Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 31.03.1988, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 31. mars 1988 Tíminn 15 í tilefni af frétt er birtist í Tíman- um 25. þ.m. undir fyrirsögninni „Vilja veislu alla nóttina" þykir rétt að koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: Umrædd frétt fjallar um skemmt- anahald og meinta áfengisneyslu nem- enda í ónefndum grunnsköla fram undir morgun án afskipta lögreglu svo og tilraunir nemenda annarra grunnskólanema til næturskemmt- unar á hinum ýmsu skemmtistöðum borgarinnar. Reglur um skemmtanahald barna og ungmenna eru í reglugerð um vernd barna og ungmenna, en þar er kveðið svo á, að ungmennum yngri en 16 ára sé óheimill aðgangur og dvöl á almennum dansleikjum eftir kl. 20.00 öðrum en sérstökum ung- lingadansleikjum, sem haldnir eru m.a. af skólum. Sé um almenna unglingadansleiki að ræða, þar sem aldursmörk til inngöngu er 16 ára, er viðkomandi leyfishöfum skylt að fylgjast með því að aldursreglur séu haldnar að við- lögðum sektum og/eða missi leyfis til veitinga- eða skemmtanahalds. Ef hins vegar er til að dreifa Athugasemd f rá lög- reglunni í Reykjavík skemmtun sem haldin er á veitinga- stað og eingöngu ætluð ungmennum undir 16 ára aldri t.d. á vegum skóla, þ.e. grunnskóla, skal sækja um skemmtanaleyfi hjá lögreglustjóra. Slík leyfi eru ekki veitt nema fyrir liggi yfirlýsing um samþykki stjórn- enda viðkomandi skóla, enda er skemmtunin haldin undir umsjá þeirra og á þeirra ábyrgð. Hjá þessu embætti hafa grunn- skólanemar nokkrum sinnum sótt um leyfi til skemmtanahalds í veit- ingahúsum. Hafi þeir ekki lagt fram yfirlýsingu frá skólastjóra eða öðrum ábyrgum manni í yfirstjórn skólans hefur þeim undantekningarlaust ver- ið synjað um leyfi. Þess skal getið, að lögreglumenn og sérstakir eftirlitsmenn með veit- ingahúsum borgarinnar hafa reglu- bundið eftirlit með starfsemi veit- ingahúsa. Eftirlit þetta er m.a. fólgið í því að kanna hvort tilskilin leyfi lögreglustjóra séu fyrir hendi, að aldurstakmörk séu virt o.s.frv. Eins og kunnugt er eru á víð og dreif í borginni ýmiskonar húsnæði sem t.a.m. fyrirtæki ogfélagasamtök hafa til eigin afnota og er ekki ætlað öðrum til framleigu fyrir skemmtanahald. Húsnæði af þessu tagi er ekki á skrá hjá embættinu yfir veitingastaði sem reglubundið eftir- lit beinist að. Fari fram leyfislaust skemmtana- BÓKMENNTIR Vel ort smáljóð Piet Hein: Smáljóð (Korte Gruk), Auðunn Bragi Sveinsson íslensk- aði, Letur, Kópavogi 1987. Hér er á ferðinni íslensk þýðing á safni danskra smáljóða sem á frum- málinu nefnist Korte Gruk og er eftir höfund að nafni Piet Hein. Auðunn Bragi Sveinsson lýsir því skemmtilega í formála hvernig hann hafi fyrst kynnst verkum þessa hö- fundar á námskeiði sem hann sótti í dönsku og dönskum bókmenntum við Kennaraháskólann í Kaup- mannahöfn sumarið 1964. Kveðst hann hafa lært flest þessara ljóða smám saman og síðan tekið sig til og þýtt bókina í heild á íslensku. Birtast þýðingarnar hér, og dönsku ljóðin aftan við, svo að hægt er um saman- burð. Að því er sjá má hér einkennast dönsku ljóðin fyrst og fremst af því að þau eru stutt, og kannski framar öðru spakmælakennd. Höfundur kemur þar á framfæri ýmist stuttum athugasemdum eða jafnvel þver- stæðum, en innan hins knappa forms, sem hann beitir, stendur og fellur raunar allt með því að honum takist að koma lesendum sínum á óvart. Þetta tekst honum að vísu nokkuð misvel, eins og gengur, en stundum býsna vel. Vandi þýðandans verður hins veg- ar nokkru meiri, því að hann hefur valið sér að þýða undir stuðlum og höfuðstöfum að íslenskum sið, auk Auðunn Bragi Sveinsson. þess sem hann heldur rími. Þetta útheimtir vissulega að hann verður að umorða og yrkja upp á nýtt í ríkari mæli en ella. Eigi að síður má telja að honum takist hér yfirleitt býsna vel til. Sem dæmi má nefna smáljóð númer 73 sem er svona á dönskunni: Med skæven i næstens öje skal ingen brobygger regne. Broeme mellem os bygges af bjælkerne i vores egne. Þetta þýðir Auðunn Bragi: Með flísinni í annars auga vér aldrei reikna þorum. Brýrnar millum oss byggjast af bjálkum í augum vorum. Og góðar ráðleggingar til kennara eru í ljóði númer 84: Lærer burde den kun være, som kan lære ved at lære. Og Auðunn Bragi þýðir: Sá einn kennarí er sjálfsagt góður, sem verður af kennslunni vitur og fróður. 1 heild er hér vel að verki staðið, og raunar er alls ekki ósennilegt að bókina megi nota með góðum árang- ri sem hjálpartæki við dönsku- kennslu. Að vísu er álitamál hvort ekki hefði farið betur með það í huga að prenta danska og íslenska textann samhliða, til dæmis þannig að sömu ljóð hefðu fylgst að á gagnstæðum blaðsíðum bókarinnar út í gegn. En sú aðfinnsla er smá- vægileg, því að bókin er í heild bæði eiguleg og áhugaverð. -esig hald í slíku húsnæði á lögreglan erfitt um vik að hafa afskipti af málum nema henni sé annaðhvort gert viðvart eða hún komist sjálf að því eftir öðrum leiðum. Þannig var t.d. ástatt um fyrirhugaða miðnætur- samkomu nemenda eins grunnskól- anna í húsnæði að Vitastíg 3 aðfara- nótt föstudagsins 25. þ.m.. en lög- reglan stöðvaði hana eins og fram hefur komið í fréttum blaðsins. For- eldri eins nemanda hafði nefnilega áður gert lögreglunni viðvart og gat hún því gert sínar ráðstafanir í tæka tíð. Þess má geta að lögreglusjóra- embættið hafði synjað sömu nem- endum um leyfi til skemmtanahalds í cinu veitingahúsa borgarinnar. Foreldrar og skólamenn hafa náið samband við börn sín og nemendur og eru því í bestri aðstöðu til að fá vitneskju um uppátæki af því tagi sem frétt blaðsins snýst um. Brýnt er að góð samvinna ríki milli foreldra og skólamanna annars vegar og lögreglu hins vegar, svo unnt sé m.a. að stemma stigu við að grunn- skólanemendum takist að leigja sér húsnæði (eftir árshátíðir) og skemmta sér við dynjandi tónlist og glasalyftingar til kl. fimm um morg- uninn eins og frétt blaðsins hermir að hafi gerst. Þí er hér með beint til heimildarmanns blaðsins að hann hafi hið fyrsta samband við lögreglu og leggi þannig sitt af mörkum við rannsókn málsins. Signý Sen deildarlögfræðingur BLÖÐ OG TÍMARIT ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Lausar stöður á barnadeild Hjúkrunarfræðingar Barnadeild Landakotsspítala auglýsir námskeið í barnahjúkrun og skipulagða starfsaðlögun tímabil- ið júní-júlí-ágúst (3 mán), sem síðan verður endurtekið sept-okt-nóv. (3 mán) næsta haust. Auk starfsaðlögunar verður m.a. fræðsla um ýmsar nýjungar sem þróaðar hafa verið við barnadeildina. Upplýsingar veitir Alda Halldórsdóttir, hjúkrunar- ráðgjafi í síma 19600-238 f.h. þrið. og mi. og e.h. mán. fi. og fö. Laus er staða aðstoðardeildarstjóra frá 1. maí 1988. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Upplýsingar veitir Katrín Pálsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri í síma 19600-300. Fóstrur Barnadeild Landakotsspítala auglýsir 3ja vikna skipulagða starfsaðlögun fyrir fóstrur er vilja starfa á barnadeild. Upplýsingar veitir Alda Halldórsdóttir hjúkrunar- ráðgjafi í síma 19600-238 f.h. þri. og mi. og e.h. mán. fi. og fö. Reykjavík 29. mars 1988 Fjölbreytt efnisval Fyrsta hefti þessa árs af Tímariti Máls og menningar var að koma út. Til tíðinda má telja að þar hafa nú orðið ritstjóraskipti. Silja Aðal- steinsdóttir hefur látið af ritstjórn eftir sex ára starf en við tekið Guðmundur Andri Thorsson. Ekki verður annað sagt en að nýja ritstjóranum hafi tekist dável að skapa fjölbreytni að því er efni varðar í þessu fyrsta hefti sínu. Þar er sitthvað eftir ýmis af áhugaverðari skáldum okkar nú um stundir, svo sem ljóð eftir þá Sigurð Pálsson og Gyrði Elíasson, og einnig vel gerð og gamansöm smásaga eftir Þórarin Eldjárn. Líka birtir Óskar Árni Óskarsson þarna nokkrar ljóðrænar æskumyndir, svo sem í framhaldi af því sem hann hefur áður ort um sama efni og athygli hefur vakið. Annars er efni af erlendum toga töluvert áberandi í þessu hefti og jafnvel eilítið um of. Þar á nteðal má nefna stutta grein um William Morris, Breta sem meðal annars heimsótti ísland á öldinni sem leið og skrifaði um ferðina. Líka er þarna íslensk þýðing á erindi um nýju skáldsöguna sem Alain Robbe- Grillet flutti á bókmenntahátíð hér í haust leið, ásamt smásögu eftir hann. Hann flutti þetta erindi á frönsku, og gefst hér því væntanlega fleirum en þá færi á að kynna sér efni þess. Þá er þarna smásaga eftir franska skáldkonu, Daniéle Sallen- ave, ásamt viðtali við hana. Undir umræðu um íslenskar sam- tímabókmenntir má svo flokka tvennt. Annað er grein eftir Einar Má Guðmundsson rithöfund um það sem hann nefnir tossabandalagið, og á hann þar við ritdómara. Fá þeir þar býsna skemmtilega ádrepu, sem út af fyrir sig er ekki nema gott eitt um að segja. Er það enda síður en svo nýtt að rithöfundar hnýti í rit- dómara, þó að hitt sé svo aftur eins vel kunnugt að þess á milli bíða þeir yfirleitt spenntir eftir því sem þessir sömu ritdómarar segja í blöðum um bækur þeirra. Hitt er grein eftir Helgu Kress um skáldsöguna Tímaþjófinn sem Stein- unn Sigurðardóttir sendi frá sér fyrir rúmu ári. Athyglisvert er að Helga fjallar þar eingöngu um söguna út frá sjónarhóli kvennarannsókna, og í ljósi þess bendir hún á ýmsar túlkunarleiðir sem byggjast á því að bæði aðalpersóna og höfundur eru konur. Er það út af fyrir sig forvitni- legt, en á móti kemur að hún fæst þarna ekki við það listræna megin- einkenni þessarar sögu hvað hún er að stórum hluta til Ijóðræn, og getur þetta því ekki talist úttekt nema að hluta til á verkinu. Auk þess eru að vanda nokkrir ritdómar í heftinu um nýleg íslensk bókmenntaverk. í heild verður því ekki annað sagt en að Tímaritið í höndum nýs ritstjóra lofi heldur góðu að því er varðar forvitnilegt efni og hæfilega fjölbreytni í efn- isvali. Frágangur er góður, en þó hefur smáhluti greinar á bls. 48 verið tvíprentaður, sem eru óþörf mistök. -esig A AKREINA- SKIPTUM VEGUM á jafnan að aka á hægri akrein BÍLALEIGA meö útibú allt í kringum landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.