnumbrotum, 2 úr hraðaupphlaupum, 2 af línu og 2 þar sem stUlt var upp í aukakasti. - HÁ ÓSKAR ÁRMANNSS0N skoraði 9 mörk. Þar af voru 2 víti. Þrjú skot hans og eitt vítaskot voru varin. Óskar fékk gult spjald og var einnig rekinn af leikvelli í tvær mínútur. Hann átti cina línusendingu sem gaf mark, fisk- aði eitt víti og náði knettinum einu sinni. HÉDINN GILSS0N skoraði 6 mörk, öll í seinni hálfleik. Sjö skot hans voru varin, þar af 6 í fyrri hálfleik. Héðinn átti tvær línusendingar sem gáfu mörk. ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN skoraði 5 mörk úr jafn mörgum tilraunum. Hann fiskaði tvö víti og tapaði knettinum einu sinni. GUDJÓN ÁRNAS0N skoraði 2 mörk. Annað þeirra var vítakast. Tvö skota hans og eitt vítakast voru varin og hann átti eitt skot í slá. Guðjón fiskaði eitt víti. PÉTUR PETERSEN skoraði 1 mark. Hann átti eitt skot í stöng og eitt framhjá. Pétur var einu sinni rekinn af leikvelli í tvær mínútur. EINAR HJALTAS0N átti eitt skot i stöng. GUNNAR BEINTEINSS0N skaut tveimur skotum sem bæði voru varin. MAGNÚSÁRNASON varðiúskot, þar af eitt víti. BERGSVEINN BERGSVEINSSON varði 2 skot. 62,2% sóknarnýting FH-INGAR fengu 37 sóknir í leiknum og skoruðu 23 mörk sem er 62,2% nýting. Þeir gcrðu 10 mörk í 17 sóknum í fyrri hálfleiknum sem er 58,8% sókn- arnýting en í þeim síðari var nýtingin öllu betri eða 65,0% þegar FH-ingar skoruðu 13 mörk úr 20 sóknum. Tíu mörk fyrir utan FH4NGAR skoruðu sem fyrr sagði 23 mörk. Skytturnar léku þar stórt hlutverk því 10 mörk voru gerð fyrir utan. FH- ingar gerðu 4 mörk af línu, 4 mcð gegnumbrotum, 3 úr vítum, 1 úr horni og aðeins 1 úr hraðaupp- hlaupum sem eins og mönnum er knnnugt hafa verið helsta vopn FH liðsins í vetur. - HÁ mörgum góðum var Einar Þorvarð- arson bestur. Júlíus Jónasson og Valdimar Grímsson stóðu honum vart að baki og reyndar heldur ekki Jakob Sigurðsson, Geir Sveinsson og Jón Kristjánsson. Það var helst að veikt væri fyrir á hægri kantinum en Þórður Sigurðsson stóð þó alveg fyrir sínu. Þá var Þorbjörn Guð- mundsson traustur í vörninni. Með öðrum orðum toppleikur hjá topp- liði. „Við unnum þetta á varnar- leiknum held ég,“ sagði Júlíus Jón- asson eftir leikinn. „Þetta gekk mjög vel hjá okkur og sóknin var eins og hún hefur verið best í vetur.“ Hjá FH var Héðinn Gilsson seinn í gang en illstöðvandi í síðari hálf- leik, Óskar Ármannsson kórónaði gott tímabil með góðri frammistöðu og Þorgils Óttar Mathiesen var góð- ur á línunni. FH-ingar máttu bara sætta sig við það í gærkvöldi að mæta ofjörlum sínum. „Jú, þetta voru mikil vonbrigði,“ sagði Viggó Sig- urðsson þjálfari FH eftir leikinn. „Það verður bara að játa það að betra liðið sigraði. Markvarslan var öll þeirra megin. Þetta var betra dagsform hjá Val. Héðinn var mjög lengi í gang en hann hefur átt við meiðsl að stríða. Annars þýðir ekk- ert að vera að afsaka sig, þetta eru úrslitin og ég óska Valsmönnum til hamingju“. Helstu tölur: 1-0, 2-1, 3-2, 5-3, 6-5, 7-7, 9-7, 10-9, 11-10, 12-10 - 12-11, 15-13, 15-14, 18-14, 19-15, 20-17, 22-20, 23-20, 24-21, 25- 22, 25-23, 26-23. Mörkin, Valur: Valdimar Gríms- son 10(4), Júlíus Jónasson 7, Jakob Sigurðsson 5, Þórður Sigurðsson 3, Jón Kristjánsson 1. Einar Þorvarðar- son varði 14(2) skot. FH: Óskar Ármannsson 9(2), Héðinn Gilsson 6, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Guð- jón Árnason 2(1), Pétur Petersen 1. Magnús Árnason varði 6(1) skot og Bergsveinn Bergsveinsson 2. Brottrekstrar: FH-ingar voru utan vallar í 4 mín. og Valsmenn einnig. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Ólafur Ö. Haraldsson. Þeir dæmdu mjög vel. - HÁ Dæmigerð mynd fyrir leikinn í gærkvöldi, átökin óskapleg, ekkert gefið eftir en Valsmenn skrefinu á undan. Það er Geir Sveinsson fyrirliði Vals sem hér fer inn af línunni en Héðinn Gilsson reynir að stöðva hann. Niðurstaðan varð víti. Óskar Ármannsson fylgist með. Tímamynd Pjetur. Lokastaðan í 1. deild Valur 18 14 4 0 410-313 32 FH 18 14 3 1 507-402 31 Víkingur 18 11 0 7 459-419 22 Breiðablik 18 10 1 7 399-410 21 Stjarnan 18 8 2 8 429-438 18 KR 18 8 1 9 405-428 17 Fram 18 7 1 10 424-448 15 KA 18 5 4 9 391-400 14 ÍR 18 4 2 12 382-426 10 Þór 18 0 0 18 359-481 0 Síðasta umferðin fslandsmótinu í handknattleik lauk í gærkvöldi. Valsmenn keppa í Evrópukeppni meistaraliða, FH- ingar í Evrópukeppni félagsliða en Breiðablik sem er komið í úrslit bikarkeppninnar fer í Evrópukeppni bikarhafa þar sem Valsmenn eru þegar komnir í Evrópukeppni. Sigurður Gunnársson varð marka- hæsti leikmaður íslandsmótsins með 114 mörk eða rúm 6 mörk í leik að meðaltali. Leikur Vals og FH var sá eini í gærkvöldi sem einhverju breytti fyrir gang mótsins en tap Fram og sigur KR gerði það þó að verkum að KR færðist upp fyrir Fram í töflunni. Úrslit leikjanna í síðustu umferð- inni urðu þessi: Valur-FH...............26-23 Víkingur-Þór ..........30-27 UBK-ÍR ................24-23 Fram-Stjarnan .........23-32 KA-KR..................24-30 - HÁ Himinlifandi, ofsaglaðir, yfir sig ánægðir Valsmenn fagna sigri og íslandsmcistaratitli. Tiraamynd Pjetur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.