Tíminn - 07.06.1988, Síða 3
ÞríÖjúdagúr V. júni 1988
Tíminn 3
Festi fingurinn
í karlaklósetti
íslenskir og erlendir læknar urðu
að grípa til stórvirkra verkfæra á
sunnudag, þegar þeir björguðu
löngutöng lítillar stúlku úr heldur
ógeðfelldri prísund.
Stúlkan, sem er á þriðja ári, elti
pabba sinn inn á karlaklósett á
veitingastað við þjóðbraut. Hún fór
svo að fikta við urinalskálarnar svo-
kölluðu og óðara festi hún fingurinn
í niðurfallinu. Læknir, sem var á
ferð með útlendum starfsbræðrum
sínum og var að sýna þeim náttúru-
fegurð Islands í ausandi rigningu,
tók eftir þessu og kom þegar til
hjálpar.
Raunar hlupu allir matargestir á
veitingastaðnum upp til handa og
fóta og söfnuðust skjótt saman á
karlaklósettinu, þar sem hin ógæfu-
sama litla stúlka var föst í skálinni.
Eftir nokkra mæðu tókst að losa
niðurfallið úr járni frá postulínum-
gjörðinni, en fingurinn var nú afar
þrútinn og þess vegna tókst ekki að
smokra niðurfallinu fram af honum.
Stúlkan var því flutt á bak við
afgreiðsluborðið og inn í eldhús, en
sú stutta hljóðaði ekki, þótt henni
blæddi.
Læknarnir réðu nú ráðum sínum.
Vöfðu þeir fingurinn með einangr-
unarlímbandi og báðu um að þeim
yrði útveguð sög. Undir eins fór einn
áhorfendanna á stúfana og kom að
vörmu spori með gríðarmikla járn-
sög og önnur verkfæri. Hófst nú
aðgerðin. Sagarblaðið var tekið úr
boganum og járnið sagað í sundur,
en límbandið varði fingurinn. Þá var
teygt og togað á niðurfallinu með
töngum. Það þótti þeirri litlu óþægi-
legt og mótmælti hástöfum.
En um leið losnaði fingurinn.
Stúlkan hlaut einungis lítið sár og
gleymdi því um leið og henni var
réttur stór og kaldur ís, sem-eigandi
veitingastaðarins gaf henni í sára-
bætur. þj
Brennuvargur dæmdur í gæsluvarðhald
fyrir íkveikju í fjölbýlishúsi:
Kveikti í íbúð
fyrrum eiginkonu
Maður á þrítugsaldri hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6.
júlí en hann hefur játað að hafa
kveikt í íbúð fyrrverandi eiginkonu
sinnar sl. sunnudagsmorgun. Kon-
an var ekki heima og urðu engin
slys á fólki. Manninum verður gert
að sæta geðrannsókn.
Slökkviliðið var kvatt að Torfu-
felli 31 kl. 05.30 á sunnudagsmorg-
un en þá loguðu eldtungur út um
glugga á íbúð á fjórðu hæð blokk-
arinnar, á norðurhlið hússins. Mik-
ill reykur breiddist um húsið og
fólk í nærliggjandi íbúðum forðaði
sér út á svalir hússins. Þaðan var
því hjálpað niður.
Eldurinn logaði í tveimur her-
bergjum íbúðarinnar og voru þrír
reykkafarar sendir inn en íbúðin
reyndist mannlaus. Maðurinn seg-
ist hafa kveikt í með kveikjara og
er íbúðin mikið skemmd af völdum
brunans og vatnsins. JIH
Maður féll útbyrðis af báti við Djúpavog:
Leit hefur ekki
borið árangur
Leitað hefur verið síðan sl. laugar-
dagskvöld að 35 ára gömlum manni
sem féll útbyrðis af gúmbjörgunar-
báti við mynni Hamarsfjarðar. Hann
var að selflytja fólk milli Þvottáreyju
og Djúpavogs þegar slysið varð.
Maðurinn hafði verið við dúntekju í
eyjunni ásamt prestinum á Djúpa-
vogi og var á leiðinni út í eyjuna til
að ná í hann og börnin hans.
Börnin tóku eftir því að báturinn
var farinn að snúast og reyndist hann
vera mannlaus. Presturinn skaut upp
neyðarblysi og var þá strax sendur
bátur frá Djúpavogi að leita
mannsins. Allirbæjarbúar voru kall-
aðir út til leitar og sent var eftir þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Hún var kom-
in kl. 5 á sunnudagsmorguninn og
leitaði í fjóra tíma úr lofti, án
árangurs, þrátt fyrir mjög góðar
aðstæður.
Leit var haldið áfram á sunnudag-
inn úr bátum og fólk gekk fjörur.
Þrír kafarar voru sendir austur frá
björgunarsveitinni Ingólfi í Reykja-
vík en erfiðlega gekk að kafa vegna
þess hversu straumhart var á svæð-
inu. Staðurinn hefur einnig verið
slæddur.
Björgunarsveitin á Djúpavogi og
Björgunarfélagið Höfn á Horna-
firði, hafa, ásamt bæjarbúum á
Djúpavogi, haldið leitinni áfram
síðan, bæði á landi og sjó, en síðast
þegar Tíminn frétti var mannsins
enn saknað. JIH
Varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins í heimsókn á íslandi:
Einn markaður lækkar verð
Varaforseti framkvæmdastjórnar
Evrópubandalagsins Dr. Karl-Heinz
Narjes, sem jafnframt fer með iðn-
aðar og rannsóknarmál í fram-
kvæmdastjórn bandalagsins var í
heimsókn hér á landi fyrir skömmu
í boði iðnaðarráðherra til að eiga
viðræður við forsvarsmenn íslensks
iðnaðar, aðila á sviði rannsókna- og
þróunarmála og útflutningsaðila til
að kynna sér það sem hér er að
gerast og átta sig á því hver staða
íslendinga er með tilliti til þess
sameiginlega markaðar Evrópu-
bandalagsins sem ætlunin er að verði
orðinn að veruleika árið 1992, enda
er það framtíðarmarkmið EB og
EFTA að Evrópa verði ein heild.
Árið 1985 ákváðu forystumenn
Evrópubandalagsins að innan sjö
ára, eða 1992 yrði EB einn sam-
ræmdur innri markaður 12 ríkja, þar
sem búa yfir 320 milljónir manna.
Narjes sagði, á fréttamannafundi
sem haldinn var í tilefni af komu
hans hingað til lands að fram-
kvæmdastjórnin hefði afmarkað um
300 tillögur sem hafa það að mark-
miði að aflétta hömlum af viðskipt-
um, fjárfestingu og fjármagnshreyf-
ingum, svo og flutningum fólks inn-
an ríkja bandalagsins sem þyrfti að
taka ákvarðanir um áður en hinn
innri markaður yrði að veruleika.
Narjes sagði að tillögurnar 300
færu allar í gegnum 3 stig áður en
þær kæmu til framkvæmda og taldi
hann að 90% þessara tillagna þyrftu
að hafa farið í gegnum fyrsta stigið
fyrir lok þessa árs. Nú þegar eru um
70 tillögur á lokastigi afgreiðslu, en
um 18 tillögur hafa þegar verið
undirritaðar.
Vöruverð lækkar um 6%
Hvað varðar þau áhrif sem sam-
eiginlegur innri markaður Evrópu
hefði á efnahagsþróun landanna,
sagði Narjes að búast mætti við að
framleiðsla innan EB aukist um
4,5% næstu 5 til 6 árin eftir 1992 og
á sama tíma ætti verðlag að lækka
um 6%. Hvað fjölgun starfa varðar
er áætlað að til sögunnar komi á milli
2 til 5 milljónir nýrra starfa á þessu
sama tímabili. Búist er við að við-
skiptabati verði 1% og minnkun
ríkishalla 2,2%.
Um þessar mundir eru Islendingar
að gerast aðilar að sérstöku stöðlun-
arkerfi sem ríkir meðal þjóða innan
EB, þannig að vörur okkar þurfa
ekki, eins og áður að fara til sérstakr-
ar prófunar í því landi innan EB sem
ætlunin er að flytja vöruna til.
Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra sagði að þessi markaður væri
okkur fslendingum mjög mikilvæg-
ur, enda væri hann öflugasti markað-
ur okkar í dag, mun stærri en
Bandaríkja- og Japansmarkaður til
samans. Sum fyrirtæki utan EB
svæðisins eru farin að kaupa sér hlut
í fyrirtækjum innan svæðisins til að
tryggja viðskiptastöðu sína. Sagði
Friðrik að vegna þess hversu stór-
kostlegir hlutir væru að gerast þarna
úti, yrðu íslensku fyrirtækin að vera
miklu samkeppnisfærari heldur en
áður. Við þurfum jafnvel að biðja
fyrirtæki innan EB að fjárfesta hér,
þar sem við teljum okkur hafa gagn
af. Jafnvel kemur til greina í framtíð-
inni að við gerum eins og önnur
fyrirtæki eru að gera í löndum sem
eru utan bandalagsins að kaupa
okkur inn í fyrirtæki í bandalaginu
til að tryggja viðskiptaaðstöðu
okkar.
Við þurfum, sagði Friðrik, að
breyta okkar viðskiptaháttum og
útbúa okkar löggjöf þannig að við
komumst inn á þennan markað ein-
hverntíma í framtíðinni en sitjum
ekki eftir. Það er betra að fylgjast
vel með því sem er að gerast og vera
tilbúin til að taka þátt í þessu
samstarfi ef við viljum. -ABÓ
F.v. Árnl Þ. Árnason skrífst.st. í iðnaðarráðuneytinu, Mr. Domes, Dr. K.H. Narjes, Fríðrik Sophusson iðnaðarráðherra, Páll Flygenring ráðuneytisstjóri og Halldór J. Krístjánsson lögfr.
(Tímamynd Pjetur)